Morgunblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980 ,/Lð kalla dægurtónlist alþýðutón- list er álika mikil hrœsni og kalla Austur-Þýzkaland alþýðulýðveldV‘ Tónskáld á íslandi eru ekki mörg — og ung tónskáld má telja á fingrum annarrar handar. Fyrir skömmu sat blaðamaður stund úr degiyfir kaffibolla með tveimur ungum tónskáldum vestur í bæ. Þar var spjallað um heima og geima. Hvernig það er að vera ungt tónskáld á íslandi. Ungu tónskáldin eru þau Karólína Eiríksdóttir og Hjálmar Ragnarsson. Bæði hafa tiitölulega nýlega snúið heim eftir nám erlendis. Karólína kennir í Tónlistarskólunum í Reykjavík og í Kópavogi. Fyrir skömmu frumflutti Sinfóníuhljómsveit Islands verk eftir hana, „Notes“. Karólína nam við Tónlistarskóla Reykjavíkur og síðan við The University of Michigan. Hjálmar Ragnarsson er ísfirðingur. Hann stundaði nám við Tónlistarskóla ísafjarðar og síðan í Reykjavík. Þá nam hann við Brandeis University og Cornell University í Bandaríkjunum og Háskólann í Utrecht í Hollandi. Hann hefur samið söngverk, kammerverk, elektróníska tónlist og tölvutónlist. Gagnrýni hér á landi er yfirborðskennd Talið barst fyrst að verki Kar- ólínu — „Notes", sem Sinfóníu- hljómsveitin frumflutti fyrir skömmu. Af hverju kallaðir þú verk þitt „Notes"? „Astæðurnar eru tvær, annars vegar er verkið byggt á minnispunktum og hins vegar eins og nafnið bendir til, nótum. Það tók mig hálft ár að semja verkið, sem var 10 mínútur í flutningi." Hvernig var að heyra eigið hugarfóstur í flutningi Sin- fóníuhljómsveitarinnar? „Þegar ég heyrði verkið fyrst þá hafði ég nýlokið samningu þess. Það var enn mjög tengt mér. Það var því eins og að fá gusu af eigin sálarlífi framan í sig.“ Og gagn- rýnin — varstu ánægð með hana? Hún varð hugsi og sagði svo: „Mér finnst gagnrýni hér á landi fremur yfirborðskennd. Það er mjög erfitt að skrifa tónlistar- gagnrýni svo vel fari. Tónlistin er ekkí eitthvað áþreifanlegt. Hún varir aðeins tiltekinn tíma — síðan er öllu lokið, punktum basta. Ég samdi þetta tónverk og það tók mig hálft ár. Svo koma menn og tala um íslenzkt landslag. Ekkert var mér fjarlægara þegar ég samdi verkið. Ég skynja ekki tónlist í máli og myndum, — heldur tónlistina, bara tónlist- ina.“ „Sjálfur hef ég verið gagn- rýndur fyrir að semja bara akademíska tónlist Hvernig skynjar þú tónlist, Hjálmar? Sérð þú fyrir þér landslag þegar þú semur? „Nei, ég skynja tónlistina sem tónlist. Sjálfur hef ég fengið þá gagnrýni, að ég semji bara akademíska dauðsmannstónlist. Að tónlistin verði í mínum verkum bara „intellectual game“ fyrir ein- hverja fáa útvalda. Sjálfum finnst mér það ekki...“ „Ég er ekki sammála því, að þú sért akademískur, fjarri því, skaut Karlólína ínn í. Þessi aka- demíska grýla hefur gjarnan ver- ið sett á ung tónskáld. Þegar ég sem tónverk, þá er ég að segja það sem mér býr í brjósti. Ég er að gera það sem mér finnst eðlilegt, af þörf. Ég heyri tón- verkið í huga mér þegar ég sem það. „Notes“ kom mér því ekkert á óvart í flutningi. Það er nú svo með tónlistina, eins og raunar alla hluti, að fólk verður að leggja sig eftir hlutunum. Maður þarf að einbeita sér til að heyra, skilja." „Maður fær ekki innblástur nema með mikilli vinnu. Maður verður að vera heima þegar tónlistargyðjan kemur í heim- sókn,“ bætti Hjálmar við. Mörg tónskáld sögunnar hafa skapað sér ódauðlegt nafn í sögunni — dreymir ykkur um frægð og frama? „Frægð,“ segir Hjálmar, „það er í sjálfu sér innihaldslaust að vera að semja upp á frægð. Margir eru reyndar frægir um öll suðurnes, eða eru frægir að endemum. Það er ósköp heimóttarlegt að álíta frægð eitt- hvert æðsta takmark, að hún í sjálfu sér veiti einhverja lífsfyll- ingu. Yfirleitt er það nú í nútíma- þjóðfélagi þannig, að sé löngun í frægð á annað borð fyrir hendi, þá er hún tilkomin af þröngsýni. Fólk fer ekki í listsköpun í von um frægð og frama, að ekki sé talað um gull og græna skóga. Frægðin er hverful, ég nefni poppbransann sem dæmi. Ég sem af þörf, nauðsyn beinlínis, — að koma því á framfæri, sem mér býr í brjósti." Ef ég kærði mig um gæti ég vafa- laust samið lít- ið vinsælt lag Hafið þið áhuga á að slá um ykkur í poppbransanum, semja dægurtónlist? Enn er það Hjálm- ar sem hefur orðið. Sko, sjáðu til — ef ég kærði mig um, þá gæti ég vafalítið samið lítið vinsælt lag. En það freistar mín ekki. Popp og dægurtónlist er iðnaður — ekki listsköpun." En af hverju höfðar nútíma tónlist ekki til fólks, svipað og Beethoven, nú eða Gamli Nói og Brunaliðið. „Þeirra tónlist er byggð upp á hefðbundnum tón- kerfum. í byrjun þessarar aldar varð algjör umbreyting — tón- skáld brugðu út af hinu viðtekna tónlistarkerfi eins og það birtist, til að mynda í Gamla Nóa. Þegar fólk hlustar á Gamla Nóa, þá ánetjast það ómeðvitað tónkerf- inu. Þetta tónkerfi er ekkert lögmál. Það sést best af því, að hin ýmsu menningarsamfélög hafa þróað með sér mismunandi tónkerfi, sem brjóta í bága við tónkerfi Vesturlandabúa. Þess vegna hefur þessi breyting valdið svo mikilli andstöðu," svarar Karólína. Þessi svokölluðu nútímatónskáld hafa verið hrokafull En eruð þið ekki með þessu að segja að þið þráist við — að þið viljið ekki semja tónlist, sem fólk vill heyra? „Kjarninn er sá,“ og nú er það Hjálmar sem hefur orðið, „að svokölluð nútímatón- skáld hafa verið hrokafull. Þau hafa gengið fram af hlustendum og ekki sinnt tengslum við al- menning. Því hefur myndast gjá fordóma en ég held að sú gjá sé ekki eins breið og var fyrir svo sem áratug síðan." „Tónskáld samtímans bera nú klafa sögunnar á bakinu — sögu snillinganna Mozarts, Beethov- ens, Wagners og fleiri og fleiri," segir Karólína. „Þetta er hárrétt," segir Hjálmar. „Við höfum ekki náð til hlustenda. Þeir vilja fremur hlusta á Mozart og Beethoven. En tónskáld nú á tímum hafa komist niður á jörðina. Það er nauðsyn hverju tónskáldi að fá uppörvun frá hlustendum sínum." Þið hafið ekki náð lýðhylli. Freistar það ykkar ekki að taka upp þráðinn, segjum með ein- hverri vinsælli poppgrúppu og semja vinsæl lög, sem færðu fé í vasa? * „Islenzk dægur- tónlist endur- speglar ameríska glanstónlist“ „Það væri ósköp einfalt að taka þátt í þeim leik. Hella sér út í lystisemdir neyzluþjóðfélagsins. En ég held því fram að popptón- list, sölutónlist væri nær að nefna hana, hafi svæfandi áhrif á fólk,“ segir Hjálmar og heldur áfram. „Hún er ekki skapandi list, hún er yfirborðskennd. Því fer fjarri að popptónlist sé alþýðutónlist eins og gjarnan er flíkað. Það er fölsun. Það sem flutt er inn, — bæði á erlendum hljómplötum og eins það sem íslenzkir popparar semja, er innflutt amerísk glans- tónlist. Að kalla dægurtónlistina í dag alþýðutónlist er álíka mikil hræsni og kalla A-Þýzkaland alþýðulýðveldi. Islenzk dægur- tónlist endurspeglar ameríska glanstónlist. Það sem flestir íslenzkir dægurlagahöfundar eru að gera, er einfaldlega það sem kollegar þeirra í Ameríku hafa verið að gera, — misseri eða misserum áður.“ „Hitt er svo,“ segir Karólína, „að æðisöldur verða miklu sterk- ari hér á landi en í Ameríku. Ég er nýkomin frá Bandaríkjunum og varð aldrei var við þetta svokallaða „Greaseæði", sem átti að fara um eins og logi um akur.“ „Ég held að fjölmiðlar hér á landi leggist á eitt að beinlínis búa til æði og vegna fámennisins hér verði áhrifin miklu sterkari og meiri," segir Hjálmar. „Dægurtónlistin er nauðsynleg“ Er þá dægurtónlistin, eða glanstónlistin eins og þið kallið hana af hinu illa? „Nei, dægur- tónlistin er nauðsynleg en það er mikilvægt að hún sé góð. Dægur- tónlistinni hefur hrakað mjög undanfarin ár eftir að hafa náð hátindi eftir Bítlana á árunum 1965 til 1970,“ segir Karólína. „Það er nauðsynlegt að hafa í huga að tónlist hefur víðtæk áhrif á fólk,“ skýtur Hjálmar inní og heldur áfram. „Þjóðfélag nú- tímans gerir einstaklinginn að neytanda, — hann er mataður af öllum mögulegum og ómöguleg- um hlutum. Avallt verður að finna eitthvað nýtt til að selja. Það verður að sporna við og stuðla að sjálfstæðari hugsun meðal fólks. Að fólk verði ekki bara óvirkir neytendur og sjálfs- vitund þeirra sljóvgist smám saman. Það er nú einu sinni svo, að það er auðveldara að sitja fyrir framan sjónvarp og rrieð- taka afþreyingarefni þar en sitja og lesa góða bók. Það er á fleiri sviðum en í tónlistinni, þar sem lægsti samnefnarinn er ríkjandi." Tortímir þá neyzluþjóðfélag samtímans sér innanfrá? „Jú, eðlinu samkvæmt en það er einnig margt, sem hamlar gegn tortímingu nútíma samfélags. Það eru alltaf einhverjir sem ekki meðtaka hlutina gagnrýnislaust. Ég held að fólk sé að opnast fyrir hættunni — að meðtaka hlutina gagnrýnislaust og verða óvirkir neytendur," svarar Karólína. Listin er nauð- syn framgangs mannlegrar hugsunar Er listin líkleg til að hamla gegn þessu? Rœtt við tvö ung tónskdld, Karólínu Eiríksdóttur og Hjdlmar Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.