Morgunblaðið - 05.12.1979, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979
53
• '< i* í * í
I » \ [ : \
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
‘T^m^sns&'úa'u If
einmitt kenningar Helga greitt
fyrir hafningu íslenskrar hugsun-
ar og þeirri hafningu ættu íslensk-
ir háskólamenn að veita brautar-
gengi.
Ingvar Agnarsson
• Bláfjallamenn
Þið þarna í Bláfjöllunum ...!
Eruð þið ekki hressir ...! Við
erum ekki hressir ...! Vegna þess
að árskort úr Hamragili sem að
öllu jöfnu veita helmings afslátt í
Bláfjallalyfturnar hafa ekki verið
tekin gild í haust. Árskort í
Bláfjöll gilda frá hausti til vors en
í Hamragili milli áramóta. Teljum
við okkur því hafa greitt fyrir allt
árið 1979. Viljum vér fá leiðrétt-
ingu vorra mála.
Steini 8435—8231
Palli 7016-7603
Gummi 3084—2391
Hemmi 4058—4528
Svenni 8764-4561
Arnar 0454-6709
Nilli 6613-5020
Þór Ómar 9573—9000
Með þessu bréfi Bláfjallamanna
var ósk um að það birtist óbreytt.
Velvakandi gekk að þeirri ósk
félaganna.
• Hvers eiga börn
í Öskjuhlíðarskóla
að gjalda?
Ég er móðir 3 heilbrigðra
barna, svo aðég hef ekki hugsað
sem skyldi um þroskaheft börn.
En nú er ég svo hneyksluð að ég
held að ég láti svolítið í mér heyra.
Við höldum að við búum í velferð-
arþjóðfélagi, en það vantar í raun
mikið á að svo sé. Eða svo lít ég
a.m.k. á málið eftir að ég heyrði að
börn í Öskjuhlíðarskóla hafa að-
eins einn sturtuklefa með 4
sturtuhausum, sem bæði kyn nota
sameiginlega eftir leikfimi.
Ég hef heyrt að þetta sé mikið
vandamál þegar þau komast á
kynþroskaskeið, því svo gleðilegt
er að þau eru mörg það þroskuð að
þau gera sér grein hvert fyrir
öðru.
Hvað segðum við foreldrar sem
eigum heilbrigð börn ef að þeim
væri boðin þessi aðstaða í sínum
skóla?
Ég held að þá yrði hrópað hátt
og hneykslun yrði mikil.
Hvað segja ráðamenn mennta-
og heilbrigðismála um þetta?
Ég held að við þurfum að vakna
til samábyrgðar um þetta mál og
mörg fleiri fyrir þann hóp fólks og
barna sem ekki eru fullheilbrigð.
Nóg er gert í málum hinna
heilbrigðu barna, en okkur finnst
þó aldrei nóg fyrir þau gert.
Því skora ég á stjórn heilbrigð-
is- og menntamála að láta nú sjá
að til séu menn í ábyrgðarstöðum
innan þeirrar stjórnar. Það er
kominn tími til að þeir vakni nú
til lífsins og geri eitthvað fyrir
Öskjuhlíðarskóla og börnin þar
strax.
L.E.
Leiðrétting
I bréfi Maríu Markan sem
birtist í Velvakanda s.l. sunnudag
misritaðist ein málsgrein. I stað
„aðvörun" var „alvöru“. Máls-
greinin sem misritaðist er því rétt
þannig: „Sagan sem slík er vel
skrifuð og mun eiga að innihalda
aðvörun sem þó ekki kemur nógu
ljóst fram fyrr en helst í síðasta
lestri.
Þessir hringdu . . .
• Lífshætta
Sigríður Jónsdóttir hringdi:
„Á Suðurlandsbraut beint á
móti Gunnari Ásgeirssyni er
strætisvagnaskýli. En þar er eng-
in gangbraut, svo að oft reynist
erfitt og jafnvel hættulegt fyrir
farþega strætisvagnanna að kom-
ast yfir götuna. Þarna eru fjórar
akgreinar og þegar umferð er
mikil getur það verið lífshættulegt
að komast yfir Suðurlandsbraut-
ina á þessum stað.
Hér um daginn munaði mjóu að
ég yrði fyrir bíl á leið minni yfir
götuna. Eg hét því þá að ég skyldi
hringja til Velvakanda og benda á
þessa miklu slysahættu. Það er
lífsnauðsyn að merkt verði gang-
braut eða sett up gangbrautarljós
á þessum stað.“
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Austur-Þýzka-
landi í ár kom þessi staða upp í
skák þeirra Uhlmanns, sem hafði
hvítt og átti leik, og Briigge-
manns.
HÖGNI HREKKVÍSI
/*'*
m
© 1979
McNaught Synd., Inc.
LANSif ö\MH -þó TÆfeli? fáG 6tm?!1
28. Hxf8+! - Kxf8, 29. Be6 og
svartur gafst upp, því að eftir 29.
... Da6, 30. Df3+ - Bf6, 31. Bxf6
- gxf6, 32. Dxf6+ - Ke8, 33. Df7
er hann mát.
83? SIG6A V/öGA É 1/LVEMW
Qtff I \iU6
&JÓQA VKKoK I/OÝWf
Wlí VAtíMA ÖU SláóA, av
^vímúwa ui'&w
, v/(?n9. Í6 \W77 Aft
[vkkuK uóqogíN '
^ÖVlMOW OG W \\fcW
Nd IÁTA W'tjKv/ZlOSA
v\lA9A ,\ WAO'bM'N/
A WR
plötur
af ymsum gerðum
og Þykktum
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ.
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
KANARI
er
16. desember — uppselt.
Laus sæti 6. og 27. janúar.
Athugið vUdatkjörin
1/3 fargjalds út
eftirstöðvar
á 4 mánuóum
Fli;c fí F 3
Lækjargötu 2 og Hótel Esju Sími 27800.
URVAL .‘T' tWnnr, ' :r ‘r u « » 77
v/Austurvöll Sími26900 1 *' f Austurstræti 17 ' „ / C*. " Sími 26611
Austurstræti 12 Simi 27077
v&esmsg
þÝYRlA V4NM