Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980
84% Dana telja að
heimsf riðnum staf i
ógn af Sovétmönnum
Danir bera
minna traust til
Bandaríkjanna
en áður
Kaupmannahöfn. 3. marz. AP.
84% DANA telja að heimsfriðn-
um stafi hætta af Sovétríkjunum.
Þetta kom fram í skoðaðakönn-
un, sem Jyllands Posten lét gera.
Þá kom einnig fram i skoðana-
könnuninni, að Danir bera nú
minna traust ti) Bandaríkjanna
en áður og að 34% Dana teíja að
heimsfriðnum stafi hætta af
Bandaríkjunum.
Alls voru 1297 manns spurðir í
skoðanakönnuninni, sem Ob-
serva-stofnunin gerði. Stofnunin
framkvæmdi sams konar könnun
fyrir ári síðan. Þá sögðust 49%
álíta að heimsfriðnum stafaði
hætta af Sovétríkjunum en 35%
sögðu, að Sovétríkin stuðluðu að
friði í heiminum. í skoðanakönn-
uninni nú sögðust aðeins 9% Dana
álíta að Sovétríkin stuðluðu að
heimsfriði. Sú niðurstaða að
Bandaríkin ógnuðu heimsfriði
hefur einnig breyst mjög á þessu
eina ári. Fyrir ári síðan sögðust
16% Dana álíta að heimsfriðnum
stafaði hætta frá Bandaríkjunum.
Þá sögðust 56% Dana álíta að
Bandaríkin stuðluðu að friði í
heiminum en fyrir ári sögðust
69% álíta svo.
43% Dana álíta, að Kínverjar
stuðli að friði í heiminum og 23%
sögðust álíta að heimsfriðnum
stafaði hætta frá Kína.
Bjarga mistök
veiðiþjófnum?
Frá fréttaritara Mbl.
Góð von, Grænlandi. í gær.
MISTÖK stjórnvalda geta leitt til
þess að ekki verði grundvöliur til
Týndi sonur-
inn í leitirnar
— sjö árum eftir að mannræningjar
námu hann frá foreldrum sínum
Ukiah. Kaliforniu, 2. marz. AP.
FJÓRTÁN ára gamall drengur,
sem rænt var fyrir sjö árum síðan,
fannst í gær á gangi ásamt fimm
ára gömlum dreng, sem einnig
hafði verið rænt fyrir skömmu
síðan í Ukiah í Kaliforniu.
Drengurinn, Steven Stayner vissi
nafn sitt og hvaðan hann kom.
Lögregluyfirvöld handtóku 48 ára
gamlan mann, Eugene Parnell, fyrir
mannránið á litla drengnum, Tim-
othy Lee. Steven Stayner var talinn
af fyrir sjö árum. Móðir hans var í
sjöunda himni yfir að hafa fundið
hinn týnda son á ný. „Við vissum
alltaf að hann myndi snúa heim á
ný,“ sagði móðirin.
Engin skýring fékkst á af hverju
drengurinn kom ekki fyrr í leitirnar
en svo virðist sem hann hafi komist
í kynni við fólk, sem annaðist hann
og hann hafi ekki viljað særa það
með því að fara frá því.
Þetta gerðist
1975 — Vestur-þýzka
stjórnmálamanninum Peter Lor-
enz sleppt úr gíslingu og ræn-
ingjar hans sendir til Jemen.
1973 — Átta hryðjuverkamenn
„Svarta septembers" hætta töku
saudi-arabíska sendiráðsins í
Khartum eftir morð á þremur
diplómötum.
1971 — Tyrkneskir hryðju-
verkamenn ræna fjórum banda-
rískum flugmönnum og hóta að
myrða þá (sleppt fjórum dögum
síðar).
1970 — Franskur kafbátur með
57 innanborðs týnist undan
strönd Riviera.
1965 — Sýrlendingar þjóðnýta
niu olíufyrirtæki.
1962 — 111 fórust með brezkri
leiguflugvél eftir flugtak í
Douala í Kamerún.
1943 — Bandaríkjamenn sigra
Japani í orrustunni í Bismarck-
hafi.
1933 — Franklin D. Roosevelt
boðar stefnu sína „nýskiptingu" í
embættistökuræðu.
1931 — Gandhi hættir óhlýðn-
iaðgerðum samkvæmt samningi
við Irwin lávarð og pólitískum
föngum er sleppt á Indlandi.
1919 — Komintern stofnað.
1917— Meiriháttar undanhald
Þjóðverja hefst á
vesturvígstöðvunum.
1857— Stríði Breta og Persa
lýkur með Parísar-friðnum og
Persakeisari viðurkennir sjálf-
stæði Afganistans.
1797 — Brezkt herlið Lakes
lávarðar bælir niður uppreisn í
Úlster.
1789 — Stjórnarskrá Bandaríkj-
anna tekur gildi.
1681 — Karl II úthlutarT/illiam
Penn landi í Norður-Ameríku.
1632 — Pfalz-herferð Gustafs
Adolfs hefst.
1606 - Hinrik IV af Frakklandi
hertekur Sedan til að binda endi
á uppreisn hertogans af Bouill-
on.
Afmæli. Hinrik sæfari, portú-
galskur prins (1394—1460) — Sir
Henry Raeburn, skozkur list-
málari (1756-1823) - Miriam
Mikabe. suður-afrísk söngkona
(1932----).
Andlát. 1852 Nicolai Gogol, rit-
höfundur — 1953 Serge Prokov-
iev, tónskáld.
Innlent. 1213 • Hrafnseyrar-
brenna, d. Hrafn Sveinbjarnar-
son — 1263 Brandur ábóti vígður
til biskups — 1798 f. Sigurður
Breiðfjörð — 1876 f. Ásgrímur
Jónsson — 1283 d. Þórður pr.
Sturluson — 1697 d. Sigurður
lögmaður Jónsson — 1829 d.
Grímur Thorkelin leyndar-
skjalavörður — 1852 f. Kristján
Jónsson ráðherra — 1861 d. Ól.
pr. Indriðason — 1834 Aftaka
Sigurðar Gottsveinssonar vegna
Kambsránsins — 1904 Hannes
Hafstein situr í fyrsta sinn
ríkisráðsfund — 1944 Alþingi
samþykkir stjórnarskrá lýðveld-
isins — 1968 Víðtæk verkföll
hefjast — 1971 íslendingum
sleginn uppstoppaður geirfugl.
Orð dagsins. Vitneskjan um
eigin vanþekkingu er stórt skref
í átt til þekkingar — Benjamín
Disrael, brezkur stjórnmálaleið-
togi (1804-1881).
að höfða mál gegn vestur-þýzka
verksmiðjutogaranum „Heidel-
berg“ fyrir meinta ólöglega veiði.
Ástæðan er sú að reglugerð sem
kveður á um bann við þorskveiði
við Grænland tók ekki formlega
gildi fyrr en 30. janúar sl. Verj-
andi „Heidelbergs" hefur því kraf-
izt þess að málið verði látið niður
falla og Vestur-Þjóðverjar sýkn-
aðir af ákæru um ólöglega veiði.
Ákæruvaldið hefur neyðzt til að
viðurkenna að ef til vill sé um
„glufu" að ræða í lögunum. Úr-
skurðar landsréttar er að vænta á
morgun og hans er beðið með
miklum spenning.
Ef úrskurðurinn verður „Heid-
elberg" í vil getur hann haft áhrif
á dóm sem var kveðinn upp yfir
öðrum vestur-þýzkum verksmiðju-
togara, „Geeste" fyrir ólöglega
veiði í janúar. _ Lauritze„.
ERLENT
Simamynd AP.
Ungfrú Austurríki, Katrín Zorn, var krýnd ungfrú Evrópa á
Kanaríeyjum um helgina og var hlutskörpust nítján keppenda.
Ungfrú Belgía, Christine Cailleau, er til vinstri og ungfrú Spánn,
Lola Forner, til hægri.
Sungu sjómannalög
til að halda rónni
Grímsbæ, 3. marz. AP.
ÞRÍR brezkir sjómenn velktust
um á öldum Norðursjávar í þrjá
sólarhringa áður en þeim var
bjargað um borð í danska skipið
Pansy í dag. Styttu sjómennirnir
sér stundir í volkinu með því að
kyrja sjómannaslagara.
Sprenging varð um borð í báti
Mannskaðaveður
í suðurfylkjum
Bandaríkjanna
þremenningana og björguðu þeir
sér um borð í gúmbjörgunarbát
áður en báturinn sökk í hafið.
Eiginkona skipstjórans, hins sex-
tuga Henry Hansen, sagði í dag að
þess yrði ekki lengi að bíða að
maður hennar færi aftur á sjóinn,
„Sjómennskan er honum í blóð
borin, hann unir sér hvergi nema
á sjónum. Hann fer sennilega í
gott bað og hvílir sig örlítið áður
en hann svipast um eftir nýjum
bát,“ sagði konan er hún frétti um
björgun eiginmanns síns. Hansen
bjargaðist úr sjávarháska einnig
árið 1964. Hann er sex barna faðir.
NEW York. 3. marz. AP.
AÐ minnsta kosti 27 manns
fórust i óveðri, sem gekk yfir
suðurhluta Bandaríkjanna um
helgina.
Yfir 30 sm af snjó kyngdi niður
í Virginíu og fylkisstjórinn, John
Dalton, lýsti yfir neyðarástandi. í
Norfolk í Virginíu var fólki sagt
að vera ekki á götum úti og allt
atvinnulíf var lamað í dag.
Óttast er að helmingur ávaxta
uppskerunnar í Flórdía hafi eyði-
lagst vegna kuldanna. í Flórida
þyrptist fólk út á götur með
myndavélar til að taka myndir af
snjónum. Óveðrið gekk síðan yfir
Ohio og Indiana. Mörg lík hafa
fundist hulin í snjó í Missouri og
Virginíu.
Dregur til úrslita á
hafréttarráðstefnu?
Sameinuðu þjóðunum, 3. marz. AP.
HAFRÉTTARRÁÐSTEFN A
Sameinuðu þjóðanna hóf í dag tíu
Eldur í DC-9
Saxreb, 3. marz. AP.
ELDUR kom upp í lendingar-
búnaði farþegaþotu af gerð-
inni DC-9 frá SAS er vélin ók
af flugbraut að flugstöð á
flugvellinum í Sagreb á laug-
ardag. Engin slys urðu á
farþegum eða áhöfn. Viðgerð
fór fram á lendingarbúnaðin-
um um helgina og sneri vélin
aftur til Kaupmannahafnar í
gærkvöldi. Ekki var gefið uppi
hvað olli eldsvoðanum.
vikna fund sinn, og er þess vænst
að þegar fundunum lýkur 4. apríl
næstkomandi liggi fyrir uppkast
að drögum að hafréttarsáttmála,
sem síðan verði staðfestur á
fundum hafréttarráðstefnunnar
er hefjast 29. ágúst.
Samkvæmt heimildum fengu
strandríki 12 sjómílna landhelgi
og 200 mílna efnahagslögsögu í
nýja sáttmálanum, en undir viss-
um kringumstæðum fengu önnur
ríki að veiða í efnahagslögsögu
annars ríkis. Þá yrði sett á
laggirnar alþjóðleg stofnun til að
stjórna nýtingu á auðæfum hafs-
botnsins, svo sem vinnslu mang-
ans, nikkels, kopars og kóbalts.
Veður
Akureyri 7 skýjað
Amsterdam 7 skýjað
Aþena 15 heiðskírt
Berlín -1 skýjað
BrUssel 7 heiðskírt
Chlcago -6 skýjað
Dyflínni 7 heiðskírt
Feneyjar 10 þokumóöa
Frankfurt 7 skýjaö
Genf B skýjað
Helsinki 0 heiðskírt
Jerúsalem 4 heiöskírt
Kaupmannahöfn 3 heiðskírt
Lissabon 13 rigning
London 7 heiöskirt
Los Angeles 17 rigning
Madrid 17 rigning
Malaga 16 alskýjað
Miami 34 heiðskírt
Moskva -3 skýjað
New York -2 heíöskírt
Osió 0 heiðskírt
París 7 skýjað
Reykjavík 7 súld
Rio de Janeiro 37 heiðskírt
Róm 14 skýjað
Stokkhólmur -3 heiöskírt
Tel Aviv 13 heiðskírt
Tókýó 33 heiðskfrt
Vancouver 10 heiöskírt
Vinarborg 10 skýjað