Morgunblaðið - 05.12.1979, Síða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979
SÍÐARI GREIN THE
TIMES
endurborið
Um og eftir aldamót var „The
Times“ í einum mesta öldudal á
ferli sínum. Blaðið hafði þá verið
rekið með halla um árabil, upplag
þess hafði minnkað í 38.000 og
mörgum fannst útlit blaðsins og
stíll lítið hafa breytzt frá því um
miðja síðustu öld. „Það eina sem
eimdi eftir af fyrri stórveldis-
ljóma var nafnið: „The Times“ og
heimilisfangið: Printing House
Square." Þá keypti enginn annar
en blaðakóngurinn Alfred Harms-
worth, síðar Northcliffe lávarður,
meirihluta hlutabréfa í blaðinu, af
aðalerfingjanum, Arthur Walter,
með hjálp C.F. Moberley Bell,
framkvæmdastjóra blaðsins
1894—1911. Með stofnun „Daily
Mail“ hafði Harmsworth innleitt
útgáfu blaða fyrir alþýðufólk og
hann hafði uppi mikil áform um
„The Times“: hann gerði blaðið
nútímalegra og útgáfan fór að
skila hagnaði. En hann varð mesta
ógnun í sögu blaðsins við „þá
heilögu reglu, sem hafði gert „The
Times“ að því blaði sem það var“:
sjálfstæði ritstjórnarinnar gagn-
vart eigendum. Hann hafði hægt
um sig fyrst í stað, „en herti síðan
tökin á blaðinu og að lokum hafði
hann næstum því kæft það.“ I
fimmtán ár geisaði ófriður milli
eigenda og ritstjóra og þessi tími
hefur verið kallaður „babýlonsk
fangavist" „The Times", þótt það
færi eftir ýmsu hvor aðilinn ynni
sigrana í þessu stríði.
Nýtt stórveldi
„The Times" hafði alltaf haldið
fullri reisn og áhrif blaðsins
héldust. Hermálafréttaritarinn
Repington ofursti átti þátt í
stefnu Samúðarsambandsins.
Balkanfréttaritari „Times", J.D.
Bourchier, átti hvað mestan þátt í
stofnun Balkanbandalagsins 1912
er leiddi til Balkanstríðanna og
upplausnar Tyrkjaveldis í Evrópu.
Löngu áður varð Flora Shaw
fyrsta kona sem gat sér frægð í
blaðamennsku. En Northcliffe
kallaði blaðamennina og ritstjór-
ana, sem fyrir voru, „munkana" og
1911 skipaði hann Geoffrey Daw-
son ritstjóra og krafðist styttri
greina, fleiri frétta og líflegri
uppsetningar. Nokkrum árum
síðar lækkaði hann svo verðið á
blaðinu í eitt penny og upplagið
fór yfir 150.000 eintök. „The Tim-
es“ varð að nýju blaði og North-
cliffe bjargaði því frá glötun. Yfir
ritstjórnina rigndi frá honum á
hverjum degi símskeytum með
hrósi og skömmum eftir atvikum
og ótal ráðleggingum, misgóðum.
Deilur voru óhjákvæmilegar og
harðast var deilt um pólitíska
stefnu blaðsins, sem frá gamalli
tíð studdi valdakerfið, ríkjandi
stjórn, embættismannakerfið og
opinber yfirvöld, en Northcliffe
„blés á ráðherra og herforingja
þegar honum fannst þeim skjátl-
ast“.
Snemma í fyrri heimstyrjöld-
inni afhjúpaði hann geigvænlegan
skotfæraskort gegn vilja rit-
stjórnarinnar. Hann var sakaður
um að ljóstra upp um ríkisleynd-
armál, „The Times“ var brennt í
Kauphöllinni og upplagið minnk-
aði (Svar Northcliffes við ásökun
fyrir skrifin um skotfæraskortinn
og árásir „Daily Mail“ á þjóðhetj-
una Kitchener lávarð var eftirfar-
andi: „Það er betra að tapa
upplagi en að tapa stríði.“) En
bætt var úr skotfæraskortinum,
skipt var um æðstu stjórn hersins,
herskylda var innleidd og Lloyd
George komst til valda. North-
cliffe gegndi „eins sögulegu hlut-
verki í fyrri heimsstyrjöldinni og
Delane í Krímstríðinu" og styrj-
aldarárin voru „einn glæsilegasti
tíminn í sögu blaðsins.“
Northciiffe var kallaður „Napo-
leon blaðagötunnar", þ.e. Fleet
Street, en að lokum bilaði hann á
geðsmunum og árin 1919—1922
voru martröð fyrir lesendur og
starfsmenn blaðsins. Dawson var
rekinn 1919 og eftirmaður hans,
Henry Wickhman .Steed (d.1956),
var kominn á fremsta hlunn með
að segja af sér þegar Northcliffe
lézt. Eitt síðasta verk Northcliffes
var að kaupa nokkurn hlut, sem
Walter hafði haldið í blaðinu
þegar hann seldi það. í júní 1922
féll hann saman í Evian og var
sendur til London. Þá linnti ekki
hringingum frá honum til „The
Times“ og gripið var til þess ráðs
að taka símann úr sambandi. Þó
tókst honum að ná sambandi í
einhvern síma um hánótt og hann
hrópaði: „Ég heyri sagt að ég sé
brjálaður. Látið bezta manninn
fylgjast með fréttinni."
A banabeðinum færði North-
cliffe fram tvær óskir og sú fyrri
var að hann yrði jarðsettur við
hlið móður sinnar. Hina óskina
orðaði hann þannig: „Ég vil fá
heila síðu í „The Times“ með
æviatriðum mínum eftir einhvern
sem þekkir þau út í æsar og
forystugrein eftir bezta manninn,
sem þið getið náð í þegar þar að
kemur." Við lát hans skrifaði J.L.
Garvin, ritstjóri „The Observer“:
„Mér líður eins og manni mundi
líða ef Niagara-fossar þornuðu
upp og hyrfu...“
Þjóðarstofnun
Rothermere lávarður, bróðir
Northcliffes, vildi halda blaðinu,
en samkvæmt samningi sínum við
Northcliffe 1908 hafði Walter rétt
til að kaupa blaðið aftur og það
gerði hann ásamt J.J. Astor maj-
ór, sem varð stærsti hluthafinn.
Þeir vildu gera blaðið að þjóðar-
stofnun og forðast að blaðið yrði
„leiksoppur metnaðargjarnra
einkaaðila". Þeir mynduðu því
stjórn nokkurra áhrifamanna
(kallaðir „governors"), þar á með-
al forseta hæstaréttar, forseta
konunglega vísindafélagsins,
bankastjóra Englandsbanka og
rektors All Souls College í Oxford.
Geoffrey Dawson var aftur ráð-
inn aðalritstjóri og gerbreytti
„The Times“. Ritstjórarnir fengu
frjálsar hendur samkvæmt sam-
komulagi við eigendur, sem gátu
ekki skipt sér af málum ritstjórn-
arinnar. Dawson varð sjálfstæð-
asti ritstjóri í Bretlandi. Letri
blaðsins var breytt 1932 og ýmsar
tækninýjungar voru teknar upp og
athygli vakti að „hausnum" var
breytt þannig að hann var með
latnesku letri í stað gotnesks áður.
Skipulagi blaðsins var breytt,
auglýsingar jukust og upplag
blaðsins jókst úr 185.000 þegar
Dawson tók við í 334.000 í byrjun
síðari heimsstyrjaldarinnar.
Dawson tók aftur upp þá reglu
að fréttir væru nafnlausar til að
skapa blaðinu traust og virðingu
og litlu auglýsingarnar voru
áfram á forsíðu. Síðan komu
íþróttafréttir, sem voru oft betur
skrifaðar en í útbreiddari blöðum,
en fréttirnar og leiðarinn voru
þungamiðja blaðsins. Blaðið kom
sér upp einhverri víðtækustu
fréttaþjónustu í heimi og seldi
mikið af efni til ótal erlendra
blaða og fréttaritarar þeirra
fengu skrifstofu í byggingu „The
Times". Reynt var að hafa frétt-
irnar eins nákvæmar og nokkur
kostur var og skýr greinarmunur
gerður á fréttum og skoðunum.
Skoðanir blaðsins komu fram í
leiðurum, leiðarar voru fjórir dag
hvern og hinn síðasti jafnan í
léttum dúr. Sambandi við lesendur
var haldið í hinum frægu bréfa-
dálkum lesenda, þar sem jafnt
fremstu menn þjóðarinnar sem
venjulegt fólk skrifuðu um allt
milli himins og jarðar. Stundum
voru lesendabréf notuð til að
kanna viðbrögð almennings. Þing-
fréttirnar voru miklu viðameiri en
í öðrum blöðum og sérstakur
dálkur fyrir fréttir af hirðinni og
hefðarfólki; auk mjög ítarlegra
frétta um efnahagsmál. Allt efni
var sett fram á mjög virðulegan
máta, yfirleitt eindálka, og þótt
tvídálka fréttir kæmu fyrir þurfti
mikið til ef þriggja dálka fyrir-
sögn var sett á frétt.Síðasten ekki
sízt flutti blaðið virðulega bók-
menntadálka.
Friðkaupastefna
„The Times“ gekk einstaklega
vel undir stjórn Dawsons, sem
endurnýjaði blaðið og yngdi það
upp, jafnframt því sem hann hélt í
gamla og góða hefð. Hann hefði
verið talinn einn merkasti rit-
stjóri blaðsins, ef hann hefði ekki
haft óheillavænleg afskipti af
utanríkismálum. Dawson „kunni
ekkert erlent tungumál, þekkti
lítið til málefna á meginlandinu
og var þröngsýnn í sarnræmi við
enska hefð“. Hann tortryggði
Frakka, taldi að Þjóðverjar hefðu
sætt óréttlátri meðferð í Versölum
og „leit á það sem meginhlutverk
sitt að halda Frökkum í skefjum
og byggja upp heiðarlegt samband
við Þjóðverja". Því varð Dawson
einn helzti talsmaður og raunar
málpípa hinnar svokölluðu frið-
kaupastefnu (appeasement) Breta
á árunum fyrir síðustu heims-
styrjöld. Hann var náinn vinur
höfunda þeirrar stefnu, Baldwins,
Chamberlains og Halifax, og
hlustaði með virðingu á það sem
Henri de Blowitz, „pressuprins-
inn“, hinn kunni fréttaritari
„The Times“ í París fyrir alda-
mót.
Ly dear 9f*lier,
I ok. verjr acrry not. to hnv* seen you before T
Ltart or« tay world tour. 1 oftould have ilited to
Li«cus« with you at frínting House Square.
L'h« Faper ia coiclnfí 8«.ti**factorily throutrh this
Lravo flrtanðial ori«i» in r»#>wapapero. I cannot
Lay ctcre thar tfcat. At th* praaent raostertt X bej iovft
khere are ohiy three aominc hfjwgpapero In London
Ifcnat are paying oxpensee.
í aa parfcly i'or reaaone of hoaltfc
fcecuu8e I thiuk. *e ought tc kno*
LiKe »tid worit of tfce J.apanese. íou, I fcnoi
‘or hoaltfc eotireiy, ar:d I oarr-eetiy tr»*nt that you
iely reetoreA.
Xoure aincöreiy
J ofch ?ial
THE TIMES
Should Europe
share North
Sca oil? Page 16
New Zealand DC10 with 257 on
board crashes into volcano
on Antarctic sightseeing flight
EEC leaders
face threat
to throw out
budget
Higher ta\
threafened
if pay rises
continue
Call for concessions
Bréf fré eiganda „The Times", North-
cliffe lávarði, til framkvæmdastjórans,
John Walter IV. Skömmu síðar bilaöi
Northcliffe á geósmunum og einu ári
síðar var hann létinn.
Northcliffe lávarður, braut-
ryðjandi í útgéfu blaða fyrir
almenning og útgefandi
„The Times“ 1908 til 1922.
Denis Hamilton, sem varð aðal
ritstjóri þegar Thomson lávarð
ur keyptí blaðið.
J.J. Astor majór, sem keypti
meirihluta í „The Times" 1922.