Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 3

Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 3 Samningamál BSRB: Ríkisstjórnin mun sýna einhvers konar viðbrögð — segir Ragnar Arnalds SAMNINGANEFND ríkis- ins lét bóka á miðvikudag- inn var svofellda tilkynn- ingu hjá sáttasemjara ríkis- ins, er samningamál Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja voru þar til umfjöllun- ar: „Málið verður til um- ræðu í ríkisstjórninni í fyrramálið. Ef niðurstaða fæst þá, er gert ráð fyrir að unnt verði að leggja fram gagntilboð n.k. föstudag eða mánudag.“ Kristján Thorlacius sagði um helgina, að um hlyti að vera að ræða misskilning milli embættismanna og fjármálaráðherra, þar sem Ragnar Arnalds lýsti því yfir við Morgunblaðið fyrir há- degi að það væri misskiln- ‘ingur að von væri á gagntil- boði frá ríkinu. Af þessu tilefni hafði Morgunblaðið í gær samband við Ragnar Arnalds og spurði hann um þennan misskilning. Hann sagði: „Misskilningurinn liggur hjá fjölmiðlunum. Hann verður einfaldlega þannig, að það voru uppi áform um það að leggja fram svar af hálfu ríkisstjórnar- innar við kröfugerð BSRB. Það voru uppi áform um það að slíkt svar kynni að koma öðru hvorum megin við helg- ina, en alltaf tekið skýrt fram, að það væri þó háð því að ríkisstjórnin hefði fengið tækifæri til þess að ræða málið ítarlega. í bókuninni, sem vitnað er til, er einmitt tekið fram, að ef ríkisstjórn- in hafi lokið umræðum um málið þá kynni að vera von á svari.“ „Málið er ósköp einfalt," sagði Ragnar. „Síðan þegar fjölmiðlar fóru að skýra frá þessu sögðu þeir — það er von á tilboði. Þar er mis- skilningurinn. Málið var kynnt í ríkisstjórninni á fimmtudagsfundi, en þar var nánast ekkert rætt, því að við höfum svo margt að hugsa þessa dagana og því varð að láta það nægja að kynna það og gefa mönnum tíma til að skoða það nánar. Það er enginn ágreiningur um þetta mál. Það verður alltaf ljósara því betur sem maður skoðar þetta mál, að það er þörf á að líta til allra átta og átta sig á málinu til fulls, áður en opinber við- brögð af hálfu ríkisstjórnar- innar koma, umfram það sem þegar hefur komið fram.“ Enginn ríkisstjórnarfund- ur er í dag og mun hann falla niður vegna funda Norður- landaráðs. Hvenær er þá næsti ríkisstjórnarfundur? Ragnar Arnalds svaraði: „Það get ég ekkert um sagt, en mér þykir ólíklegt að þetta mál verði afgreitt í þessari viku.“ En má þá búast við tilboði eftir að ríkisstjórnin hefur fengið tækifæri til þess að ræða málið og komast að niður- stöðu? „Ja það verður í öllu falli von á einhvers konar viðbrögðum ríkisstjórnar- innar,“ sagði Ragnar Arn- alds fjármálaráðherra, og bætti við: „Hvort það verður í tilboðsformi eða í öðru formi, um það hafa engar ákvarðanir verið teknar.“ Morgunblaðið benti þá ráðherra á, að í bókun samninganefndar ríkisins væri gangtilboð nefnt. Svar- aði ráðherra þá: „Já, að það kynni að vera von á því. Um það voru áform uppi, en það er nauðsynlegt að menn átti sig á þessu til fulls áður en ákvörðun er tekin. Þetta eru auðvitað ekki einu kjara- samningarnir, sem eru lausir um þessar mundir. Það eru allir kjarasamningar, nema háskólamanna, og því verður að skoða þetta mál allt.“ Póstur, sem á að hafa forgang skil- inn ef tir í Osló NOKKUR brögð hafa verið að þvi að undanförnu að bréfapðst- ur hafi verið skilinn eftir i borgum eriendis, en slikur póst- ur á að hafa algjöran forgang. Þá hefur það einnig gert starfs- febrúar. Þá hefði póstur sem átti að koma hingað 12. febrúar, síðan 15. febrúar og þá hinn 18. febrúar ekki borizt til landsins fyrr en 22. febrúar og þá í sömu ferðinni 10 daga póstur. Flugleiðir um Óslóarpóstinn: „Mannleg mistök44 Ekki við Flugleiðir að sakast vegna tafa á pósti frá Englandi „ÞETTA er hreint vandræðamál, og alveg gagnstætt þeim vinnu- reglum sem hér gilda." sagði Sveinn Sæmundsson blaðafull- trúi Flugleiða í samtali við Morg- unblaðið i gær er hann var spurður um ástæður þess að póstur varð eftir í Ósló í siðustu viku, en var ekki tekinn með i vél Flugleiða eins og vera átti. „En það eru ástæður fyrir þessu eins og öður,“ sagði Sveinn enn- fremur, „og hér er um mannleg mistök að ræða. Maður á flugvell- inum sem þarna var þennan dag, í forföllum stöðvarstjórans, var málunum ekki eins vel kunnugur. Sambandsleysi milli hans og Kaupmannahafnar verður til þess að fimm póstpokar eru teknir úr flugvélinni til að rýma fyrir far- þegafarangri. Olli þetta því að póstinum til Islands seinkaði um einn sólarhring." Varðandi það sem haft var eftir Arna Þór Arnasyni póstvarðstjóra í Morgunblaðinu á laugardaginn um tafir á póstflutningum frá Englandi, sagði Sveinn: „Ég veit ekki til þess að þetta sé rétt. Á fundi hjá okkur hér kannaðist enginn við að þetta væri vegná mistaka Flugleiða, heldur er það hald manna að um sé að ræða mistök breskra póstyfirvalda. Hér virðist því ekki vera við Flugleiðir að sakast, þó það hafi verið í Óslóarmálinu eins og sagði fyrr,“ sagði Sveinn, „þar sem vegna mannlegra mistaka var ekki farið eftir settum reglum“. Hvöt f jallar um kirkjuna og félagslega þjónustu Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt gengst í kvöld fyrir almennum fundi um kirkjuna og félagslega þjónustu. Ilefst fundurinn kl. 20.30 stundvíslega í Valhöll, Háa- leitisbraut 1. Er fundurinn öllum opinn og vonast er tii að flestir er þetta málefni láta sig varða sjái sér fært að sækja hann. Fluttar verða þrjár stuttar framsöguræður og mun Björn Björnsson prófessor ræða um stöðu kirkjunnar í nútímasamfé- lagi, Auður Eir Vilhjálmsdóttir sóknarprestur fjalla um félags- lega þjónustu í söfnuðinum og Jón Bjarman fangaprestur tala um félagsráðgjöf frá sjónarhóli kirkj- unnar. Að loknum framsöguræðum, sem áætlað er að taki um 45 mín., verður fundinum skipt í umræðu- hópa og munu hóparnir fá rúman klukkutíma til umræðna. Að því loknu verða kaffiveitingar og al- mennar umræður eftir því sem tilefni gefst til. Þetta fundarform var viðhaft á fundi, sem Hvöt efndi til í tilefni af Alþjóða ári barnsins 1979 og þótti gefast vel. Fundarmenn tóku þá undantekningarlítið þátt í um- ræðum í hópum og fólk tengdist málefninu nánar. Samvinna við Færeyinga í landgrunnsmálum? íslenzkir embættis- menn til viðræðna við Færeyinga „VIÐ höfum áhuga á sem víðtæk- astri samvinnu við Færeyinga og það eru núna tveir menn í Færeyjum, Ólafur Egilsson í utanríkisráðuneytinu og Guð- mundur Pálmason jarðeðlisfræð- ingur, að ra^ða við Færeyinga," sagði Ólafur Jóhannesson utan- ríkisráðhcrra, er Mbl. spurði hann um viðræður við Færeyinga um samvinnu i baráttu fyrir landgrunnsréttindum utan 200 milna markanna til suðurs. Hentze Demmus fjármálaráð- herra Færeyinga, sagði í samtali við Mbl. í gær, að Færeyingar hefðu mikinn áhuga á samstarfi og samkomulagi við íslendinga á sviði fiskveiði — og hafréttar- mála, en Færeyingar ættu nú mjög undir högg að sækja gagn- vart Efnahagsbandalaginu, sem í fiskveiðimálum líti ekki á Færeyj- ar sem hluta af Danmörku, heldur sem þriðja land. „Okkar stríð stendur nú í Brussel," sagði Demmus. „Og ég verð að segja það eins og er, að málstaður okkar virðist ekki eiga mikinn hljóm- grunn í þeirri borg. Við hljótum því að fagna öllum tilboðum um samvinnu og þá sérstaklega frá Islendingum, sem hafa sýnt okkur velvilja og sanngirni varðandi veiðileyfi í íslenzkri lögsögu." DYRASLA Styrkir handleggsvöðva. Styrkir magavöðva, eyðir mittisfitu. Stælir og breikkar herðar. Eykur fjölbreytni heimaæfinganna. Nú geta fullorönir skellt sér í „rimlaæfingar" í HandgnP dyragættinni heima hjá sér, þegar tóm gefst til og haft tækiö annars í hæfilegri hæð fyrir börnin. Uppsetningin er auöveld, fljótleg og örugg. Endar slárinnar eru úr harögúmmíi og skemma því ekki dyrakarmana. gripgetu ty" w„r bad- «£%*£!£«*■ kMU- Sendið mér □ eett HANDGRIP í póstkröfu, kr. 2.950 + sendingarkostnaður Sendiö mér □ stk. DYRASLÁ(R) í póstkröfu, kr. 18.400 + sendingarkostnaöur Nafn: ......... Haimiliaf.: ... Póatnr. og staöur: Póstversl. HEIMAVAL, Pósthólf 39, 202 Kópavogi. Pöntunarsími 44440. “I IL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.