Morgunblaðið - 07.12.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.12.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1979 49 félk í fréttum Óvæntur gestur + ÓVÆNTAN gest bar að garði í Buckinghamhöll er Karl prins varð 31 árs nú fyrir nokkru. — í höllinni knúði dyra, í tilefni af afmælinu, þessi háaldraða kona, sem er með Karli á myndinni. — Hún hafði gert sér ferð í konungshöllina til að óska prinsinum til hamingju og árna honum velfarnaðar. Gamla konan, frú Annie Healff, sem kom með fallegan blómvönd til afmælisbarnsins sagði nærstöddum að á henni og prinsinum væri nákvæmlega 70 ára aldursmunur, því hún er 101 árs gömul. Nýtt kvennagull + ÞESSI ungi maður er nýj- asta „stór-kvennaguir í Bandaríkjunum, leikarinn Erik Estrada. Vinsældir hans þar vestra fara sífellt vaxandi og í bandarísku tímariti er hann sagður standa jafnfætis sjálfum John Travolta, í hugum kvenna þar vestra. Fyrir nokkrum árum var Estrada óþekktur með öllu, en lánið hefur leikið við hann. f dag fer hann með aðalhlutverkið í vinsælustu sjónvarpsþáttum NBC sjón- varpsstöðvarinnar sem ganga undir nafninu „Chips“. Fyrsta meiriháttar hlutverkið sem hann fékk var í kvikmyndinni „Kross- inn og hnífsblaðið“ sem sýnd er í Tjarnarbíó í Reykjavík um þessar mundir. Nú skal þar vera heilsuverndarstöð + ÞETTA er danski ferða- brigðum. Með tilliti til þess skrifstofu-jöfurinn Simon hefur hann tekið þá ákvörðun, Spies. Fyrir um það bil tveimur að leikhúsinu skuli breytt. Inn- árum ákvað hann að breyta réttingarnar fjarlægðar og þar kvikmyndahúsi, sem hann átti, komið upp heilsuræktarstöð í leikhús. Var þetta gert, því að með sundlaug. Verður þessi bíóreksturinn gekk mjög illa. stöð fyrir starfsfólk hans og Nú er svo komið með þetta eins til afnota fyrir gesti hótels- leikhús, Mercur Teater i mið- ins, Mercur, sem Spies á og borg Kaupmannahafnar, að það rekur og er undir sama þaki og hefur aðeins valdið honum von- heilsuverndarstöðin. W Bílgreinasambandiö Sambandsfundur 8. des. Sambandsfundur veröur haldinn aö Hótel Sögu hliöarsal 2. hæö kl. 9.30 laugardaginn 8. des. n.k. Dagskrá: 1. Formaöur setur fundinn. 2. Bifreiöaeftirlitiö. 3. Könnun Hagvangs h.f. 4. Verölags og kjaramál: a. horfur í verðlagsmálum b. væntanlegir samningar c. útsölutaxtar d. ábyrgöargjöld og ábyrgðarskírteini. 5. Önnur mál: a. Kynnisferð til Hollands og Svíþjóöar b. afsláttarkort og bæklingur um notaða bíla. 6. Hádegisveröur. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Marks og Spencer QrTHickúdt Opid til kl. 7 í kvöld og 6 laugardag oMorgunsloppar cNáttkjólar ‘Náttfót

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.