Morgunblaðið - 17.10.1979, Síða 13

Morgunblaðið - 17.10.1979, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 13 íslendingurinn Breki dæmdur bezti hundurinn -áfjölsóttri hundasýn- ingu í Mos- fellssveit Guðrún Guðjohnsen, sem sœti á í sýningarnefnd, afhenti verðlaun fyrir bezta árangur í ræktun, en þau hlaut Golden-Retrivertikin Heba, lengst til vinstri, og flokkur afkvæma hennar. Ljósm. Mbi. f.p. „ÍSLENDINGURINN“ Breki var dæmdur bezti hundur sýn- ingarinnar á hundasýningu Ilundaræktarfélags íslands að Varmá í Mosfellssveit á sunnu- daginn. Næstbeztur var Labra- dortíkin Perla. Golden Retri- ver-tíkin Heba og afkvæmi hennar fengu verðlaun fyrir bezta árangur í ræktun og bezta tík með afkvæmi var valin islenzka tíkin Perla. Fimm hundar fengu islenzkan meist- aratitil og fjórir varatitil sem meistarar. Sýningin fór þannig fram, að dæmt var sérstaklega í flokkum hvolpa, tíka, hunda og öldunga í hverri tegund. Síðan var dæmt um bezta hund tegundarinnar og í lok sýningarinnar komu fram sigurvegarar allra tegundanna og kepptu innbyrðis um titilinn „bezti hundur sýningarinnar." Islenzkan meistaratitil hlutu: íslenzka tíkin Perla, eigandi Elín Þorsteinsdóttir, íslenzki hundurinn Breki, eigandi Kári Sigurbergsson, Labradortíkin Perla, eigandi Hallgrímur Jón- asson, Golden-Retriverhundur- inn Sunnudals-Baldur, eigandi Áslaug Þórhallsdóttir og Gold- en-Retrivertíkin Sunnudals- Sara, eigandi Eygló Magnúsdótt- ir og Jón Gunnarsson. Varatitil hlutu: íslenzka tíkin Polly, eig- andi Svala Hauksdóttir, íslenzki hundurinn Kátur, eigandi Guð- jón Stefánsson, Labradortíkin Bella, eigandi Stefán Gunnars- son og Golden-Retrivertíkin Björtperla, eigandi Einar Sindrason. Sigurvegarar í hverri tegund voru: íslenzki fjárhundurinn: Breki, eigandi Kári Sigurbergs- son; Labrador: Perla, eigandi Hallgrímur Jónasson; Golden-Retriver: Sunnudals- Baldur, eigandi Áslaug Þórhalls- dóttir; írskur setter: Snúra, eig- andi Karl Friðrik Kristjánsson; Poodle: Bossi, eigandi Vil- helmína Vilhelmsdóttir; Collie: Gladers Urban Eddie, eigandi Steinunn Paulsdóttir; Yorkshire Terrier: Gússý, eigandi Emilía Sigursteinsdóttir; Papillion: Sil- verlasse, eigandi Sigurjón Jóns- son; Maltese: Mjöll, eigandi Guð- Bezti hundurinn — Breki, með hreyknum umsjónarmanni sinum á sýningunni, Kristjáni Kárasyni, sem er sonur eiganda Breka, Kára Sigurbergssonar. „Er ég ekki fín,“ gæti Maltese- tikin Mjöll verið að segja og áreiðanlega eru allir sammála þvi. rún Lárusdóttir; Pekingese: Trína, eigandi Halldóra Guð- mundsdóttir og Jónas Guðvarð- arson. Flokkar íslenzku hundanna og labradoranna voru langstærstir á sýningunni, en alls mættu til keppni á annað hundrað hundar. Fjölmenni áhorfenda var á sýn- ingunni. íslenzka tíkin Tína sýndi listir sínar milli dómatriða undir stjórn eiganda síns Sigur- björns Bárðarsonar og Labra- dorhundurinn Vífils Neró sýndi stökkæfingar og sótti ímyndaða veiðibráð fyrir eiganda sinn, Ásgeir Einarsson. Dómari á sýningunni var brezkur veiðihundasérfræðing- ur, Ernest Froggatt. í viðtali við blm. Mbl. sagði hann að þetta væri í fyrsta sinn sem hann kæmist í kynni við íslenzka hundinn. „Þetta eru mjög góðir hundar að mínu mati og sér- staklega fallegir. Sigurvegari sýningarinnar, Breki, er til að mynda úrvalshundur og með þeim fallegri sem ég hef séð. Þetta er hundategund, sem ykk- ur ber að varðveita." Froggatt sagði einnig, að miðað við hversu Hundaræktarfélagið væri ungt að árum væri árangurinn ekki slæmur. Hann lýsti furðu sinni á afstöðu íslenzkra yfirvalda til hundahalds og sagði: „Mér skilst að ykkur sé heimilt að eiga mótorhjól í höfuðborginni en ekki hunda. Ég er viss um, að hávaðamengun og óþrif eru ekki minni af þeim farartækjum en hundum. Það er eitthvað bogið við þetta. Auðvitað eiga að vera strangar reglur um hundahald, en allt eftirlit hlýtur að vera erfitt með hundum, sem ekki hafa heimild til að vera til og þessar öfugsnúnu reglur bjóða að mínu áliti heim þeim hættum, sem mér skilst að verið sé að reyna að koma í veg fyrir. Froggatt sagði einnig, að hér- lendis væri að finna marga góða hunda og sagði það sína sögu, að hann hefði dæmt fimm hunda meistaratitli á sýningunni og fjóra varameistaratitli, en til að hljóta slíkan titil þarf að hans sögn mikið til. Hundaræktarfélag íslands er 10 ára um þessar mundir. Að sögn forráðamanna þess er fyrirhugað að slíkar sýningar verði haldnar reglulega í fram- tíðinni. Irar eru svín Chicago. 16. okt. Reuter. DÁLKAHÖFUNDUR bandaríska stórblaðsins Sun-Times í Chicago skrifaði í dag að í ferð Margrétar Bretaprinsessu til Bandaríkjanna hefði hún kallað íra svín. Prins- essan sat til borðs með Jane Byrne, borgarstýru Chicago, í mikilli veizlu þegar talið barst að morði Mountbattens jarls. Þá á Margrét prinsessa að hafa sagt: „írar. Þeir eru svín.“ Og síðan, þegar hún áttaði sig: „Ó, ó — þú ert írsk.“ Sagan segir að borgar- stýran hafi yfirgefið samkvæmið við fyrsta tækifæri. Carter hreinsaður Washington. 16. október. Reuter. AP. JIMMY Carter, forseti Banda- ríkjanna. og bróðir hans, Billy Carter, voru í dag heinsaðir af áburði um fjármálamisferli við hnetufyrirtæki sitt í Georgíu. Eftir sjö mánaða samstarf rann- sóknarnefndar þótti ekki ástæða til málssóknar. Forsetinn bar vitni fyrir nefndinni. Vitnisburð- ur hans var trúnaðarmál. 275 slösuðust í járnbrautar- slysi Filadolfíu. 1G. október. — AP. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 275 manns siösuðust í járnbrautarslysi í Fíla- delfíu í dag. Þrjár lestir voru í slysinu. Fjarstýrð lest lenti á kyrrstæðri lest og ruddi henni áfram á þriðju lestina. Orsakir slyssins voru ekki ljósar. Fjórir bílar urðu fyrir lestarvögnum. Rækjustríð Breta og Frakka París. 16. ágúst. Reuter. BREZKT varðskip tók í dag franskan togara að veiðum innan brezkrar landhelgi. Franski sam- göngumálaráðherrann kallaði brezka sendiherrann í París á sinn fund og mótmælti töku togarans. Þjóðirnar eiga í deilu um rétt Breta til að loka rækju- miðum í Norðursjó þar eð þau eru bæði meðlimir EBE. Frakkar hafa mótmælt sektum. sem franskir togarar hafa verið látn- ir greiða. en jafnframt skuld- bundið sig til að tryggja útgerð- ina fyrir fjársektum. Deila Breta og Frakka gengur undir nafninu ..rækjustríðið". en miðin sem Bretar lokuðu eru hefðbundin rækjumið franskra togara. Leiðtogar framvarða- ríkjanna þinga Dar Es Salaam. 16. október. Reuter. AP. LEIÐTOGAR framvarðaríkjanna svonefndu halda á morgun fund til að ræða stöðuna í stjórnlagavið- ræðunum í Lundúnum. Julius Nyerere, forseti Tanzaníu, sagði að sú snurða sem nú væri hlaupin á þráðinn, stafaði af misskilningi á bótum til hvítra landeigenda í Zimbabwe-Ródesíu. Þeir Joshua Nkomo og Robert Mugabe, leiðtog- ar skæruliða, ákváðu í dag að taka áfram þátt í stjórnlagaviðræðun- um. Skæruliðar hafa sett sig á móti því að greiða hvítum landeig- endum bætur fyrir eignarnám á landi. Carrington, lávarður, bauð aðstoð Breta við að greiða landeig- endum bætur en þeir höfnuðu því. Litið er á fund leiðtoga framvarðaríkjanna sem tilraun þeirra til að fá skæruliða til að fallast á tillögur Breta. ■ ■■ 1 ERLENT HAFSKIP H.F. HOLLAND Enn ný þjónusta Hafskip h/f viö innflytjendur og útflytjendur. Höfum nú hafiö reglulegar siglingar meö „bretta — gáma — ro/ro“ skipi til Rotterdam Lestum annan hvern fimmtudag, næstu lestunardagar eru: „Borre“ 18. október „Borre“ 1. nóvember „Borre“ 15. nóvember „Borre“ 29. nóvember Umboösmaöur er: Pakship BV, van Weerdenpoelmanweg 25—31 Telephone: 302911/ Telex: 28564. Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafskips h/f. Sími: 21160 Telex: 2034

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.