Morgunblaðið - 08.01.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980
17
Nýtingin for
niður í 33%
ÍSLENDINGAR léku þrjá
landsleiki í handknattleik við
Pólverja um helgina. Sá íyrsti
fór reyndar fram á fimmtudag,
næsti á laugardag og sá síðasti
á sunnudag. Sóknarnýting
íslenska liðsins var allþokkaleg
i leikjunum. í fyrsta leiknum
var hún um 49%, í þeim næsta
öllu lakari eða 43%, og í þeim
síðasta 33% sem er nokkuð
slakur árangur. Hér á eftir fara
töflur yfir einstaka leikmenn í
þeim leikjum sem fóru fram á
laugardag og sunnudag. Tafla
yfir leikinn hefur þegar birst í
blaðinu. Það skal tekið fram að
töflur þessar eru frá Jóhanni
Inga landsliðsþjálfara. Fyrri
leikurinn i tölum fyrst mörk þá
mistök. Bolta glatað eða skot
sem ekki gaf mark.
Steindór Gunnarsson 4/6
Viggó Sigurðsson 4/13
Sigurður Gunnarsson 4/9
Ólafur Jónsson 3/5
Þorb. Aðalsteinsson 4/7
Andrés Kristjánsson 1/2
Bjarni Guðmundsson 1/4
Atli Hilmarsson 0/2
Friðrik Þorbjörnsson 0/0
Stefán Halldórsson 0/1
Jens Einarssön var í marki
fyrstu 20 mínúturnar. Varði
fjögur skot þar af tvö með
úthlaupum. Síðan lék Kristján
Sigmundsson í markinu. Varði 9
skot.
í þriðja og siðasta leiknum var
nýting sem hér segir. Ólafur Jónsson 3/6
Þorbjörn Jensson 2/4
Steindór Gunnarsson 1/4
Friðrik Þorbjörnsson 0/0
Þorb. Aðalsteinsson 0/2
Bjarni Guðmundsson 1/4
Viggó Sigurðsson 5/13
Sig. Sveinsson 3/6
Sig. Gunnarsson 0/8
Guðm. Magnússon 0/1
Ísland fékk fimm vítaköst —
Viggó skoraði úr tveimur en í eitt
sinn var varið hjá honum. Pólland
fékk þrjú vítaköst, tvö nýtt. Fimm
Pólverjum var vikið af velli í tvær
min. hverjum — einum íslending,
Friðriki. Kristján Sigmundsson
varði fjögur skot í fyrri hálfleik —
Brynjar Jensson sex í þeim síðari.
Ellefu sinnum í leiknum glataði
íslenzka liðið knettinum — oft á
klaufalegan hátt. — þr.
Enginn náði
12 réttum
í 19. leikviku Getrauna komu fram 4 raðir með 10 réttum og var
vinningur á hverja röð kr. 386.000.— en með 9 rétta voru 68 raðir
og vinningur fyrir hverja röð kr. 9.7000.—
Eftir að dregið hafði verið um ieikina i 3. umferð bikarkeppninn-
ar ensku, komu félögin i Bristol sér saman um að annað léki sinn
hcimaleik á föstudeginum 4. janúar til þess að forðast árekstur, en
þetta var aldrei tilkynnt getraunafyrirtækjum svo sem hinum
ensku, og þaðan af síður til íslands. Voru því aðeins 11 nothæfir
leikir á seðlinum, og einn hinna heppnu með 10 rétta var með
þennan leik tvítryggðan á kerfi, og var þar af leiðandi með 10 rétta
í 2 röðum og 6 raðir með 9 réttum. Vinningurinn fyrir þennan seðil
nemur því kr. 830.000.— — Þr.
Þorsteinn knatt-
spyrnumaður ÍBK
ÞORSTEINN Ólafsson hefur
verið kjörinn knattspyrnu-
Tvö ný
heimsmet
NÚ eru innanhússmótin í frjálsum
íþróttum hafin fyrir alvöru í Banda-
ríkjunum og heimsmetin láta ekki
standa á sér. Á móti um helgina
settu Bandarfsku hlaupararnir MC
Tear og Evelyn Ashoford ný heims-
met í 60 metra hlaupi á móti sem
fram fór í Kaliforníu. Mc Tear
tvíbætti metið. Fyrst hljóp hann á
6,53 sek. en síðan á 6,38 sek. í
úrslitunum. Dágóöur tími það. í
kvennaflokki hljóp Ashford á 7,04
sek. en eldra metið átti austur—
þýska stúlkan Gohr, 7,10 sek.
Mörg góð afrek voru unnin á
mótinu. í hástökki sigraöi Franklin
Jackobs, stökk 2,27 metra. Fyrrum
heimsmethafi, Stones, stökk 2,04
metra. Nýtt bandarískt met var sett
í 3000 metra hlaupi 7,43,2 mín.
maður Keflavíkur fyrir árið
sem var að líða. Þorsteinn hefur
leikið 13 A—landsleiki og alls
18 Evrópuleiki með liði sínu,
fleiri en nokkur annar íslend-
ingur.
Hann er nú farinn til
Gautaborgar þar sem hann leik-
ur með IFK. Gerði hann tveggja
ára samning við liðið. Þá mun
Sigurður Björgvinsson halda
utan í dag til Örgryte í Svíþjóð.
ÍBK mun því verða án góðra
leikmanna næsta keppnistima-
bil. óvíst er um aðra leikmenn.
Ragnar Margeirsson er enn
óákveðinn hvað hann gerir í
sínum málum en hugsanlegt er
að hann haldi utan á vegum
ÍBK í æfingahúðir annað hvort
til Belgiu til La Louvier eða þá
til Skotlands. Mun Ragnar fara
út í þessum mánuði ef af
ferðinni verður.
—þr.
Jóhann Ingi lengst til vinstri skiptir leikmönnum sinum inn á i síðasta leik liðsins i Laugardalshöll á
móti Pólverjum. Mikið mun maeða á íslenska landsliðinu i handknattleik á næstu dögum. Ljósm.
Guðjón B.
„Það er hlegið að okkur“
ÍSLENSKA landsliðið i hand-
knattleik hélt til Vestur-Þýska-
lands snemma í gærmorgun, en
þar er Iiðið meðal þátttakenda i
hinni firnasterku Baltic-keppni
í handknattleik. í kvöld leikur
ísland sinn fyrsta leik í keppn-
inni, mætir þá liði Austur-
Þjóverja í Minden, heimaborg
Axels Axelssonar, Jóns Péturs
Jónssonar og Diðriks frá Mind-
en sem kunnur er úr mannkyns-
sögunni. Landsliðshópur Jó-
hanns Inga Gunnarssonar æfði
stíft heima á íslandi fyrir
keppnina, lék m.a. 5 landsleiki.
tvo gegn Bandaríkjamönnum
og þrjá gegn Pólverjum. Sann-
arlega skiptust á skin og skúrir
hjá liðinu í leikjum þessum,
eins og við var að búast. enda
gerbreytt og mjög ungt lands-
lið. En þegar síðasta leiknum
gegn Pólverjum var lokið, þótti
fróðlegt að heyra hljóðið í
Jóhanni Inga.
„Fyrsti bestur*4
„Ég er náttúrulega misánægð-
ur með útkomuna," sagði Jó-
hann. Og hann hélt áfram.
„Fyrsti leikurinn var bestur frá
handknattleikssjónarmiði, ann-
ar leikurinn var að mörgu leyti
góður líka hjá okkar mönnum,
einkum hin góða barátta sem
liðið sýndi þegar Pólverjar kom-
ust sex mörk yfir. Okkur tókst
að jafna þegar staðan var 19—
19. en síðan kom í ljós, að
kjölfestu vantaði í liðið, enginn
tók að sér stjórnina úti á vellin-
um. Pólverjarnir létu þá skína í
reynslu sína og sigu fram úr.
Þriðji leikurinn var erfiðastur,
ekki aðeins vegna þess að leik-
menn voru þá farnir að þekkja
hreyfingar hver annars, heldur
einnig vegna þreytu. Frá tækni-
legu sjónarhorni séð var þriðji
leikurinn lakastur. Reyndar var
baráttan í liðinu góð og varnar-
leikur íslands var líklega bestur
í þessum leik. En þegar þreytan
seig í minnkaði eðlilega einbeit-
ingin. Nú í öllum leikjunum má
einnig segja það, að Pólverjarnir
voru heppnir þegar á þurfti að
halda.“
„Enginn
vinstrihandarleikur**
„Ég held að ungu leikmennirn-
ir hafi haft mikið gott af leikjum
þessum, þetta var góð reynsla
þótt hún mætti hafa verið meiri.
Um Baltic-keppnina vil ég að-
eins segja, að ég vona það besta.
Pólsku þjálfararnir voru að
segja okkur, að við myndum
líklega leika um 5.-6. sætið í
keppninni, Vestur- og Austur-
Þjóðverjarnir væru of sterkir
fyrir okkur, en við myndum
auðveldlega sigra Norðmenn. Ég
tel hins vegar varasamt að líta á
leikinn gegn Norðmönnum sem
einhvern vinstrihandarleik. I
sannleika sagt, verður sá leikur
erfiðastur. Bæði verður hann
þriðji leikurinn á jafnmörgum
dögum, en einnig er hann leikur-
inn sem beinlínis er krafist að
við vinnum heima fyrir. Það er
reiknað með því að við leggjum
Norðmenn, en það reiknar eng-
inn með því að við sigrum þýsku
liðin. Þvi mætum við undir
mikilli pressu til leiks gegn
Norðmönnum, en höfum síðan
engu að tapa, en allt að vinna
gegn þýsku liðunum.
„Illogið að okkur“
„Þar fyrir utan vil ég benda á
þær fórnir sem landsliðsmenn-
irnir eru að færa. A sama tíma
og leikmenn annarra þjóða þurfa
varla að gera handtak annað en
að æfa og leika handknattleik,
eru okkar menn að basla í fullri
vinnu. Strákarnir fá ekki einu
sinni greitt vinnutap fyrir þessa
ferð, þeir fá 20.000 krónur hver í
sinn hlut. Á sama tíma fá t.d.
dönsku leikmennirnir mörgum
sinnum hærri upphæð á degi
hverjum í ferðum sem þessum og
eru samt alltaf að kvarta hvað
þeir fái lítið. Það er hlegið að
okkur. Ég veit svo sem að HSÍ á
enga peninga og þarf næstum að
berjast fyrir því að kaupa harp-
ixdósir, en þetta ástand er bæði
þreytandi og fyrir neðan allar
hellur."
Þetta voru síðustu orð Jó-
hanns Inga að sinni og óhætt er
að taka undir lokaorðin.
KR.
*:
Erlendur þjálf-
ari til Vals?
4
. j§f.
*
— ÞAÐ er ekkert launungar-
mál að við hjá Val ætlum okkur
að ráða erlendan þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil og erum
við þegar farnir að leita eftir
honum, sagði Þórður Sigurðs-
son, formaður handknattleiks-
deildar Vals, í spjalli við Mbl. í
gær.
— Þetta er á byrjunarstigi,
sagði Þórður, — en við höfum nú
þegar leitað fyrir okkur í Pól-
landi í gegn um Janus Cerwinski
og hann kom með ýmis nöfn og
upplýsingar til okkar núna um
helgina. Við munum svo skoða
það nánar. Það voru sérstaklega
tveir menn sem hann mælti með.
Þá erum við að leita fyrir okkur
í Rússlandi, við erum spenntir að
fá mann þaðan. Þeir eru jú einna
lengst komnir í íþróttinni og eru
nú á toppnum. Jóhann Ingi
Gunnarsson hefur skrifað fyrir
okkur til Vestur—Þýskalands og
þar er verið að athuga málin.
Hvað verður ofan á er ekki hægt
að segja á þessu stigi málsins.
En þjálfarinn sem við ætlum
okkur verður erlendur. Vals-
menn hafa nú ákveðið leikdag-
ana í Evrópukeppninni í hand-
knattleik og mæta þeir Drott úti
í Svíþjóð í fyrri leiknum. Hinn
27. janúar fer leikurinn fram í
Halmstad. Síðari leikurinn fer
fram hér heima 3. febrúar. Við
stefnum að því að komast áfram.
—þr.
Magnús
til Magna
MAGNÚS Jónatansson
hefur verið endurráðinn
sem knattspyrnuþjálfari
hjá Magna í Grenivík.
Magnús þjálfaði Magna
síðastliðið sumar við góð-
an orðstír.