Morgunblaðið - 05.12.1979, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979
47
nú eftir að víetnamski herinn
hefur gert stórfellda innrás. Þess
ber að geta í þessu samhengi, að
erlendir aðilar sem heimsóttu
landið fyrir innrásina voru sam-
mála um að hungur væri
víðsfjarri fólkinu undir stjórn Pol
Pots. I þeim hópi voru alls konar
fólk sem ekki er hægt að segja að
hafi verið áhangendur Pol Pots og
því ófært um að gefa óhlutdræga
lýsingu.
Með þessum orðum hefur ekki
verið þvertekið fyrir að ýmsir
hryllilegir atburðir hafa gerst á
þessu tiltekna tímabili. En bæði er
umfang þeirra og eðli víðsfjarri
því blóðbaði og tilgangslausu
fjöldaslátrun sem reynt er að
sannfæra venjulega fjölmiðla-
neytendur um að hafi átt sér stað.
Danskur maður, Torben Retböll
að nafni, hefur tekið sér fyrir
hendur að rannsaka meðferð vest-
rænna blaða á málefnum Kamp-
útseu árin 1975—1978. Niðurstöð-
ur hans er nú að finna í bókinni
„Kampuchea og den vestlige
presse". Þar kemur fram, stutt
óyggjandi rökum, að pressan hef-
ur valið að rangfæra staðreyndir
og blása út vitleysur. Notast er við
falsaðar ljósmyndir, fölsuð viðtöl
og vafasamar frásagnir eru
kynntar sem staðreyndir. Enn-
fremur hefur hin sama pressa
ekki fengist til að birta leiðrétt-
ingar eða frásagnir sem ganga
þvert á tilbúning þeirra sjálfra.
Þá hefur verið hrópandi skortur á
frjóum umræðum um ástandið í
landinu, þar sem málin eru rann-
sökuð án hávaða og æsifregna.
Bók þessi ætti að vera til handar-
gagns á hverri ritstjórn og
fréttastofu hérlendis sem erlendis.
Sérstaklega ættu þeir starfs-
menn sjónvarpsins, sem standa í
því að draga að sýna myndir, sem
ætlað er að réttlæta hernám
Víetnama í Kampútseu, að kynna
sér málin betur.
„Utsynningur44,
ljóðabók eftir Gunnar Finnbogason
ÚT ER komin ljóðabók eftir
Gunnar Finnbogason skóla-
stjóra. Nefnist hún „Útsynn-
ingur" og er fyrsta ljóðabók
höfundar.
í frétt frá útgefanda segir,
að höfundur hafi byrjað að
yrkja á s.l. sumri en hafi ekki
borið það við fyrr. „Efni kvaeð-
anna, sem eru 24, er líf okkar í
amstri dagsins því höfundur
kemur víða við — borgarlífið, í
banka, hjá fógeta, í Stjórnar-
ráðið, um lífið og dauðann,
vorið o.s.frv.“
Bókin er 85 bls. að stærð.
Útgefandi er Bókaútgáfan
Valfell.
Gunnar Finnbogason
Al'CLÝSINGASIMINS ER:
22480
R:@
Málverkahorn
í Corus
NÝLEGA hefur verið sett á sýnis og sölu málverk eftir
laggirnar verzlunin Corus í Jóhannes Geir, Gísla Sigurðsson,
Hafnarstræti 17. Sú nýlunda er Atla Má, Jónas Guðmundsson,
þar, að inn af verzluninni er Gunnar Þorleifsson og Svein-
málverkahorn — þar eru nú til björn Þór.
Sukksamt inn-
an kirkjunnar
Róm, 3. desember. Reuter.
PRESTAR, munkar og nunnur
drekka of mikið. að því er
upplýst var á ráðstefnu yfirboð-
ara trúarstofnana kaþólsku
kirkjunnar í Róm í dag.
SINDRA
STALHE
„Drykkjusýki meðal presta og
klausturbúa færist stöðugt i
aukana. og teygir þessi óáran
anga sína um alla heimsbyggð-
ina,“ sagði séra Joseph Macna-
mara frá Bandaríkjunum er
hann flutti skýrslu á ráðstefn-
unni.
Macnamara veitir forstöðu
stofnun, sem aðstoðar bágstadda
presta, en hann heldur því fram að
algengara sé að drykkjusjúklingar
gerist prestar, munkar og nunnur,
en að fólk í þessum stéttum verði
Bakkusi að bráð eftir að það gangi
í þjónustu kirkjunnar.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
PRÓFÍLPÍPUR
□□□□cDaDaai—n-----iHZHHCIZia
Fjölmargir sverleikar.
Sex þýddar
skáldsögur
ÚT ERU komnar 6 bækur
hjá Bókasafni fjölskyld-
unnar, allt nýjar bækur,
sem ekki hafa komið út
áður á íslandi.
Bækurnar eru: Endur-
fundir eftir Marion Nai-
smith, Þrír dagar eftir
Joseph Hayes, Ósáttir erf-
ingjar _ eftir Essie Sum-
mers, Ástir í öræfum eftir
Dorothy Cork, Smyglarinn
hennar eftir Alice Chet-
wynd Ley og Ástir lækna
eftir Elizabeth Seifert.
Bækurnar eru hver með
sínu sniði, sú fyrsta gerist í
Englandi nútímans, önnur í
smáborg í Bandaríkjunum,
þriðja í afskekktum héruð-
um Nýja Sjálands, fjórða
inni á öræfum Ástralíu,
fimmta í Englandi á dögum
Napoleonsstyrjaldanna og
sú sjötta í smáborg í
Bandaríkjunum.
„Bækurnar hafa þannig
hver sitt sögusvið og eiga
það raunar eitt sameigin-
legt að vera skemmtilega
rómantískar og spenn-
andi,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá útgefanda.
Snjólaug Bragadóttir
hefur íslenskað allar bæk-
urnar utan eina, sem Loft-
ur Guðmundsson íslensk-
aði.
Borgartúni31 sími27222
Landsins mesta úrvai af
útvarpsklukkum.
Og hér kemur
meistarastykkið,
útvarpsklukka með cassettu.
Allttíl hljómfíutnings fyrir:
HEIMILIÐ — BÍUNN
OG
DISKÓTEKIÐ
D i •
Kaasö
ARMULA 38 (Setmúla meginl 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 POSTHÖLF 1366