Morgunblaðið - 04.03.1980, Page 2

Morgunblaðið - 04.03.1980, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 Sosonko vinn- ur alla á hvítt og Schiissler gerir enn jafntefli ÞRÍR eru nú efstir og jafnir á Reykjavíkurskákmótinu með 5'/2 vinnintí eftir 8 umfcrðir, þeir Browne, Kupreichik ok Sosonko, en Sovétmaðurinn Kupreichik á eina skák til góða. Norðmaður- inn Helmers á við krankleika að stríða og þess vegna mætti hann ekki til leiks i sjöttu umferðinni á laugardaginn og í gærkvöldi í áttundu umferðinni. Þessa daga átti hann að tefla gegn Sovét- mönnunum Vasjúkov og Kup- reichik. í dag verður væntanlega úr því skorið hvort Norðmaður- inn getur teflt áfram í mótinu eða ekki. Sosonko vann Vasjúkov í gær- kvöldi í góðri sák og hefur Sos- onko unnið allar skákir sínar er hann hefur stýrt hvítu mönnun- um. Helgi Ólafsson varð að lúta í Ákvörðun í dag um fram- hald loðnuveiða ÁKVÖRÐUN verður væntanlega tekin i dag um framhald loðnu- veiða. Útvegsmenn hafa farið fram á, að skipin fái að veiða tiltekið magn án takmarkana, en Sjávarútvegsráðuneytið ákvað við upphaf veiða í frystingu, að kvóti á hvert skip yrði 750 tonn og mættu þau ekki koma með meira en 250 tonn að landi í hvert skipti. Þá verður væntanlega ákveðið hvert það magn verður, sem fyrr hefur verið ákveðið að geymast skyldi til hrognatöku. 34 skip hafa byrjað loðnuveiðar til frystingar og hafa tæplega 15 þúsund tonn borizt á land, en aðeins lítill hluti þess hefur verið frystur. Ágæt veiði var um helg- ina eftir rúmlega viku brælu og hafa tvö skip þegar fyllt kvóta sinn. Loðnan er mun smærri en Japanir hafa óskað eftir og þarf allt að 70 stykki í hvert kíló, en Japanir vilja helzt hafa 50—55 stk. í kg. lægra haldi fyrir Browne eftir aðeins 23 leiki og Torre vann Hauk Angantýsson næsta auð- veldlega, en Haukur féll á tíma með tapaða skák eftir 29 leiki. Schússler heldur sínu striki og gerði í gærkvöldi jafntefli við Miles eftir 36 leiki, hefur Schússl- er hinn sænski gert jafntefli í öllum skákum sínum á mótinu til þessa. Jón og Guðmundur gerðu jafntefli eftir aðeins 14 leiki og sömuleiðis Byrne og Margeir, en þar voru þó meiri átök og skákin 33 leikir. Staðan á mótinu er nú þessi: 1. Kupreichik 5V2 og 1 ótefld. 2. -3. Browne og Sosonko 5Í4. 4. Torre 5. 5. Miles 4'/2. 6.-7. Margeir og Schússler 4. 8.—10. Byrne, Jón L. og Helgi 3 Vt. 11. Vasjukov 3 og 1 ótefld. 12. Guð- mundur 3. 13. Haukur 2. 14. Helmers 1 ‘/2 og 2 ótefldar. I 9. umferðinni í dag tefla saman: Miles — Jón. L. Árnason, Margeir — Scússler, Helgi — Byrne, Helm- ers — Browne, Haukur — Kup- reichik, Vasjukov — Torre, Guð- mundur — Sosonko. Frá doktorsvörninni i Hátíðarsal Háskóla íslands á laugardaginn, talið frá vinstri: Alan Boucher, ólafur Halidórsson, Jakob Benediktsson og Jón Samsonarson. Doktorsvörn við Háskólann ÓLAFUR Halldórsson magister varði á laugardaginn ritgerð sína, „Grænland í miðaldaritum" fyrir doktorsnafnbót í heimspeki við heimspekideild Háskóla Islands. Athöfnin fór fram í Hátíðarsal Háskólans, og voru meðal viðstaddra forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, og Guðmundur Magnússon háskólarektor. Til andmæla af hálfu heimspekideildar við doktorsvörnina voru þeir dr.phil. Jakob Benediktsson og Jón Samsonarson mag.art. Forseti heimspekideildar, prófessor Alan Boucher, stjórnaði athöfninni. ólafur Jóhannesson og Knut Frydenlund: Jan Mayen viðræður hefjast á nýjan leik í aprílmánuði OLAFUR Jóhannesson utanríkis- ráðherra og Knut Frydenlund utanríkisráðherra Norðmanna ákváðu á fundi i gærmorgun, að Jan Mayen — viðræðurnar skyldu hefjast að nýju í apríl- mánuði næstkomandi. Mbl. ræddi við utanríkisráðherrana á Norð- uriandaráðsþingi i gær. Þeir sögðu báðir, að efnisatriði hefði ekki borið á góma á fundi þeirra. en sjónarmið beggja væru kunn. Frydenlund sagði, að sér virtist báðir aðilar sammála um, að nauðsynlegt væri að komast að einhverju samkomulagi fyrir sumarloðnuvertíðina. Olafur Jó- hannesson sagði, að þeir utan- ríkisráðherrarnir myndu hittast aftur að máli um Jan Mayen á meðan Norðuriandaráð þingar hér og einnig myndu þeir hittast „Ég verð nokkurs konar hótelstjóri sojfir Jóhannos Roykdal oini íslendinsurinn som starfa mun áfram í Thailandi „ÞAÐ hefur verið ákveðið að ég fari aftur til landamærasvæðanna og hef þess vegna framiengt dvöl mína hér um a.m.k. einn mánuð að ósk yfirstjórnar Rauða krossins hér í Thailandi. Magnús læknir er lagður af stað heim á leið og stúlkurnar fjórar fara héðan á morgun áleiðis til Nepals þar sem þær ætla að dvelja einhvern tíma áður en þær halda heim á leið,“ sagði Jóhannes Reykdal fararstjóri íslenzka hópsins sem dvalið hefur á vegum Rauða krossins í Thailandi við hjálparstarf við flóttamenn frá Kambódíu í símasamtali við Mbl. frá Bankok í gærdag. „Ég mun taka við nýju starfi ákveðnum verkþát'tum og myndi við landamærin, sem felst í því að hafa yfirstjórn búðanna sem Rauða kross starfsliðið býr í, verð nokkurs konar hótelstjóri þarna. Þá mun ég hafa umsjón með öllum verklegum fram- kvæmdum, s.s. jarðýtuvinnu og þess háttar. Áður fyrr var ég nokkurs konar bæjarverkfræð- ingur í búðunum sem íslenzki hópurinn starfaði í,“ sagði Jó- hannes ennfremur. Þá sagði Jóhannes aðspurður að fjöldi Rauða kross manna við landamærin nú væri um 350, sem væri svipað því sem verið hefði allt frá áramótum, þannig að um töluvert viðamikið verk væri að ræða. Hins vegar væru hugmyndir uppi um að Rauði krossinn myndi draga sig út úr þá starfsfólkinu fækka. Jóhannes sagði að 55—60 þús- und flóttamenn væru nú í búðum þeim sem íslendingarnir hefðu verið í, en þegar mest var í byrjun janúar voru þar um 125 þúsund manns. I Makmonbúðun- um rétt sunnan við eru um 100 þúsund manns. Síðan nefndi Jóhannes búðir sem Thailenzki herinn er með en Rauði krossinn tæki þó þátt í ýmiss konar starfi þar, en þar eru tæplega 200 þúsund manns, þannig að heild- arfjöldi flóttamanna við landa- mæri Thailands og Kambódíu er nú 350—400 þúsund manns. „Við höfum í okkar starfi verið mjög heppin varðandi alla áreitni, aðeins einu sinni hefur verið gerð aðför að búðunum, þ.e. 4. janúar s.l. eins og komið hefur fram. Þetta hefur því gengið mjög vel fyrir sig og ég get sagt fyrir hönd okkar allra að við höfum verið mjög ánægð með veru okkar hér. Reyndar má líta á búðirnar frekar sem bæ þar sem við vorum og eymdin þar því mun minni en á mörgum Stöðum öðrum. Bærinn var að vísu mjög lítill að flatarmáli eða um 4 ferkílómetrar. T.d. mældum við eitt hverfi sem í eru um 180 hús. Það var að flatarmáli 60 sinnum 150 metrar, eða um 9 þúsund fermetrar og reiknað er með að 7—7/2 íbúi búi í hverju húsi, þannig að þröngt mega sáttir sitja," sagði Jóhannes ennfrem- ur. Þá kom fram hjá Jóhannesi að hann hefði verið mjög hissa á þeirri beiðni að hann yrði áfram, það væri í raun nokkurs konar rós í hnappagat íslenzka Rauða krossins, þar sem mikill fjöldi hjálparliða stréymdi nú að. „Ég hlakka því til að takast á við þetta nýja verkefni og vona að ég standist þær kröfur sem gerðar eru,“ sagði Jóhannes að síðustu. á utanríkisráðherrafundi í Hels- ingfors 27. marz n.k. Að sögn ráðKerranna var ekki ákveðið í gær, hvar viðræðurnar í april fara fram. Mbl. spurði Oddvar Nordli, for- sætisráðherra Norðmanna, hvort fyrirhugaður væri fundur hans og Gunnars Thoroddsen forsætisráð- herra um Jan Mayen málið. Nordli sagði ekki ástæðu til slíks fundar að svo stöddu, þar sem utanríkis- ráðherrar landanna hefðu tekið upp þráðinn og vísaði hann á Frydenlund, þegar Mbl. bar upp við hann spurningar um efnisatr- iði. Mbl. spurði þá Ólaf Jóhannes- son og Knut Frydenlund, hvort aðrar ' þjóðir myndu hugsanlega koma inn í Jan Mayen viðræðurn- ar og þá Danir, Grænlendingar og Færeyingar. Ólafur Jóhannesson kvaðst ekkert vilja segja um það að svo stöddu, en vafalaust myndu þessar þjóðir fylgjast með málinu. Frydenlund kvaðst hins vegar ekki vilja að svo stöddu ræða um aðrar þjóðir en íslendinga og Norðmenn né heldur vildi hann ræða fyrir- hugaða útfærslu við Grænland og afstöðu Norðmanna til hennar. Hentze Demmus, fjármálaráð- herra Færeyinga, sagði hins vegar í samtali við Mbl. í gær, að vel gæti svo farið, að Færeyingar blönduðu sér í viðræðurnar um Jan Mayen. Sjá: Þurfum samkomulag um veiðarnar í fyrstu lotu; samtal við Knut Frydenlund á bls. 17. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra: Gengissigið frá 8. febrúar sam- kvæmt heimildun fyrri stjórnar GUNNAR Thoroddsen forsætisrá herra hefur óskað eftir leiðréttinn vegna misskilnings i samtali hai við Mbl„ sem birtist á baksiðu Ml á laugardaginn, þar sem rætt ví um gengissig að undanförnu. „Hið rétta er,“ segir Gunnar, núverandi ríkisstjórn hefur ek veitt neina heimild fyrir gengissig Það sig sem orðið hefur síðan febrúar, þegar núverandi stjórn tc til starfa, er byggt á heimildum sei fyrrverandi ríkisstjórn hefði vei Seðlabankanum." Brotist inn á 9 stöðum á höf uðborgarsvæðinu NOKKRAR annir voru hjá Rann- sóknarlögreglu ríkisins um helg- ina, en alls var brotist inn á niu stöðum á höfuðborgarsvæðinu um helgina, í Hafnarfirði, Kópa- vogi og Reykjavík. Hvergi höfðu þjófarnir þó verulega mikið upp úr krafsinu. og skemmdir af þeirra völdum voru ekki veru- legar. Málin eru enn flest óupp- lýst, en þó voru handteknir þrír fimmtán ára piltar í Hafnarfirði eftir innbrot í Kaupfélagið. Meðal þeirra staða sem brotist var inn í var matsölustaðurinn Nessý í Austurstræti, og þar var stolið reiknivél og rauðum síma, sem þjófarnir hafa fengið ágirn á. Þá um helgina var stolið talstö úr bíl í Kópavogi og vart varð vi smávægilegar. bensínþjófnað. Enn bar það til tíðinda, a maður nokkur kom til lögreglunr ar og kvaðst hafa orðið fjögur t fimm hundruð þúsund krónui fátækari eftir gistingu í húsi ein í Reykjavík. Höfðu hann og félaj hans verið þar gestkomendur, o rann manninum í brjóst. Er han vaknaði á ný var vinurinn horfinr og einnig fyrrnefnd fjárupphæ sem maðurinn kvaðst hafa borið veski sínu, en málið er í rannsók hjá Rannsóknarlögreglunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.