Morgunblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980
Hvít plata frá
Fræbblunum
Fra-bbhlarnir cru nú kumnir með nýjan bassaleikara. en sá heitir Steinþór Stefánsson (lengst til vinstri)
<>H var áður í SnillinKunum. En þótt SnillinKarnir hafi þar með misst einn liðsmanna sinna. hefur
hljómsveitin ekki latjt árar i bát hcldur hvKKst hún starfa áfram.
Fra-bhblarnir eru án efa
kunnasta ponk hljómsveit
landsins ojí að margra mati sú
eina sem stendur undir nafni.
Fyrir stuttu kom loks út
fyrsta plata þeirra. en sú er
þrÍKKja laiía ok hvít að lit. Á
henni cru ÍðKÍn „False Death”.
..True Death" ok „Summer
Ninhts" en platan hefur það
sér til áKætis unnið að hún er
Kefin út í Englandi <>k hefur
þeKar selzt nokkuð af henni
þar ytra.
Litlu fyrir komu Stranglers
um árið kom hingað til lands
brezkur ljósmyndari að nafni
Marcus Featherby og kynntust
þá þeir í Fræbbblunum honum.
Þegar síðan Tjallinn ákvað að
stofna plötuútfjáfu varð að
samkomulaKÍ að hann Kæf'i
einnig út plötu Fræbbblanna,
og var hún gefin út í 500
eintökum í Englandi, sem aðal-
lega seldust í heimaborg Feath-
erbys, Sheffield. Nú er búið að
pressa 2000 eintök af plötunni í
viðbót, og fer helmingurinn á
markað hérlendis, en hin þús-
undin verða vonandi seld í
Englandi. Sagt hefur verið frá
útkomu Fræbbblaplötunnar í
enskum biöðum, þar á meðal í
hinu víðlesna tímariti Sounds.
Þess má reyndar geta að önnur
plata, sem Featherby hefur
gefið út, var nýlega kosin litla
plata vikunnar í einu enska
tónlistarblaðanna og er sú með
hljómsveitinni Negatives. Ætti
það að geta komið sér vel fyrir
Fræbbblana, því auðvitað hlýt-
ur þessi útnefning að beina
athyglinni að öðrum hljóm-
sveitum útgáfufélagsins.
Með haustinu hyggjast
Fræbbblarnir halda í hljóm-
leikaferð til Sheffield og senni-
lega verður einnig komið við
víðar, kannski jafnvel í London.
Plötuna má telja hreinrækt-
aða pönkplötu, lögin eru einföld
og hröð og allt að því melódísk,
en svo sem vera ber heyrast
vart textarnir. Sérstaklega er
þó gaman að heyra hvernig
sumarnæturnar úr Grease hafa
verið „rokkaðar upp.“ Einn
galli er þó verulegur á plötunni,
gítarsólóið í „False Death“, sem
hefði betur gleymst að hljóð-
rita.
- SA
Tívólí með
plötu í apríl
Hljómsveitin Tívolí sem nú er skipuð Sigurði Sigurðssyni. og
Árna Sigurðssyni. söngvurum. Gunnari Hrafnssyni, bassagítar-
leikara, Stefáni Stefánssyni. saxófónista, Birni Gunnarssyni,
gitarleikara, Hirti Howser. hljómborðsleikara og Ólafi Helgasyni,
trymbli, mun gefa út tveggja laga plötu í lok apríl.
Lögin sem eru bæði eftir Stefán, fyrrum forsprakka Ljósanna í
Bænum, heita „Fallinn" og „Danserína“.
Eitthvað virðist vera að glæðast útgáfa á litlum plötum og mun
útgefandinn Steinar hf. hafa í hyggju að gefa út fleiri slíkar á árinu
og miða frekari útgáfu að einhverju leyti á viðtökum þeirra.
Lögin á plötu Tívolís eru þeirra fyrstu á plötu þó Stefán, Gunnar,
Sigurður, Arni og Ólafur hafi allir tekið upp áður með öðrum. Nánar
verður sagt frá plötunni þegar hún kemur á markaðinn, en þess má
geta að annað lagið er rokklag en hitt sorgarballaða um próffall, sem
ætti að eiga vel við um það leyti sem skífan kemur á markaðinn.
HÍA
Að þessu sinni tökum við
fyrir þrjár plötur sem eru allar
að slá í gegn með Lindu
Ronstadt plötuna í fararbroddi í
fjórða sæti á topp 200 í USA
eftir aðeins tvær vikur.
Andy Gibb er kominn í 28.
sætið og kemst líklega nálægt
topp 10 þar, en McGuinn Hill-
man platan er þegar með vin-
sælli plötum hérlendis þó hún
hafi ekki enn komist hátt er-
lendis.
„MAD LOVE“
Linda Ronstadt
(Asylum)
„Mad Love" er tölvumixuö
(blönduð á íslensku reyndar)
plata, ein af þeim fyrstu, og
hljómurinn er greinilega betri.
Að öðru leyti er fátt nýtt að
heyra frá Lindu. Hún syngur þó á
þessari plötu nokkur lög eftir
svokölluöu nýbylgju tónskáld á
borð við Elvis Costello.
6 af tíu lögum plötunnar hafa
komiö út áður (og reyndar í betri
útgáfum í mörgum tilfellum), en
þess má geta að Linda Ijær þeim
öllum sinn blæ og gerir þau að
sínum lögum eftir nokkura spil-
un.
Hollies geröu t.d. „I Can’t Let
Go“ vinsælt 1964, Doris Troy
árið áður og Anne Murray 1974,
og Linda blæs ekki nýju lífi í
þessa gömlu góöu melódíu eftir
Chip Taylor, „Hurt So Bad“ er
síðan 1965, en Little Anthony &
The Imperials og síðar Lettermen
hafa gert það vinsælt, en það er
hér í ágætri útgáfu hjá Lindu.
Elvis Costello ætti aö fá ágæt-
is vasapening fyrir höfundarrétt-
inn á þeim þrem lögum sem hann
á á plötunni.
Þessi lög eru „Girls Talk“ sem
náði miklum vinsældum á síöasta
ári í útsetningu Dave Edmunds,
sem hér er notuö hrá frá honum,
en Costello er einnig meö þetta
lag á bakhliöinni á síðustu smá-
skífu sinni, „Party Girl“ sem var á
„Armed Forces" og er hér í góöri
útsetningu og kemur sem sterk-
ara lag heldur en þaö geröi hjá
Costello sjálfum, og sama má
segja um „Talking In The Dark“,
þaö er ekki hægt aö segja annaö
en að það fari Lindu vel að
syngja lög Elvis.
Mark Goldenberg, heitir ungur
lagasmiöur bassaleikari og
söngvari sem á þrjú lög á
plötunni, „Mad Love'1, „Cost Of
Love“ og „Justine". Öll þessi lög
bera af á plötunni, sérstaklega
„Mad Love" og „Justine" en þess
má geta að Mark þessi er í
hljómsveit sem heitir Cretones,
sem er aö fá sína fyrstu plötu
útgefna núna. Lögin eru poppuö,
hnitmiöuö og örugg vinsælda-
listalög, en þó ólík hvert öðru.
„How Do I Make You" er fyrsta
lagið á smáskífu, en það er eftir
annan byrjanda Billy Steínberg,
en iagið er kröftugt og hresst og
hljóðfæraleikararnir sem allir eru
orönir eldri menn og víöförlir í
tónlistinni ná sér nokkuð á ferð í
þessu lagi. Þess má geta aö
hljóöfæraleikarar á plötunni eru
Dan Dugmore (gtr), Russ Kunkel
(trm) sem báðir hafa leikið með
Lindu áöur, Bill Payne (hljmb)
sem var í Little Feat, Bob Glaub
(bs) sem var með Mark Almond,
en auk þess leika Mark Golden-
berg (gtr), Mike Auldridge
(dobro), Michael Boddicker
(synths) og Danny Kortchmar
(gtr).
Peter Asher sér up upptöku-
stjórn, en þess má geta að nýtt líf
þyrfti að færast í næstu plötu frá
Lindu, og þá líklega helst nýjan
upptökustjóra með nýjar hug-
myndir eftir öll þessi ár.
„AFTER DARK“
Andy Gibb
(RSO)
Eins og titillinn gefur til kynna
er hér á ferðinni rómantísk plata,
meö seiömögnuöum taktföstum
undirleik.
Andy Gibb er eitt af útibúum
Gibb bræðranna. Barry Gibb og
prodúsentar Bee Gees eru hér
að verki með sína hárnákvæmu
og fallegu vinnu, rödd Andy er
mjúk og fer ekki upp í falsetto,
fyrir þá sem finnst það of mikið
en Bee Gees hljómurinn, lögin og
allt það er hérna.
Andy hefur tvímælalaust
marga af hæfileikum bræðranna,
hann syngur eins og Barry gerði
sem unglingur og er farinn að
semja. A hér tvö lög með Barry,
en þar fyrir utan eru verk Barry
hér stærst.