Morgunblaðið - 05.12.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979
37
Málfreyjudeild-
ir stofnaðar
STOFNSKRÁRFUNDUR mál- freyjudeildinni Björkinni,
freyjudeildarinnar Ýr var haldinn Reykjavík afhenti Dollý Nielsen
að Hótel Sögu, Átthagasal, þann forseta Ýr stofnskrána, sem er
21. okt. 1979. vottur þess að deildin er nú
fullgildur aðili að Alþjóðasamtök-
Gestir fundarins voru: um málfreyja — International
Borgarstjórinn í Reykjavík, Eg- Toastmistress Club.
ill Skúli Ingibergsson, og kona
hans, Ólöf Davíðsdóttir. Stefna Alþjóðasamtaka mál-
Sæunn Andrésdóttir frá mál- freyja er:
„Þroski frjálsrar og opinskárrar
umræðu án fordóma um nokkurt
málefni, hvort sem er stjórnmála-
legs, félagslegs, hagfræðilegs,
kynþáttalegs eða trúarlegs eðlis."
Enn ný málfreyjudeild hefur
hafið göngu sína og er hún í
Hafnarfirði. Hlaut hún nafnið
Iris. Forseti hennar er Hjördís
Þorsteinsdóttir.
Nú eru starfandi 6 málfreyju-
deildir á landinu og eru þær allar
á suðvesturhorni landsins.
Auka þarf útbreiðslu málfreyju-
starfseminnar, því málefnið á
erindi til kvenna um landið allt.
(Fréttatilk.)
Sæunn Andrésdóttir, Björkinni, afhendir Dollý Nielsen, forseta nýju
málfreyjudeildarinnar Ýr, stofnskrána. Sitjandi er Elísa Jónsdóttir
málfreyja.
Sakamálasaga
eftir Jón Birgi
Pétursson
KOMIN er út skáldsaga, saka-
málasaga, eftir Jón Birgi Pét-
ursson fyrrum fréttastjóra. Þetta
er fyrsta bók höfundar, en hann á
að baki langan feril sem blaða-
maður.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
gefur bókina út, og segir svo m.a.
í fréttatilkynningu frá útgáf-
unni:
„í bók sinni, Vitnið sem hvarf,
virðist Jón Birgir þreifa á ýmsum
þjóðfélagsmálum, sem ofarlega
hafa verið á baugi hér á landi á
síðustu árum. Nýlega sögðu ís-
lenskir fjölmiðlar t.d. frá nauða-
áþekku máli og Jón notar í bók
sinni, þegar framleiða átti efni til
vítisvélagerðar fyrir erlend stór-
veldi. Leynifundir voru haldnir í
Washington og Reykjavík, Penta-
gon-menn og fulltrúar fjölþjóða-
fyrirtækis ræddu við íslenska
stórlaxa. Hér skal efni bókarinnar
ekki rakið í smáatriðum, það væri
illa gert gagnvart þeim sem beðið
hafa spenntir eftir bókinni."
it
Norðurlandaráð
Reglubundnar hraðferðir tll Norðurlandanna
Þarftu að flytja vörur til eða frá Danmörku,
Noregi, Svíþjóð eða Finnlandi? Ef svo er þá
er það gott norðurlandaráð að notfæra sér
hinar tíðu hraðferðir Fossanna.
BERGEN - KRISTIANSAND - MOSS
GAUTABORG - HELSINGBORG
KAUPMANNAHÖFN
VALKOM - HELSINKI
Góð flutningaþjónusta, hröð afgreiðsla og
vönduð vörumeðferð eru sjálfsagðir þættir í
þeirri markvissu áætlun að bæta viðskipta-
sambönd þín og stuðla að traustum atvinnu-
rekstri hér á landi.
Hafóu samband
EIMSKIP
SÍMI 27100
’f’