Morgunblaðið - 08.01.1980, Síða 32

Morgunblaðið - 08.01.1980, Síða 32
i á ritstjórn og skrifstofu: 10100 JMargunblabib ^Síminn á afgreiöslunni er 83033 Jtivrfjunblnbib ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980 Harmleikur um borð í varðskipinu Tý: Tveir ungir skipverj- ar stungnir til bana Skipverja, sem talinn er hafa framið verknaðinn, saknað Akureyri, 7, janúar. Frá SigtryKKÍ SÍKtryggssyni blaðamanni Mbl. ENN kunna menn enga skýringu á tildrögum þess hörmulega atburðar, sem varð um borð í varðskipinu Tý norður af landinu í gærmorgun, þegar tveir varðskipsmenn voru stungnir með hnífi svo að þeir hlutu bana af og sá sem talinn er hafa framið það voðaverk hvarf strax á eftir, en grunur leikur á því að hann hafi varpað sér fyrir borð. Þeir, sem létust af völdum hnífsstungnanna hétu Jóhannes Olsen háseti, 22 ára gamall, til heimilis að Meistaravöllum 35, Reykjavík og Einar Óli Guðfinnsson léttadrengur, 18 ára gamall, til heimiiis að Skriðustekk 13, Reykjavík. Þeir voru báðir ókvæntir. Maður, sem talinn er hafa framið verknaðinn og hvarf af skipinu hét Jón D. Guðmundsson, 3. vélstjóri, 32 ára gamall, til heimilis að Dvergabakka 22. Jón lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Samkvæmt upplýsingum Jóns Magnússonar lögfræðings Landhelg- isgæslunnar lét Týr úr höfn i Reykjavík sl. föstudag. Var skipið við gæslustörf um 50 sjómílur norðvest- ur af Grímsey, þegar atburðurinn varð laust eftir kl. 9 í gærmorgun. Að sögn Jóns var Jóhannes heitinn staddur í eldhúsi skipsins ásamt bátsmanninum og jafnvel fleirum. Kom Jón þá inn í eldhúsið, en hann hafði nýlokið vakt í vélarrúmi. Hafði Jón aðeins verið inni skamma stund, er hann greip skyndilega stóran stefnan tekin á Eyjafjörð og siglt til Akureyrar. Lagðist varðskipið upp að Torfunesbryggju laust fyrir kl. 18. Lík varðskipsmannanna voru flutt frá borði og í lögreglubíla, sem biðu á bryggjunni og skipverjar stóðu heið- ursvörð um borð. Fjórir rannsóknar- lögreglumenn frá rannsóknarlög- reglu ríkisins voru þá komnir til Akureyrar og hófu þeir strax vett- vangsrannsókn og yfirheyrslur yfir skipverjum ásamt einum rannsókn- arlögreglumanni frá Akureyri. Eng- inn fékk að fara frá borði, né um Jóhannes Olsen Einar óli Guðfinnsson Rannsóknarlögroglumenn ganga hér frá borði landhelgisgæsluflugvélarinnar á flugvellinum á Akureyri i eftirmiðdag i gær. Þeir sem sendir voru frá Reykjavík til að vinna að frumrannsókn málsins eru: Ivar Hannesson, Ragnar Vignir, Grétar Sæmundsson og Haraldur Árnason. Einnig vann við rannsóknina Ófeigur Baldursson frá Akureyri. Ljósm. Emiiía. Geir Hallgrímsson: Tímabiindin þjóð- stjórn með tiltek- in meginverkefni Fyrsti fundur flokksformannanna fjögurra í dag eldhúshníf, sem lá þar á borði og rak hann í síðuna á Jóhannesi og særði hann miklu og djúpu sári. Því næst rauk hann út úr eldhúsinu og inn í borðsalinn en þar var Einar heitinn staddur. Hann hafði nýlokið við að taka niður jólaskraut og var að byrja að ryksuga, þegar Jón bar þar að og skipti engum togum, að hann rak hnífinn í Einar, líklega í kviðarhol. Að því búnu hvarf hann úr borðsaln- um. Jón var ekki undir áhrifum áfengis. Að sögn Jóns urðu menn sem steini lostnir við þessa skyndilegu atburði. En strax voru gerðar ráðstafanir til að hjúkra hinum særðu. Ljóst var fljótlega, að Jóhannes var lífshættu- lega slasaður, en Einar var hins vegar talinn minna slasaður. Stefnan var sett á Grímsey, haft var sam- band við lækni í Siglufirði til þess að fá ráðleggingar um meðferð hinna slösuðu og loks var boðum komið til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar í Reykjavík. Hún hafði síðan samband við sjúkrhúsið á Akureyri og var í skyndi undirbúið sjúkraflug frá Ak- ureyri til Grímseyjar með tvo lækna og hjúkrunarfólk. Það flug var hins vegar aldrei farið því að rúmlega hálfri klukkustund eftir atburðinn andaðist Jóhannes og Einar skömmu síðar og er álitið að báðir hafi látist af völdum innvortis blæðinga. Þegar búið var að hlúa að hinum slösuðu eins vel og unnt var hófst leit að Jóni D. Guðmundssyni. Hann fannst þá hvergi þrátt fyrir endur- tekna og ítarlega leit í skipinu. Þá var liðinn svo langur tími síðan hann hafði sést síðast um borð, að talið var gersamlega vonlaust að snúa skipinu við til að finna hann á lífi. Eftir að mennirnir létust var borð nema með sérstöku leyfi. Yfir- heyrslum var haldið áfram á lög- reglustöðinni á Akureyri í gærkvöldi og var talið líklegt að þær myndu standa fram á nótt. I dag verður málið tekið fyrir í sjódómi á Akur- eyri. Forseti sjódómsins er Ásgeir Pétur Ásgeirsson fulltrúi bæjarfóg- eta, en hann stjórnar rannsókninni. Jón Magnússon sagði að lokum, að engin skýring hefði komið fram á tildrögum þessa atburðar. Jón D. Guðmundsson hefði starfað í Land- helgisgæzlunni um þriggja ára skeið og reynst hinn bezti starfsmaður. Mikil leit hefur farið fram að hnífnum, en hann hefur ekki fundist. Skipherra á Tý í þessari ferð er Bjarni Helgason. Morgunbláðið birtir á forsíðu í dag mynd af heiðursverði skipverja Týs, þegar látnir skipsfélagar voru fluttir í land á Akureyri, myndir af þeim báðum hér á síðunni, en tókst ekki að afla myndar af Jóni D. Guðmunds- syni. BREZK samninganefnd frá rikis- fyrirtækinu British National Oil Corporation, sem sér um sölu á olíu úr Norðursjó, er væntanleg til íslands í dag til viðræðna við Olíuviðskiptanefnd, viðskipta- ráðuneytið og forstjóra oliufélag- „ÞAÐ er ráðgerður fundur for- manna stjórnmálaflokkanna fjög- urra klukkan hálf tiu i fyrramálið til að kanna möguleikann á þvi að koma á samstjórn allra þessara flokka, svokallaðri þjóðstjórn, sem starfaði um tímabundið skeið að tilteknum afmörkuðum verkefnum, eins og til dæmis kjördæmamálinu annars vegar og verðbólguvandan- um hins vegar,“ sagði Geir Hall- grimsson formaður Sjálfstæðis- anna um sölu 100—125 þús. tonna af gasoliu til íslands á seinni hluta þessa árs. Það magn á að fullnægja að verulegu leyti olíuþörf fyrir fiski- skip, diselvélar og til húsahitunar. flokksins i samtali við Mbl. i gærkvöldi. Mbl. spurði Geir, hvort það væri niðurstaða þeirra könnun- arviðræðna, sem hann hefur staðið i að undanförnu, að einhver áþreif- anlegur flötur væri á samstarfi allra stjórnmálaflokkanna. „Það er ef til vill of mikið sagt, að tala um áþreifanlegan flöt, en engu að síður er nauðsynlegt að ganga úr skugga um, hvort þessi möguleiki er fyrir hendi,“ sagði Geir., Samningafundir munu standa yfir á miðvikudag og fimmtudag og ef svo fer sem horfir að hagstæðari samningar náist en gilda á Rotter- dammarkaði þá er búizt við að gengið verði frá samningum á þessum fundum. Mbl. spurði Geir þá um tillögur Sjálfstæðisflokksins, m.a. í efna- hagsmálum. Hann sagði: „í þeim efnum hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki lagt fram neinar tillögur, en hins vegar viljum við leggja áherzlu á, að verði framhald á slíkum fjögurra flokka viðræðum, þá séu hugmyndir allra lagðar til grund- vallar lokaniðurstöðunni". Geir kvað það hins vegar rétt, að „ýmsar hugmyndir" hefðu verið settar í könnun og rannsókn, en kvaðst ekki vilja ræða efnisatriði þeirra hug- mynda. Morgunblaðið hefur birt tillögur þær sem vinstri flokkarnir lögðu fram í stjórnarmyndunartilraun Steingríms Hermannssonar, en með- al þeirra hugmynda, sem nú hafa verið settar í vinnslu eru áhrif þess að vísitalan verði tekin alveg úr sambandi til 1. september, eða að allt að 15 vísitölustigum samtals 1. marz og 1. júní verði frestað, en á móti komi einhvers konar félags- málapakki, sem hefur verið rætt um upp á 25 til 30 milljarða króna. Sjá umsagnir Tómasar Árnason- ar, Lúðvík Jósepssonar og Bene- dikts Gröndal á bls. 15 Verður samið um Norð- ursjáyarolíu í vikunni?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.