Morgunblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980 13 Bðkmenntir eftir GUÐMUND G. HAGALÍN ÞAÐ hefur verið haft fyrir satt, að einungis sárafá af hinum mörgu tugum íslenzkra ljóðskálda eigi því láni að fagna, að bækur þeirra seljist svo vel, að ekki verði tilfinnanlegt tap á útgáfunni. Al- menna bókafélagið gaf til skamms tíma út margt bóka eftir ung ljóðskáld, en bækurnar seldust yfirleitt svo hörmulega lítið, að félagið gafst upp á þeirri virð- EKKIER YFIRLÆTIÐ Gylfi Gröndal: Ljóð. Bókaútgáfa Fjölva. Rvík 1979 ingarverðu útgáfu. Flestir hinna mörgu íslenzku bókaútgefenda hafa og forðazt það sem heitan eldinn að gefa út ljóð sín fjölrituð, en ekki mun það hafa gefið góða raun, enda hefur mér heyrzt, að fólk almennt teldi fjölritaðar bæk- ur sönnun þess, að höfundarnir hefðu gengið bónleiðir til búðar, af því að ljóð þeirra væru ekki þess virði, að þau væru gefin út á prenti ... En nú hefur það gerzt, að bókaútgáfa Fjölva hefur gefið út ekki eina eða tvær, heldur sjö ljóðabækur eftir skáld, sem eru tiltölulega lítt kunn, og gert bæk- urnar þannig úr garði með myndskreytingum, að skáldin og væntanlegir lesendur mega vel við una, og er vonandi, að Fjölvi þurfi ekki að hætta þessari útgáfu- starfsemi. Ein af hinum sjö, sem Fjölvi hefur kostað útgáfu á, er eftir Gylfa Gröndal, sem hefur áður sent frá sér tvær ljóðabækur, Náttfiðrildi 1975 og Draumljóð um vetur 1978. Nýja bókin, sem heitir Döggslóð, er aðeins sextíu og tvær blaðsíður, en hefur þó að geyma þrjátíu og þrjú órímuð ljóð. Nokkur þeirra eru í þannig tengsl- um við íslenzkar fornsögur, að þau njóta sín varla nema lesandinn sé minnugur þess, sem þau skírskota til í sögunum. Annars er það einkenni á þessum ljóðum skálds- ins, hve tamt honum er látleysi og hljóðlát íhugun, og raunar enn- fremur, hve mjög þau vitna um þá unun, sem hann hefur af fegurð tóna, lita og gróanda. En eftir- minnilegast hefur mér orðið ljóð, sem má heita sérstætt í bókinni. Það heitir Andlát, og þar eð það er stutt og ég hygg, að fleirum en mér muni þykja það haglega formað og að nokkru nýstárlegt, birti ég það hér sem heild: NýlcKa lózt að hrimili sinu hcluKrár iildunKur öndvcKÍsmaður á alla lund kla'ddur í kjólfiit kominn mrA pípuhatt aA fara á fund. l>á hrinKdi síminn svolítiA iinuKur sukAí hann ok dustaAi rvkkorn af löfunum: ,.Ja. hvcr cr þaA?" ..DauAinn." var svariA. _Ék cr laxAur af staA." Af öðrum ljóðum bókarinnar þykja mér þessi bezt gerð: Sól- blóm, Gróðurhús, Þrá, Kormákur og Steingerður, Klukka, Arnarfell og I minningu föður. Annars held ég, að Gylfi Grön- dal ætti oftar að snerta þann streng á hörpu sinni, sem ómar í ljóðinu, sem birt er í þessu greinarkorni. Ögmundur Kristinsson sigraði í Grohe-mótinu HINU árlega Grohe- skákmóti lauk fyrir nokkru hjá Taflfélagi Seltjarnarness. Tefldar voru 9 umferðir sam- kvæmt Monrad-kerfi og var þetta sterkasta skák- mót, sem TS hefur haldið. Keppendur höfðu eina klukkustund til þess að Ijúka skákinni. Röð efstu manna varð þessi: 1. Ögmundur Kristinsson TS Vh v. 2. Magnús Sólmundarson Mjölni 7 3. Jónas Þorvaldsson TR6Ú2 4. Harvey Georgsson TS 6 5. Hilmar Karlsson TS 5 lh Ögmundur Kristinsson sigraði einnig örugglega í Grohe-hraðskákmótinu með 17 vinninga af 18 mögulegum. Annar varð Harvey Georgsson með 15 V2 vinning og þriðji Sól- mundur Kristjánsson með 11 vinninga. Vilhjálmur Þór Kjartansson Hitastig Helga Hálfdanarsonar Ætli Helgi Hálfdanarson sé að gera at í okkur með greinarkorni sínu (Mbl. 4. jan. 1980) um tímatalið? Nógu illa erum við flest að okkur í stærðfræðilegri framsetningu, ekki síst þeir sem mest rita í dagblöð, þótt Helgi bæti þar ekki um betur með því að segja hvítt svart. Það þykir mér grár leikur. Helgi tekur dæmi úr daglegu lífi okkar til framdráttar tímatalsreglunni sem hann aðhyllist. Af tómum prakkaraskap líklega, eru þessi dæmi í ágætri mótsögn við þá reglu og í enn betra samræmi við regluna sem hann úthrópar. Til þess að stráksskapur Helga verði ekki óhörðnuðum grunnskólanemum og blaða- mönnum myllusteinn um háls, ætla ég aðeins að leggja orð í belg. I hitastigsrununni ... -2 °C, -1°C, 0°C, 1°C, 2°C ... er viðtekin venja að tölurnar tákni ákveðin hitastig en ekki bilin á milli þeirra. Hitastigið 0°C er jafn rétthátt sérhverju hinna. Sérstaða þess felst einungis í því, að einmitt við það hitastig tekur áfar algengt efnasamband, blávatn, fasaskiptum. Annað al- gengt efni hérlendis, smjör eins og nafni minn bar heim á höfðinu, gerir slíkt hið sama við hitastigið 30°C (Almanak hins íslenska þjóðvinafélags, 1968). Mér er þó ekki kunnugt um að þetta hitastig hafi verið sett út af sakramenti fyrir athæfi smjörsins og aðeins talið mót hitastiganna 29°c og 31 °C. Líkt er þessu farið með tilvitn- un Helga í mælingar á vegalengdum. Vissulega er til- vitnunin þó ein sér rétt sam- kvæmt orðanna hljóðan, en hins vegar er það háttur manna og tækja nú á tímum að nefna ekki né sýna lOkm fyrr en sú vega- lengd er að baki. Deilan um áratugaskiptin er í sjálfu sér ekki áhugaverð. Þeir sem vilja stytta sér stundir með henni í skammdeginu hafa margir haldið henni farsællega til streitu með því að skilgreina ekki talnakerfið sem þeir byggja rökræðuna á, og allra best vegn- ar þeim ef þeir nota mismunandi talnakerfi í sömu setningunni. Þeir sem iðka þessa skemmtan á opinberum vettvangi verða þó að gæta þess að fara ekki svo fínt í gamanið, að jafnvel slælega ein- faldar sálir haldi að verið sé að ræða vísindi. Nema Helga hafi verið alvara? Ef til vi.ll er þá lausnin sú að bæta núllta jólsveininum við þá einn og átta sem fyrir eru? Alltént væri þá tugurinn fylltur. Bibliuljóð í þágu hins lif anda lífs Jakob Jónsson frá Hrauni: Vökunætur. Ljóð — Fjölvaútgáfa — Reykjavík 1979 Ég hef þekkt Jakob Jónsson frá Hrauni í hvorki meira né minna en rúma hálfa öld. Þegar ég kynntist honum fyrst, var hann ekki orðinn prestur, hvað þá doktor í guðfræði. Síðar hafði ég kynni af honum sem sóknarpresti við Hallgrímskirkju og tryggða- vini, sem leysti af hendi mikilvæg prestverk fyrir mig og suma mér nákomna. Ég fylgdist nokkuð með samskiptum hans við skáldgyðj- una og þóttist sjá, að hann væri gæddur skáldgáfu,. sem fengi ekki notið sín fyllilega vegna mikilla og margvíslegra embættisanna. Svo sá ég það á kápu hinna mynd- skreyttu Vökunótta, að dr. Jakob hefði verið sjúkur og sjúkdómur- inn af því tæi, að hann hefði haldið vöku fyrir klerknum, en hins vegar leyft skáldinu að at- hafna sig svo rækilega, að hann hefði ort á andvökunóttum þann ljóðaflokk, sem bókin Vökunætur hafa að geyma. Ég taldi svo nokkurn veginn víst, að ljóðin væru vel rímuð og í þeim margt viturlegt, en varla gætu þau verið veigamikill skáldskapur, enda skáldið aðeins sex árum yngri en ég, sem fólk er hissa á að geti nokkuð af viti látið frá mér fara. Ekki efaðist ég um það, að allt í bókinni væri ort í góðri meiningu, en sjálfur Hallgrímur Pétursson segir „góð meining enga gerir stoð.“ Hver varð svo reyndin? Fyrsta ljóðið í bókinni heitir Til Þóru á 75 ára afmæli hennar. Það er sem sé óður ástar og þakkar til eiginkonunnar, sem með skáldinu hefur lifað súrt og sætt í hálfa öld, og vissulega hófust brúnir mínar, þegar ég las ljóðið, því að það er allt í senn: látlaust, innilegt og fagurt. Það hefst þannig: FoKur cr lindin. som Ijómar í doKKVotum mosa. on ÍOKurst or fljótió. som írjóvKaói hyKKÓir svoitir ok voitti landinu Hf. Mildur or morKunroóinn vió upprisu w'dar ok onn man ók. hvo stoinninn lifói ok Ijómaói jdróin. or daKur rann — daKur þinn ok minn. Og þessi eru lok ljóðsins: Nú cr mcr nrA.s vant í olli minni. In> finn ók oitt. som í sór folur allt. or soKja þarf á þossum doKÍ: I»óra mín. — I»ÖKK. Bðkmenntir eítir GUÐMUND G. HAGALÍN Svo sný ég blaðinu við og les eitt ljóðið af öðru, tuttugu og fimm eru þau, og ég les þau öll í annað, þriðja og fjórða sinn, þessi ljóð sem ort eru út af textanum úr Heilagri ritningu. Og að mér svífur sú ómannúðlega hugsun, að dr. Jakob Jónsson, sóknarprestur, hefði oftar átt að liggja sjúkur, Jakob Jónsson frá Hrauni samt svo hress að starfað hefðu saman að ljóðagerð heili og hjarta, yfir- skyggð af anda spámanna og meistarans, sem var Jóhannesi skírara þeim mun meiri, að hann var negldur á kross. Því að eins dettur mér þetta miskunnarleysi í hug gagnvart dr. Jakobi, að öllum í þessum ljóðum hefur hann eitt- hvað það að segja, sem er í þágu hins lifanda lífs, þessa heims og annars. Eitt af ljóðunum virðist mér túlka á svo djúptækan hátt okkar um margt válegu tíma, að ég leyfi mér að birta það hér í heild. Það er ort út af þessum orðum í Markúsar guðspjalli: „Og þeir fara út með hann og kross- festa hann.“ Ljóðið heitir Trúar- játning óttans: Hví krossfostu þoir hann? La‘risvoinarnir hruKóust ok hilaói kjarkur postulanna. on a*óstu prostarnir trúóu á orósins mátt af munni hans. Ok krossinn varó tákn um trúarjátninKU óttans. som hjó í brjóstum þoirra. — tortíminK þoss. som þoir trúóu á. on óttuóust. Ljárinn þokkir líí hinna Króandi Krasa. myrkrió Krunar mátt hinna lýsandi Ijósa. þóKnin finnur kraít hins frjálsa orós. Haróstjórar allra alda óttast hinn frjálsa anda. þoir þokkja þaó moKÍn. som moð honum býr. Ok trúarjátninK óttans or krossinn. spronKjan. fjotrarnir. hyssan froÍKátan. Ok þó or krossinn hið talandi tákn þoss orðs. som þo^nin fa*r aldroi oytt. þoss lífs. som Ijárinn doyóir okki. þoss Ijáss. som myrkrió slokkur okki. þoss sannloika. som lyKÍn si^rar okki. Ég vildi helzt birta meira /ír þessum andvökúljóðum, en ef til vill segja ýmsir af lesendum mínum: Þetta er marklaust bull tveggja kalkaðra öldunga, annar rúmlega hálfáttræður, hinn kominn á níræðisaldurinn. Amen, — það hefur það. Hafóu samband Skipaferðir til Isafjaröar og Akureyrar alla mánudaga EIMSKIP * HALFSMANAÐARLEGA TIL SIGLUFJARÐAR OG HÚSAVÍKUR SIMI 27100 VÖRUMÓTTAKA í SUNDASKÁLA OG A-SKÁLA, DYR 2, TIL KL.1500 FÖSTUDAGA J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.