Morgunblaðið - 05.12.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.12.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979 43 í framboðshita VOPNASKIPTI OG VINARKYNNI 194 bls. Andrés Kristjánsson skráði. örn og örlygur hf. 1979. »... Hannes Pálsson frá Undir- felli. Það nafn þekkja margir, og þó var hann aldrei alþingismaður eða ráðherra, aldrei stóriðjuhöld- ur eða bankastjóri, né heldur frægur í listum og vísindum.« Þetta segir Andrés Kristjánsson í formála þessarar bókar sem ber undirtitilinn Ævifrásögn Hannes ar Pálssonar frá Undirfelli. Formálinn er eins og hver önnur hátíðarræða — meinlaust glamur. Sem betur fer lifnar yfir textanum þegar innganginum sleppir (að því undanskildu að höfundurinn skýt- ur víða inn í hann óþörfum spurningum). »... við settumst að spjalli með segulband á milli okkar,« segir Andrés. Og þá hefst spjallið. Hannes var minnisstæður persónuleiki. Og ekki ófyrirsynju að Andrés telur upp það sem hann ekki varð. Því Hannes var raunar efni í það allt. Hann var einn fjölmargra afkomenda Björns Eysteinssonar sem lét eftir sig eina kjarnyrtustu ævisögu aldar- innar. Bróðir hans er Björn á Löngumýri sem skemmti þjóðinni í aldarfjórðung meðan hann sat á Alþingi. Þeir, sem stóðu í bygging- um fyrir tuttugu árum, vissu hver Hannes Pálsson var. Hannes út- hlutaði lánum og hafði viðtals- tíma á kvöldin sem jafnan stóð til morguns. Að ganga á fund hans var eins og að fyrirhitta hrepp- stjóra í gamla daga. Hannes Pálsson bar nefnilega með sér þess konar landaðalsbrag sem alla jafna tálgast af fólki með einni kynslóð í borg. Hann var velvilj- aður og vildi hvers manns vanda leysa. Einskis sýndist á vanta að hann hefði getað orðið þingmaður austur-húnvetninga. Nema hvað Jón Pálmason var í fyrirstöðu með vinsældir sínar og persónutöfra. Þar til Björn á Löngumýri kom á vettvang — með virkum stuðningi Bókmenntlr eftir ERLEND JÓNSSON Hannesar. Frásögnin af því er heil lexía í framboðsfræðum. «Björn er einhver kænasti maður sem ég þekki segir Hannes. « Björn gaf sér jafnvel tíma til að fara á kendirí með strákum, þegar færi bauðst, og það mun hafa borgað sig.« Pólitíkin er ekki alltaf spennandi. En hún er skemmtileg í þessari bók, meðal annars fyrir þá sök að sögumaður er enn í eldmóði baráttunnar þegar hann segir söguna. Sá eld- móður eltist aldrei af honum. Eða svo virðist mér að minnsta kosti mega álykta af þessum frásögnum hans. Samvinnustefnan er leið- arljósið, Framsóknarflokkurinn góður, Sjálfstæðisflokkurinn vondur. Aðrir flokkar skipta ekki teljandi máli þar eð austur-hún- vetningar skiptust að langmestu leyti á milli þessara tveggja. Kannski var einhver angi af hags- munabaráttu með í dæminu. Hitt leynir sér ekki að keppnissjón- armiðið mátti sín mikils, ef til vill mest. Þingsæti — frá sjónarhóli bónda fyrir norðan — var æðsta takmark sem hægt var að hugsa sér. Og Hannes Pálsson var nú einu sinni þannig gerður að hann undi sér mætavel í félagsmálum, ræðumaður góður og yfirhöfuð frambærilegur hvar sem var. Eins og í minnum er haft var pólitíkin í einmenningskjördæm- unum fyrrum oft persónulegri og illvígari en nú gerist. Menn grófu upp gamlar ávirðingar andstæð- inga sinna og slettu þeim framan í þá á fundum. Bar það hvorki vott um verra innræti en gengur “óg FYRIR nokkrum árum hóf Bókaútgáfan Örn og Örlygur útgáfu bóka- flokks um frömuði sög- unnar. Við allar þessar bækur er sömu aðferð beitt: ákveðnir þættir og ákveðið tímabil sögunnar kynnt út frá einhverjum einstaklingi sem öðrum fremur hefur breytt gangi hennar. „Nú er komið út sjötta bindi þessa bókaflokks og fjallar það um NELSON, foltaforingjann mikla,“ segir í fréttatilkynningu gerist né heldur þurfti það alltaf að lýsa heift og óvináttu — þetta var lenska. Þegar ævikvöldið nálg- aðist gerðist það svo oft að andstæðingarnir tókust í hendur og sættust heilum sáttum. Þannig var það með Hannes og Pál V. G. Kolka sem tíðum höfðu tekist á í kjördæminu og vegið hart hvor að öðrum, þeir enduðu á að jafna það með sér eins og góðum grönnum sæmdi. (Sá er þetta ritar var vottur að því atviki og getur því vitnað um að rétt er með farið). En hér ber að vísu fleira á góma en pólitík. Vitanlega byrjar Hann- es að lýsa uppruna sínum og fylgir að því leyti hefðbundinni tímaröð ævisagna. Faðir hans var for- standsbóndi á vildisjörð. Hannes vildiiíka verða bóndi — og varð það — náði í heimasætuna' á Undirfelli og jörðina með. Þegar hann var trúlofaður þurfti hann oft að heimsækja kærustuna eins og ungra manna er háttur. Eitt sinn hvarf hann frá verki þeirra frá útgefanda. „Höfundur þess er Roy Hattersley, sem kunnastur er hér á landi fyrir afskipti sín af síðasta þorskastríði. Hér kynnumst við nýrri hlið á Roy Hattersley, rithöfund- inum og sagnfræðingnum, en hann hefur lagt stund á stjórnmálafræði og sögu, og virðast tök hans á þeim efnum betri en afskipti hanf landhelgisdeilum." Þýðandi bókarinnar er Jón Á. Gissurarson, en um- sjón með íslensku útgáf- unni hefur Örnólfur Thor- lacius. erinda og mun bróður hans Birni, hafa þótt það lýsa nokkru bráð- læti. » Þegar ég kem út albúinn til ferðar, kemur hundgreyið hlaup- andi og ætlar ekki að missa af mér. En þá gefst mér á að líta. Björn hafði þá gripið tækifærið, meðan ég var inni, og brugðið sauðaklippunum á hundinn, spé- klippt hann allan, svo að ekki var sjón að sjá hann.« Þannig var bræðralag þeirra: glens og gaman í bland við ötula lífsbaráttu. Kannski hefur þessi saga forsagn- argildi varðandi það hvernig Björn átti síðar eftir að beita sínum pólitísku sauðaklippum. Um búskap Hannesar er það hins vegar að segja að hann varð endasleppari en til var stofnað. Að lokum þetta: Vopnaskipti og vinakynni er skemmtileg bók, full af skaphita og baráttugleði auk þeirrar húnvetnsku seiglu sem þróast hefur með kynslóðunum í aldanna rás í víðernum hinna norðlensku byggða. Frömuðir sögunnar: Bók um Nelson flotaforingja Gisela er um stund hrifin úr dap- urlegu og hamingjusnauðu um- hverfi og hvirflast inn i geislandi, rómantískan og framandi heim, þar sem hin fagra keisarynja Elisabet af Austurríki ræður ríkj- um. En hún kemst fljótt að þvi að þessi skrautlega veröld er full af ógnandi hættum og undirferli. Hún kynnist einnig ástinni, Ijúf- sárri og heitri, en jafnframt því, að ást þarf ekki aðeins að tákna hamingju, heldur getur hún engu að síður borið með sér sársauka og örvæntingu. Flótti frá ástinni er tilgangslaus, enginn fær flúið örlög sín, ástin sigrar ævinlega að lokum. /'“Tjjarbara i i VJ’artland Tvífari drottningarinnar Yasmin er dóttir þorpskennarans, Ijóshærð og hefur fullkomna and- litsdrætti. Hún er tónlistarkenn- ari og á í nokkrum vanda vegna dulrænna hæfileika. Margot er yngri systir hennar og andstæða, brúnhærð, ákveðin og fjörmikil. Dallas er eftirsóttasti piparsveinn þorpsins, Ijóshærður og íturvax- inn, tortrygginn, þegar heiður fjöl- skyldunnar og óöalsins er í veði. Edward, eldri bróöir hans, er með kolsvört augu, skapmikill og til- litslaus. Þetta eru söguhetjur þessararæsi- lega spennandi sögu. Og þótt Ed- ward væri hugprúður og snjall, reyndist Yasmin honum snjailari. lieyniþræöir ásiarinnar Rauðu ástarsögumar Metfgít &SckrhohD EKKJAN UNGA Enn sem fyrr er Karlotta Anckarberg fögur og hrif- andi og eftir- sótt af karl- mönnum. En hamingja hennar er RAUOU ÁS7ARS0GURNAR SKUGCSJÁ unum tveim, greifanum unga og ástar- barninu Jakob Wilhelm, sem hún eign- aðist með fiskimanninum unga, er vakti lifslöngun hennar og ástarþrá. Hún stjórnar Furulundi af festu og dugnaði og berst jafnframt fyrir að ná eignar- haldi á Hellubæ, til að tryggja framtíð yngri sonarins. Þetta tekst henni, en í kjölfariö fylgir bæði sorg og gleði. ELSE-MARIE NOHR HAMINOJAN HANDAN HAfllNS Terry Smith er ung og fögur hjúkr- unarkona og nýlega laus úr miklum vanda. Kviö- dómur hafði dæmt i máli hennar, en hvorki/dæmt hana seka né hreinsað mannorð hennar. Og þess vegna varhún nú á leið til Ástral- iu, — í raun var för hennar flótti, — á skilrikjum látinnar vinkonu. En Terry veit ekki að vinkonan var gift kona, og að eiginmaður hennar er einmitt búsettur í Ástralíu! Atburðir taka því fljótt aðra stefnu en Terry Smith hafði ætlað. Elsa var ung og yfir sig ástfangin af Manfreö. En nú var hún óhamingju- sömust allra, ráðþrota, ringluð og auðmýkt. Hvernig gat faðir hennar verið svona harðbrjósta og farið með hana eins og óþekkan krakka, — hana, sem varð bráðum sautján ára og nú þegar þroskuð og reynd kona? Og hann hafði kallaö Manfreð monthana! Og svo þessi ósvifni og ruddalegi skóg- arvörður, sem hafði hætt hana og sært svo gróf lega með óhef luöum orðum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.