Morgunblaðið - 02.04.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980
3
Aprílgabb dagblaðanna:
Þúsundir gripu í tómt
APRÍLGABB dagblðanna um
Mihitzubíla á gjafverði varð
mjög áhrifaríkt. Fólk lagði leið
sína í Hafnarfjörð hundruðum ef
ekki þúsundum saman i gærdag
en það greip í tómt. Engir bílar
voru þar til sölu enda Mihitzu-
bílar ekki til. Þetta er í fyrsta
skipti. sem dagblöðin hafa sam-
vinnu um aprílgabb. Fnegu þau
Pétur Sveinbjarnarson til þess
að taka þátt í leiknum. en hann
gat ekki verið í Hafnarfirði til
þess að taka við pöntunum, þar
eð hann fór utan til Englands i
gærmorgun.
Stöðugur straumur fólks var í
allan gærdag að Lýsi og Mjöl hf. í
Hafnarfirði. Starfsfólk í af-
greiðslu Bifrastar þar skammt frá
sagði að þangað hefði margt fólk
komið allt frá því kl. 8.30 um
morguninn. M.a. kom einn maður
úr Borgarnesi kl. 9.30.
Um kl. 16 dreif að marga og
skimaði hver sem betur gat eftir
ódýru bifreiðunum. Ráða mátti af
bílnúmerum viðkomandi að þeir
voru flestir af höfuðborgarsvæð-
inu og næsta nágrenni þess, en þó
voru þar einnig bílar úr Borgar-
firði, af Snæfellsnesi og úr Húna-
vatnssýslum.
Á skilti einu við verksmiðjuna
var fólki vísað á „bílasýninguna",
en þeir sem fóru eftir þeim
ráðleggingum lentu nánast inni í
verksmiðjunni og allri gúanólykt-
inni sem þar var. Margir fóru
eftir þessum leiðbeiningum, en
hurfu frá súrir á svip er þeir
rákust þar á stærðar skilti sem á
stóð 1. apríl.
Símar Morgunblaðsins voru
glóandi í gærdag. Spurði fólk
hvort um gabb væri að ræða eða
ekki en sumir spurðu hvar hægt
væri að ná í „umboðsmanninn",
Pétur Sveinbjarnarson.
Veitingahúsið Hollywood var
einnig með gabb í auglýsingu í
Mbl. í gær um að söngkonan
Donna Summer yrði gesur kvölds-
ins. Hlupu margir 1. apríl þar
einnig, m.a. eitt dagblaðanna, sem
hringdi í veitingamanninn og
vildi fá að vita hvar söngkonan
byggi-
Ljósm. Mbl. RAX.
Bílamergðin við Lýsi og mjöl í gærdag. Ef menn fóru eftir
leiðbeiningunum lentu þeir niðri í porti en þar var
stærðar skilti sem á stóð 1. apríl.
Dæmdir
fyrir klám-
ritaútgáfu
TVEIR menn voru nýlega dæmd-
ir í sakadómi Reykjavíkur fyrir
klámritaútgáfu. Voru þeir dæmd-
ir í 200 þúsund króna sekt hvor
og óseld rit gerð upptæk.
Annar þeirra manna, sem dóm
hlutu, gaf út tímaritið Bósa og var
hann dæmdur fyrir tiltekna sögu í
einu hefti ritsins, sem þótti ganga
of langt í klámi. Hinn maðurinn
gaf úr ritið Vasakonfekt og var
hann dæmdur fyrir sögu í ritinu,
sem kallaðist Máttur smáauglýs-
inganna og þótti sömuleiðis ganga
of langt í klámi.
Blæjurnar
létu undan og
bíllinn fyllt-
ist af slori
Ólafsvík 31 .marz
Eigandi virðulegs blæjujeppa
varð fyrir óvenjulegu óhappi sl.
laugardag þegar allt stóð hér á
haus við að bjarga frá skemmd-
um miklum afla sem barst á
land síðustu dagana fyrir
þorskveiðibann.
Jeppinn stóð á planinu fyrir
framan fiskverkunarstöð
Stakkholts hf. þegar tankbíll
kom frá fiskimjölsverskmiðj-
unni til að sækja fiskislóg.
Tankbílstjórinn lagði að hlið
jeppans og lyftari lyfti 800 1
kassa fullum af slori upp yfir
tankbílinn til þess að láta það
renna ofan í tankinn. Vildi þá
svo illa til að slorkassinn rann
framan af lyftaragafflinum,
skall ofan á tankinn og þaðan
beint ofan á jeppann. Blæjurnar
létu auðvitað undan þessari
óvæntu „árás“, jeppinn fylltist
af slori og skemmdist auk þess
töluvert. Var lán í óláni að
enginn var í bílnum.
Viðbrögð þeirra, sem vitni
urðu að þessum atburði, munu
hafa verið með ýmsum hætti, en
eigandi jeppans brá ekki vana
sínum og hafði spaugsyrði á
vörum, enda karlmenni hið
mesta. Stakkholt hf. missti hins
vegar nokkrar dýrmætar mínút-
ur af vinnutíma starfsfólksins
sem þusti út til að sjá afleið-
ingar þessa óvenjulega „umferð-
aróhapps".
AUGLYSINGASIMINN ER:
224BD
JHorijunbtnöib
Jg y»T |T | V Bu | i l 1 l 1 l * * K 1 [\ HKiV\\\
' ‘ ' 1 >'ji'f”' > ,l ' mh s i mmm 'í" *i ’ '3 i ''íi’ ''''IIh u f
S \fwm
BBpr
Iffl&MÉÍl
. ^^Pu*»\\«uUHvTm1
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS (Uap KARNABÆR < r Laugavegi 66 Sími frá sklptiborði 85055. TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS I mKARNABÆR \ GLÆSIB/E SÍMI 85055. |
&&&$&&£&% lí Austurstræti 22. Síml frá skiptiboröl 85055. !®©l©> , . UNGLINGADEILD itíj) KARNABÆR1 —Jí Y Austurstræti 22 Sími frá skiptiborði 85055 |