Morgunblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1980 15
Hvað segja þeir
um þjóðstjórn?
„VIÐ Framsóknarmenn höfum i
sjálfu sér tekið vel málaleitan
Geirs um athugun á þjóðstjórn.
Við teljum það vænlegra að
menn þjappi sér satnan, en að
aukið verði á sundrunguna,"
sagði Tómas Árnason, ritari
Framsóknarflokksins í samtali
við Mbi. í gærkvöldi. „Auðvitað
verður ekkert endanlega
ákvarðandi um samstarf annað
en málefnin og ég geri ráð fyrir
þvi, að við höldum fast i þau,
eins og við erum vanir.“
Tómas sagði að efnahagsmála-
nefnd Framsóknarflokksins hefði
komið saman í gær.„Við vorum
svona að ræða þær tillögur sem
sjálfstæðismenn hafa sent okkur,
en í raun liggja þær ekki svo
skýrt fyrir ennþá, að hægt sé að
segja af eða á um þær, til dæmis
er ekki nægilega ljóst, hvernig
þeir hugsa sér að afla fjár til
ríkissjóðs til að bæta það upp,
sem hann kæmi til með að
bæta.Ég er satt að segja dálítið
hissa á því, hvað það er mikil
tregða hjá öðrum en okkur fram-
sóknarmönnum að setja fram
tillögur sem hlutlausir aðilar
geta metið til árangurs, til dæmis
gagnvart kaupmætti og verð-
bólgustigi. Mér finnst of mikið
um það að stjórnmálaflokkarnir
séu hræddir við að láta almenn-
ing sjá, hvað þeir nákvæmlega
vilja.
Það er ekkert skyndiverk að
lagfæra efnahagsástandið og að
mínu mati ekki skynsamlegt, að
þjóta i einhverja ríkisstjórn upp
á einhvern skamman tíma. Við
þurfum sterka ríkisstjórn, en
umfram allt þurfum við ríkis-
stjórn, sem er ekki hrædd við að
gera það, sem gera þarf“.
„Geir vill fá að ræða við
formenn allra flokkanna og ég
mun mæta í fyrramálið og hlusta,
svona heyra og sjá, hvernig málin
standa," sagði Lúðvík Jósepsson
formaður Alþýðubandalagsins í
samtali við Mbl. í gærkvöldi. —
Luðvík kvaðst ekki á þessu stigi
vilja tjá sig neitt um þjóðstjórn-
armöguleika. „Ég reikna með að
það sé mat Geirs eftir hans
persónulegu könnun, að þetta sé
líklegasti möguleikinn við
ríkjandi aðstæður, en fyrst vil ég
heyra meira og sjá áður en ég
segi álit mitt á honum. Ég hef
hins vegar ekki orðið þess var, að
menn hafi svo mjög skipt um
skoðanir á síðustu dögum.
Hitt get ég endurtekið, að ég tel
að við þurfum að fá öfluga stjórn,
sem getur ráðið við landsstjórn-
ina. Þá á ég ekki við með
einhverjum þrðngum efnahags-
ráðstöfunum, eins og alltaf er
verið að tala um, heldur með
víðtækum aðgerðum á efnahags-
sviðinu, þar sem meðal annars
atvinnumálin yrðu tekin vand-
lega inn í“.
„Ég hef engin plögg séð, né
kannast við einhverjar sérstakar
tillögur í efnahagsmálum“, sagði
Lúðvík, er Mbl. spurði hann um
árangur af viðræðum stjórnmála-
manna að undanförnu. „Ég var
nú á þingflokksfundi í dag og þar
hafði enginn neinar efnahagstill-
ögur sjálfstæðismanna eða út-
færslu á þeim. Ég geri hins vegar
frekar ráð fyrir því, að Geir leggi
eitthvað slíkt fram á fundinum í
fyrramálið.
Mbl. spurði Lúðvík þá, hvort
hann teldi að undanfarnar við-
ræður Geirs við forystumenn í
Alþýðubandalaginu hefðu opnað
möguleika á samstarfi Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks.
„Ég get ekkert um það sagt“,
sagði Lúðvík. “Það hefur greini-
lega komið fram í skrifum, að
menn telja pólitíkina nú í það
mikilli sjálfheldu, að það megi
ekki láta neinn möguleika óskoð-
aðan. Hvað út úr því kemur, get
ég engu spáð um nú.“
„Geir hefur boðað til fyrsta
sameiginlega fundar formanna
flokkanna fjögurra og út af fyrir
sig erum við Alþýðuflokksmenn
ekkert á móti slíkum fundi",
sagði Benedikt Gröndal formaður
Alþýðuflokksins í samtali við
Mbl. í gærkvöldi. „Það getur verið
þannig ástand í þjóðmálunum, að
það sé ekkert réttlætanlegt annað
en leggja pólitíkina til hliðar, en
það getur náttúrlega aldrei staðið
í langan tíma. Stjórnmálamenn
eru meðal annars tregir til slíks,
þar sem þá yrði engin stjórnar-
andstaða og slíkt kunna menn illa
við í lýðræðisríki, þótt senni-
legast myndi nú einhver stjórnar-
andstaða skapast af hálfu ein-
stakra manna í öllum flokkum".
Mbl. spurði Benedikt, hvort
samtöl sjálfstæðismanna og al-
þýðuflokksmanna að undanförnu
hefðu opnað möguleika á sam-
starfi þessara flokka. Hann sagði:
„Það var nú ekki fyrr en á
föstudag, að við fengum svona
fyrstu hugmyndir að málefna-
leg'ri beinagrind að þjóðstjórn.
Okkur fannst strax mikið skorta
þar á og við höfum um helgina og
í dag verið að ræða málin nánar
við Geir og hans ráðunauta.
Þannig hefur smám saman komið
meiri mynd á þetta, en í raun og
veru eru málin sáralítið rædd
enn. Ég býst við að á þessum
fyrsta sameiginlega fundi verði
málin rædd nánar og að þá kunni
línurnar að skýrast það mikið, að
menn geti að einhverju leyti
áttað sig á þeim möguleikum,
sem fyrir hendi eru“.
Harðnandi átök á
götum úti í Iran
Teheran, 7. janúar. AP.
ÆÐSTI fulltrúi Khomeinis í Kúrdistan
hefur sagt af sér embætti og gengið í lið
með Kúrdum sem krefjast þess að
stjórnin í Teheran kalli heri sína frá
Sanandaj, höfuðborg Kúrdistan, að því
er blaðið Teheran Times skýrði frá í dag.
Sagði að fulltrúinn, Hossein Shahvessi,
hefði sagt af sér þar sem stjórnin hefði
ekki orðið við bón hans á þá leið að
byltingarverðir yrðu dregnir frá borg-
mni.
Síðustu dægur hafa götubardag-
ar átt sér stað milli stuðnings-
manna trúarleiðtoganna Khom-
einis og Shariat Madaris víða um
íran og í þessum átökum fórust
a.m.k. 43 um helgina. Ekkert lát
var á þessum illdeilum í dag og
lögðu tugþúsundir stuðnings-
manna Madrids eld í höfuðstöðvar
byltingarsveitanna í Tabriz.
Einnig hafa 35 íranir fallið í
átökum við „innrásaraðila" frá
írak á landamærum landanna, að
því er blað Islamslýðveldisins
skýrði frá í dag. Blaðið sagði að 50
innrásarmannanna hefðu særst og
verið teknir fastir.
Carter Bandaríkjaforseti hefur
ákveðið að fara þess á leit við
Öryggisráð SÞ að ráðið gripi
þegar til efnahagslegra refsiað-
gerða gegn Iran þar sem gíslarnir
í sendiráðinu hafa ekki verið
látnir lausir þrátt fyrir að runn-
inn er út frestur sem ráðið gaf
yfirvöldum í Teheran til að láta
gíslana lausa.
Carter átti í dag fund með
Waldheim framkvæmdastjóra
SÞ., en hann er nýkominn úr ferð
til írans, og lýsti Waldheim þar
þeirri skoðun sinni að hann efað-
„AÐ mínu persónulega áliti
kemur það ekki til greina að
við yfirgefum ráðherrastól-
ana, fyrr en ný ríkisstjórn
hefur verið mynduð4*, sagði
Benedikt Gröndal forsætis-
ráðherra, er Mbl. spurði hann
í gær álits á þeim röddum,
sem fram hafa komið um að
ráðherrar Alþýðuflokksins
tilkynntu upp úr miðjum
mánuði að þeir væru hættir
störfum, þótt ekki hefði þá
verið mynduð ný ríkisstjórn.
„Menn sem bjóða sig fram til
þjónustu og landsstjórnar
geta ekki gert slíkt“.
Mbl. spurði Benedikt, hvort
mikil skoðanaskipti hefðu átt
ist um að refsiaðgerðir yrðu frek-
ar til þess að gíslarnir yrðu látnir
lausir. Á fundi Öryggisráðsins
síðdegis skýrði Waldheim einnig
frá því að embættismenn í íran
vöruðu ráðið harkalega við því að
grípa til efnahagslegra refsiað-
gerða, þar sem það mundi einung-
is gera mál gíslanna í sendiráðinu
enn erfiðari.
Eins og í flestum ríkjum múhammeðstrúarmanna ríkir mikill uggur
vegna innrásar Sovétrikjanna i Afghanistan, og nú er það Leónid
Brésneff, sem hefur tekið við hlutverki Carters Bandarikjaforseta
sem skotspónn heilagrar reiði almennings í Teheran.
Benedikt Gröndal forsætisráöherra:
Kemur ekki til
greina að starfs-
stjórn hlaupi frá
UMBOÐSMENN
SÍBS^^m
sér stað innan Alþýðuflokks-
ins um þetta mál. „Ekki mér
vitanlega,,, sagði hann. „Ég
hygg að það séu einn eða tveir
einstaklingar, sem hafa sett
þetta af stað. Sjálfsagt hefur
þetta borið á góma innan
þingflokksins, en ég var bara
viðstaddur á öðrum fundi hans
í síðustu viku.
Ég vil benda á, að ríkis-
stjórn okkar sagði af sér 4.
desember sl. og situr nú sem
starfsstjórn að beiðni forseta
íslands, eins og venjan er. Það
er dæmalaust með öllu að
ríkisstjórn sem beðin er að
sitja, þar til ný tekur við,
hlaupist brott frá þeim
starfa."
IREYKJA
OG NÁGRENNI
Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23130
Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26, sími 13665
Hreyfill bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632
Versl. Straumnes, Vesturbegi 76, sími 72800
Félagið Sjálfsvörn, Reykjalundi, Mosfellssveit
Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180
Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18,
Garðabæ, sími 42720
Sigríður Jóhannesdóttir c/o Bókabúð
Olivers Steins, Strandgötu 31,
Hafnarfirði, simi 50045.
HAPPDRÆTTI