Morgunblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980
t Eiginmaður minn, faöir okkar og tengdafaðir, JÓHANN VILHJÁLMSSON, Norðurbraut 24, Hafnarfirði, andaðist í Borgarspítalanum 31. marz. Halldóra Guðjónsdóttir, börn og tengdasynir.
t ARNÓR SIGURJÓNSSON, lézt 24. marz og jarðarförin hefur farið fram. Viö þökkum hjúkrun og aðhlynningu, sem hann naut í veikindum sínum og samúð í okkar garö. Helga Kristjánsdóttir og fjölskylda.
t Minningarathöfn um móður okkar ELÍNU LÁRUSDÓTTUR, Yzta-Mói í Fljótum, verður í Siglufjarðarkirkju laugardaginn 5. apríl kl. 10.30. Jarðsett verður frá Barðskirkju sama dag kl. 15. Börn hínnar látnu.
t Útför eiginmanns míns, föður, stjúpfööur, tengdafööur, afa og langafa JANUSAR SIGURÐAR ÞORBJARNARSONAR, frá Flateyri, Blönduhlíð 21, fer fram í Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. aprfl 1980 kl. 10.30. Magnúsína Þóroddsdóttir, Halla Janusdóttir, Narfi Hjartarson, Þorgerður Halldórsdóttír, Siguröur Kristjánsson, börn og barnabörn.
t Þökkum auðsýnda samúð viö andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóður og ömmu MAGNEU S. MAGNÚSDÓTTUR Gísli Arason, börn, tengdabörn og barnabörn.
t Innilegar þakkir færum við þeim sem vottuðu okkur samúð viö andlát og útför föður okkar og tengdaföður BETÚELS JÓNS BETÚELSSONAR, frá Görðum, Laugarnesvegi 106. Jósef Markússon, Magnea Sigurjónsdóttir, Anna Betúelsdóttir, Þorkell Guðmundsson, Ingibjörg Betúelsdóttir, Sigurður Arnórsson, Margrét Betúelsdóttir, Guðbjartur Jónsson, Betúel Betúelsson, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Sturla J.B. Betúelsson.
t Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GUÐJÓNS SVEINBJÖRNSSONAR, vélstjóra, Ásvallagötu 10. Sérstakar þakkir viljum við færa stjórn og forráöamönnum Slysavarnafélags íslands. _ Oddný Guömundsdóttir, Guðný Guðjónsdóttir, Guðmundur Baldvinsson, Guðmundur Guöjónsson, Björg Björgvinsdóttir, Hulda G. Guðjónsdóttir, Garðar H. Svavarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
t Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát og jarðarför SIGRÍDAR HELGADÓTTUR, Heiðargerði 55. Elín Guðmundsdóttir, Siguröur H. Guömundsson, ólafía Guðnadóttir, Magnea Guðmundsdóttir, Magnús Guömundsson, Guörún Benediktsdóttir, María Guðmundsdóttir, Páll Ólafsson, Sigurmunda Guðmundsdóttir, Skarphéöinn Eyþórsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Baldvin Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Janus Sigurður
Þorbjarnarson
í dag verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju Janus Sigurður
Þorbjarnarson, sem lést í Landa-
kotsspítala 25. mars eftir 8 mán-
aða legu.
Hann var fæddur að Hrauni á
Ingjaldssandi við Önundarfjörð,
sonur hjónanna Kristínar Sig-
mundsdóttur og Þorbjarnar Guð-
mundssonar, yngstur 3ja systkina,
sem nú eru öll látin. Þau voru: Jón
verkstjóri á Flateyri, lést 1954, var
kvæntur Svanbjörgu Arngríms-
dóttur; og María, gift Jónasi
Guðmundssyni skipstjóra á Flat-
eyri. Hún missti mann sinn 1953
AA kynning-
arfundur á
Hlégarði
AA-samtökin halda kynn-
ingarfund I Hlégarði í Mos-
fellsveit föstudaginn langa
klukkan 16. Allir eru vel-
komnir á fundinn, sem hald-
inn er á vegum Mosfellsdeild-
ar AA-samtakanna.
frá 5 börnum, bjó allan sinn
búskap á Flateyri, lengst hjá
dóttur sinni og tengdasyni, hún
lést 1979, mikil sæmdarkona. Með
þeim systkinum var mikill kær-
leikur.
Ungur fluttist Janus með for-
eldrum sínum til Flateyrar, þar
sem hann stundaði sjómennsku,
fyrst á smærri mótorbátum en
síðan á togurum frá Reykjavík.
Seinna var hann landformaður á
bátum frá Flateyri og vann einnig
í frystihúsinu þar um árabil.
19. júní 1934 er mikill gæfudag-
ur í lífi Janusar, þá giftist hann
eftirlifandi konu sinni Jónu Magn-
úsínu Þóroddsdóttur frá Alviðru í
Dýrafirði, mikilli myndar- og
sæmdarkonu, sem reyndist manni
sínum traustur lífsförunautur.
Þau eignuðust eina dóttur, Höllu
gifta Narfa Hjartarsyni, en þau
eru búsett í Reykjavík, börn þeirra
eru 3. Áður hafði Magnúsína átt
eina dóttur, Þorgerði sem gift er
Sigurði Kristjássyni, þau eru bú-
sett í Grindavík, þörn þeirra eru 5.
Janus og Magnúsína bjuggu á
Flateyri til ársins 1956, en þá
fluttust þau til Reykjavíkur til
dóttur sinnar, sem þá var nýgift.
I Reykjavík vann Janus meðan
heilsan entist í fiskbúðinni Sæ-
björgu, þar kunni hann vel við sig
hjá þeim heiðursmönnum, Björg-
vini og Óskari.
Janus var mikill bókamaður,
hafði sérstaklega gott minni, sem
dæmi má nefna að fræðimenn að
vestan leituðu til hans með gaml-
ar sagnir og ættartölur. Hann var
mikið góðmenni, sérstaklega barn-
góður, og nú kveðja systkinin í
Blönduhlíð 21 með söknuði góðan
afa, sem alltaf hafði tíma til að
tala við þau og kenna þeim,
jafnvel fyrstu sporin, segja þeim
sögur og fara með þeim í göngu-
ferðir og ég sem þessar línur rita
tel það mikið lán að hafa fengið að
kynnast jafn góðum manni, sem
Janus var. Blessuð sé minning
hans.
Tengdasonur
Ljósm: Hlynur Ólafsson
Leikarar í Sjóleiðinni til Bagdad. Leikstjórinn, Andrés Sigurvinsson lengst til hægri,
Leikfélag Vestmannaeyja sjötíu ára
Á ÞESSU ári eru 70 ár liðin frá
stofnun Leikféiags Vestmanna-
eyja. í tilefni af því hafa verið æfð
upp tvö leikrit og er sérstaklega til
þeirra vandað Sjóleiðin til Bagdad
eftir Jökul Jakobsson verður frum-
sýnd miðvikudaginn 2. apríl kl.
20.30 í Bæjarleikhúsinu. Leikstjóri
er Andrés Sigurvinsson, sem er
Vestmannaeyingum að góðu kunn-
ur. Andrés hefur nýlokið námi við
Leiklistarskóla ríkisins. Hann hef-
ur haldið fjölmörg leiklistarnám-
skeið með góðum árangri og í vetur
vakti uppsetning hans á Sköllóttu
söngkonunni í Menntaskólanum
við Hamrahlíð mikla athygli. Lýs-
ingu annast Lárus Björnsson,
sviðsmynd er eftir Arnar Ingólfs-
son og tónlist er eftir Gísla Helga-
son. Næstu sýningar verða 3., 5. og
8. apríl kl. 20.30.
Á annan í páskum kl. 15.00
verður svo frumsýnt barnaleikritið
Nornin Baba Jaga í leikstjórn
Unnar Guðjónsdóttur. Búningar og
leikmynd eru fengin að láni frá
Alþýðuleikhúsinu og er höfundur
þeirra Guðrún Svava Svavarsdótt-
ir. Lýsingu annast David Walker
og tónlist er í höndum Eggerts
Þorleifssonar.
Leikarar i Leikfélagi Vestmannaeyja í leikritinu Nornin Baba
Jaga.