Morgunblaðið - 11.05.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAI 1980
Ljósm. Mbl. Emilía.
UNGFRÚ Útsýn var kjörin á lokahátíð ferðaskrifstofunnar sl.
föstudagskvöld. Ungfrú Útsýn 1980 var valin Margrét Alice
Birgisdóttir, 19 ára Hafnfirðingur. Elísabet Traustadóttir,
ungfrú Útsýn i fyrra, krýndi Margréti, en Elisabet var kjörin
ungfrú Reykjavík á dögunum. Margrét hlaut ferðaverðlaun frá
Útsýn, svo og aðrar stúlkur, sem tóku þátt i keppninni, en þær
voru 12 að tölu. Hátt á tíunda hundrað manns sóttu vorhátíðina,
þar af 600 matargestir. Mun þetta vera aðsóknarmet á Hótel
Sögu. Myndin er frá krýningarathöfninni í fyrrakvöld og sjást í
fremstu röð Ingólfur Guðbrandsson forstjóri, Margrét Alice og
Elísabet.
Engel Lund
Mishermt var í blaðinu í gær, að
söngkonan Engel (Gagga) Lund
hefði orðið áttræð sl. föstudag, en
þá var haldin sérstök dagskrá í
Norræna húsinu henni til heiðurs.
— Hún verður áttræð 14. júlí n.k.
Morgunblaðið biður hina merku
listakonu afsökunar á þessum
mistökum.
Samvizkufangar
efni bænadagsins
ÁRLEGUR bænadagur
íslenzku þjóðkirkjunnar
er í dag og er bænaefnið
samvizkufangar. Hefur
bænadagurinn um langt
skeið verið haldinn fimmta
sunnudag eftir páska.
í bréfi biskups til safnaða
landsins fyrir bænadaginn segir
hann m.a. að bænaefni skorti
ekki, „glæpir gegn einföldustu
kröfum um mannhelgi eru
drýgðir dögum oftar. Þrátt fyrir
mannréttindaskrá Sameinuðu
þjóðanna og eiðhelga sáttmála á
grunni hennar eru frumlægustu
mannréttindi fyrir borð borin í
fjölmörgum löndum," segir bisk-
up og biður menn hugsa til
þeirra sem illt þola sakir þess að
þeir séu ándstöðu við ómennska
stjórnarháttu.
Ýmis alþjóðleg samtök vinna
að málum samvizkufanga, m.a.
Amnesty-samtökin, alþjóða-
nefnd lögfræðinga og Rauði
krossinn. Alkirkjuráðið hefur
einnig unnið mikið starf á þess-
um vettvangi, m.a. með öflun
upplýsinga og dreifingu þeirra
til kristinna safnaða og með
beinum aðgerðum. Með bænar-
efni þessu vill íslenzka þjóð-
kirkjan styðja starfið til lausnar
samvizkufanga og leggja
áherzlu á mililvægi þess.
Kópavogur 25 ára
ANNAÐ fjölmennasta bæj-
arfélag landsins, Kópa-
vogskaupstaður, á 25 ára
afmæli í dag. Afmælisins
verður minnzt með ýmsum
hætti í dag, en í skólunum
í Kópavogi var haldið upp
á afmælið í vikulokin með
sérstakri hátíð, sem nefnd-
ist „Vor í bæ“.
Hátíðarguðsþjónusta verður
í Kópavogskirkju klukkan 11 í
dag og síðdegis hefjast sýn-
ingar á kvikmynd, sem bæjar-
stjórn Kópavogs hefur látið
gera um bæinn og einnig
verður sýning á vegum Lista-
og menningarsjóðs Kópavogs.
Bæjarbúum gefst kostur á
að kynna sér starfsemi bæj-
arstofnana og munu bæjar-
starfsmenn verða til staðar og
kynna fólki starfsemi stofn-
ana og húsakynni. I tilefni
afmælisins ferðast Kópavogs-
búar ókeypis með strætisvögn-
unum í dag.
Síðar er svo ráðgerð bæjar-
keppni í skák við Hafnfirð-
inga, íþróttahátíð og sérstakir
tónlistardagar.
Vinningshaf-
ar í getraun
Útsýnar
Á lokahátíð Útsýnar sl. föstu-
dagskvöld var dregið úr réttum
lausnum í ferðagetraun Útsýnar,
sem birtist í Útsýnarblaði, sem
fylgdi Mbl. 3. apríl. Nokkur þús-
und lausnir bárust og eru vinn-
ingshafar þessir:
1. Elías Jóhann Leósson, Blöndu-
bakka 16, Reykjavík.
2. Ágústa Guðmundsdóttir,
Hjallabrekku 12, Kópavogi.
3. Ágúst Stefánsson, Dunhaga 11,
Reykjavík.
4. Jóhanna Björnsdóttir, Hólavegi
40, Sauðárkróki.
5. Bragi Björnsson, Vogatungu 11,
Kópavogi.
6. Jakob Olafsson, Mávahlíð 11,
Reykjavík.
7. Viðar Ágústsson, Stelkshólum
12, Reykjavík.
8. María Valdimarsdóttir, Lang-
holti 6, Keflavík.
9. Ólína Jónsdóttir, Arnarhrauni
5, Grindavík.
10. Sólveig Sveinsdóttir, Vogatungu
12, Kópavogi.
Vinningshafar hljóta 300 þúsund
króna ferðaverðlaun hver.
Listmunauppboð
Klausturhóla
Á NÆSTUNNI munu Klausturhól-
ar gangast fyrir nokkrum list-
munauppboðum.
Á fimmtudaginn verður uppboð á
málverkum á Hótel Sögu og verða
myndirnar sýndar í Klausturhólum
á þriðjudag og miðvikudag. Mynt-
uppboð verður að Laugavegi 71 nk.
laugardag og bókauppboð á sama
stað annan laugardag, 24. maí.
Kastaðist í gólfið með-
an bíllinn sveif í loftinu
- Dolfallinn yfir að sleppa svona vel, segir Sigurður
B. Ringsted, sem fór út af Óshliðarvegi fyrir viku.
ísatirði. 9. maí.
IIÉR Á sjúkrahúsinu liggur enn
Sigurður B. Ringsted. ökumaður
bifreiðarinnar, sem fór út af
Óshlíðarvegi síðastliðinn laugar-
dag. Fréttamaður Morgunblaðs-
ins hitti hann að máli í dag og
leitaði frétta af þessari miklu
lífsreynslu hans, en það má teljast
með ólikindum, að hann komst Hfs
af úr óhappinu, svo ekki sé talað
um það, að hann er óbrotinn með
öllu eftir að hafa flogið af vegi í 30
metra hæð yfir sjó niður í flæð-
armál.
Sigurður var hinn hressasti, en
kvaðst ekki muna mikið hvað
gerðist. Hann var að koma akandi
af ísafjarðarflugvelli eftir að hafa
flogið milli Reykjavíkur og Þing-
eyrar, þar sem ekki hafði gefið að
fljúga til ísafjarðar í tvo daga.
Hann er skipverji á skuttogaran-
um Dagrúnu frá Bolungarvík. Þar
sem hann hafði frétt af því, að
Dagrún gæti farið að koma að
landi varð að samkomulagi milli
hans og konu hans að Sigurður
færi með vélinni til Þingeyrar, en
konan og ársgömul dóttir þeirra
kæmi þegar gæfi að fljúga til
ísafjarðar. Þess vegna var Sigurð-
ur einn á ferð. Sigurður hafði ekið
stutt á eftir öðrum fólksbíl út
Óshlíðina, en hafði hægt á til að
kveikja sér í vindlingi skömmu
áður en slysið varð. Hafði hann
ekið aðeins greiðara við að ná
hinum bílnum aftur. Þegar hann
kom á Steinsófæruhornið lagðist
stýrið skyndilega til hægri og án
þess að ráðrúm gæfist til nokkurra
aðgerða þeyttist bíllinn fram af
horninu.
Sigurður man það síðast, að
hann kastaðist niður í gólfið meðan
bíllinn sveif í loftinu. Næsta sem
hann man var, að læknar voru að
plokka glerbrot úr andliti hans á
sjúkrahúsinu. Sigurður B. Ringsted
er frá Akureyri, en fluttist til
Bolungarvíkur síðastliðið sumar
þar sem hann hefur verið skipverji
á Dagrúnu. Hann er víða marinn
að eigin sögn, en reiknar með að
fara heim allra næstu daga.
„Maður er alveg dolfallinn yfir
að sleppa svona vel og ég velti fyrir
mér hvaða kraftur hafi haldið
verndarhendi yfir mér,“ sagði Sig-
urður í lok samtalsins.
- Úlíar
GudlauKur
Þorvaldsson
Hvert er álit forsetaframbjóðenda á
vínveitingum á vegum embættisins?
„Þannig gæti næsti forseti íslands vart gefið þjóð sinni betri gjöf
en þá að afnema vinveitingar á vegum æðsta embættis hennar,“
sagði Árni Gunnlaugsson. Ilafnarfirði, m.a. í niðurlagi greinar:
„Ný stefna í áfengismálum er aðkallandi“, sem birtist í Mbl.
þriðjudaginn 6. maí. Mbl. hafði samhand við forsetaframbjóðend-
urna fimm og spurði: „Hvert er þitt viðhorf til vinveitinga á vegum
forsetaembættisins?" Svör þeirra birtast hér:
,,Ég er einn af forystumönnum
SÁÁ og hef starfað að þeim
málum frá stofnun samtakanna
án þess að hafa verið vínhneigður
um ævina. En áfengisvandamálið
hrópar á samtaka baráttu þjóðar-
innar gegn þessum sjúkdómi,"
sagði Albert Guðmundsson.
Áfengisnotkun í heimahúsum
verður ávallt að takmarka, ekki
sízt á þjóðarheimilinu. Bessa-
staðaheimilið verður ávallt að
vera hreint andlit þjóðarinnar.“
★
„Ég tel sjálfsagt, að ávallt sé
gætt hófs í vínveitingum á vegum
forsetaembættisins," sagði Guð-
laugur Þorvaldsson. „Aðstæður
hverju sinni hljóta svo að ráða
því, hvort áfengir drykkir eru
hafðir um hönd eða aðrar veit-
ingar fram bornar."
★
„Á meðan engin heildarstefna
hefur verið mótuð af íslenzkum
stjórnvöldum varðandi áfengis-
veitingar á vegum hins opinbera
virðist mér rétt að fylgja alþjóð-
legum venjum, hvað snertir vín-
veitingar á þjóðhöfðingjasetrinu,
en að sjálfsögðu þannig að fyllstu
hófsemi sé gætt,“ sagði Pétur
Thorsteinsson.
★
„Ef ég næ kjöri í forsetaemb-
ættið mun ég skilyrðislaust af-
nema allar vínveitingar á þess
vegum," sagði Rögnvaldur Páls-
son. „Persónulega tel ég, þótt ég
sé enginn engill sjálfur, að ekkert
gæti bjargað þjóðinni eins vel og
að lokað yrði fyrir áfengi í
opinberum veizluhöldum."
„Ef ég teldi víst, að ég sem
forseti íslands gæti haft áhrif til
hins betra á þá íslendinga, sem
fara óhóflega með vín, mundi ég
taka af skarið, hvenær sem er og
hvar sem er,“ sagði Vigdís Finn-
bogadóttir. . .
„Eg var meðal stofn-
enda Samtaka áhugafólks um
áfengisvandamálið — SÁÁ —
1977 og á þá ósk, sem Halldór
Laxness orðar á einum stað, að
inn í mitt hús komi aldrei
drukkinn maður, né fari drukk-
inn maður út úr því.“
Albert GuAmundsson
Pétur Thorsteinsson
Rögnvaldur Pálsson
Viffdís Finnbofíadottir