Morgunblaðið - 17.10.1979, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.10.1979, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 t þÓRUNN JÓNSDÓTTIR frá Ekru Efstasundi 43, Rsykjavík andaöist 15. þessa mánaöar. Systkinin. Faöir minn t ÁSGEIR MARINÓ EINARSSON Hátúni 12 er látinn. Logi Ásgeirsson t HULDAR SMÁRI ASMUNDSSON. aálfrœðingur, Mávahlíö 23 er lézt 9. október verður jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. október kl. 3. Fyrir hönd systkina og vandamanna. Ásmundur Bjarnason Björg Siguröardóttir Sigvarður Ari Huldarsson Hróöný María Huldarsdóttir Eöna Hallfriður Huldarsdóttir. + Bróðir okkar, mágur og frændi, FINNBOGI JONSSON Njaröargötu 27, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 18. október kl. 10.30 f.h. Fyrir hönd aðstandenda. Elísabet Jónsdóttir Leifur Jónsson Guórún Jónsdóttir Þórarinn Jónsson Sigurjón Jónsson Ingiberg F. Gunnlaugsson. t Otför föður míns, tengdafööur, bróður og afa, ÓLAFS ÓLAFSSONAR, fyrrverandi yfirlæknis, frá Stykkishólmi fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. þessa mánaöar kl. 13.30. Katla Ólafsdóttir Kristján Jensson Þórunn Ólafsdóttir Sigrún Ragnarsdóttir Ólöf Ragnarsdóttir Ólafur Helgi Helgason. t Móðir okkar, tengdamóöir og amma KRISTJANA þORSTEINSDÓTTIR Melum Kópaskeri veröur jarðsungin frá Snartastaöakirkju laugardaginn 20. október kl. 2. Þorsteinn Jónsson Ástfríóur Jónsdóttir Sveininna Jónsdóttir Árni Jónsson Skúli Þór Jónsson Hólmfríóur Jónsdóttir Hafliöi Jónsson og barnabörnin. Lára Gunnarsdóttir Högni Gunnlaugsson Sigurgeir ísaksson Jóna S. Óladóttír Heiðrún Hallgrímsdóttir Jón H. Guðmundsson Guórún E. Magnúsdóttir t Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa JÓNSJÓNSSONAR klæðskera, fré isafirði Margrét Jónsdóttir Kristín Jónsdóttir Þórarinn Jónsson Siguröur Albert Jónsson og barnabörn. Skafti Jósefsson Sigmundur Guómundsson Hanna Bjarnadóttir Sigrún Óskarsdóttir t Þökkum auðsýnda samúö við andlát og jaröarför BJÖRGVINS V. MAGNÚSSONAR Frumskógum 13, Hverageröi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks deild 4C, Landspítalan- um. Vandamenn. Séra Þorsteinn Lúther Jónsson -Minnmgarorð Árin, sem við áttum samleið voru ekki mörg. Sumarið 1975 kom ég til Vestmannaeyja, nývígður, til að þjóna Ofanleitissókn með séra Þorsteini L. Jónssyni, sem þar hafði starfað mörg ár. Sam- skipti okkar höfðu engin verið áður en strax tókust með okkur góð kynni og ég fann að í Þorsteini eignaðist ég góðan vin og kennara. Það var ekki stórt hjartað í ungum manni, sem kom til Eyja bjartan júlídag 1975 til þess að takast á við erfitt og krefjandi starf. En áhyggjurnar og kvíðinn hurfu eins og dögg fyrir sólu þegar presturinn ungi fann hvarvetna velvild og hlýju. Sérstaklega var það uppörvandi að finna áhuga og góðvild allra þeirra, sem störfuðu fyrir kirkjuna. Kirkjukór og org- anista þakka ég umburðarlyndi og þolinmæði við ungan prest, fá- kunnandi í litúrgískum fræðum, og sóknarnefnd fyrir góðan stuðn- ing og hvatningu. En sá maður, sem fyrst og fremst hjálpaði mér upp úr startholunum og á skrið, var séra Þorsteinn L. Jónsson. Námið í guðfræðideild Háskóla Islands var bæði ánægjulegt og gagnlegt. Veganestið talsvert þeg- ar lagt var á stað á starfsvett- vanginn. En „lífið er ekki í bókum ekki einu sinni í góðum bókum“. í preststarfinu eins og alls staðar er reynslan besti kennarinn. Fyrir nývígðan mann var það ómæld blessun að fá að nema hjá góðum kennara, sem hafði langa og margþætta reynslu. I skóla hjá séra Þorsteini var gott að vera. Hann var ólatur að miðla af þekkingu sinni og reynslu. Alltaf reiðubúinn að gefa hollráð og leiðbeina. í smiðju hans var gott að koma og fá efnivið til starfsins. Þorsteinn Lúther JÓnsson var fæddur 19. júlí 1906 í Reykjavík, sonur hjónanna Jóns söðlasmiðs Þorsteinssonar og Maríu Guð- laugsdóttur. Þorsteinn lauk há- skólaprófi í guðfræði á vordögum 1934 og það sama ár var hann vígður til Miklaholtsprestakalls. Þar var hann þjónandi prestur til 12. júní 1961 þegar hann var skipaður sóknarprestur í Vest- mannaeyjum. í Vestmannaeyjum þjónaði hann til áramóta 1976— 77, þegar hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Starfsdagur séra Þorsteins í þágu kirkjunnar var langur. Hann var þjónandi prestur í rúma fjóra áratugi. Hann var fastur fyrir í umræðu um kirkju og kristni og bar í brjósti mikinn metnað fyrir hönd kirkjunnar og vildi veg hennar sem mestan og bestan. Sr. Þorsteinn var trúmaður einlægur á mildan og hógværan hátt. Hann var ekki málsvari neinnar ákveð- innar stefnu í guðfræði en fylgdi samvisku sinni og trúnaði við orð Heilagrar Ritningar. Sr. Þorsteinn var fræðimaður ágætur og víðlesinn. Horfði gagn- rýnum augum á samtíð sína og samtímamenn en settist aldrei í t Við þökkum af alhug auösýnda samúð og vinarhug, við andlát og jarðarför eiginkonu, móöur, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÓLVEIGAR JOHANNSDOTTUR Leifsgötu 32 Péll Hallbjörnsson Jóhann Pólsson Guömundur Pálsson Guðríður Pálsdóttir Siguröur Eðvarð Pálsson Páll Ólatur Pálsson Guðrún Pálsdóttir Hreinn Pálsson Salbjörg Matthíasdóttir Sjöfn Oskarsdóttir Samúel Ó. Steinbjörnsson Guðrún Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför systur okkar, GUDLAUGAR THORLACIUS. Anna Thorlacius Þóra Thorlacius. t Þökkum auösýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns þÓRIS JÓNSSONAR Eskihlíð 16, Reykjavík. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarn- abarns. Helga L. Júníusdóttir. t Þökkum innilega sýnda samúð og virðingu við fráfall og útför föður okkar, afa og bróður, HREIÐARS ÓLAFSSONAR. Sérstakar þakkir færum við Lúörasveitinni Svani, forstjóra og starfsmönnum Timburverzlunar Árna Jónssonar. Ragnhildur Hreiðarsdóttir Hreiðar Bergur Hreiöarsson Rósa Björg og Sandra Dögg Guölaugsdætur Guðjón Ólafsson Ásta Ólafsdóttir Guöleif Ólafsdóttir. dómarasæti. Hann vildi vekja menn til umhugsunar en reyndi ekki að svara öllum spurningum. Sr. Þorsteinn var listhneigður og orðhagur bæði á laust mál og bundið. Prédikunarstarfið veitti honum mikla ánægju eins og raunar preststarfið allt. Þrátt fyrir langan starfsdag og mikið starf varð það aldrei vanabundið. Mörg börnin hafði hann skírt um ævina en hann leit svo á að hver skírn væri einstök hátíð sem hann var þakklátur Guði að fá að taka þátt í. Sömu augum leit hann á aðra þætti starfsins. En um starf- ið ræði ég ekki nánar. Þeir vita, sem til þekktu, að hann lagði sig fram í starfi og þá mest þegar mest á reyndi. Þeir eru margir, sem kunna honum heila þökk fyrir styrk og uppörvun sem hann veitti á erfiðleikastundu. Þeir eru margir sem blessa minningu góðs drengs þegar sr. Þorsteinn L. Jónsson er kvaddur hinstu kveðju. Sr. Þorsteinn Lúther Jónsson var góður vinur. Þrátt fyrir ald- ursmun bæði í starfi og lífi lét hann mig aldrei finna til þess en kom ávallt fram við mig sem jafningja. Nú þegar hann er allur minnist ég margra góðra stunda þegar við sátum að spjalli. Var þá víða áð á víðlendum akri heimspeki, trú- mála og lista. Ég er þakídátur fyrir að hafa fengið að kynnast sr. Þorsteini og eiga hann að vini. Ég og fjölskylda mín biðjum honum blessunar Guðs og sendum Júlíu eiginkonu hans og ástvinum öðrum innilegar samúðarkveðjur. Kjartan Örn Sigurbjörnsson. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu linubili. Unglinga- saga frá Rússlandi BÓKAÚTGÁFAN Iðunn hefur gef- ið út unglingabókina í föðurleit eftir Jan Terlouw. Saga þessi gerist í Rússlandi. Hún segir frá því þegar Pétur, fjórtán ára drengur, fer af stað til að leita föður síns sem færður hafði verið fangi til Síberíu. Lendir hann í ýmsum ævintýrum og miklum háska á þeirri löngu leið. Jan Terlouw er Hollendingur, eðl- isfræðingur að mennt. Hann hefur hlotið viðurkenningu fyrir barna- bækur sínar. Kunnasta saga hans er Stríðsvetur sem út hefur komið á íslensku. í föðurleit er prýdd mynd- um eftir Dick van der Maat. Árni Blandon Einarsson og Guðbjörg Þór- isdóttir þýddu bókina. Hún er 154 bls. Oddi prentaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.