Morgunblaðið - 02.04.1980, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980
Rússneskur hand-
knattleiksþjálfari
til Valsmanna
ALLT bendir til þess aö meistara-
flokkur Vals í handknattleik ráði
til sín rússneskan þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil. Hilmar
Björnsson. þjálfari liðsins undan-
farin ár, sem náð hefur frábær-
um árangri með liðið, hefur í
hyggju að taka sér hvíld frá
þjálfun og mun þessi ráðstöfun
vera gerð í fullu samráði við
hann.
Valsmenn hafa unnið í nokkurn
tíma að því að kanna möguleika á
að fá erlendan þjálfara og leitað
fyrir sér meðal annars í V-Þýska-
landi og Pólandi og Rússlandi. Nú
hafa þeir fengið mjög hæfan
mann til starfa frá Rússlandi og
eru allar líkur á því að hann hefja
störf hjá félaginu í byrjun júlí-
mánaðar. Valsmenn ætla sér
greinilega að endurheimta
Islandsmeistaratitilinn og að sögn
forráðamanna Vals verður ekkert
til sparað svo að það takist.
- Þr.
• Þessi mynd er orðin svolitið gömul, en hún var tekin er KR varð íslandsmeistari á síðasta
keppnistímabili. Lengst til vinstri er John Iludson sem þá lék með KR, en hinir kapparnir á myndinni eru
ekki síður kunnir. Þeir eru Jón Sigurðsson í miðjunni, sem leikur sinn 75. landsleik í Noregi, og Einar
BoIIason, sem er núverandi landsliðsþjálfari.
Polar Cup í Noregi:
Landsliðið leikur 3 leiki a 22 klst!
— Jón Sigurðsson leikur sinn 75. landsleik
Valur og Próttur
opna Reykjavíkur-
mótið í knattspyrnu
LANDSLIÐSNEFND KKI hefur
valið 10 manna landsliðshóp sem
keppa á fyrir íslands hönd á
Pólar Cup, sem fram fer í Noregi
strax eftir páskana. A þessu móti
fær íslenska landsliðið það erfiða
verkefni að leika þrjá Iandsleiki
á tæpum sólarhring. Þeir mæta
Svíum föstudaginn 11. april
klukkan 20.00, síðan leika þeir
gegn Dönum morguninn eftir
klukkan 11.00 og loks gegn
Finnum klukkan 17.00 sama dag.
Er þetta vægast sagt stórfurðu-
leg niðurrijðun og ha*tt við að
mönnum verði ofboðið þó að í
toppæfingu séu. Ilópurinn sem
keppir fyrir íslands hönd er
Þessi: landsr
Kristinn'Jörundsson ÍR 48
Jón Sigurðsson KR 73
Guðsteinn Ingimarsson UMFN 9
Gunnar Þorvarðarson UMFN 49
Pétur Guðmundsson Wash. 16
Flosi Sigurðsson 3
Torfi Magnússon Val 40
Símon Ólafsson Fram 30
Jónas Jóhannesson UMFN 22
Kristján Ágústsson Val 16
Fyrsti varamaður verður
Ríkharður Hrafnkelsson úr Val.
Fjórir leikmenn leika áfanga-
leiki í ferðinni. Fyrst má nefna
Jón Sigurðsson, sem leikur sinn
75. landsleik, Kristin Jörundsson
sinn 50. landsleik, einnig Gunnar
Þorvarðarson og Jónas leikur sinn
25. landsleik.
Meðalhæð íslensku leikmann-
anna er 1.96,4 og er það meiri
meðalhæð en áður í íslensku
landsliði, einnig hefur sjaldan eða
aldrei verið sent jafn reynslumik-
ið lið út til keppni erlendis.
Getrauna- spá M.B.L. © ■© JS e 3 M t 9. U o u Um F. >-, en 1 9 /, a o O/ a. 1 9 'Ji Sunday Kxpress News of the world nr Cl U 0L O Z H w' xj c 3 X SAMTALS
1 X 2
Arsenal — Southampton 1 1 2 1 1 1 5 0 1
Aston Villa — Nott. Forest 1 i i 2 2 X 3 í 2
Bristol C. - WBA 1 2 X 2 X 2 1 2 3
C. Palace — Brighton X X i 1 X 1 3 3 0
Derby — Leeds i X X 2 1 X 2 3 1
Everton — Bolton 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Ipswich — Norwich 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Man. Utd. — Liverpool 1 2 X X X 2 1 3 2
Middlesbr. — Coventry X 1 1 1 1 I 5 1 0
Stoke — Man. City 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Wolves — Tottenh. X 1 1 X 1 1 1 2 0
Leicester — Chelsea 1 1 X X X 2 2 o 1
Hópurinn æfir daglega, stundum
tvisvar á dag. í kvöld mætir hann
síðan úrvalsliði sem Mark Christi-
ansen hefur valið, en Mark ætlar
að tefla fram þeim Tim Dwyer,
Mark Holmes, Spóa Webster,
Gunnari Thors ÍS, Þorvaldi
Geirssyni Fram, Jóni Héðinssyni
ÍS, Ríkharði Hrafnkelssyni Val,
Geir Þorsteinssyni KR, Garðari
Jóhannessyni KR og Birgi Guð-
björnssyni KR.
Einar Bollason, þjálfari lands-
liðsins, sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, að það eina
raunhæfa sem íslánd gæti stefnt
að í þessu móti væri 3. sætið, „en
ef einhvern tímann hefur verið
möguleiki að skáka stórveldunum
Finnlandi og Svíþjóð, þá er hann
núna, því ég tel að þetta sé
sterkasta lið sem ísland hefur
teflt fram,“ sagði Einar.
. -gg-
STRAX eftir páskana hefst
knattspyrnuvertíðin með leik
Vals og Þróttar í Reykjavíkur-
mótinu. leikurinn fer fram á
gamla góða Melavellinum og þar
verða allir leikir mótsins leiknir.
Á siðasta ársþingi K.R.R. voru
samþykktar nokkrar nýjar regl-
ur varðandi mótið í ár.
Verði lið jöfn að loknum venju-
legum leiktíma skal háður bráða-
bani. Leikmaður úr liði A byrjar
við miðlínu leikvallar og til varnar
er markvörður úr liði B. Hlutkesti
skal ráða hvort liðið byrjar. Leik-
maður hefur 15 sek. við tilraun
sína til að skora.
Fari knötturinn út af vellinum,
brjóti leikmaður A af sér, er
tilraun hans lokið. Brjóti mark-
vörður af sér skal dæmd víta-
spyrna.
5 leikmenn úr hvoru liðinu geri
tilraun til markaskorunar, og ef
þá er enn jafnt skal haldið áfram
uns úrslit fást.
Mörk skoruð í bráðabana skulu
ekki teljast í heildarúrslit né til
aukastigs.
Eins og undanfarin ár verður
liði veitt aukastig fyrir að skora 3
mörk eða fleiri í Reykjavíkurmóti
meistaraflokks.
I Reykjavíkur-, Miðsumars- og
Haustmótum allra flokka er leyfi-
legt að skipta inn á 4 leikmönnum
allan leiktímann, þar af skal einn
vera markvörður.
Sex fyrstu leikirnir í Reykja-
víkurmótinu verða þessir.
Reykjavíkurmót meistara-
flokks 1980
Apríl
8. kl. 20 Valur — Þróttur
10. kl. 20 K.R. - Fram
12. kl. 14 Fylkir - Valur
13. kl. 17 Víkingur — Ármann
14. kl. 20 Þróttur — K.R.
15. kl. 20 Fram — Víkingur
- þr-
Lið HK: Einar Þorvarðarson 2, Bergur Þorgeirsson 1, Bergsveinn
Þórarinsson 3, Andrés Gunnlaugsson 1, Hilmar Sigurgíslason 2, Jón
Einarsson 3. Kristinn Ólafsson 1, Ragnar Ólafsson 2, Kristján
Gunnarsson 1, Magnús Guðfinnsson 1, Karl Jóhannsson 1.
Lið Fram: Sigurður Þórarinsson 3, Snæbjörn Arngrímsson 1, Birgir
Jóhannsson 1. Björn Eiríksson 1, Atii Hilmarsson 1, Jóhann
Kristinsson 2, Egill Jóhannesson 2, Jón Árni Rúnarsson 3, Erlendur
Davíðsson 2, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Hannes Leifsson 3, Andrés
Bridde 2.
Dómarar ólafur Steingrímsson og Gunnar Steingrímsson 1.
KR: Pétur Hjálmarsson 1, Þórir Haraldsson 1, Sigurður P. Óskarsson
2. Ólafur Lárusson 3, Björn Pétursson 1, Friðrik Þorbjörnsson 3,
Einar Vilhjálmsson 1, Kristinn Ingason 2, Konráð Jónsson 2, Haukur
Ottesen 2, Jóhanncs Stefánsson 2, Haukur Geirmundsson 1.
Haukar: Gunnar Einarsson 3, Ólafur Guðjónsson 2, Guðmundur
Haraldsson 1., Ingimar Haraldsson 3, Árni Hermannsson 2, Hörður
Harðarson 2, Árni Sverrisson 2, Andrés Kristjánsson 3, Júlíus Pálsson
1, Stefán Jónsson 2.
Fyrir skömmu fór fram Reykjavíkurmót á skiðum í Ilamragili. Skýrt hefur verið frá úrslitum í mótinu í
karla og kvennaflokki. En unga fólkið lét ekki sitt eftir liggja á mótinu og stóð sig mjög vel. Á myndinni
sjáum við nokkra af sigurvegurunum í mótinu. í fremri röð frá vinstri er Guðjón Þór Mathiesen KR sem
varð nr. 1 í svigi og stórsvigi, Geirný Pétursdóttir KR sem sigraði í svigi og stórsvigi og Bjarni Pétursson
KR er varð 3. í svigi og alpatvikeppni. í aftari röð frá vinstri eru Auður Jóhannsdóttir KR sem varð fyrst
í svigi og alpatvikeppni, Sigrún Kolsöe KR er varð nr. 2 í stórsvigi og loks Sveinn Rúnarsson KR er varð
nr. 2 i svigi og 3 i alpatvikeppni. Öll eru þau i flokki 10 ára og yngri.
Áhugi á skíðaíþróttinni hefur aukist mjög hjá yngstu kynslóðinni og fer fjöldi þeirra sem taka þátt i
mótum sívaxandi.
Ljósm. ÁB.