Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 36

Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 vlfO MORödiv- IÍAfPínu GRANI GÖSLARI Mér er sama um hvort þau eru skotin hvort í öðru eða ekki, ég hef ótrú á kynhlöndu! Ég keypti allar vítamíntöflurnar, en ég hef ekki krafta i kögglum til að opna glösin. Er almennt bjór- þamb hugsjónarmál? Samkvæmt skrifum í blöðum, eru einhverjir menn mjög ánægðir yfir því, sem þeir kalla fyrsta skrefið, sem stigið hefur verið í því, að veita frjálsan innflutning og frjálsa neyslu á sterkum bjór. (sjá t.d. Mbl. 6/2, 1980). Og forkólfar þessarar baráttu vilja innlenda stórframleiðslu á þessum görótta vökva, svo allir landsmenn geti á sem ódýrastan og þægi- legastan hátt drukkið frá sér vitið án ámælis. Unglingar gætu þá t.d. næstum án eigin vitundar og vilja ánetjast Bakkusi og orðið þrælar áfengisins, þar með talið sterkra drykkja, áður en þeir vissu af. Það er eins og almennt bjórþamb sé þessum áróðursmönnum hug- sjónamál, rétt eins og þeir haldi að slík drykkja lyfti þjóðinni á hærra menningarstig. — Hitt mun heldur, að verði sala á sterkum bjór gefin hér alfrjáls, mun slíkt aðeins auka almenna áfengisneyslu, ekki síst ungl- inganna og draga þjóðina niður á lægra menningarstig en hún nú stendur á. Fyrir því eru nóg dæmin annarsstaðar frá, og engin ástæða er til að ætla, að svo verði ekki einnig hér, verði bjórneysla gefin frjáls. Líklega er ekki nema stigsmun- ur en ekki eðlismunur á kröfunni um frjálsa bjórsölu og kröfunni um frjálsa sölu á hassi: Hvort tveggja mun aðeins leiða til auk- innar neyslu sterkari efna. í Reykjavík hefur verið stofnað félag þeirra, sem berjast fyrir frjálsri sölu á hassi og öðrum vægum eiturefnum, og sjálft sjón- varpið hefur gert þessu þokkalega félagi svo hátt undir höfði, að birta viðtal við einn af forustu- mönnum þess, svo að hann gæti á sem auðveldastan hátt komið áróðri sínum fyrir þessu eiturlyfi til alls almennings í landinu. Auðvitað nær engri átt, að svo áhrifamikill fjölmiðill sem sjón- varpið taki þátt í þeim ljóta leik, á sama tíma sem ábyrg stjórnvöld landsins berjast gegn eiturlyfja- BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Enn er hér spil frá Eyjum. Og engu er líkara en, að mikið hafi verið um skiptingarspilin í hraðsveitakeppni félagsins. En það er nú gjarna svo, að fremur er eftir þeim munað en öðrum. Vestur gaf, allir á hættu. Norður S. Ádx H. xx T. KD L. KGlOxxx Vestur S. Kxx H. ÁDlOxxx T. x L. Dxx Austur S. xxx H. Gx T. GlOxxxxx L. x Suður S. xxxx H. Kxx T. Áxx L. Áxx Sagnir gengu þannig: Vestur Norflur Austur Suður 1 Hjarta 2 I.auf P 2 Grond P 3 Laul P 3 Grönd P P P Útspil vesturs var lítið hjarta og þegar gosinn kom frá austri neyddist suður til að taka á kónginn. Suður spilaði þá lágum tígli að heiman á kónginn, drottn- ingin tekin og tígullegan kom í ljós. Austur hafði átt sjö tígla í upphafi. En ekki voru það nægar upplýsingar. Suður spilaði sig heim á laufás og spilaði aftur laufi. Lítið frá vestri og eftir nokkurt hik bað suður um kóng- inn. En þegar austur var ekki með varð tapið óumflýjanleg stað- reynd. Suður gat gert betur í spilinu. Allt mælir með því, að vestur eigi laufdrottningu þar sem hann vek- ur í fyrstu hendi. Hann á einfald- lega ekki nógu marga punkta til að vekja ef drottninguna vantar. Já það er auðvelt að vera vitur eftirá í bridge. Hér með lýkur Eyja-bridsinum nú og við þökkum fyrir lífleg spil. Maigret og vínkaupmaðurinn Eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslensku 61 Hann minntist annars máls sem var löngu liðið — þá hafði morðinginn á hverjum degi skrifað honum br?f upp á marg- ar siður frá hinum ýmsu veit- ingastöðum. En einn morgun- inn hafði hann svo beðið eftir honum þegar hann kom í vinn- una. Þá var hann húinn að fá nóg og vildi gefa sig fram. — Hvað íáum við að borða. — Bollur í smjöri. Ég vona það sé ekki of þungmelt fyrir þif?- — Mér er ekkert illt í mag- anum. — Á ég að hringja til Par- dons læknis? — Nei. leyfum blessuðum manninum að borða í friði. Hann hefur vist nóg með að sinna sjúkum. — Viltu ég færi þér matinn í rúmið? Ilann var ófáanlegur til þess, en hann afklæddist og fór í slopp og inniskó. Ilann reyndi að festa sig við að líta yfir blöðin en hugur hans var viðs fjarri og hvarflaði alltaf á ný til Pigous, litla bókarans sem hafði gert sig að þjófi vegna þess að konan hans ásakaði hann fyrir að vera raggeit sem þyrði ekki að hiðja yfirmann sinn um launaha kkun. . Hvar var hann á þessari stundu? Ilafði hann enn ein- hverja peninga? Og hvar hafði hann þá orðið sér úti um þá? Ilonum varð líka hugsað um Chabut, sem var hrokafullur og hafði af því unun að auðmýkja alla sem í návist hans voru. Með ofsa og ósviíni hafði hann unnið sig upp og gert fyrirtæki sitt að veldi en hann var enn viðkvæm- ur og óöruggur innst inni eins og hann hafði verið meðan hann gekk milli húsa og seldi vaming. Maigrct hafði þekkt annað feimið fólk sem lét allt bitna á þeim sem í kringum þá voru. — Jæja, þá er maturinn til. Hann var ekki svangur. en borðaði samt. Ilann átti dálítið erfitt með að kyngja. Kannski yrði hann búinn að missa rödd- ina á morgun. Mennirnir á Quai des Orfevr- es voru nú sjálfsagt komnir hver á sinn stað. Hann hafði langað til að bæta við: — Ilafið einnig varðmann við hús mitt á Boulevard Rich- ard Lenoir. En hann hafði ekki kunnað við að gera það. Kannski þeir héldu þá að hann væri hræddur. Þegar hann reis upp frá borð- inu gekk hann að glugganum og leit út. Það var ekki rigning. en hafði hvesst að norðan. Ilann sá ungt ástfangið par ganga þarna arm í arm og virtist ekki finna fyrir kuldanum og öðru hverju námu þau staðar og kysstust innilega. — Viltu horfa á sjónvarpið? — Nei. Hann langaði ekki til neins. Nema að vera önugur og pirr- aður eins og hann var alltaf þegar honum leið ekki vel eða þegar mál sem hann var að vinna við dróst um of á langinn. Hann fór aftur að glugga i blöðin. Ilálftima síðar gekk hann aftur út að glugganum og leit niður í þeirri von að sjá veruna einhvers staðar i grend- inni. þessa veru sem hann var nú farinn að kannast harla vel við. Á gangstéttinni var ekki sálu að sjá og afar lítil bílaumferð var um götuna. — Heídurðu að hann komi? - Hvernig ætti ég að vita það? — Það lítur út fyrir að þú sért að bíða eftir einhverju? — Ég er alltaf að biða eítir einhverju. Það gæti eins verið upphringing frá Lapointe. — Er hann einhvers staðar á vakt? — Já. i alla nótt. Það er hann sem á að safna öllum þeim upplýsingum sem koma inn um málið. — Heldur þú að maðurinn sé að missa stjórn á sér? — Nei. hann heldur rósemi sinni. Hann gerir sér ekki fullkomlega grein fyrir málinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.