Morgunblaðið - 11.05.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAÍ1980
3
Hljómleikar í
tilefni
ítalskra
vordaga
í DAG klukkan 15 verður efnt
til tónleika í Háskólabíói i
tilefni „ítölsku vordaganna“,
en aðsókn hefur verið svo
mikil að þeim, að margir hafa
orðið frá að hverfa.
Á tónleikunum koma fram
ítölsku óperusöngvararnir
Pietro Bottazzo og María Lor-
aden, en þau eru meðal
fremstu söngvara ítala í dag,
Unnur María Ingólfsdóttir
fiðluleikari og Alan Marks
píanóleikari frá Bandaríkjun-
um, sem bæði eru ungir tón-
listarmenn í mikilli framför.
Þá verður ennfremur ítölsk
tískusýning undir stjórn
tízkufrömuðarins Roberto
Behi. Model 79 sýna.
Allur ágóði rennur til styrkt-
ar íslenzku listafólki að tilhlut-
an íslenzka lista- og menning-
arfélagsins. Miðasala er í Há-
skólabíói.
Vindhraðinn
í Eyjum allt upp
í 16 vindstig
Vestmannaeyjum, 10. maí.
HÉR ER enn aftakaveður, þó
þess sjáist nú aðeins merki að
veðrinu sé að slota. Veðurhæðin
hefur verið gífurleg hér síðustu
dægrin, og má sem dæmi nefna,
að siðastliðna nótt mældist með-
alvindhraðinn hér um 79 hnútar,
en það samsvarar um 13,5 vind-
stigum. í vindhviðum varð veð-
urhæðin hins vegar enn meiri, og
hæst um 105 hnútar, sem sam-
svara því sem næst 16 vindstig-
um.
Veðrið hefur valdið nokkrum
erfiðleikum með búfé, þar sem
margar ær eru nú bornar og
sumar þeirra úti í Eyjum. Ekki
hefur verið hægt að komast til að
vitja um þær, en fé í Heimakletti
virðist hafa sloppið við áföll af
völdum veðursins. Hefur það vafa-
lítið hjálpað mikið, að veðrinu
hefur ekki fylgt úrkoma svo heitið
geti, þar sem hér hefur lítið komið
úr lofti eftir snjókomuna. Snjór-
inn er að mestu farinn, enda hiti
af jörðinni sem er orðinn klaka-
laus, en enn er þó snjór í sköflum
á stöku stað.
Ekki er vitað til að slys eða
óhöpp hafi orðið af völdum veður-
ofsans, hvorki á sjó né landi, utan
að járnplötur fuku af tveimur
húsum.
— Sigurgeir
Eiga 65 ára
hjúskapar-
afmæli i dag
SEXTÍU OG FIMM ára hjúskap-
arafmæli eiga í dag, 11. mai,
hjónin Pálína Þórarinsdóttir og
Guðmundur Guðmundsson Vest-
mann, en þau hafa frá árinu 1915
búið á Fáskrúðsfirði.
Guðmundur Guðmundsson
Vestmann er fæddur 3. febrúar
1886 og Pálína Einarsdóttir 25.
október 1892. Guðmundur er
fæddur og uppalinn í Tóftum í
Reykjavík, en hefur lengst af
stundað sjóinn, fyrst frá Vest-
mannaeyjum og síðar Fáskrúðs-
firði. Hóf hann formennsku í
Vestmannaeyjum árið 1908 og
fluttist síðan til Fáskrúðsfjarðar
og hefur hann síðari árin einkum
stundað netaviðgerðir, en hætti
því fyrir aðeins fáum árum. Þau
hjón hafa verið vel ern allt fram á
þennan dag.
Matthea Jónsdóttir við nokkur verka sinna. Lj««m.: rax
Matthea Jónsdóttir
sýnir í FIM-salnum
Matthea Jónsdóttir hefur opnað
málverkasýningu í sal Félags ísl.
myndlistarmanna að Laugarnes-
vegi 112 í Reykjavík. Sýnir hún
þar 55 málverk, aðallega vatns-
litamyndir, en einnig nokkur
olíumálverk.
Matthea Jónsdóttir hefur unnið
myndirnar síðustu 2—3 árin og í
nokkrum verkanna sækir hún
myndefnið í tré, m.a. í tilefni árs
trésins. Hún hefur tekið þátt í
flestum sýningum FÍM frá árinu
1966, tekið þátt í sýningum erlend-
is, en þetta er fjórða einkasýning
hennar. Matthea Jónsdóttir
stundaði nám í Handíða- og
myndlistarskólanum og síðar
Myndlistarskólanum í Reykjavík
og hefur einnig sótt námskeið
erlendis. Sýning Mattheu verður
opin daglega kl. 16—22 og kl.
14—22 um helgar og lýkur henni
sunnudaginn 25. maí.
— einn frægasti tízkuhönnuöur ítalíu sýnir glæsi-
legan módelfatnaö, sem seldur veröur aö sýningu
lokinni meö einstökum kostakjörum. Módel 79 sýnir
Atan
Marks
Alan Marks frá New York, einn glæsilegasti
píanóleíkari ungu kynslóöarinnar í dag leikur einleik
Franz Lizt: Mefistovals.
María Ingólfsdóttir — fiðluleikari frá London —
nemandi frægasta núlifandi fiöluleikara heimsins.
Natan Milstein leikur ásamt Alan Marks, m.a..
Vorsónötu Beethovens.
ítalskir heimssöngvarar, Pietro Bottazzo og Maria
Loredan frá la Scala, Milano og Grand Metropolitan
New York, syngja vinsæla óperutónlist eftir Bellini,
María
Ingólfsdóttir
Aögöngumiöaverö meö einstökum kjörum aöeins
Háskólabíói frá kl. 13.00
_
Tónlist;
Undirleikari
Skemmtun fyrir alla
Einstæöur tónlistarviöburöur.
í tilefni „ítölsku vordaganna“.
Allur ágóði rennur til styrktar íslenzku
listafólki aö tilhlutan íslenzka lista- og
menningarfélagsins.
italskir vordagar á ísiandi