Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980
Blés úr tveimur
áttum á UMFA
ÞAÐ blés úr tveimur áttum á
leikmenn Aítureidingar í Eyjum
um helgina er þcir léku þar við
heimaliðin í 2. deildinni í hand-
knattieik. Týrararnir sigruðu þá
á laugardaginn en á sunnudaginn
náði Afturelding fram hefndum á
Eyjaskeggjum og sigraði Þórara.
A laugardaginn var það sem
sagt Týr sem gekk til leiks við þá
úr Mosfellssveitinni og eftir mik-
inn barning hrósuðu Týrarar sigri,
21—19. Ekki var þessi leikur áferð-
arfallegur og mikið um mistök á
báða bóga. Sérstaklega voru Týr-
urum mislagðar hendur í fyrri
hálfleik en þá rann hver sóknin af
annarri út í sandinn. Var Aftureld-
ing ávallt með forustuna í hálf-
leiknum, um tíma fjögur mörk.
Staðan í hálfleik var 12—10 fyrir
Aftureldingu. Það sem bjargaði Tý
á þessum hörmungartímum leiks-
ins var stórgóð markvarsla korn-
ungs nýliða hjá Tý, Jóns Braga
Arnarssonar. Jón Bragi varði frá-
bærlega vel allan leikinn, alls 18
skot.
í byrjun seinni hálfleiks hélt
Afturelding fengnu forskoti þar til
13 mín. voru eftir til leiksloka að
Týrarar ná að jafna leikinn, 18—
18. Þá loksins vöknuðu Týrarar af
dvalanum og dyggilega studdir af
áhorfendum tryggðu þeir sér sig-
urinn á þeim fáu mín. sem eftir
lifðu af leiknum. Sigur Týs 21—19.
Týsliðið var lengst af í þessum
leik slakt og gerðu leikmenn mörg
glappaskotin. Sem fyrr segir var
Jón Bragi Arnarsson maður þessa
leiks. Mikið markmannsefni sem
Týrarar hafa eignast. Þá átti
Magnús Þorsteinsson mjög góðan
leik í vörninni og Sigurlás Þor-
leifsson var að vanda skæður í
leiknum.
Lið Aftureidingar sýndi ekki
mikið í þessum leik og hefði ekki
þurft að bæta miklu við sig til þess
að vinna þennan leik, en þeir fundu
ekki leiðina framhjá Jóni Braga í
marki Týs. Steinar Tómasson, Lár-
us Halldórsson og Sigurjón
Eiríksson voru bestu menn liðsins.
Mörk Týs: Sigurlás Þorleifsson
9(2v), Óskar Ásmundsson 4, Þor-
valdur Þorvaldsson 2, Ingibergur
Einarsson 2, Helgi Ragnarsson2,
Magnús Þorsteinsson 1, Kári Þor-
leifsson 1.
Mörk Aftureldingar:Lárus Hall-
dórsson 7 (2v), Steinar Tómasson
6(lv), Gústaf Baldvinsson 3, Björn
Bjarnason 2, Sigurjón Eiríksson 1.
Góðir dómarar leiksins voru
Gunnlaugur Hjálmarsson og
Magnús Arnarson.
—hkj.
LÍTT vænkast hagur bórs í 2. deildinni eftir slæmt tap fyrir
Aftureldingu á sunnudaginn í Eyjum. Afturelding tryggði sér
sigur, 24—19, eftir lengst af mjög jafnan leik þar sem til beggja
vona gat brugðið með úrslit. Þórsarar verma því enn botnsætið
í deiidinni með sín fátæklegu tvö stig. Ekki er þó öll von úti, því
að skammt er í nafnana frá Akureyri.
Pyrri hálfleikur þessa leiks var mjög jafn og allt í járnum.
Staðan t hálfleik var 10—9 fyrir Aftureldingu. Þór nær að jafna
metin 11—11 en þegar 15 mín. eru eftir er staðan 15—13 fyrir
Aftureldingu. Þór nær enn að jafna í 18—18 og voru þá 8 mín. til
ieiksioka. Þegar hér var komið sögu og mestu varðaði fyrir Þórara
að halda ró sinni og leika af skynsemi hijóp eitthvert óskiijanlegt
óðagot í liðið og vitleysurnar sem liðið gerði sig sekt um á
lokamínútum leiksins eru grátlegri en nokkru tali tekur.
Leikmenn Aftureldingar voru á hinn bóginn fljótir að ganga á
iagið og hegndu Eyjamönnum óþyrmilega. Skoruðu þeir 5 mörk í
röð án svars frá Þór nema hvað eitt vítakast var nýtt. öruggur
sigur því í höfn hjá Aftureldingu 24—19 en mörgum spurningum
ósvarað í herbúðum Þórara.
Þessi leikur vpr iítt skárri að gæðum en leikurinn deginum
áður. Þó komu kaflar í leiknum þar sem brá fyrir skemmtilegum
fléttum sem gengu upp. Áttu þar bæði iiðin sínar góðu stundir.
En mistök og vitleysur vógu þó mun þyngra þegar á heildina er
litið.
Mörk Aftureldingar: Lárus Halldórsson 9 (4v), Gústaf Bald-
vinsson 5, Sigurjón Eiríksson 3, Steinar Tómasson 2, Þórður
Hjaltested 2, Magnús Guðmundsson 1, Pétur Jóhannsson 1, Björn
Bjarnason 1.
Mörk Þórs: Herbert Þorleifsson 6 (3v), Karl Jónsson 4 (lv),
Ásmundur Friðriksson 3, Ragnar Hilmarsson 3, Gústaf Björnsson
2, Gestur Matthíasson 1.
Dómarar voru þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Magnús
Arnarsson og dæmdu þeir erfiðan hörkuleik af stakri prýði. -hkj.
Gauti tryggði KA sigur
AKUREYRARLIÐIN KA og Þór léku á föstudaginn seinni leik
sinn i 2. deildinni í handknattleik. Oftast áður er þessi lið hafa
leikið saman hefur geysileg spenna og barátta einkennt leikina
og engin breyting varð á i þetta skipti. KA sigraði i leiknum með
21 marki gegn 20 og réðust úrslitin ekki fyrr en að leiktimanum
var lokið.
Þegar 1 mín. var tii leiksloka var
staðan jöfn 20:20 og Þór með
boltann. KA náði þá boltanum,
Þorleifur Ananíasson brunaði fram
völlinn og dæmt var mjög vafasamt
vítakast á Ragnar markvörð Þórs.
Þorleifur skoraði sjálfur úr vítínu. í
síðust sókn leiksins, nokkrum sek-
úndum fyrir ieikslok, komst Gunnar
Gunnarsson frír inn úr horninu og
vippaði yfir Gauta í markinu. Gauti
náði að blaka boltanum út í teiginn
þar sem Árni Stefánsson línumaður
í liði Þórs náði knettinum og stökk
inn í teiginn en brotið var gróflega á
honum og vítakast dæmt. Um íeið
gall flauta tímavarðar til merkis um
það að leiknum væri lokið. Þórsarar
áttu því möguleika á því að jafna
leikinn úr vítakstinu að ieiknum
loknum, og féll það í hlut Benedikts
Guðmundssonar að taka vítakastið.
Getur það varla talist öfundsvert að
taka vítakast á svo örlagaríku
augnablíki. Spennan í húsinu var
geysileg er Benedikt tók vítakastið
en Magnús Gautí [ KA markinu
gerði sér lítið fyrir og varði. Það var
4. vítakastið sem hann varði í
leiknum.
KA hafði ávallt frumkvæðið í
leiknum, en munurinn varð aldrei
meiri en 4 mörk. Staðan í hálfleik
var 13:10 KA í hag. Þórsarar náðu
að jafna 18:18 er 10 mín. voru eftir
og aftur 20:20, 2 mín. fyrir leikslok.
Leikurinn var í heild ágætlega
leikinn og mjög spennandi, og fengu
áhorfendur, sem voru fjölmargir
mikið fyrir peningana sína.
Hjá KA voru Alfreð Gíslason og
Magnús Gauti markvörður bestu
menn en hjá Þór voru þeir Árni
Stefánsson og Sigtryggur Guð-
laugsson bestir. Mjög góðir dómarar
voru Karl Jóhannsson og Rögnvald-
ur Erlingsson.
Alfreð var markhæstur hjá KA
með 9 mörk og Þorleifur var næstur
með 4. Hjá Þór var Sigtryggur
Guðlaugsson markhæstur með 6
mörk, og Benedikt Guðmundsson
skoraði 5.
I
ÍR vann og fjar-
lægðist botnsætið
ÍR TRYGGÐI sér tvö dýrmæt stig
í fallbaráttunni með öruggum
sigri gegn Fram á sunnudags-
kvöldið 29:25, en staðan í hálflcik
hafði verið 13:12 ÍR í hag.
Fjörugur sóknarleikur og slakur
varnarleikur settu svip sinn á
leikinn. Einkum voru Framar-
arnir linir í vörninni og mark-
varzlan ekki til fyrirmyndar hiá
liðinu enda næsta sjaldgæft að IR
skori 29 mörk í leik. því ÍR-
ingarnir hafa verið þekktir fyrir
flest annað i gcgnum árin en
mikia markaskorun.
Það var aðeins í upphafi leiksins
að Framarar höfðu betur en and-
stæðingarnir óg tvívegis náðu þeir
tveggja marka forystu. En þegar
20 mínútur voru liðnar af leiknum
komust IR-ingar yfir 8:7 og upp
frá því höfðu þeir forystu í
leiknum nema hvað tvívegis undir
lok fyrri hálfleiksins tókst Fröm-
urum að jafna metin.
Á fimm mínútna kafla í upphafi
seinni hálfleiksins gerðu IR-ingar
svo út um leikinn. Þá skoruðu þeir
fimm mörk í röð og breyttu
stöðunni úr 15:14 í 20:14. Var
leikur Framara algjörlega í mol-
um á þessu tímabili og gengu
ÍR-ingarnir á lagið og röðuðu
mörkunum á þessu tímabili.
Frömurum tókst að minnka mun-
inn niður í þrjú mörk, 20:17, en þá
tóku IR-ingar góðan sprett aftur
og skoruðu þrjú mörk í röð og
munurinn varð aftur sex mörk. Ur
því var sigur ÍR aldrei í hættu og
undir lokin leystist leikurinn upp í
skotkeppni og menn skoruðu nán-
ast að vild. En sigur ÍR var alltaf
öruggur.
Þrír menn voru atkvæðamestir í
sókninni hjá IR, þeir Bjarni
Bessason, Bjarni Hákonarson og
Guðmundur Þórðarson. Gekk
Frömurum illa að hemja Bjarna
Bessason og brugðu þeir á það ráð
í seinni hálfleik að taka hann úr
-?Rm 25:29
umferð. Þá losnaði um Guðmund
og hann skoraði nokkur mikilvæg
mörk. Bjarni Hákonarson hefur
verið mjög vaxandi leikmaður í
íslandsmótinu og hann er í dag ein
öruggasta vítaskyttan í deildinni.
Þá var Sigurður Svavarsson geysi-
sterkur í vörninni og Ásmundur
Friðriksson markvörður varði vel
í s.h.
Framarar standa ekki vel að
vígi eftir þetta tap og þeir þurfa
greinilega að athuga sinn gang
eftir þessa slöku frammistöðu.
Hannes Leifsson var sá leikmaður,
sem mest kvað að.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild, Fram-ÍR
25:29 (12:13), í Laugardalshöll 2.
marz.
Mörk Fram: Hannes Leifsson
8(1 v), Erlendur Davíðsson 4(4 v),
Björn Eiríksson 4, Egill Jóhann-
esson 3, Jóhann Kristinsson 2,
Sigurbergur Sigsteinsson 2, And-
rés Bridde 1, Jón Árni Rúnarsson
1.
Mörk ÍR: Bjarni Hákonarson
10(7 v), Bjarni Bessason 8, Guð-
mundur Þórðarson 6, Sigurður
Sverrisson 2, Ársæll Hafsteinsson
2, Pétur Valdimarsson 1.
Misheppnuð vítaköst: Hannes
Leifsson skaut í stöng.
Brottvísanir: Andrés Bridde 4
mínútur, Jóhann Kristinsson, Sig-
urður Svavarsson og Ársæll Haf-
steinsson útaf í 2 mínútur hver.
-SS.
KR á grænni grein
- en HK kveóur líklega t. deild
STÓRKOSTLEG markvarsla Pét-
urs Hjálmarssonar og sterkari
liðsheild KR stýrði liðinu af
hættusvæðinu i 1. deild. KR
mætti HK í Mosanum um helgina
og vann aigeran yfirburðasigur,
23—16, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 13—8 fyrir KR. Með
þessu tapi, eru möguleikar HK á
því að halda sér í deildinni
hverfandi, spurningin fyrst og
fremst sú hvaða lið fer einnig
niður í 2. dcild.
Það þarf ekki mörg orð til að
lýsa gangi þessa leiks, það var fátt
um varnir hjá KR og KR-ingar
komu urrandi til leiks, ákveðnir að
tryggja sitt sæti í 1. deild endan-
lega. Það hefur áreiðanlega komið
þeim á óvart hve slakt lið HK var
að þessu sinni, en liðið er oft erfitt
heim að sækja að Varmá. Ekki
núna. KR-ingar náðu þegar í stað
öllum völdum á vellinum og gerðu
nánast það sem þá lysti. Tölur
eins og 9—3, 18—11 og 22—13
mátti sjá á frumstæðri marka-
töflu Varmár. Lokatölur síðan
23—16 eins og áður er sagt.
™k. 16:23
arsson upp úr og var hann lang
besti maðurinn á vellinum. Hauk-
ur Ottesen og Ólafur Lárusson
áttu einnig góðan leik svo og
Haukur Geirmundsson, vaxandi
leikmaður í liði KR. Til gamans
má geta þess, að Pétur Hjálmars-
son varði hvorki fleiri né færri en
26 skot í leiknum, geri aðrir betur.
Hjá HK réð meðalmennskan
ríkjum. Það hefur verið margbent
á þá litiu breidd sem er í liðinu og
skal gert enn. Liðið hefur komist
langt á baráttunni einni saman,
en ekki lengra í bili að því er
virðist. Gegn KR voru leikmenn
liðsins þrúgaðir af spenningi og
voru óvandaðir í markskotum
sínu, skutu Pétur í stuð með
slökum skotum í byrjun og eftir
það varð ekki aftur snúið. Einar
markvörður fann sig aldrei í
leiknum, varði þó 10 skot, Hilmar
og Ragnar voru atkvæðamestir, en
afar mistækir báðir tveir engu að
síður.
í stuttu máli:
íslandsmótið í handknattleik, 1.
deild:
HK - KR 16-23 (8-13)
Mörk HK: Hilmar Sigurgíslason
4, Ragnar Ólafsson 4/1, Jón Ein-
arsson 3, Bergsveinn Þórarinsson
2, Kristinn Ölafsson 1, Magnús
Guðfinnsson 1, Kalli Jó eitt mark.
Mörk KR: Ólafur Lárusson 5,
Haukur Ottesen 5, Björn Péturs-
son 5/4, Konráð Jónsson 3, Hauk-
ur Geirmundsson 3, Jóhannes
Stefánsson 2.
Brottrekstrar: Haukur Geir-
mundsson og Konráð Jónsson KR í
2 mínútur hvor.
Víti í vaskinn: Pétur Hjálmars-
son varði eitt víti frá Ragnari
Ólafssyni og Ragnar brenndi öðru
af.
—gg.
KR var einfaldlega mun betra
liðið að þessu sinni, sigurinn var
aldrei í hættu. í jafnri liðsheild
stóð markvörðurinn Pétur Hjálm-
ísiandsmttlö i. delld