Morgunblaðið - 02.04.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980
7
r
Bylur hæst
í tómri tunnu
Starfsemi Samtaka
herstöövaandstæöínga
hefur sífellt verið að
dragast saman undanfar-
in ár. Þetta kemur meðai
annars fram í þeim að-
gerðum, sem þau efna til
30. mars árlega til aö
minnast þess, aö þann
dag 1949 samþykkti Al-
þingi, að ísland skyldi
gerast aöili aö Atlants-
hafsbandalagínu. Efnt
hefur verið til hátíðar-
halda í Háskólabíói og
menningarviku á undan-
förum árum en í ár
bregður svo við, að her-
stöðvaandstæöingar láta
sér nægja að kalla menn
saman sunnudagssíðdegi
í sal Félagsstofnunar
stúdenta við Hringbraut.
Líklega var það eina leið-
in, sem þeir sáu til að
Þjóðviljinn gæti birt þá
fyrirsögn, sem hér fylgir.
í grein, sem einn af
frambjóöendum Alþýðu-
bandalagsins í síðustu al-
þingiskosningum, Bragi
Guðbrandsson, ritar í
Þjóðviljann sl. sunnudag
er raunasögu herstööva
andstæðinga lýst með
þessum orðum m.a.: „Ári
seinna (þ.e. 1972) voru
núverandi Samtök her-
stöðvaandstæöinga
stofnuð, og á þeim átta
árum sem þau hafa starf-
að, hafa skipst á skin og
skúrir í hérumbil álíka
hlutfalli og í veðráttunni
hér á landi. Ekki þarf að
draga í efa að starf á
þeim vettvangi hefur bor-
ið árangur, kannski er
mesta afrekið í því fólgið,
að tekist hefur að halda
þeim á lífi á erfiðum
tímum.“
Sem sé mesta afrekið í
starfi Samtaka her-
stöðvaandstæðinga er,
að tekist hefur aö treina í
þeim líftóruna í átta ár.
Svik
flokksins
Grein Braga veitir inn-
sýn í þann sannfær-
ingarskort, sem ríkir í
röðum herstöðvaand-
stæðinga, og þá óánægju
með Alþýðubandalagið,
sem þar ræður ferðinni.
Bragi segir: „Hin slaka
frammistaða flokksins
hefur leitt til þess aö
aldreí hafa þeir verið
fleiri en nú sem brigsla
flokknum um svik. Þetta
er staðreynd sem við
flokksmenn verðum að
horfast í augu við og
draga réttar ályktanir af.“
Bragi segir á öörum
stað: „Við þaö bætist að
staða herstöðvamálsins
hefur vafalaust aldrei
verið jafn alvarleg og nú.“
Og síðar:“ ... hermálið
hefur sífellt fjarlægst
brennipunkt stjórnmála-
umræöurnar ... Sjálf-
stæðismálin eru nánast
orðin að jaðarmálum í
íslenskri pólitík og ef svo
fer fram sem horfir verð-
ur þar lítil breyting ...
kraftahlutföll hafa verið
að breytast okkur her-
stöðvaandstæðingum í
óhag. Sennilega sitja nú
færri andstæöingar her-
setu á alþingi en nokkurn
tíma fyrr.“
Ofangreindar setn-
ingar, sem teknar eru úr
grein Braga sýna svo
ekki verður um villst, aö
hann telur stööu síns
málstaðar ekki góða.
Greinin fjallar svo um
þaö, hvaö sé til ráða, og
eina ráðið er að efnt verði
til þjóöaratkvæða-
greiðslu um öryggismál
þjóðarinnar.
Misskiln-
ingur
Þessi hugmynd Braga
sem bendir til að orsök
vanda herstöðvaand-
stæðinga sé að finna í
einhverjum baráttuleið-
um þeirra í áróðursstríði
er á algjörum misskiln-
ingí byggö eins og sú
fyllyrðing aö „sjálfstæö-
ismálin“ séu oröin að
„jaðarmálum“. Allur þorri
þjóðarinnar teiur sjálf-
stæði sínu best borgið í
varnarsamvinnu við vest-
ræn ríki. í huga þeirra,
sem vilja treysta öryggi
og frelsi þjóöarinnar, er
sjálfstæði hennar ekki
„jaðarmál“. Sú skoðun
ríkir aðeins hjá þeim,
sem misnota hugtök og
geta ekki fært önnur rök
fyrir máli sínu, þegar þeir
ræða öryggi þjóðarinnar
en „að þjóðfrelsisbarátt-
an er samofin baráttunni
fyrir því að íslenskri al-
þýðu auönist að hrinda af
sér oki stéttakúgunar og
arðráns" eins og Bragi
Guðbrandsson orðar þaö.
íslendingar hafna
málflutningi herstöðva-
andstæðinga vegna þess,
að þeir eru ósammála
honum. Öllum hugsandi
mönnum er augljóst, aö
án samvinnu við vinveitta
nágranna geta íslend-
ingar ekki tryggt sjálf-
stæöi sitt.
1
Þaö er mjög gaman aö eiga áttræðisafmæli.
Ég þakka öllum hjartanlega sem glöddu mig, börnum
mínum, tengdabörnum, heimsóknir og elskuleg heilla-
skeyti, blóm og aörar dýrindisgjafir, bæöi í orði og verki.
Góöir vinir, ellin gleymist. Vinátta er tilfinning sem engin
kann aö skýra, hún er dularfull, hlý og mannbætandi
fyrir þá sem njóta hennar. Kær kveöja.
Guð blessi ykkur öll hverja stund.
Hildur Magnúsdóttir,
Sólheimum 23.
POLAR MOHR
a
Útvegum þessar heimsþekktu pappírs-
skurðarvélar beint frá verksmiðju.
Sturlaugur Jónsson, & Co s.f.
Vesturgötu 16, Reykjavík. simi 14680.
Við höfum
sérhæft okkur í
Við eigum ávallt fyrirliggjandi
varahluti í
flestar gerðir bílvéla
• Stimpla
• Pakkningar
• Legur
• Ventla
• Höfum einnig tímahjól og keðjur,
knastása, olíudælur, undirlyftur o.fl.
VÉLAVERKSTÆÐI VARAHLUTAVERSLUN
Þ.JÓNSSON & CO.
SKEIFUNNI 17 REYKJAVÍK SÍMAR 84515/84516
Nautakjöt — Svínakjöt
Hreindýrakjöt — Kálfakjöt
Folaldakjöt — Hangikjöt
Unghænur — Kjúklingar
Rjúpur
Opið til kl. 10
í kvöld
og kl. 9—12
á laugardag.
VnSUFHL
Þverbrekku 8, Kópavogi. — Símar 42040 og 44140.
Kvöldsalan opin öll kvöld til kl. 23.30 — sími 40590.