Morgunblaðið - 17.10.1979, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.10.1979, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 Það getur ekki verið kalt, það er búið að standa í kaffikönn- unni síðan í gær. orðinn algjör hindindismaður. Ég hef ekki smakkað það um lant skeið, — orðinn algjör bindindismaður — eins — og — þú — heimtaðir ... Ef þú hreyfir þig, kalla ég hann pabba minn. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Vonleysi getur aldrei verið gott vegarnesti. Og í bridge er örlítill möguleiki jafnvel betri en enginn. Vestur gaf, allir á hættu. Norður S. KD H. 753 T. Á986 L. Á986 Vestur S. G109742 H. Á6 T. G74 L. ÁD Austur S. Á63 H. G102 T. 52 L. 98654 Suður S. 85 H. KD984 T. KD103 L. 103 COSPER Nei, sjáðu blessaðan forstjórann okkar? „Mannréttindi þrífast aldrei meðal kommúnista“ Fyrir mörgum árum kom út bók eftir idealistann og stórskáldið George Orwell og hét hún „1984“. Orwell var það sanntrúaður sósíalisti að hann fór með vini sína til að taka þátt í svokölluðu frelsisstríði á Spáni og varð reynslunni ríkari. Frelsishetjurn- ar drápu alla félaga hans og sjálfur slapp hann naumlega. Þá sá Orwell hvaða frelsisfyrirbæri sósíalisminn er og skrifaði um það þrjár bækur, öðrum til viðvörun- ar. Bókin „1984“ varð heimsfræg og þýdd á allar menningartungur nema tungu Egils, Snorra og Ara fróða. Hér sveif þá svo sterkur rauður stalínskur menningarandi yfir vötnunum að enginn bókaút- gefandi treysti sér til að gefa bókina út. Eg fékk dönsku útgáf- una og löngu seinna gáfu nokkrir einstaklingar hérlendis út við- komandi bók. Hún olli miklu fjarðafoki og ekki stóð á Stalínist- um að rífa hana niður. Einhverj- um þessara Stalínista sem nú lifa væri kannski hollt að vita það að núna sagði norskur maður í Austur-Þýskalandi að þar væru kjör almennings í raun og veru eins og lýst er í „1984“ hjá Orwell. í Rússlandi í dag eru að gerast sömu hlutir og fyrir flokksþingið í Moskvu 1922 eða 4. (Þeir íslend- ingar sem þar voru mættir muna ábyggilega ártalið.) Þá rak lög reglan 30 þúsund betlara svo langt út fyrir borgina að þeir örfáu sem það lifðu af komust ekki til Moskvu aftur fyrr en þinginu var lokið. Núna, 1979, er byrjað að flytja fólk, sem flokksforystan þorir ekki að gestir Olympíuleikanna sjái, burtu frá Moskvu. Þessi dæmi sýna það að mannréttindi fá aldrei að þrífast í sósíalísku ríkjunum. Það var þess vegna ekki von á því að postular sósíalismans kæmu til þess að hlusta atBúkov- ski, er hann var staddur hér í Reykjavík. Sannleikann þora þeir nefnilega ekki að heyra því þá eiga þeir á hættu að gerast andsnúnir sósíalismanum, eins og Orwell forðum. Mér fannst það því táknrænt fyrir þá sem stofnuðu málfrels- issjóðinn fræga, að þeir mættu ekki til þess að hlusta á Búkovsky. Þeim hefur líklega fundist sá sjóður væri ekki stofnaður í anda þess frelsis og mannréttinda sem andófsmaðurinn berst fyrir. Húsmóðir. • Afnotagjöld útvarps og sjónvarps Hinn 10. þ.m. er enn spurzt fyrir um heimild Ríkisútvarpsins til að innheimta afnotagjald út- varps með hverju sjónvarpsgjaldi. Ve»tur 1 spaói pass Norður pass 4 hjörtu Austur pass allir pass Suður 2 hjortu Heldur var nú stökksögn norð- urs hryssingsleg afgreiðsla í við- kvæmri stöðu og gegn þessari djörfu lokasögn spilaði vestur út spaðagosa. Austur tók slaginn og spilaði aftur spaða. Sagnhafi spil- aði þá hjarta frá blindum og lét drottninguna þegar austur lét tvistinn. Vestur tók slaginn og eftir þetta var tapið óumflýjan- legt. Vörnin fékk tvo slagi á hjarta auk slaga á báða svörtu litina. í upphafi kom í ljós, að austur átti spaðaásinn og þá hefði átt að vera ljóst, að vestur átti trompás- inn. Annað gat ekki verið, maður- inn hafði jú opnað. Og að missa annaðhvort hjónanna undir ásinn var vonleysið sjálft, úr því ekki mátti gefa nema einn slag á trompið. Að þessu athuguðu er ekki erfitt að svína hjartaáttunni. Austur blátt áfram varð að eiga bæði gosa og drottningu. Og þó að það hafi út af fyrir sig verið lítill möguleiki var hann betri en enginn. ^ # ^ Eftir Evelvn Anthonv __Lausnargjald 1 Persiu ^sstssz 89 rúminu og hann náði taki á honum áður en Frakkinn halði náð að standa almennílega á fætur. Resnais skall aftur á bak og rakst á stói sem brotnaði og hann hrökk f gólfið. Peters greip í hálsmálið á honum og gaf honum vei útilátið högg tvívegis, svo að blóðið spýttist út úr munninum á honum. Síðan dröslaði hann honum til dyra og kastaði honum fram í ganginn. Hann öskraði á Made- ieine. Hún kom þjótandi upp stigann. Hann sá skelfinguna í augum hennar og vissi að hún hafði verið í vitorði með honum um nauðgunina. Hún skalf frá hvirfli til ilja þegar hann gekk nær henni. — Dragðu hann með þér nið- ur áður en ég drep hann, sagði Peters. Siðan skellti hann dyr- unum brotnu aftur og gekk að rúminu. Eileen hafði aidrei orðið fyrir því að vera beitt ofbeldi. Það var óhugsandi að maður skyidi hafa haldið henni niðri og vald- ið henni kvöl. Hann hafði svipt hana klæðum og beitt hana likámlegum sársauka en hann hafði ekki náð því að hefja samræði við hana. En áfallið var henni ofboðslegt. Hún sá allt sem í þoku þegar Peters hallaði sér yfir hana. Hún greip um háls honum og þrýsti sér að honum og grét eins og barn. Hann lyfti henni upp úr rúminu og gekk með hana um gólf eins og barn og lagði hana síðan niður og beið þess hún jafnaði sig. — Svona nú, sagði hann. — Nú er allt um garð gengið. — ó, guð minn góður, hvísl- aði Eileen — ekki fara frá mér... ekki fara frá mér... — Ég skal ekki fara, sagði Peters. Segðu mér hvað kom fyrir. — Ég var sofandi, sagði hún. — Svo vaknaði ég og hann sat á rúmstokknum. Hann tók hend- inni fyrir munninn á mér. Hann spurði hvort þú og ég hefðum mök saman. Hún lokaði augunum augna- blik og opnaði þau siðan eins og hún sæi Resnais fyrir sér. — Ég gat ekki sagt já, hvíslaði hún. — Hann vildi ég gerði það. Hann meiddi mig. Hann kreisti mig... á brjóstun- um. Ég gat ekki æpt. Peters dró af henni lakið. Uún hafði lítil, falleg brjóst. Mar virtist vera að koma fram og brjóstin voru þakin sog- og bitblettum. Hann þóttist vita að kvalir hennar væru óbærilegar. — Ég sagði það ekki, sagði Eileen — Þvifskyldi ég Ijúga slíku, ég gat það ekki jafnvel þótt hann píndi mig. Svo sagði hann, að hann myndi drepa mig ef ég segði þér frá þessu. Hann ætlaði að nauðga mér... — Kom Madeleine með hon- um, spurði Peters. — Eða Ahmed? Hún hristi höfuðið. — Nei. Aðeins hann. Ég get ekki hætt að titra. — Nú líður þér betur. Þctta lagast, sagði hann. Hún var náföl i andliti. Hann breiddi aftur yfir hana. — Hvers vegna sagðirðu ekki það sem hann vildi heyra? — Ég sagði þér það. Ég gat það ekki. Það er ekki satt. — Nei, 8agði hann — það er ekki satt. Ég ætla að ná í koniak handa þér og setja ísmola á brjóstin. Það dregur úr verkjunum. Hann fór að dyrunum og kallaði hárri röddu á Ahmed. Hún heyrði hann gefa honum fyrirmæli á arabísku. Maðurinn kom að vörmu spiri með koniak i glasi og ismola i handklæði. Peters tók aftur af henni ábreiðuna. Hún reyndi ekki að stöðva hann. Hún lá og horfði á hann meðan hann vafði hand- klæðinu um brjóst hennar. Hann lyfti henni upp svo að hún gæti drukkið koníakið. Hann hafði haldið Andrew Barnes i örmum sér i óþverranum í Kentbúðunum mcðan múgur- inn flúði eins og fætur toguðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.