Morgunblaðið - 07.12.1979, Side 11
Á ALDARÁRTÍÐ
JÓNS
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1979
Dr. Kristján Eldjárn
Dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands:
Mörg lönd eiga sína þjóöhetju, eins og þær eiga sér þjóðsöng
og þjóðfána, menn sem öðrum fremur hafa barist fyrir frelsi lands síns,
oftar en hitt með sverð í hendi. Þjóöhetjan er eitt af táknum þjóðar-
innar, oft hafin upp í goösögulegt veldi. Jón Sigurösson er þjóð-
hetja íslendinga. Hann varði sínu mikla þreki, lífi sínu, í baráttu
fyrir rétti og frelsi íslensku þjóðarinnar, ekki með herskildi,
heldxar mannviti, staöfestu, þekkingu og þrotlausu starfi. Og það
er óþarfi að sveipa hann hjúpi goðsögunnar. Hins vegar leikur um
hann ljómi heiðríkju, sem stafar frá stórhreinlegum persónuleika
hans sjálfs og ævistarfi hans í mikilleik sínum. Þá hefur hamingjan
verið hollust þessu landi, þegar hún kallaði annan eins afburðamann
fram á sviðið til forustu, einmitt á þeim tíma þegar hvað mest
nauðsyn var á traustum foringja. Jón Sigurðsson var réttur maður
á réttum stað og tíma. Hann hafði ekki alltaf eintóman meðbyr hjá
löndum sínum, einhverjir hlutu að una sér misjafnlega í skugga hans.
En það yljar manni um hjartað að hugsa til þess hvernig allur þorri
manna setti von sína og taust á hann. Eflaust hafði hann þá eigin-
leika til að bera sem endast mættu manni til forustu með hvaða stór-
þjóð sem var. En hann helgaði allar þær guðsgjafir fátæku og
umkomulausu föðurlandi sínu úti í hafinu. Ef nokkur er þjóðhetja vor,
þá er það hann. Vér minnumst hans ár hvert á fæðingardegi hans, þjóð-
hátíðardeginum. Og vér minnumst hans nú á ártíð hans, þegar öld er liðin
frá andláti hans. Það er sálxabót hverjum íslendingi að leiða sér í hug
líf og starf JÓns Sigurössonar forseta.
HUGSAÐ
TIL
JÓNS
SIGURÐS-
SONAR