Morgunblaðið - 04.03.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980
47
Yfir 50 slasast í átök-
um í Amsterdam
Amsterdam. 3. marz. AP.
TIL átaka kom í Amsterdam í
dag, þegar lögregla réðst gegn
hindrunum, sem fólk er sest
hefur að í auðum húsum hafði
sett upp.
Hundruð manna gengu í lið með
fólkinu í baráttunni gegn lögregl-
unni og að sögn fréttamanns á
staðnum taldi hann að yfir 50
manns hefðu slasast í átökunum.
Lögreglustjóri borgarinnar sagði
að 25 lögregluþjónar hefðu verið
fluttir á sjúkrahús en 13 þeirra
hlutu minni háttar meiðsl.
Lögreglan réðst aðeins gegn
hindrunum, sem fólkið hafði kom-
ið upp en rýmdi ekki hús sem
fólkið hafði sest að í. Það krefst að
fá að setjast að í húsnæði sem ekki
er notað. Talið er að í Amsterdam
sé þarna um að ræða 6000 manns.
Spenna hefur undanfarið verið
milli borgaryfirvalda og þessa
fólks. Um 1000 lögreglumenn tóku
þátt í aðgerðum lögreglu í dag og
hafði lögreglan mikinn viðbúnað
vegna aðgerðanna.
Frydenlund aðvar-
ar Sovétmenn
Ósló, 3. marz. AP.
KNUT Frydenlund utanríkis-
ráðherra Noregs varaði Sovét-
menn við endurteknum árásum
á Norðmenn fyrir vígbúnað,
þar sem árásirnar gætu spillt
sambúð ríkjanna tveggja.
togstreitu í heiminum. Sagði
Frydenlund að ákvörðun um
nýlegar endurbætur á vopnum
og eftirlitstækjum væri í engu
tengd innrás Sovétríkjanna í
Afganistan.
Frydenlund sagði að nor3ka
þingið hefði samþykkt fyrir
þremur árum þau vopnakaup
sem farið hefðu fram að undan-
förnu, og að varnir landsins á
norðurslóðum yrðu endurbættar.
Því væri út í hött að saka
Norðmenn um að kynda undir
Selveiði
hef st við
Kanada
St. Johns, 3. marz. AP.
BÆNAGJÖRÐ fyrir kana-
dísku selveiðiskipin sem
brátt hefja selveiðar í norð-
urhöfum fór fram i dag og
fór athöfnin friðsamlega
fram, þar sem engir and-
stæðingar selveiðanna voru
viðstaddir athöfnina áður en
skipin létu úr höfn.
Við sama tækifæri í fyrra
efndu félagar í samtökum
grænfriðunga til aðgerða og
reyndu að hindra að selveiði-
skipin létu úr höfn. Talsmenn
grænfriðunga sögðu í dag að
þeir yrðu komnir á vettvang
er veiðiskipin kæmu inn á
veiðisvæðið við norðaust-
urströnd Kanada.
Sex kanadísk selveiðiskip
hafa fengið leyfi til veiðanna,
og mega þau veiða 46.500 seli
í Norðvestur-Atlantshafi. Tvö
skip fá að veiða 19.750 seli í
St. Lawrenceflóa. Þrjú norsk
skip fá að veiða 20.000 seli á
svæðinu.
Sjö menn úr leynifélagi
teknir af lífi í Teheran
Kuwait. Teheran. 3. marz. AP.
ÚTVARPIÐ í Teheran skýrði,
frá því í dag að sjö menn úr
Forgan neðanjarðarsamtökun-
um hefðu verið teknir af lífi í
dag, en samtökin höfðu lýst
ábyrgð sinni á morði nokkurra
trúarleiðtoga og embætt-
ismanna á síðasta ári.
Skömmu fyrir aftökuna kvaddi
Sadegh Ghotbzadeh utanríkis-
ráðherra einn af gíslunum í
bandaríska sendiráðinu, Victor
Thomseth, á sinn fund, en náms-
mennirnir sem halda sendiráðinu
lýstu því yfir að þeir hefðu fundið
gögn sem sýndu fram á tengsl
Thomseths við Forgan samtökin.
Eru Thomseth, Mike Holland
öryggisfulltrúi sendiráðsins og
Bruce Laingen sendiráðsfuiltrúi
nú í haldi í utanríkisráðuneytinu.
Bani Sadr forseti gaf til kynna
í dag að langur tími liði áður en
gíslarnir yrðu látnir lausir. Það
yrðu þó ekki námsmennirnir í
sendiráðinu sem afgreiddu mál
gíslanna, heldur stjórnvöld
landsins. Hann sagði að yfirvöld
gæfu sér góðan tíma til að kanna
alla þætti málsins áður en af því
gæti orðið að gíslarnir yrðu látnir
lausir.
Byltingarráðið samþykkti sam-
hljóða í dag að leyfa fimm manna
rannsóknarnefnd á vegum Sam-
einuðu þjóðanna, sem vinnur að
rannsókn á valdaferli íranskeis-
ara, að ræða við gíslana í banda-
ríska sendiráðinu, en ekki er
vitað hvenær af fundinum verð-
ur.
Nýr forsætisráð-
herra í Thailandi
Haiurkok. 3. marz. AP.
PREM Tinsulanond var í dag
settur í embætti forsætisráð-
herra Thailands eftir að hann
var kjörinn fyrr í dag.
Hann tekur við af Kriansak
Chomanan, sem sagði af sér
embætti á föstudag. Ein helsta
ástæðan fyrir falli Kriansak
var óðaverðbólga í landinu.
Tinsulanond er 59 ára gamall
hershöfðingi og aðeins eru
liðin þrjú ár frá því að hann
hóf að hafa afskipti af stjórn-
málum.
N óbelsv er ðlaunahaf ar
leggja sæði sitt á banka
Escundio, Kaliforníu. 3. marz. AP.
KAUPSÝSLUMAÐURINN Robert K. Graham, sem stofnað hefur
sæðisbanka sem einungis tekur á móti framlögum frá Nóbelsverð-
launahöfum. neitaði í dag sögusögnum um að hugmyndin með
bankanum væri að framleiða yfirburða kynflokk.
Hann sagði að það eitt vekti Graham, sem er 74 ára, stað-
fyrir sér, að tryggja það að
bornir yrðu gáfaðir menn, sem
ella kæmu ekki í heiininn. „Ég
vil að afkomendum okkar snjöll-
ustu vísindamanna fjölgi, og að
gáfum prýddar ungar og hraust-
ar konur geti valið úr sæði
þriggja Nóbelsverðlaunahafa.
festi að fimm bandarískir Nób-
elsverðlaunahafar hefðu lagt inn
sæði á bankann. Einn þeirra
William Shockley er hlaut verð-
laun fyrir hönnun smára. Gra-
ham sagði einnig að þrjár konur
hefðu þegar þegið sæði úr bank-
anum á síðustu þremur mánuð-
um, en að svo komnu máli væri
ekki hægt að segja til um
árangurinn með vissu.
Svissneski Nóbelsverðlauna-
hafinn Werner Arber, er hlaut
verðlaunin fyrir störf á sviði
lífeðlis- og læknisfræði, lýsti í
dag andúð sinni á sæðisbankan-
um. Hann sagði yfirlýsingar um
tilgang bankans villandi, engin
ástæða væri til að halda að
Nóbelsverðlaunahafar væru gáf-
aðri en aðrir. Arber sagðist ekki
ætla að veita framlag í bankann.
Khomeini trúarleiðtogi kom í
dag í fyrsta skipti fram opinber-
lega í 38 daga. Kom leiðtoginn
fram á svalir sjúkrahúss í Teher-
an, þar sem hann héfur verið til
meðferðar vegna hjartaveilu.
Þúsundir manns fögnuðu Khom-
eini og hvatti hann viðstadda til
góðrar þátttöku í þingkosningun-
um 14. marz næstkomandi.
Kissinger sam-
tölin ekki birt
WashinKton. 3. marz. AP.
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkj-
anna hnekkti í dag tilraun
fréttamanna og sagnfræðinga
til að fá afrit af símtölum
Henry Kissingers þegar hann
var utanríkisráðherra og ráðu-
nautur í Hvíta húsinu.
Dómstóllinn úrskurðaði með 5
atkvæðum gegn 2 að lög um
upplýsingafrelsi heimiluðu ekki
alríkisdómstólum að fyrirskipa
að upplýsingarnar yrðu fluttar
frá bókasafni Þjóðþingsins þar
sem þær eru geymdar til
utanríkisráðuneytisins til birt-
ingar.
Samkvæmt úrskurðinum er
utanríkisráðuneytinu frjálst að
fara fram á að skjölunum verði
skilað. Líklegt er talið að lagt
verði fast að ráðuneytinu að
gera það.
Með úrskurðinum í dag er
hnekkt úrskurðum lægri dóm-
stóla sem heimiluðu aðgang að
minnsta kosti hluta hljóðritaðra
samræðna Kissingers er hann
var utanríkisráðherra.
Æfa landgöngu í Noregi
Norfolk. 3. marz. AP.
FLOKKUR 1.800 landgönguliða
hélt í dag áleiðis til Norður-
Noregs til að taka þátt í sérstök-
um æfingum þar í aðeins 600
kílómetra fjarlægð frá sovézku
flotastöðinni í Murmansk, en
flotastöðin er sögð vera stærsta
herstöð í heimi.
Svo stórt Hð úr bandaríska
sjóhernum hefur ekki tekið þátt í
Lesley-Anne
giftir sig
Lundúnum. 2. marz. AP.
BREZKA leikkonan Lesley-Anne
Down, sem lék í hinum vinsælu
sjónvarpsmyndaþáttum Hús-
bændur og hjú gifti sig í Kairó í
dag. Sá hamingjusami er arg-
entískur, Henry Gabríel. Lesley-
Anne leikur nú í kvikmynd í
Egyptalandi. Eftir að hún hafði
leikið í Húsbændum og hjúum
hefur vegur hennar farið vaxandi í
heimi kvikmyndanna. Lesley-
Anne hitti Henry sinn í Ungverja-
landi í janúar síðastliðnum.
landgönguæfingum í norðurhlut-
um Evrópu. Æfingarnar fara
fram frá 14. til 19. marz næst-
komandi. Aðstæður eru eins erf-
iðar og hugsast getur.
Plata ársins
London. 3. marz. AP.
BREZKA blaðið „Gramophone“
valdi i dag upptöku á verkum
Haydens fyrir þrjú píanó með
bandariska tríóinu „American
Beaux Arts“ sem hljómplötu árs-
ins 1979.
Verðlaun fyrir bezta kórverkið
hlaut upptaka með Sinfóníu-
hljómsveitinni í Boston og Tangle-
wood kórnum undir stjórn Seiji
Ozawa á „Gurrekieder“ eftir
Schönberg. Bezti konsertinn var
valinn upptaka með Maurizio Poll-
ili og Sinfóníuhljómsveitinni í
Chicago á píanókonsertum nr. 1 og
2 eftir Bartok.
Bezta hljómsveitarverkið var
valið „Images" eftir Debussy í
flutningi Sinfóníuhljómsveitar
Lundúna, og óperan „Lulu“ eftir
Berg í flutningi Parísaróperunnar
var valin ópera ársins.