Morgunblaðið - 04.03.1980, Page 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980
25
Með samstilltu átaki er
hægt að ná takmarkinu
— rætt viö þjálfara og leikmenn
Hilmar Björnsson:
Hilmar Björnsson þjálfari
Vals sagði við blm. Mbl. eftir
leikinn að leikmenn Vals hefðu
verið of ragir lengi framan af
leiknum, þeir hafi ætlað að
halda knettinum of lengi og
verið of taugaspenntir. Lið
Spánverjanna lék mjög hraðan
bolta, mun hraðari en hann
hafði reiknað með eftir að hafa
verið búinn að sjá liðið leika á
myndsegulbandi heima á
Islandi. „Mér fannst þeir vera
heppnir í leiknum og mér fannst
spánska liðið vera mun betra
heldur en bestu lið á Norður-
löndum. Líð Spánverjanna
mundi að öllum líkindum vinna
sigur á bestu vestur—þýsku lið-
unum á heimavelli sínum. Það er
heimavöllurinn sem skiptir öllu
máli, áhorfendur setja mikla
pressu bæði á dómara og leik-
menn liðanna sem heímsækja
þá. Nú er bara spurningin hvort
okkar heimavöllur verði nægi-
lega góður og gefi okkur stærri
sigur en þriggja marka," sagði
Hilmar.
„Það var yrir 50% sóknarnýt-
ing hjá okkur og ég tel það vera
mjög gott á útivelli og segja sína
sögu. Fjórum sinnum var töf
dæmd á okkur í leiknum og þar
af tvisvar sinnum mjög óverð-
skuldað. Við lentum í vandræð-
um með spænsku leikmennina í
vörninni vegna þess að þeir eru
mjög fljótir og grimmir og fengu
oft að taka of mörg skref.
Dómgæslan í leiknum var fyrir
neðan allar hellur og dómararn-
ir voru langt fyrir neðan alþjóð-
leg gæði sem IHF á að gera til
dómara sem dæma undanúr-
slitaleiki í keppnum sem þessum.
Að vísu hallaði ekki meira á
okkur heldur en gengur og gerist
á útivelli, en þrátt fyrir það voru
hinir frönsku dómarar afar slak-
ir.“
„Til þess að sigra spánska liðið
heima þurfum við að bæta varn-
arleikinn og við getum ekki
sigrað þá með neinum látum,
heldur verðum við að spila ró-
lega og yfirvegað, halda marka-
tölunni niðri í leiknum og reyna
að vinna þá með fjörum mörk-
um. Bestu menn Spánverjanna
voru að mínu mati gegnumbrots-
mennirnir. Ég vona að fólk
heimá geri sér grein fyrir því, að
fyrir höndum er erfiður leikur.
En með samstilltu átaki áhorf-
enda og leikmanna ætti að vera
hægt að velgja spænska liðinu
undir uggum og hugsanlega að
ná því stóra takmarki að komast
í úrslitaleikinn í Evrópukeppn-
inni í handknattleik.
Þjálfari Atletico:
„Ég er ánægður með suma
hluti en ekki alla. Ég átti von á
því að við myndum sigra með
meiri mun, en lið Vals kom mér
veruiega á óvart. Virtist liðið
vera mun sterkara heldur en
Fredricia KFUM sem við slógum
út í síðustu umferðinni. Valsliðið
er mjög líkamlega sterkt og
leikmenn liðsins nota líkamlega
krafta sína mjög mikið. Frönsku
dómarana skildi ég ekki og þeir
fóru alls ekki eftir handknatt-
leiksreglunum. Að mínu mati
högnuðust Valsmenn á því.“
Spánski þjálfarinn vildi ekki
spá um úrslit í síðari leiknum, en
sagði það vera gott veganesti að
hafa þrjú mörk í forskot.
Fyrirliði Atletico:
„Valsmenn komu okkur á
óvart, þeir eru mun sterkari
heldur en danska liðið Fredricia
og þeir verða vafalaust mjög
erfiðir heim að sækja.
Stefán Gunnarsson,
fyrirliði Vals:
„Þetta var álíka sterkt lið og
við reiknuðum með, þeir eru
mjög sterkir líkamlega og fljótir.
Við vorum oft linir þegar við
tókum á móti þeim í vörninni og
gáfum stundum of mikið eftir.
Of oft og lengi ógnuðum við ekki
nóg í sóknarleiknum, horfðum
ekki á mark Spánverjanna, það
fór fyrst að ganga hjá okkur
þegar við fórum að sækja og
skjóta á markið. Ég hef mikla
trú á því að okkur takist að sigra
þetta lið heima, takist okkur að
ná upp góðri markvörslu og
sterkri vörn. Aðalatriðið heima
er að fá fólkið með okkur, í
útileiknum var það fólkið sem
stjórnaði dómurunum, það var
fyrst og fremst fólkið sem færði
Spánverjunum þetta þriggja
marka forskot. Við lékum ekki
nógu vel á útivelli vegna þess að
við vorum of taugaspenntir og
gátum ekki einbeitt okkur sem
skyldi," sagði Stefán fyrirliði að
lokum.
Jón Karlsson:
„Ég hef aldrei lent í öðrum
eins hávaða og látum, það var
svo til útilokað að ná sambandi
við aðra leikmenn inni á vellin-
um, slík voru lætin í fólkinu. Við
vorum allt of ragir í byrjun,
lékum of varlega og það var ekki
ógnað eins og átti að gera. Að
mínu mati er spænska liðið ekki
meira heldur en miðlungslið,
sem þó hefur sínar mjög sterku
hliðar eins og hraðaupphlaupin
og mjög hratt spil. Á góðum degi
eigum við að geta unnið þetta lið
heima, en áhorfendur verða að
styðja við bakið á okkur og um
leið að þiýsta á dómarana í
leiknum. Ég hef aldrei orðið
vitni að annarri eins heimadóm-
gæslu á öllum mínum ferli og þó
er ég búinn að leika marga
landsleiki og Evrópuleiki með
Val,“ sagði Jón.
Bjarni Guðmundsson,
besti maður Vals í
leiknum:
„Þetta var ekki nógu góður
leikur af okkar hálfu, en það er
geysilega erfitt að leika á úti-
velli. Leikurinn heima verður
mjög erfiður, en með yfirvegun
eigum við góða möguleika á því
að sigra í leiknum. Við vorum of
spenntir."
Steindór Gunnarsson:
„Það voru mjög mikil líkamleg
átök í þessum leik, dómararnir
leyfðu mikið og dæmdu að mínu
mati mjög illa. Við lékum vörn-
ina ekki vel, en við vorum seinir
að læra á dómarana, sem leyfðu
næstum allt.“
Brynjar Kvaran:
Brynjar, sem átti mjög góðan
leik, sagði að möguleikarnir
hlytu að vera góðir. Sagði Brynj-
ar að varnarleikur Vals hefði
ekki verið nægilega góður, en
leikurinn verið geysilega erfiður.
„Álagið á leikmönnunum hefur
verið mjög mikið, áhorfendurnir
voru leikmönnum Vals erfiðir og
þeir stjórnuðu að miklu leyti
dómgæslunni."
• Bjarni Guðmundsson reynir markskot i leiknum á Spáni. Eins og sjá má á
myndinni eru sumir leikmenn Atletico Madrid hávaxnir og sterklegir. Steindór
Gunnarsson sést á línunni og fylgist hann vel með öllu. Ljósm. Mbl. þr.
Þórarinn Ragnarsson blm. Mbl. í Madrid skrifar:
Sanngjarn sigur
SPÆNSKU blöðin fjölluðu nokk-
uð um Evrópuleik Vals og Atie-
tico. Voru þau samdóma um að
spænska liðið hafi átt sigurinn
fyililega skilið. jafnvel að stærri
sigur hefði ekki verið ósann-
gjarn. En Valsliðið hafi verið
sterkara en flestir hafi átt von á,
erfitt lið við að eiga, þar sem
leikmenn liðsins hefðu sérstakt
lag á því að ráða hraða leiksins
og halda honum niðri.
Valsmenn ætla
að kvarta
Bergur Guðnason, formaður
Vals, tjáði blm. Mbl. i Madrid. að
Valur myndi rita IHF harðort
mótmælabréf fyrir það að senda
jafn slæma dómara á mikilvægan
Ieik sem þennan. Það væri ámæl-
isvert að senda menn sem ekki
kynnu einu sinni undirstöðuregl-
ur íþróttarinnar. Þessir ágætu
menn voru franskir, en Svíar
munu dæma siðari leikinn, sem
fram fer í Laugardalshöll.
Áhorfendur byrjuðu
klukkustund fyrir
leiktímann með lætin
Klukkustund áður en að Evr-
ópubikarleikur Atletico Madrid
og Vals hófst, var íþróttahöllin í
Madrid troðfull og komust færri
að en vildu. Lúðrar, hrossabrest-
ir og fleira af líku tagi var óspart
notað. Þegar Valsmenn komu inn
á gólfið til að hita upp var þeim
klappað lof í lófa og mikla
hrifningu vakti þegar leikmenn
liðsins fóru að leika knattspyrnu,
einkum Brynjar Harðarson. Var
mikið klappað er hann sýndi
knattlistir.
Hávaðinn magnaðist stig af
stigi, jókst gífurlega þegar sjón-
varpsvélunum var beint á áhorf-
endapallana. En þegar leikmenn
llþróHirl
spænska liðsins komu inn á
völlinn. ætlaði þakið hreinlega að
fjúka af húsinu.
Byrjunarlið Vals í leiknum
gegn Átletico Madrid var þannig
skipað: Ólafur Benediktsson,
Gunnar Lúðvíksson, Þorbjörn
Guðmundsson, Þorbjörn Jensson,
Steindór Gunnarsson, Stefán
Gunnarsson, Bjarni Guðmunds-
son.
Þórður Sigurðsson, for-
maður handknattleiks-
deildar Vals:
„Eg er að sumu leyti ánægður
með leikinn, en ekki öllu leyti.
Ég held að það hafi verið mikil
mistök að ætla að halda boltan-
um of lengi. Stemmningin í
húsinu var hreint ótrúleg og
setti mikla pressu á Valsmenn.
Vonandi verður eins góð
stemmning á leiknum heima
þegar við leikum þar, því að það
hefur allt að segja fyrir Val.
Allar aðstæður hér og móttökur.
hafa verið frábærar og allt gert
fyrir leikmenn. Dómararnir í
leiknum voru afspyrnuslakir."
Bergur Guðnason, formað-
ur Vals:
„Þetta var mikill baráttuleik-
ur og greinilegt að leikmenn
Vals voru þrúgaðir af tauga-
spennu allan tímann." Sagði
Bergur síðan að hann hefði
aldrei séð jafn fákunnandi dóm-
ara og það væri hneyksli að
hálfu IHF að senda slíka dómara
á jafn mikilvægan leik og þenn-
an. Sagðist Bergur vera sann-
færður um það, að Valur myndi
klára dæmið og sigra Spánverj-
ana heima.
VALSMENN EYGJA URSLITALEIKINN
dæmt víti á Val, vítakastið mis-
heppnast. Manrig skýtur í stöng-
ina. Brynjar Harðarson kemst svo
Á því leikur enginn
vafi að handknattleikslið
Vals á góða möguleika á að
verða fyrst íslenskra liða
til að ná þeim frábæra
árangri að komast í úr-
slitaleik í Evrópumeistara-
keppninni í handknatt-
leik, eftir góða fram-
mistöðu á útivelli á móti
spænsku meisturunum At-
letico Madrid.
Spánverjarnir hafa
þrjú mörk til góða en
Valur á að geta unnið þann
mun upp á heimavelli tak-
ist liðinu að ná góðum
leik. Leikur Vals hér í
Madrid var nokkuð sveiflu-
kenndur og greinilegt var
að leikmenn voru þrúg-
aðir af taugaspennu allan
leikinn. Þá var gífurleg
pressa á liðinu vegna
þeirrar stemmningar
sem var í húsinu. Þrjú
þúsund áhorfendur sem
fylltu höllina sköpuðu
slíkan hávaða og læti að
undirritaður hefur aldrei
orðið vitni að öðru eins.
Hrossabrestir lúðrar hróp
og köll voru í gangi
allan tímann, og ósjaldan
risu áhorfendur úr sætum
sínum í miklum æsingi og
átti maður allt eins von á
því að þeir færu inn á
völlinn. Sannkallaður
heimavöllur og í ljósi þess
er ekki slæmt að tapa
leiknum með þremur
mörkum, 24 gegn 21. Þá er
það Val í hag að hafa
skorað svo mörg mörk á
útivelli takist þeim að
halda markatölunni niðri
þegar leikið verður
heima.
Gifurleg
taugaspenna
Það voru Spánverjar sem byrj-
uðu með boltann og hófu þeir
leikinn með miklum hraða. Fyrsta
skot þeirra varði hins vegar Ólaf:
ur Benediktsson með tilþrifum. í
fyrstu sókn Vals komst Steindór í
gott færi á línunni. Brotið var illa
á honum en ekkert dæmt og þá
rann strax upp fyrir manni ljós að
dómararnir sem voru franskir
yrðu ekki með á nótunum enda
kom það á daginn. Fyrsta mark
leiksins kom ekki fyrr en á 5.
mínútu er Alonso skoraði með
þrumuskoti.
Skömmu áður hafði Þorbjörn
Jensson átt skot í stöng. Nokkur
hraði var í byrjun leiksins hjá
Spánverjunum, en Valsmenn fóru
sér hægt og voru leikmenn mjög
ragir við að ógna og léku langt frá
vörninni. Þorbjörn Guðmundsson
jafnaði leikinn 1—1 en Spánverjar
ná strax aftur forystunni. Eftir 11
mínútna leik er staðan 4—2.
Valsmönnum tekst að halda hrað-
anum í leiknum nokkuð niðri.
Þorbjörn Guðmundsson skorar
þriðja mark Vals á 12. mínútu. En
Spánverjar höfðu ávallt frum-
kvæðið og skora svo til strax
aftur. Var vörn Vals ekki nægilega
vel á verði, í byrjun leiksins. Þegar
fyrri hálfleikur er hálfnaður er
aðeins eins marks munur á liðun-
um 6—5, og þá hafði tvívegis verið
dæmd töf á Val. í annað skiptið
eftir 20 sek. leik, ótrúlegt en satt.
Þegar hér er komið leik missa
Valsmenn leikinn illa út úr hönd-
unum á sér. Þeir létu teyma sig út
í hraðan leik, tvívegis voru reynd
ótímabær skot og á tæplega þrem-
ur mínútum breyta Spánverjarnir
stöðunni úr 6—5 í 10—5. Nú var
allt útlit fyrir að Spánverjar væru
að ná algjörum tökum á leiknum.
En vörn Vals lagaðist og Brynjar
Kvaran sem kom inn á í markið
varði eins og best gerist. Sóknar-
leikur Vals var að vísu ekkert til
að hrópa húrra fyrir, þeim tekst
ekki að skora mark í 9 mínútur, en
tókst að halda Spánverjunum frá
því að skora. Þannig að staðan er
7—10 á 25. mínútu. (Steindór
skorar 6. mark Vals og bætir því 7.
við 2 mínútum síðar bæði voru
mörkin af línu.) Spánverjar skora
sitt 11. mark á 25. mín. en
greinilegt var að hægur sóknar-
leikur Valsmanna fór í taugarnar
á þeim og leikur þeirra var fyrir
bragðið ekki eins yfirvegaður. Á
síðustu mínútu hálfleiksins brýst
Þorbjörn Jensson í gegn en illa er
brotið á honum og dæmt víti, hið
fyrsta í leiknum. Var maður
farinn að halda að svo yrði ekki
eftir fyrðulega dómgæslu frönsku
dómaranna. Stefán Halldórsson
skoraði svo örugglega úr vítakast-
inu 8—11. Tíminn rann svo út án
þess að Madrid tækist að gera
mark.
Mikil átök,
hraði
og spenna
Síðari hálfleikur var gífurlega
harður og grófur. Enda lítið dæmt
og hart barist. Valsmenn byrjuðu
með boltann og voru einum fleiri
þar sem einum Spánverja hafði
verið vísað af leikvelli. Eftir lag-
lega leikfléttu tókst Gunnari
Lúðvíkssyni að skora 9. mark Vals
úr horninu. Uria skorar 12. mark
Atletico Madrid úr víti á sömu
mínútu. Leikur Vals í byrjun
síðari hálfleiksins var frekar ráð-
leysislegur, boltinn gekk ekki
nægilega vel. Oft á tíðum var
leikið mjög hægt í sóknarleiknum
og skyttur Vals horfðu hreinlega
ekki á markiö, og enginn ógnun
var í leik liðsins. Vörnin var ekki
nægilega sannfærandi, hinir
fljótu gegnumbrotsmenn Madrid
áttu oft of greiða leið í gegn. Þegar
10 mínútur eru liðnar af síðari
hálfleiknum er staðan orðin 16—
10. En þá bregður Hilmar á það
ráð að breyta varnarleiknum og
lætur Steindór leika vel fyrir
framan og trufla spil Spánverj-
anna. Þetta gaf góða raun. Þá kom
Jón Karlsson inn á og gjörbreytti
hann sóknarleiknum hjá Val.
A-Madrid — Valur
24:21
Boltinn fór að ganga mun hraðar,
og meiri ógnun kom í leik Vals.
Þeir skora næstu þrjú mörk,
Þorbjörn sem hafði verið mjög
ragur við að reyna skot skorar og
síðan Jón með skemmtilegu gegn-
umbroti og svo Þorbjörn aftur.
Staðan breytist í 13—16 og 16
mínútur liðnar af síðari hálfleik.
Þá er Stefáni Gunnarssyni vikið
af velli í 2 mín, og Manric skorar
17—13. Þorbjörn Guðmundsson
sem var nú kominn í mikinn ham
skorar 14. mark Vals en næstu
þrjú mörk eru öll frá Madrid og
þegar 12 mínútur eru eftir af
leiknum, er staðan 20—14 sex
marka munur og allt útlit fyrir
stórt tap hjá Val. Þorbjörn sem
loks var farinn að lyfta sér á
vörnina hjá Madrid og skjótu
skorar 15. markið, og mikil harka
er komin í leikinn.
Brynjar Kvaran ver glæsilega
línuskot, og Stefán Gunnarsson
brýst í gegn í næstu sókn og fær
víti, en lendir um leið í stymping-
um við Spánverja og báðir eru
reknir af velli í 2 mín. Stefán
Halldórsson skoraði af öryggi úr
vítinu, 16—20, og 9 mínútur til
leiksloka. Brynjar ver í næstu
sókn Madrid og Steindór minnkar
muninn miður í þrjú mörk þegar 8
mín. eru eftir. Nú voru Valsmenn
loks farnir að berjast eins og ljón
i vörninni með Þorbjörn Jensson í
broddi fylkingar. Manrig tekst að
skora 21—17.
Þorbjörn G. minnkar muninn
með 18—1 en Spánverjarnir skora
22—18 á 55. mínútu leiksins. Nú
var allt á suðupunkti í höllinni.
Bjarni Guðmundsson brýst í gegn
í horninu og skorar glæsilega,
flaug inn í teiginn, og staða 19—22
og 4 mín. eftir.
Eftir langa sókn Spánverja er
í gegn í horninu og minnkar
muninn niður í tvö mörk þegar
hann skorar 20. mark Vals og 3
mín. og 40 sek. eru eftir af
leiknum. Milian bætir svo 23.
markinu við þegar 2,55 sek eru
eftir. Valsmenn hefja sókn en viti
menn, þeir voru varla komnir í
sóknina þegar dæmd er töf á liðið,
það hafa varla verið liðnar nema
10 sek.
Spánverjar fá boltann og tekst
að skora 24—20 á þegar 2 mín. eru
eftir. í næstu sókn Vals kastar
Brynjar Harðarson beint út af og
hefði það getað orðið afdrifaríkt
fyrir Val. 1 mín. 40 sek. eftir af
leik. Með baráttu tekst Val að
krækja í boltann hjá Spánverjum
í næstu sókn og þegar 46 sek. eru
eftir fær Bjarni Guðmundsson
boltann í hraðaupphlaupi og skor-
ar 21. mark Vals með ógnarkrafti.
Síðasta sókn Madrid gekk svo ekki
upp og lokastaðan varð 24—21.
Liðin.
Spánska liðið Atletico Madrid
er þokkaiega gott lið sem leikur
mjög hraðan handknattleik.
Sterkustu hliðar liðsins eru
hraðaupphlaupin og gegnumbrot.
Markvarslan hjá liðinu var frekar
slök í þessum leik, en varnarleik-
urinn grófur og harður, Það fór í
taugarnar á liðinu hve hraðanum í
leiknum var haldið niðri. Horna-
menn liðsins voru teknir svo gott
sem úr umferð og skytturnar líka.
Bestu menn iiðsins í þessum leik
voru Milian, Manrig og Uria. Allt
gegnumbrotsmenn. Stórskyttan
Alonso skoraði fimm mörk en átti
langt frá því góðan leik. Leikmenn
liðsins eru sterkir og í góðri
líkamlegri þjálfun.
Lið Vals lék ákaflega sveiflu-
kenndan leik. Besti maður liðsins
var Brynjar Kvaran markvörður
sem varði 11 skot í leiknum. Mörg
þeirra á mikilvægum augnablik-
um. Bjarni Guðmundsson var
bestur útileikmanna, traustur
leikmaður sem gerir fáar villur.
Steindór stóð fyrir sinu á línunni
en lenti þar oft í kröppum dansi.
Þorbjörn Guðmundsson var ailt af
ragur í sókninni. Þegar hann loks
tók sig til og fór að skjóta var allt
inni. Jón H. Karlsson kom
skemmtilega á óvart í leiknum,
hann dreif spilið áfram og gaf
Þorbirni sendingar á réttum
augnablikum sem gáfu svo mörk.
Þeir Stefán Gunnarsson og Þor-
björn Jensson komust best frá
varnarleiknum. Valsmenn léku að
mörgu leyti skynsamlega, það er
mikill vandi að standa sig á
útivelli þar sem allir eru á móti
liðinu. Liðið reyndi að halda hrað-
anum niðri og tókst það nokkuð
vel. Þó var á köflum fullmikið
aðgerðarleysi og lítil ógnun í leik
liðsins. Varnarleikurinn hefði get-
að verið betri. Þar vantaði meiri
baráttu og kraft, sem kom of
seint. Það fer ekki milli mála að
Valsmenn hafa fengið góðar upp-
lýsingar um A-Madrid af mynd-
segulbandsspólunum sem skoðað-
ar voru heima fyrir leikinn.
{ stuttu máli:
Evrópumeist-
arakeppnin,
fjogra-
lióa úrslit.
Atletico Madrid-Valur 24—21
(11-8)
Mörk Vals: Þorbjörn Guð-
mundsson 7, Steindór Gunnarsson
4, Bjarni Guðmundsson 3, Stefán
Halldórsson 3 (2 víti), Jón Karls-
son, Gunnar Lúðvíksson, Stefán
Gunnarsson og Brynjar Harðar-
son allir eitt mark hver.
Mörk: A-Madrid: Alonso 5, Mil-
ian 5, Manrig 5, Uria 5, Puente 2,
Novales 1, Parrellia 1.
Brottrekstur af velli: Stefán
Gunnarsson í 4 mínútur, Aperdar
í 2 mín. og Puente í 4 min.
Misheppnuð viti: Manrig skaut í
stöng á 56. mín.
Dómarar: Lux og Lelarge
Frakklandi og voru þeir afar
slakir. Brynjar Kvaran varði 11
skot í leiknum, Ólafur Benedikts-
son 2.