Morgunblaðið - 17.10.1979, Side 18

Morgunblaðið - 17.10.1979, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 Frá jarðskjálftasvæðinu — múrsteinar úr byggingu hafa hrunið yfir bíla. simamynd ap. Öflugasti skjálfti í Kaliforníu í 40 ár Einn beið bana og 100 slösuðust E1 Centro, Kaliforníu, 16. október — AP, Reuter Romero steypt í E1 Salvador San Salvador, 16. október — AP, Reuter. HIN nýja stjórn í E1 Salvador, sem i gær komst til valda með byltingu, sem þó var án blóðsút- hellinga, og steypti af stóli Carl- os Humberto Romero, forseta iandsins, nam í dag stjórnarskrá landsins úr giidi og bannaði mótmælafundi. Komið hefur ver- ið á byltingarráði, fimm manna. í tiikynningu hersins i dag sagði, að almennir borgarar yrðu i meirihluta i byltingarráðinu til að „tryggja lýðréttindi i land- inu,“ eins og það var orðað. Friðsamt var í dag í San Salvador, höfuðborg landsins. Tal- ið er að forsprakkar byltingarinn- ar séu hófsamari en Romero. Róstur hafa verið í landinu síðan í maí þegar vinstrisinnaðir skæru- liðar tóku dómkirkjuna í San Salvador og tvö ráðuneyti. For- sprakkar byltingarinnar, Jaime Gutierrez og Adolfo Najono, hafa hvatt til stillingar í landinu og heitið að koma á lýðveldi. Veður Akureyri 3 alskýjaó Amtterdam 12 skýjað Aþena 29 skýjaö Barcefona 16 alskýjað Berlín 14 skýjað BrUssel 15 akýjað Chícago 18 skýjað Frankfurt 17 skýjað Genf 15 skýjað Helsinki 12 skýjað Jerúsalem 26 lóttskýjaö Jóh.borg 26 léttskýjað Kaupm.höfn 13 skýjað Lissabon 18 rigning London 16 léttskýjað Los Angeles 23 skýjað Madríd 13 rigning Malaga 19 léttskýjað Mallorca 20 alskýjað Miami 27 rigning Moskva 17 léttskýjað New York 17 léttskýjað Ósló 11 rigning París 16 skýjað Reykjavík 3 slydda Rio de Janeiro 30 skýjað Rómaborg 25 heiðskírt Stokkhótmur 12 rígning Tel Aviv 28 léttskýjað Tókýó 24 léttskýjað Vartcouver 15 skýjað Vínarborg 20 skýjað UM fimm þúsund manns höfðust við úti i nótt í borginni E1 Centro i Kaliforniu af ótta við annan jarðskjálfta á svæðinu. Einn beið bana og um 100 slösuðust i jarðskjálftanum i gær við landa- mæri Bandaríkjanna og Mexikó. Flestir þeirra sem slösuðust voru útskrifaðir af sjúkrahúsi i dag, beggja vegna landamæranna. Jarðskjálftinn mældist 6.5 stig á Ricter, nógu sterkur til að valda miklum skaða i borg. Jarðskjálft- inn er hinn öflugasti i 40 ár. í maí 1940 fórust niu manns á sama svæði, sem er yfir San Andreassprungunni. Smáir skjálftar fundust í allan dag. Skýjakljúfar í Los Angeles, um 350 kílómetra norðvestur af upptökunum, hristust í skjálftan- um. Við upptökin skemnidust híbýli fjölmargra, vegir skemmd- ust, gas- og vatnsleiðslur fóru í sundur, rafmagnslínur slitnuðu og gluggarúður brotnuðu. Tölur um tjón lágu ekki endan- lega fyrir en talið er að tjónið skipti milljónum dollara. Neyðar- Stokkhólmi, 16. október — AP, Reuter SÆNSKA akademían úthlutaði í dag Nóbelsverðlaunum í hag- fræði. Þau féllu í ár í skaut tveggja prófessora við banda- ríska háskóla, Sir Arthur Lewis, 64 ára gamals prófessors við Princetonháskóla, og Theodore Schultz, 77 ára gamals prófessors við háskólann í Chicago. í grein- argerð akademiunnar segir, að þeir fái Nóbelsverðlaunin i hag- fræði vegna rannsókna sinna á efnahagsvanda þróunarland- anna. „Báðir skilja vel þarfir þróunarlanda og hafa einbeitt sér að því að finna iausn á efnahagsvanda þeirra,“ segir ástandi hefur verið lýst yfir á svæðinu við upptök skjálftans. Slökkviliðsmenn unnu í dag við að ná um 340 þúsund lítrum af flugvélabenzíni úr tönkum sem skemmdust. m.a. í greinargerð akademíunn- ar. „Þeir hafa komið fram með dirfskufullar kenningar um breytta efnahagsstefnu þróunar- landa," segir m.a. í greinargerð- inni. Sir Arthur Lewis fæddist á eynni Sankti Lucia í V-Indíum. Hann var fyrsti bankastjóri þróunarbanka ríkja í Karabíska hafinu. Sir Arthur kom fyrir 20 árum fram með tvö þekkt fræðileg líkön að vandamálum þróunar. Síðustu ár hefur hann einkum unnið að rannsóknum á sambandi ríkra og fátækra þjóða frá 1870 til 1965. Tveir deildu Nóbels- verðlaunum í hagfræði Þetta gerðist 1978 - Jóhannes Páll páfi II tekur við völdum. 1977 — Vestur-Þjóðverjar taka flugvél Lufthansa með áhlaupi og bjarga 86 gíslum. 1976 — Ekkja Maos sökuð um að hafa flýtt fyrír dauða hans. 1975 — Hassan konungur II og Marokkómenn sækja inn í Spænsku Sahara. 1%8 — Tilkynnt að ekkja Kennedys giftist Onassis. 1945 — Peron hrifsar völdin í Argentínu og verður einvaldur. 1937 — Óeirðir í Súdetahéruð- unum. 1933 — Albert Einstein kemur til Bandaríkjanna og fær hæli. 1931 — A1 Capone fær 11 ára dóm fyrir skattsvik. 1927 — Fyrsta stjórn norska Verkamannaflokksins mynduð. 1913 — Serbar ráðast inn í Albaníu. 1912 — Tyrkir segja Búlgörum og Serbum stríð ^hendur. 1899 — Búár sigraðir við Glen- coe. 1855 — Henry Bessemer fær einkaleyfi á framleiðslu á stáli. 1854 — Bretar og Frakkar hefja umsátrið um Sevastopol á Krím. 1813 — Rínarsamband Napo- leons Bonapartes leyst upp. 1797 — Friður Frakka og Aust- urríkismanna í Campio Formio — Napoleon skipaður yfirmaður liðs til innrásar í England. 1777 — Brezki hershöfðinginn John Burgoyne gefst upp fyrir Bandaríkjamönnum í Saratoga. 1748 — Frkkar aflétta umsátri um Englendinga í Pondicherry, Indlandi. 1662 — Karl II selur Frökkum Dunkirk. Afmæli. John Wilkes, enskur stjórnmálaleiðtogi (1729—1797) — Athur Miller, bandarískur leikritahöfundur (1915— ) — Rita Hayworth, bandarísk leik- kona (1918— ). Andlát. Sir Phiiip Sidney, her- maður & rithöfundur, 1586 — Frederic Chopin, tónskáld, 1849. Innient. Kötlugos 1755 — Elds- umbrot í Dyngjufjöllum 1922 — Gígurinn Hrekkur gýs í öskju 1961 — Sjö Petsamofarar kyrr- settir í Reykjavík 1940 — d. Steinvör Sighvatsdóttir á Keld- um 1270 — Björn Bénediktsson í Hítardal 1828. Orð dagsins: Peningaskortur er undirrót alls ills — Geórge Bernard Shaw, írskur leikrita- höfundur (1856—1950). Theodore Schultz er einkum þekktur fyrir rannsóknir sínar á þætti landbúnaðar í efnahagskerf- inu. Þeir hafa ekki starfað saman en í umsögn akademíunnar segir, að störf þeirra styðji kenningar hvors annars. HM í bridge: ítalir taka forystuna Rió de Janeró 16. okt. ÍTALIR tóku forystuna í heims- meistaramótinu í bridge í 11. um- ferðinni þegar þeir unnu Banda- rikjamenn 19—1 og er það i fyrsta sinn sem Italir taka forystu i keppninni. Bandaríkjamenn féllu í þriðja sæti í keppninni. ítalir hafa örugga for- ystu, eru með 142,5 stig. Astralíu- menn eru með 129 stig og Bandaríkja- menn eru með 126 stig. Aðrar þjóðir koma vart til greina í aðalkeppnina sem er einvígi-milli tveggja efstu þjóða. Mið-Ameríka hefir 98 stig, Taiwan hefir 77,5 stig og fyrrum heimsmeistarar eru nú komnir í neðsta sætið með 70 stig. Kommún- istartapa enn fylgi áítalíu Róm, 16. október AP, Reuter KOMMÚNISTAR á ítaiiu misstu fylgi í sveitarstjórn- arkosningum, sem fram fóru á Ítalíu um helgina. Kosið var í 41 bæ á ítaliu. Komm- únistar fengu 25,5% at- kvæða í bæjarstjórnarkosn- ingunum um hclgina, sem er 2,9% fylgistap frá þingkosn- ingunum i sumar en þá tapaði flokkurinn fylgi í fyrsta sinn frá stríðslokum. Kristilegir demókratar misstu einnig fylgi á Ítalíu um helgina, en aðeins 0,5%. Kristilegir demókratar fengu 39% greiddra atkvæða en atkvæðamagn þeirra frá síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum í sömu bæjum jókst um 0,5% Sósíalistar juku enn fylgi sitt. Þeir fengu 16% atkvæða eða 5% aukningu frá þing- kosningunum í sumar. At- kvæðisbærir voru 345 þúsund manns, eða innan við 1% atkvæðisbærra manna í land- inu. Engu að síður þykja þessi úrslit vera vísbending um frekara fylgistap komm- únista til sósíalista og ann- arra smærri flokka. Skrílslœti íkjölfar tilræðis viðMintoff Valetta, 16. október AP, Reuter Stuðningsmenn Dom Mintoffs, forsætisráðherra Möltu, gengu berserksgang eftir tilræði við hann i gær. Þeir réðust á skrifstofur þriggja andstöðuflokka Mintoffs og báru eld að þeim. Þá réðust þeir að ritstjórnarskrifstofum blaðsins The Times, sem er gefið út á ensku og hét áður „The Times of Malta“, og kveiktu einnig þar i. Ekki létu þeir staðar numið við það. Múgurinn réðst að heimili formanns Þjóðar- flokksins, dr. Edward Fen- ech Adamis. Hann var ekki heima er múgurinn réðst að heimili hans. Þess i stað misþyrmdu þeir konu hans, að því er talsmaður Þjóðar- flokksins skýrði frá. ' Tilræðið við Dom Mintoff átti sér stað aðeins nokkrum klukkustundum áður en hefj- ast átti fundur í tilefni af 30 ára valdatíð Verkamanna- flokksins á Möltu. Dom Mint- off birtist stutta stund á fundinum og fagnaðu múgur- inn honum ákaft og veifaði stórri mynd af honum. Síðan var haldið af stað og spell- virkin unnin með fyrrgreind- um afleiðingum. Enginn slas- aðist í óeirðunum en mikið eignatjón varð. ■ ■■ ' ERLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.