Morgunblaðið - 05.12.1979, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979
56
Steíngríms Saga og
sex aörar nýjar bækur
STEINGRÍMS SAGA
Sjálfsævisaga Steingríms Steinþórssonar forsætisráðherra
Brýtur í blað í íslenskri ævisagnaritun
Þegar Steingímur Steinþórsson féll frá lét hann eftir sig
handrit að ævisögu sinni. Hann hélt lengst af dagbækur og
byggði sögu sína á þeim. Ævisaga Steingríms er því skráð
eftir heimildum sem ritaðar voru í hita baráttunnar frá degi
til dags og í sögunni er ekkert undan dregið. Steingrímur er
opinskár og einlægur og fjallar á þann hátt um menn og
málefni að bók hans á fáar sér líkar. Hann hlífir engum og
allra síst sjálfum sér.
STEINGRIMS SAGA ER ÍSLENSK STÓRSAGA
Roy Hattersley:
NELSON
flotaforinginn mikli
Nelson er einn af mestu sæ-
görpum allra tíma. Þrír miklir
sigrar hans í orrustunum við Níl,
Kaupmannahöfn og Trafalgar
tryggðu honum frægð og þakk-
læti föðurlandsins. Áhrif
Nelsons á gang veraldarsög-
unnar eru ótvíræð.
Hannes Pálsson
frá Undirfelli
VOPNASKIPTI OG VINAKYNNI
Andrés Kristjánsson skráði
Hannes rekur misvirðasama og
margþætta lífssögu sína af mik-
illi ósérhlífni, opinskáu hrein-
lyndi, glöggskyggni og heiðar-
leik — og án feluleiks eða tæpi-
tungu um menn og málefni —
einnig um sjálfan sig.
Per Sundböl:
ÍSLANDSPÓLITÍK DANA
1913-18
Þessi bók varpar nýju Ijósi á
sjálfstæðisbaráttu l'slendinga og
kallar marga stjórnmálamenn
fram á sjónarsviðið. Þetta er þörf
bók sem á erindi við alla sem
unna íslenskri sögu. Jón Þ. Þór,
sagnfræðingur, þýddi.
Jón Bjarnason frá Garðsvík:
BÆNDABLÓÐ
Það er þjóðlegur fróðleikur,
kraftur og kitlandi kímni í þók
þessa norölenska bónda. Hann
segir forkostulegar sögur af fólki
og fénaði og varpar skemmtilegi
Ijósi á þaö líf sem lifað var í
landinu til skamms tíma.
Om og Örlygur
Vestungötu42 s 25722
Sigurgeir Magnússon:
ÉG BERST Á FÁKI FRÁUM
Fjörhestar- og menn
Þessi bók hefur á sér öll ein-
kenni þeirra ritverka um hesta
sem minna á bókmenntir um
konur, en jafnframt talar höf-
undurinn tæpitungulaust um
ýmislegt sem hann telur að
mætti betur fara hjá hesta-
mönnum og forsvarsmönnum
þeirra.
Metsöluþókin:
UPPREISN FRÁ MIÐJU
Frá því að bók þessi kom út í
Danmörku í febrúar 1978 hefur
hún vakið óskipta athygli víða
um heim og selst í metupplög-
um. Höfundar hennar lýsa nýrri
þjóðfélagsgerð og skilgreina þá
þróunarleið ýtarlega og undan-
bragðalaust. Ólafur Gíslason
þýddi.
eb Klapparstig 27