Morgunblaðið - 04.03.1980, Page 33

Morgunblaðið - 04.03.1980, Page 33
fólk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 41 + Á þessum AP-myndum eru 5 sendiherrar, af þeim 15 sendiherr- um, sem eru meðal gíslanna, sem hafa verið í haldi í sendiráði Dominikanska lýðveldisins í Bo- gota, höfuðborg Colombía, í S-Am- eríku. — Samkvæmt síðustu fregn- um munu gíslarnir alls vera 20 talsins. — Þessir fimm sendiherr- ar, sem hér eru á myndinni, eru í efri röð frá vinstri: Sendiherra Ástralíu, dr. Edgar Selzer, sendi- herra Bandaríkjanna, Diego Asen- cio og sendiherra Mexico Ricardo Galan. — Og hér að neðan eru sendiherra Venezuela, Virgilio Lo- vera (til vinstri) og sendiherra Sviss, Jean Bourgeois. Hnerrametinu hnekkt! + Horfur eru á þvi að 12 ára gömul brezk skólastúlka. Tricia Reays að nafni, muni komast í Heimsmetabók Guinness. — í októbermánuði siðastl. kvefað- ist Tricia. — En er hún var orðin heil heilsu af þessu kvefi, hætti hún ekki að hnerra og hefur ekkert hlé orðið á, að þvi er blaðafregnir herma en hún hefur að sjálfsögðu leitað lækna. — Þeir hafa gert allt sem i þeirra valdi stendur til þess að stöðva hnerrann, en allt hefur verið árangurslaust. M.a. var nef stúlkunnar fryst! Hún er nú komin upp i 20 vasaklúta á dag, blessuð stúlkan og bata- horfur óbreyttar. — Gamla hnerrametið í Heimsmetabók- inni er 155 daga hnerri. Átti það 17 ára gömul stúlka í Miami. En læknum tókst loks að stöðva hnerrann og var beitt raflosti. Hátíð í Róm + Litríkar gleðisamkomur — kjötkveðjuhátiðir hafa undanfarið verið á nær hverju strái í löndum S-Evrópu. — I fjölda borga eru þessar hátíðir með svo miklum glæsibrag að þær þykja slá hátt upp í þjóðhátíð Islendinga, hvað snertir gleði, söng og hugmyndaflug. — Það er t.d. ekki langt síðan slík hátíð var suður í Róm. Náði hún þá inn yfir landamæri Vatikanríkisins. — Lítill drengur klæddur búningi hins svissneska lífvarðar páfans, sést hér færa Jóhannesi Páli páfa stóran blómvönd. + Af blaðafregnum frá Ítalíu virðist mega ráða að lögreglu- yfirvöldum hafi orðið allnokk- uð ágengt nú upp á siðkastið i haráttunni gegn hryðjuverka- mönnum þar í landi, t.d. félög- um í Rauðu herdeildunum. Þessi mynd birtist fyrir skömmu í blöðum þar syðra og er af einum af foringjum Rauðu herdeildanna, Rocco Micaletto. Lögreglan í Torino tilkynnti fyrir skömmu að þar í borg hefðu verið handteknir tveir þeirra manna sem lög- regluyfirvöld telja í hópi yfir- manna Rauðu herdeildanna, nefnilega þennan Micaletto og annan til, Patrizio Peci að nafni. Þeir höfðu verið hand- teknir er þeir knúðu dyra hjá hryðjuverkamanni, sem lög- reglan hafði handtekið daginn áður, en þeir vissu það ekki. Lögreglan segir að báðir þessir menn hafi komið mjög við sögu við ránið og morðið á ítalska stjórnmálamanninum Aldo Moro, foringja Kristilega demókrataflokksins þar i landi. Þau eru komin ... Fermingarfötin sem allir hafa beðiö eftir. 2. hasö. Sími 85055 Kápur o. m. fl. MJÖG HAGSTÆTT VERÐ Dragtir með pilsi eða/og buxum. Föt eða stakur jakki og buxur. Skyrtur — Blússur — Skór — Bindi — 1. flokks efni og 1. fl. ísl. framleiðsla. Lærið vélritun Ný námskeið hefjast þriöjudaginn 4. marz. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13. Vélritunarskólinn Suöurlandsbraut 20 EF ÞAÐ ER FRÉTT- 9J NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.