Morgunblaðið - 17.10.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979
23
Jens í Kaldalóni:
Fé bjargað úr björgum
Úthafstogarar Breta í röðum við bryjíKju i Hull.
Bretar óttast frek-
ari takmarkanir á
þorskveiðum sínum
Bæjum, 30. sept.
Vébjarnarnúpur heitir þver-
hnípt bjarg á milli Grunnavíkur í
Jökulfjörðum og Snæfjallastrand-
ar, en í daglegu tali kallaður
Bjarnarnúpur. Við rætur núpsins
svarrar hafaldan í öllum sínum
mikilleik. Fjallhá brotnar hún við
bergið í norðan hafróti rétt eins og
við Svörtuloftin þótt þar sé hún á
stundum öllu hryggjarmeiri.
Kveður þar sitt rammalag með
drunum og dynkjum en núpurinn
brosir að hamaganginum og hagg-
ast hvergi, en uppí syllum hans og
skútum ríkir óendanleg og líflaus
kyrrð og friður. Skjólsælt er þar í
norðannæðingnum og töðugras-
toppar laða til sín með sterkri
angan lítt reyndar ungkindur, sem
freista vilja gæfunnar í ævintýra-
leit um ókunn lönd.
Þá er refaveiðimenn áttu leið
fram með Bjarnarnúp á s.l. vori,
komu þeir auga á 3 kindur hátt í
núpinum, en það var áður en
nokkru fé var sleppt af húsi, svo
líkur bentu til að þarna hefði verið
um útigöngufé að ræða. Sáust
þessar kindur af og til þarna í
sumar, og vitust hagaspakar á
syllunni sinni, enda engar malbik-
aðar götur um að senna, sem og
gróðurinn skaut fljótar upp angan
sinni þarna í skjólinu an almennt
gerðist, og sem útsýnið er þarna
dásamlega fagurt og heillandi,
kvöldkyrrðin rómantísk og eld-
rautt sólsetrið við hafsbrún dugði
til að halda þessum ungu ævin-
týraskepnum kyrrum á sínum
æskustöðvum, lausum frá öllu
stressi og skarkala umheimsins.
Það var svo s.l. föstudag að
óvænt og aldeilis undrandi komu
þessar 3 tvævetlur auga á menn
tvo, sem þær töldu þó engan
veginn jafnvíga sér í hættusömum
stjórbjörgum, og vissu ekki hvað-
an á sig stóð veðrið, því slíkar
mannskepnur höfðu þær ekki séð í
Páll Ásgeir
Tryggvason
sendiherra
í Póllandi
Páll Ásgeir Tryggvason sendi-
herra afhenti Henryk Joblonski
forseta Póllands trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra íslands í Póllandi
þann 4. október s.l.
hálft annað ár, og löngu búnar að
gleyma að slíkar verur væru til, en
þarna var á ferð gljúframaðurinn
og fyglingurinn Kjartan Sig-
mundsson, frá Drangavík á
Ströndum, og með honum einn
háskólaborgari þessa lands Hinrik
nokkur Guðmundsson, hæstarétt-
arlögmaður á ísafirði, og var ekki
að furða, þótt aumingja gimbrun-
um yrði nokkuð hverft við að sjá
slíka lögfræðidáta allt í einu rísa
upp þarna í fjallakyrrðinni augliti
til auglitis við saklausa sauðkind-
ina, en svo sem í algeru klaustri að
þær þarna lifað höfðu í hálft
annað ár, og engum dátum dottið í
hug að skreiðast með þeim í þessa
hættulegu ævintýraför, stóðu þær
þarna berskjaldaðar einar og af-
urðalausar, nema hvað reifin voru
sem margfaldur pels um allan
skrokkinn, svo ekki var að sjá að
illa hefðu þær fram gengið.
En í Bjarnarnúp eru fleiri syllur
og góðgæti af grasi en á syllunni
þeirri arna, því svo tíndu þeir
saman félagarnir sem áður getur,
að níu kindur voru þeir komnir
með í safn þegar úr núpinum kom.
og er það mál manna að aðra
vetursetu hefðu þær mátt heyja
þarna í björgunum þeim arna,
hefði ekki notið við atorku þessara
klettafæru manna, en svo lét
Kjartan Sigmundsson eitt sinn
orð falla, er hann fór í álíka reisu í
Bjarnarnúp, að það væri ekki
meira en að labba á stofugólfinu
heima hjá sér. Allavega mun þó
Núpurinn vera 3—400 metra hár,
og svo sem áður segir þverhníptur
í sjó fram með gjám og skriðum
frá brún og þvert niður.
Það kom svo í ljós, þá handsam-
aðar voru kindur þessar, að eig-
andi þeirra var Engilbert Ingvars-
son, bóndi á Tyrðilmýri, og þá er
úr björgum þær komu, tóku við
þeim til heimrekstrar Jónas
Helgason og bræður hans í Æðey,
sem á allan leiðangurinn horfði
ásamt með mjólkurbústjóranum
okkar á ísafirði, Pétri Sigurðss-
yni, er allir héldu til í bát fram af
núpnum og vísuðu leiðina gegnum
talstöð.
Gaman hefði verið að kvik-
mynda leiðangur sem þennan.
Jens i Kaldalóni.
FISKIFR.EÐINGAR víðs vegar að
úr heiminum hafa lagt til að ýsu-
veiðar í NA-Atlantshafi verði bann-
aðar á næsta ári og verulegs niður-
skurðar er að va'nta á (iðrum
fisktegundum. ICES hefur lagt til
að ýsuaflinn á þessu sva“ði fari ekki
yfir 50 þúsund lestir ef mögulegt er
að koma slíku banni á. A síðasta ári
var lagt til að hámarksafli ýsu á
hafsvæðinu færi ekki yfir 000 þús-
und lestir.
Hvað þorskveiðar snertir þá hefur
verið lagt til að hámarksaflinn fari
ekki yfir 390 þúsund tonn á næsta ári
í NA-Atlantshafi en á þessu ári var
hámarkið miðað við tíOO þúsund
lestir.
Brezkir sjómenn, útgerðar-
menn og fulltrúar vinnslustöðva hafa
mótmælt þessum tillögum harðlega
og segja að þetta svæði hafi fram til
þessa verið það eina, sem hafi verið
þeim opið. Aðgerðir sem þessar
takmarkanir bindi endanlega enda á
útgerð frystitogara þeirra.
llvyldld
kaup
8-900.000.-Kr
TOYOTA
Hardtop
Vandaður fjöiskyídubíll sem hlotlð hefur fjölda
viðukenninga víöa um heim.
Stór bíll með mjög lágan rekstrarkostnað.
Eyðir aðeins 9—101 á 100 km.
Toyota Corolla
Liftback
Vinsælasti og mest seldi bíll á heimsmarkaðinum. Nú
þegar er búið að framleiða fyrir 9 milljón eintök.
Eyðir aðeins ca. 81 á 100 km.
TOYOTA GÆÐI:
Stofnfundur
JC í Árbæ
UNDANFARNA daga hefur staðið
yfir í Árbæjarhverfi í Reykjavík
kynning á starfscmi Junior Cham-
ber hreyfingarinnar og er það
JC-Reykjavík sem stendur að þcirri
kynningu.
Haldin verða sérstök kynningar-
kvöld í félagsheimili Fylkis í Árbæj-
arhverfi miðvikudag 17. október og
fimmtudag 18. október kl. 20.30 og
stendur fólki á aldrinum 18—40 ára
til boða að kynna sér þar JC,
uppbyggingu og tilgang hreyfingar-
innar. Síðan er áætlaður stofnfund-
ur JC í Árbæ hinn 23. október ef næg
þátttaka fæst. Verður heimsforseti
JC Kumar P. Gera staddur hérlendis
og við stofnun hins nýja félags.
Við könnun hjá bandarísku og bresku neytendasamtökunum, ásamt Félagi danskra og Félagi sænskra
bifreiðaeigenda, hlaut Toyota viðurkenningu fyrir að vera sá bíllinn sem minnsta bilanatíðni hefur.
m) TOYOTA
UMBOÐIÐ
i
NÝBÝLAVEGI 8
KÖPAVOGI SÍMI
4414.
J