Morgunblaðið - 04.03.1980, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.03.1980, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 Borð og sex stólar kosta 601 þúsund krónur (borðplötunni má snúa við, og er þí einlit), Ijósið er mjög skemmtilega hannað og kostar 82.500 krónur. Stólarnir til vinstri eru ítalskir og kostar hver 181 þúsund krónur. Ljósm. Emilía rv a r»T m t tt? Husgögn Hvað hentar hverjum! Hvenær Leit að húsgögnum getur tekið fólk langan tíma, — hvernig u ' ",gögn eru á markaðnum og hvað kosta þau! I Reykjavík eru margar húsgagnaverzlanir, flestar hafa lík húsgögn á boðstólum og lítill verðmunur er á milli verzlana. Mjög fáar hafa á boðstólum húsgögn, sem henta fjárhag og smekk ungs fólks sérstaklega sem er að búa sér heimili og er ekki endilega að kaupa sér búslóð sem endast á þeim allt lífið. Það er forvitnilegt að kanna húsgagnamarkaðinn og mun Daglegt líf því af og til á næstunni kynna hvað þar býðst, verð á húsgögnum, greiðsluskilmála og fleira. Verzlunin Casa í Borgartúni 29 er forvitnileg fyrir margar sakir og hefur ásamt nokkrum öðrum húsgagnaverzlunum sér- stöðu með sinn söluvarning. Við fundum fyrir verzlunarstjórann, Lúðvík Bjarnason, og tókum hann tali. I verzluninni eru seld það sem kölluð eru nútímahús- gögn, — setustofuhúsgögn, borð og stólar, ljós, rúmteppi og fleira, aðallega innflutt frá Ítalíu og Finnlandi. Aðspurður um það hvaða ald- ursflokkar verzluðu aðallega hjá þeim, sagði Lúðvík að meirihluti viðskiptavina væri fólk á aldrin- um 30—40 ára, eða fólk sem væri búið að komast yfir verstu skuldirnar af heimilisstofnun fremur en ungt fólk, sem er að stofna heimili. Annars væri það fólk á öllum aldri sem þarna kæmi við. Um húsgagnamarkaðinn al- mennt sagði Lúðvík, að hér á landi hefði hann verið fremur einhæfur og ein ákveðin stefna þar ráðið ríkjum og lítil nýbreytni verið. Fólk væri kannski svolítið kjarklaust við að breyta yfir í alveg nýjan húsgagnastíl, en þó væru viðhorf fólks að breytast og markaður fyrir nútímahúsgögn stöðugt að aukast. Það væri sama sagan og þegar tízkufatnaður var fyrir nokkrum árum talinn vera ein- göngu fyrir ungt fólk, — í dag væru engin aldursmörk varðandi tízkufatnað. Allir klæddust hon- um. Aðspurður um það hvort Casa væri „dýrari" verzlun en aðrar húsgagnaverzlanir sagði hann að svo væri alls ekki. Þó að einn og einn hlutur kæmi og kostaði mikla peninga, þá tæki fólk eftir því og ímyndaði sér um leið að allt það sem þarna væri á boðstólum væri mjög dýrt. Sumt það sem þeir seldu væri jafnvel ódýrara en annars staðar. Þá væri það afstætt hvað væri dýrt og hvað ódýrt. M.a. færi það eftir efnahag manna rétt eins og hvernig menn keyptu bíla í ákveðnum verðflokki. Auðvitað þyrfti líka eitthvað að vera til fyrir þá sem vilja kaupa dýrt, — en fólk keypti húsgögn sem því þættu falleg og henta sér og sínu heimili. Pön tunarþjón usta Casa veitir ákveðna pöntunar- þjónustu með söluvörur sínar, þannig að ef fólk t.d. sér ákveðið sófasett í verzluninni, en áklæði þess eða stærð hentar ekki viðkomandi, þá getur hann pant- að tegundina, stærðina og áklæði eftir eigin vali og jafn- framt getur fólk pantað húsgögn eftir myndabókum, sem liggja frammi í verzluninni. Pöntunar- tíminn er þá um þrír mánuðir. Aðspurður um greiðsluskil- mála sagði Lúðvík, að þeir færu vissulega eftir samkomulagi við hvern viðskiptavin, — en venju- lega væri um það að ræða, að helmingur kaupverðsins væri greiddur út við kaupin og af- gangurinn síðan á 5 mánuðum. Við innkaup í verzlunina eru sóttar árlegar húsgagnasýn- ingar, aðallega á Italíu, en Lúðvík sagði að farið væri var- lega í það að kaupa inn hátízku húsgögn, þar sem fólk hér á landi sem annars staðar færi líka varlega í nýjungar og þyrfti oft tíma til þess að melta þær áður en alvara verður í sölunni. Þessi þriggja sæta sófi og tveir hægindastólar kosta 1403 þúsund krón- ur, sem mun vera meóalverð og þó í lægra lagi. Borð- ið er 1.60x90 að stærð og kostar kr. 225 þúsund. Það eru um 15 ir síðan þessi borð- lampategund kom i markaðinn, en hann kostar kr. 109 þúsund. Þessi kilf- skinnsstóll og skemill eru ítalskir og kosta 1192 þús- und krónur. Leð- urhúsgögn verða flest fallegri og per- sónulegri eftir því sem þau eldast. Verð i leðursófa- settum er ekki óal- gengt 3—4 milljón- ir króna. Hvenær geta börn byrjað á skíðum? Hvenær geta börn byrjað að fara á skíði? Ef Norðmaður er spurður svarar hann, að það sé tími til þess kominn fyrir þau um leið og þau fara að ganga! Skíðanámskeiðin sem haldin eru á sumrin í Kerlingafjöllum Skja bæði einstaklingar og •eldrar með börn sín, — þar fá börnin sérstaka tilsögn eins og aðrir og þau eru studd fyrstu sporin. í skíðabrekkum er það ekki óalgeng sjón að sjá smá tappa, stelpur og stráka renna sér lipurlega niður brekkurnar, — óhrædd við allt og alla. Blm. sló á þráðinn til Valdi- mars Örnólfssonar, sem ásamt öðrum rekur skíðaskólann í Kerlingafjöllum og spurði hann hvenær tími væri til að taka börnin með í skíðaferðir. Valdimar svaraði því til, að strax 3—4 ára gætu sum börn byrjað í skíðaíþróttinni, en það mætti auðvitað ekki pína þau áfram. Þau væru mismunandi dugleg og mismunandi sterk líkamlega og svo snemma bæru tilraunir þeirra oft ekki árangur. 5—6 ára væru börn fljót að læra að standa á skíðum, renna sér og taka beygjur. Skíðin þyrftu að vera nógu létt og lipur og jafnlöng og jafnvel styttri en barnið. Bezt væri fyrir þau að byrja í mjúkum skóm, þá væri síður hætta á að þau meiddu sig. En um leið og þau væru farin að geta eitthvað að ráði, þá stuðlaði það að betri árangri þeirra í íþróttinni að fá sér venjulega skíðaskó. Barnaskíði eru seld í pökkum í verzlunum með öryggisbinding- um og skíðastöfum (plastskíði) á u.þ.b. 20 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.