Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 1

Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTAKÁLFI 28. þing Norð- urlandaráðs sett í gær — ÉG IIELD. að sé sanngirni látin ráða, hljóti menn að samein- ast um þá skoðun, að enn hafi norrænt samstarf í för með sér umbætur og framfarir i þátttöku- löndunum. Við crum þvi enn á framtiðarbraut. Þetta mælti Matthías Á. Math- iesen alþingismaður í ræðu sinni á 28. þingi Norðurlandaráðs, sem sett var í Þjóðleikhúsinu í gær. Matthí- as Á Mathiesen var kjörinn forseti Norðurlandaráðs á fundinum í gær og tekur hann við því embætti af Olof Palme, fyrrverandi forsætis- ráðherra Svíþjóðar. Þing Norðurlandaráðs mun standa fram á föstudag. í dag verður umræðum haldið áfram og í kvöld verða bókmennta- og tónlist- arverðlaun Norðurlandaráðs af- hent. Á þinginu sitja og við það starfa 550 manns og um 100 nor- rænir blaðamenn fylgjast með því. Sjá frásögn af þingi Norður- landaráðs á bls. 18 og 19 og ræðu Matthiasar Á. Mathiesens á mið- opnu. Njósnari kynntur WashinKton, 3. marz. AP. FBI kynnti á óvenjulegum blaðamannafundi i dag hátt- scttan sovézkan njósnara sem lék tveim skjöldum í 11 ár við starf sitt sem var fólgið í því að fylgjast á laun með stjórn- máiahræringum i Banda- ríkjunum Utsendarinn, sem er ofursti í KGB, sagði að hann væri um 45 ára gamall og starfaði undir nafninu Rudolph Albert Herr- mann. Blaðamennirnir fengu að spyrja hann spjörunum úr og sáu hann á hlið gegnum dimm- an glerskerm, en rödd hans var leynt með rafeindatækni. Herrmann þóttist vera sjálf- stæður ljósmyndari og bjó í Hartsdale skammt frá New York-borg. Hann sagði að aðal- hlutverk sitt hefði verið að útvega pólitískar upplýsingar, ekki hernaðarlegar. Talsmaður FBI kvaðst telja að Herrmann hefði ekki útveg- að Rússum upplýsingar um ríkisleyndarmál. Hann vék sér undan að svara því hvort af- hjúpun mannsins væri liður í harðnandi stefnu gagnvart Rússum. Nýr fundur Bogota, 3. marz. AP. BANDARÍKJASTJÓRN hefur hvatt kólombíska embættismenn til að fara samningaleiðina til að fá um 27 gísla skæruliða í dóminikanska sendiráðinu leysta úr haldi Annar samningafundur ríkis- stjórnarinnar og skæruliðanna er ráðgerður á morgun. Stutt ef tir Ljubljana, 3. marz. AP. LÆKNAR Josip Broz Titos forseta skýrðu frá engri breytingu á líðan hans í dag og Júgóslavar búa sig undir að frétta um dauða forsetans. „Það getur ekki verið langt eftir," sagði embættismaður í einkasam- tali. Læknarnir sögðu aðeins að líðan Titos „væri enn alvarleg". frá Norðurlandaráðsþinginu í Þjóðleikhúsinu í gær. Matthías Á. Mathiesen í ræðustól Mugabe vill einingu eftir kosningarnar Salisbury. 3. marz. AP. MARXISTINN og skæruliðaleiðtoginn Robert Mugahe kom fram i sjónvarpi i kvöld ásamt landstjóra Breta, Soames lávarði, og yfirmanni hersins, Peter Walls hershöfðingja, til að hvetja til einingar eftir birtingu kosningaúrslitanna í fyrramálið. Úrslitin munu sýna að Mugabe hefur mest fylgi meðal blökku- manna í Rhódesiu. en þó er ekki talið að nokkur einn flokkur fái hreinan meirihluta. Lítill munur mun vera á fylgi Joshua Nkomos og Abel Muzorewas biskups. „Lögum og reglu verður að hlýða," sagði Mugabe. Við verðum að halda uppi lögum og reglu. Við verðum allir að vinna að einingu hvort sem við höfum sigrað í kosningunum eða ekki.“ Áður hafði Soames hvatt alla Rhódesíumenn til að sýna rósemi og mikill viðbúnaður er í borgum, bæjum og til sveita. Soames virð- ist einkum hafa beint orðum sínum að hvítum borgurum sem hafa hótað að fara úr landi ef Mugabe kemst til valda. Soames sagði að hlutverk sitt væri að koma styrkri stjórn á laggirnar. Walls, sem fullvissaði Mugabe um það fyrir 10 dögum að herinn mundi ekki hrifsa völdin, sagði að heraflinn væri það afl í landinu sem stuðlaði að mestu jafnvægi. Hann sagði að engin „beiskja" mætti ríkja og kvað menn sína „hermenn friðarins sem er aftur kominn til landsins". Hann sagði að hart yrði tekið á öllum sem hlýddu ekki lögunum. Soames hefur umboð til að fela þeim manni stjórnarmyndun sem hefur mestan stuðning á þingi og Bretar hafa alltaf talað um kosti „stjórnar á breiðum grundvelli“ þannig að ekki hefur verið gert ráð fyrir að nokkur einn flokkur fengi hreinan meirihluta. Því er spáð að Mugabe steypustjórn. Soames tók við myndi sam- skýrslu frá formanni kjörstjórnar, Sir John Boynton, og sagði að kosningarnar mundu í meginatriðum lýsa vilja þjóðarinnar. En Boynton benti á útbreidda kúgun sem flokkar beittu kjósendur og sagði að hún hefði haft áhrif á kjósendur á að minnsta kosti þremur svæðum. Hann átti skæruliðar við svæði þar sem Mugabes hafa verið sakaðir um kúgunaraðgerðir. Kjörsókn var 93 af hundraði, hin mesta sem um getur í Rhód- esíu. Mugabe hefur beðið land- stjórann að vera um kyrrt í Rhódesíu í að minnsta kosti einn mánuð til að tryggja að hvítt hæfileikafólk fari ekki úr landi ef hann verður kjörinn. Hann vill líka að hermenn frá samveldis- löndum verði um kyrrt til að taka þátt í stofnun nýs sameinaðs hers. Meiriháttar sókn í Af ganistan hafin Islamabad. 3. marz. AP. SOVÉZKAR herflugvélar réðust í dag á bæi i Konar-hér- aði i austurhluta Afganistans þriðja daginn i röð og loftárás- irnar virðast marka upphaf stórsóknar sem miðar að því að brjóta alla andspyrnu á bak aftur. Tilkynnt var í Kabul að samin yrði ný stjórnarskrá, hin fyrsta síðan 1978, sem mundi taka tillit til vilja afgönsku þjóðarinnar. Nefnd verður skipuð til að semja stjórnarskrána. Uppreisnarmenn segja að þeir hafi náð á sitt vald stórum hluta aðalvegarins milli Kabul og Khyber-skarðs og þurrkað út afganskan liðsflokk sem var sendur til að opna veginn. Þeir segjast einnig hafa náð á sitt vald lögreglustöð í Nangarhar- héraði og sprengt upp 30 skriðdreka í árásinni. Því er haldið fram að Rússar hafi teflt fram um 200 skrið- drekum, 36 fallbyssuþyrlum auk MIG-21 og MIG-23 flugvéla í Konar-héraði. Sagt er að sovézk- ar flugvélar hafi ráðizt á um tólf bæi á svæðinu. í Washington sagði Cyrus Vance utanríkisráðherra banda- mönnum Bandaríkjanna í dag að varðveizla slökunarstefnu væri komin undir sterku svari við hernaðaríhlutun Rússa í Afg- anistan. Hann kvað Bandaríkin ætla að halda áfram refisaðgerð- um gegn Rússum þar til þeir flyttu her sinn frá Afganistan, en kvaðst ekki eiga von á því fljótlega. Og þó að Vance segði að refsiaðgerðum yrði hætt þegar herliðið væri farið bauð hann Rússum ekki breytingu á þeirri afstöðu að lausn á málinu sé komin undir sovézkum brott- flutningi og raunverulegu hlut- leysi Afganistans. Vance gerði grein fyrir afstöðu Bandaríkj- anna í ræðu í utanríkismálaráð- inu í Chicago og ræða hans var að hans eigin sögn svar til Evrópumanna sem telja að Bandaríkin hafi brugðizt of hart við innrásinni. Frá því var skýrt í Washing- ton í dag að 1.800 bandarískir landgönguliðar væru á leið til Indlandshafs með fjórum her- skipum. Landgönguliðarnir hafa verið við æfingar á Filippseyjum og koma til Arabíuhafs um miðjan mánuðinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.