Morgunblaðið - 08.01.1980, Side 34

Morgunblaðið - 08.01.1980, Side 34
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980 3. deild handknattleikur Keflvíkingar komu á óvart en Breióablik er að stinga af KEFLVÍKINGAR komu á óvart í 3. deildinni í handknattleiknum um helgina með því að ná jafn- tefli við Óðinsmenn, því þrátt fyrir þokkalegan árangur hinna fyrrnefndu undanfarið var búist við að þeim hrakaði við að missa nú hvern máttarstólpann af óðr- um úr liðinu. „En það koma menn í okkar stað,“ sagði einn utanfarinn og vissi hvað hann söng. — Breiðabliksmenn héldu uppteknum hætti og gjörsigruðu Selfyssinga. Breiðablik er nú hreinlega að stinga hin liðin af með fullt hús stiga, en ekkert hinna hefur tapað færri en þrem stigum og flest fleirum. Keflvíkingar með „nýjan“ mann Leik Keflvíkinga og Óðins- manna var flýtt um heilan dag, sem var angi af húsnæðisvanda þeirra syðra, en í leikjaskrá var gert ráð fyrir því að heimaleikir Keflvíkinga eftir áramót yrðu leiknir í nýja húsinu þeirra, sem er svo ekki tilbúið. Þeir verða því enn að fá inni í Njarðvík. í lið Keflvíkinga vantaði nú Þorstein Ólafsson og Bjarna Sig- urðsson, sem eru farnir sinn í hvora áttina. En í þeirra stað var kominn Björn Blöndal, sem síðast lék með HK og áður með KR. Reyndist hann betri en enginn, þótt æfingalaus sé. Óðinsmenn mættu með a.m.k. í aðalatriðum óbreytt lið. Þeir hófu leikinn með talsverðum þunga og leiddu stöð- ugt til leikhlés, en þá stóð 7:9, og síðan áfram allt til loka. En á síðustu mínútunum virtust þeir hreinlegá sprungnir, þótt ótrúlegt sé, og þá fengu Keflvíkingar ein 5 dauðafæri í röð til þess að hrifsa sigurinn, en mistókst jafn oft að skora. Eftir atvikum var jafntefl- ið, 18:18, sanngjarnt. Fyrir Keflvíkinga skoruðu Björn Blöndal, Jón Ólsen og Ör- nólfur Oddsson 3 mörk hver, Sigurður Björgvinsson 2, en þetta var kveðjuleikur hans, Grétar Grétarsson og Ragnar Margeirss- on einnig 2 hvor. En fyrir Óðinsm- enn Hörður Sigurðsson 5, Gunnl- Handknalllelkur __________________/ augur Jónsson og Oskar Bjart- marz 4 hvor og Frosti Sæmundss- on 3. Fyrirliðinn fór í dómaragallann! Það átti ekki af Selfyssingum að gnaga á laugardaginn og eru þeir þó orðnir misjöfnu vanir í hand- knattleiknum í vetur. Þeir þurftu að fá leik sínum við Breiðabliks- menn flýtt um tvo og hálfan klukkutíma þar sem forystumenn þeirra þurftu að mæta síðar um daginn með 3. og 5. flokk karla í Reykjavík til keppni í íslandsmót- inu. Þetta var vitað með 10 daga fyrirvara, en ekki tókst að fá dómara austur „svona snemma", kl. 13.30. Það varð því úr að fyrirliði þeirra Selfyssinga og að- alforingi, Þórður Tyrfingsson, klæddist dómaragallanum, en í dómaragallann fór Breiðabliks- maður, Jóhannes Gunnarsson, sem dæmdi þarna sinn fyrsta leik á ævinni! Um leikinn sjálfan er það eitt að segja að dómararnir voru framan af bestu mennirnir á velljnum og raunar góðir til loka, en Breiða- bliksmenn heldur daufir fram í seinni hálfleik og settu þá loksins á ferð. Selfyssingar áttu aldrei neina von um stig. í leikhléi stóð 9:13 en endirinn varð 16:31. Ekki er hægt að skýra frá markaskorun einstakra manna í liði Selfyssinga þar sem skráning markanna riðlaðist við breytta stöðu foringja þeirra, en fyrir Breiðablik skoruðu Hallvarður Sigurðsson og Kristján Halldórs- son 7 mörk hvor, Sigurjón Rann- versson 6, Brynjar Björnsson 4 og Ólafur Björnsson 3. Staðan í 3. deild Breiðablik 6 600 178:11612:0 Óðinn 6 3 21 144:127 8:4 Akranes 6 3 21 136:121 8:4 Stjarnan 5 31 1 119:97 7:3 Keflavík 5 31 1 115:94 7:3 Grótta 6 1 0 5 131:154 2:10 Dalvík 6 1 0 5 123:159 2:10 Selfoss 6 0 0 6 100:180 0:12 Næstu leikir Á miðvikudaginn kl. 20 eiga Stjarnan og Grótta að leika í Ásgarði og á föstudaginn kl. 20.30 Breiðablik og Óðinn að Varmá. íslenski landsliðshópurinn í körfuknattleik sem tók þátt i keppnisferðinni til írlands og Luxemborgar. Lengst til vinstri er Einar Bollason landsliðsþjálfari. . Ljósm Emilía. Vel heppnuð keppnisför ÍSLENSKA landsliðið í körfu- knattleik er væntanlegt heim í dag eftir velheppnaða keppnis- ferð til írlands og Luxemborgar. Liðið Iék fjóra leiki í ferðinni og sigraði í þremur þeirra. Fyrst vannst sigur gegn Luxemborg eins og greint hefur verið frá og eftir að hafa tapað fyrsta leik sinum á móti írum sneri íslenska liðið dæminu við og sigraði í þeim tveimur næstu. A föstudag var leikið í Dublin og þá sigraði Kðrtuknattlelkur _____________________/ íslenska liðið með 10 stiga mun, 88 gegn 78, og í síðasta leiknum sem fram fór i ferðinni og leikinn var í Cork, sigraði liðið örugg- lega með 90 stigum gegn 84. í leiknum á föstudag var Jón Sigurðsson atkvæðamestur í íslenska liðinu og skoraði 17 stig og sýndi frábæran leik. Jónas Jóhannesson sýndi og góð tilþrif og skoraði 13 stig. Kristján Ágústsson var með 11 stig og þeir Gunnar Þorvarðarson og Birgir Guðmundsson skoruðu 10 stig hvor. Þrátt fyrir nokkuð slæma byrj- un í síðari leiknum þar sem Irar náðu forystunni 10 gegn 2 í upphafi, tókst íslendingum að snúa dæminu við og náðu öruggri forystu og leiddu allan tíman með nokkrum mun. Mesti munur í leiknum var 17 stig. Kristján Ágústsson fór á kostum í leiknum og var stigahæstur með 22 stig. Torfi skoraði 14 stig og lék mjög vel í vörninni. Kolbeinn Kristins- son var mjög góður í þessum leik og skoraði 12 stig. Þorvaldur Geirsson skoraði 10 stig en aðrir minna. • Dr. Janus Cerwinski stjórnandi pólska landsliðsins i handknatt- leik, er íbygginn á svipinn á þessari mynd sem Emilia tók af honum í Laugardalshöllinni um helgina. Janus er íslendingum að góðu kunnur siðan hann starfaði hér á landi að handknattleiksþjálfun. Janus taldi að við værum enn í sama frumskógarleiknum hvað varðar þjálfun handknattleiksmanna. „Það þýðir ekki að leggja stranga og mikla þjálfun á menn scm vinna 10 stunda vinnudag. Þið verðið að breyta til ef toppárangur á að nást.“ Jón bjargaði öðru stiginu fyrir Fylki var stiginn æðisgenginn darraðar- dans á fjölunum. Markverðir beggja liða vörðu eins og berserkir og sóknir gengu á víxl. Rétt fyrir leikslok var svo einum Fylkismanni vísað af velli fyrir gróft brot. Og Týrarar nýttu sér það til vítakastsins örlagaríka 6 sekúndum fyrir leikslok. Dauða- þögn ríkti í salnum þegar Snorri tók vítakastið en síðan leið frá áhorfendum grátklökk vonbrigða- stuna er Jón varði skot Snorra. Jafntefli var því staðreynd. Eins og fyrr var Fylkisliðið mjög jafnt, og þar skaraði enginn framúr nema þá markvörðurinn Jón Gunnarsson sem öðrum frem- ur tryggði Fylki hið dýrmæta stig, varði af snilld allan leikinn. Leikmenn Týs voru gráti næst af vonbrigðum í leikslok, og vissu- lega hlýtur það að vera sárt að glata svona á síðustu stundu möguleikanum á báðum stigunum. En nýliðarnir geta þó verið sæmi- lega ánægðir með frammistöðu sína. Komnir með 3 stig úr sínum þremur fyrstu leikjum í 1. deild- inni. Þeirra besti maður í leiknum var Sigurlás Þorleifsson sem var mjög ógnandi og skoraði glæsileg mörk. Egill Steinþórsson var að vanda góður í markinu. Mörk Fylkis: Ásmundur Krist- insson 4, Einar Ágústsson 3, Gunnar Baldursson 3, Sigurður Símonarson 3, Ragnar Her- mannsson 3, Guðmundur Krist- insson 1, Óskar Ásgeirsson 1. MÖrk Týs: Snorri Jóhannesson 7 (4v), Sigurlás Þorleifsson 5, Logi Sæmundsson 2, Ingibergur Ein- arsson 1, Þorvarður Þorvarðsson 1, Kári Þorleifsson 1, Óskar Ás- mund8Son 1. HKJ. Týr — Fylkir 18:18 Á sunnudag mætti lið Fylkis Iiði Týs. Og lauk þeim leik með jafntefli 18—18. í einum mest æsandi leik sem boðið hefur verið upp á i íþróttahúsinu í Vest- mannnaeyjum. Týrarar virðast vera sérfræðingar að halda áhangendum sinum á heljarþröm spennunnar á lokaminútunum. Er þar skemmst að minnast er þeir töpuðu með einu marki fyrir Þrótti á allra siðustu sekúndu leiksins og á sunnudaginn fékk Týr dæmt vítakast á Fylki þegar aðeins 6 sckúndur voru eítir af leiknum. Og staðan var 18—18. Jón Gunnarsson hinn snjalli markvörður Fylkis gerði sér þá lítið fyrir og varði frá Snorra Jóhannessyni. Þetta var þriðja vitakastið sem Jón varði í leikn- um snilldarlega og honum geta Fylkismenn þakkað stigið sitt í leiknum. Hitt er svo annað mál, að jafntefli verður að telja réttlát úrslit í leiknum. Ættu bæði liðin að geta vel við unað að hafa náð í annað stigið. Öfugt við leikinn deginum áður, voru það nú Fylkismenn sem komu ákveðnir til leiks en eitt- hvert slen var yfir Týrurum. Skoraði Fylkir þrjú fyrstu mörkin og leiddi síðan lengst af með þetta eitt til þrjú mörk yfir. Staðan í hálfleik var 9—8 fyrir Fylki. Mikil og vaxandi barátta var svo í síðari hálfleiknum og spennan í húsinu gífurleg. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka jafnaði Fylkir 18—18, en þessar síðustu mínútur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.