Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 13

Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 13 Ljósm. Mbl. Kristján. Kristján Haraldsson og Heiðar Þ. Hallgrimsson (th.) við skipulagskort af svæðinu sem brúin umdeilda snertir. Kristján og Heiðar hafa lagst gegn byggingu brúarinnar eins og fram kemur hér á siðunni. Tillaga Kristjáns Haraldssonar að gatnakerfi og gönguleiðum á Breiðholts- og Árbæjarsvæðunum. í meginatriðum hið sama og í aðalskipulaginu, en þó er ekki gert ráð fyrir Höfðabakkanum, brúnni, né braut að Breiðholts/ Reykjanesbraut. Þá leggur Kristján til að Stekkjabakki verði tengdur Breiðholtsbraut, og ennfremur að Breiðhöfði tengist Vesturlandsvegi um undirgöng, jafnframt því sem Bæjarháls verði framlengdur að Breiðhöfða og að slaufutenging verði við Vesturlandsveg. „vefja sig“ hvor gegnum hinn á þessum stutta kafla. Á efri gatnamót- unum þyrfti því fljótlega umferð- arljós.og færi þá brúarumferðin í gegnum tvenn umferðarljós. Ofanbyggðavegur betri kostur? í stað Höfðabakka höfum við lagt til að á árunum ’81 og ’82 verði lagður kafli af svonefndum Ofanbyggðavegi milli Breiðholts og Rauðavatns, sem í framtíðinni á að ná suður að Hafnar- fjarðarvegi á Arnarnesi. Helztu kostir þessarar brautar eru m.a. að hún kemur til móts við, að öryggissjón- armið að tengja Breiðholtsbraut á nýjum stað við stofnbrautakerfið, auk þess sem losna mætti þannig við gegnumakstur um 1,000 bifreiða fram hjá Árbæjarskóla og íþróttavelli í Árbæjarhverfi. Vegalengdarstytting frá Breiðholti að Rauðavatni yrði tæpir fjórir kílómetrar hvor leið, og verði af þeirri byggð sem hugmyndir eru uppi um austan núverandi skipu- lags í Selási, tengdist Ofanbyggðaveg- ur eðlilega við þá byggð, talsverðan spöl frá Suðurlandsvegi. Ofanbyggðavegur er að hluta í landi Kópavogs og hefur skipulagsstjóri ríkisins unnið að því undanfarið að samræma sjónarmið viðkomandi sveitarfélaga um legu vegarins. Þess má geta að þessi vegartenging verður um það bil helmingur af kostnaði Höfðabakka og tengdra framkvæmda, þótt umferð á Ofanbyggðavegi verði í upphafi þriðjungur til helmingur af upphafsumferð Höfðabakka, eftir því hve mikið af „Víðidalsumferðinni" er tekið með, verður „arðsemin“, þ.e. sparnaður vegfarenda sem hlutfall af stofnkostnaði, sízt minni en á Höfða- bakkabrú. Gildi vegarins eykst með árunum, þegar austasti hluti Borg- armýrinnar byggist upp, og Suður- landsvegur tengist út á Vesturlands- veg. Sömuleiðis, þegar byggð í Kópa- vogi og sunnan Kópavogs eykst. Einn- ig má minna á hugmyndir sem uppi eru um verulega byggð á bak við Selásinn. Vegurinn yrði lágt yfir landi alla leið og þvi lítið áberandi. Helzti ókostur Ofanbyggðavegar er að hann skerðir tengsl íbúa Fella- hverfis við útivistarsvæðið í brekkun- um ofan við. Bót í máli er að fyrir enga íbúa verður vegurinn meiri samgöngubót en þá. Auk þess verður umferðin ekki mikil, sem fyrr segir, og gera má vissar ráðstafanir til að draga úr hraða móts við hverfið. Einnig kæmi til greina að fresta um árabil kaflanum meðfram Suðurfelli, en nota Suðurfellið sjálft í staðinn, sem er í allt að 50 metra fjarlægð frá næstu húsum. Setja mætti þrengingar þar til þess að halda hraða niðri. Aðrar hugmyndir Auk Ofanbyggðavegar höfum við bent á að athuga þyrfti tvær hugsan- legar millihverfatengingar, sem báðar væru lágt yfir landi og á lágum brúm. Með því móti væru þær í senn ódýrar og lítt áberandi. Neðri leiðin er milli Stekkjarbakka og Breiðhöfða, á brú skammt ofan Kermóafoss. Þessi leið er hönnuð lauslega fyrir nokkrum árum, en þá með allhárri brú og fyllingu, enda hugsuð sem meiri háttar umferðaræð, og hönnuð fyrir 80 km/klst. hraða, eins og Höfða- bakkabrú. Þannig hönnuð þótti hún ljót. Vegna safnsins og umhverfis ánna ætti ekki að leggja þennan veg, jafnvel ekki lágt yfir landi, fyrr en í síðustu lög. Efri hugsanlega millihverfateng- ingin gæti verið þar sem gamla Vatnsveitubrúin er, og komið í stað hennar. Þarna er frá náttúrunnar hendi eins konar þrep í dalnum, hann grynnkar snögglega, þrengist og breytir um stefnu. Tengt væri milli Selásbrautar og Suðurhóla. Til greina kæmi annað hvort hrein SVR-tenging, en þeir hafa sýnt þessari leið áhuga, eða þá minni háttar bílvegur fyrir almenna umferð. Hvorttveggja gæti komið að gagni, t.d. vegna samnýt- ingar skóla o.fl. Vegakerfið beggja vegna er þannig lagað, að lítil hætta ætti að vera á óviðkomandi gegnum- akstri, einkum ef Ofanbyggðavegur væri samtímis lagður. Þessar tvær tengingar eru ekki inni í núgildandi skipulagi," sögðu þeir Kristján og Heiðar að lokum. — ágás. Skiptar skoðanir ibúa við Hraunbæ - sem eru í næsta nágrenni fyrirhugaðrar hraðbrautar Höfðabakkinn, eða sá hluti hraðbrautarinnar, sem er fyrir norðan brúna yfir Elliðaárdal- inn, liggur í seilingarfjarlægð frá vestustu húsunum í Árbæj- arhverfinu. Morgunblaðið tók tali ibúa i húsum sem liggja næst fyrirhugaðri braut, og fara svör þeirra hér á eftir: „Ég er eindregið á móti því að brúin og hraðbrautin í framhaldi af henni verði byggð. Þetta mál hefur verið talsvert rætt innan fjölskyld- unnar síðustu daga, og eru allir á einu máli að þessi framkvæmd sé óæskileg. Okkar eina útsýni eru gömlu húsin á Árbæjarsafninu og vegarlagningin eyðilegði það,“ sagði Guðrún Clausen húsmóðir að Hraunbæ 97. Börnin hér í hverfinu leika sér mikið á sumrin hérna út í móunum og holtunum þar sem brautin á að koma, og einnig má sjá fullorðið fólk þar í gönguferðum, en nú á víst að koma í veg fyrir það. Ég heyri nokkuð talað um það hér í hverfinu að þessi vegarlagn- ing sæmi illa fyrir hverfið," sagði Guðrún að lokum. Ég vil endilega fá brúna," sagði hins vegar Ragnhildur Valdimars- dóttir húsmóðir Hraunbæ 33. Ég hef lítið heyrt talað um brúna, en ég er fegin að fá hana og veginn um hana. Þá getur maður gengið yfir í Breiðholtið. Þeir sem eru á móti brúargerð- inni eru það kannski þar sem þeir óttast slys á veginum, en það hlýtur að gilda það sama um þennan veg og aðra vegi í þeim efnum. Nei, ég er ekki á móti þessum framkvæmdum, brúin hefði átt að vera komin fyrir löngu síðan, sagði Ragnhildur. „Ég er eiginlega hlutlaus í þessu, en mér finnst þó eiginlega að vegurinn þurfi að koma,“ sagði Stefán E. Jónsson Hraunbæ 27. Það eru að vísu smá annmarkar fylgj- andi þessi í sambandi við Árbæjar- safnið. En mér finnst ekki útilokað að vegurinn ætti eftir að draga meir að safninu en nú er, ef vel verður staðið að innkeyrslum af veginum og að safninu. Þessi vegur kemur til með að liggja ógurlega nálægt Árbæjar- safninu, liggur nánast við að hann snerti neðstu skúrana. En ég kvarta ekki þótt vegurinn komi nálægt mínu húsi, ég held að margir verði að sætta sig við það þótt vegir séu lagðir nálægt húsum. Já, ég hef heyrt mikið talað um Ragnhildur Valdimarsdóttir Stefán E. Jónsson þessar framkvæmdir, brúna og veginn hér um, einkum síðustu daga. Menn skiptast í tvo hópa. Það hefur verið haldið uppi miklum áróðri gegn vegarlagningunni, t.d. af hálfu safnsins, Það er nú orðin hálfgerð lenzka nú til dags að mótmæla, og virðist mér sem allir hafi gaman af að mótmæla, hvort sem þeir hafi skoðun á málinu eða ekki,“ sagði Stefán að lokum. Framfarafélag Breiðholts: „Höfum ekki talið ástæðu til að álykta um málið44 - segir Inga Magnúsdóttir formaður F.B. „Þetta mál hefur ekki verið mikið rætt á fundum Framfarafé- lags Breiðholts III,“ sagði Inga Magnúsdóttir formaður félagsins í spjalli við Mbl. „Þórður Þorbjarnarson borgar- verkfræðingur hefur þó komið á fund í félaginu og kynnt þær hugmyndir sem uppi eru. En félag- ið hefur þó ekki tekið afstöðu til málsins ennþá og við höfum ekki talið ástæðu til að álykta um það. Það virðist líka sem innan borgar- stjórnarinnar séu menn mjög ósammála hvað gera skuli, hvort byggja skuli brúna eða ekki. Satt að segja vefst það svolítið fyrir mér sjálfri, hvort reisa skuli þetta mannvirki eða ekki. Það hefur verið rætt nokkuð um svo- kallaðann Ofanbyggðaveg í þessu sambandi, og ef hann er jafn góður Inga Magnúsdóttir kostur og brúin tel ég þann veg æskilegri, þar sem hann mun einn- ig bæta tengsl hverfanna í suður átt, þ.e. til Garðabæjar og Hafnar- fjarðar og létta þá einnig af umferð innan borgarinnar," sagði Inga að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.