Morgunblaðið - 11.05.1980, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAÍ1980
Alda Halldórsdóttir og
Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir:
H júkrunarnám
hlýtur að verða á
hæsta menntunarstigi
Florence
Nightíngale
xAlþjóðadagur
hjúkrunarfræðinga
Alþjóðlegur dagur hjúkrunarfræðinga er á morgun, 12. maí. Þessi dagur var
valinn vegna þess að hann er fæðingardagur Florence Nightingale, er lagði af
mörkum stærstan skerf á síðustu öld til hjúkrunarstarfsins og menntunar
hjúkrunarfræðinga. Hún var fædd 12. mai 1820 og lézt 1910, þannig að á
morgun eru liðin 160 ár frá fæðingu hennar og einnig eru 70 ár liðin frá
andláti hennar í ár.
Hérlendis annaðist Hjúkrunarskóli íslands einn skóla menntun hjúkrunar-
fræðinga frá 1931 til 1972. í ársbyrjun 1972 samþykkti alþingi lög um stofnun
og rekstur nýs hjúkrunarskóla, — „Nýja hjúkrunarskólans'* og hóf hann
starfsemi sina þá um haustið. Hann hefur farið inn á þá braut síðustu árin að
veita framhaldsmenntun í ýmsum greinum og er það í fyrsta sinn sem unnt er
að hljóta slíka menntun innanlands, skipulagða innan skólastofnana.
Kennaraháskóli íslands skipulagði um tima nám fyrir hjúkrunarfræðinga til
kennsluréttinda. Haustið 1973 var, í tengslum við læknadeild Háskóla íslands,
stofnuð námsbraut í hjúkrunarfræði.
í febr. 1974 skipaði menntamálaráðherra nefnd undir forsæti skólastjóra
Hjúkrunarskóla íslands. Nefndin skyldi endurskoða gildandi löggjöf um
hjúkrunarnám i landinu og niðurstöður nefndarinnar voru þær, að samræma
beri allt hjúkrunarnám á háskólastig að undangengnum nauðsynlegum
aðlögunartima.
Siðan gerist það, að á 98. löggjafarþingi íslendinga 1976/77 var lagt fram
frumvarp til laga um framhaldsskóla. 1 því er gert ráð fyrir m.a., að
hjúkrunarfræðinám færist úr sérskólum inn í hinn almenna framhaldsskóla.
Ekki þótti öllum framkomið frumvarp ganga í átt til umbeðinnar
samræmingar á menntun hjúkrunarfræðinga á háskólastig, en eins og
kunnugt er hefur umrætt frumvarp verið lagt fram á alþingi fjórum sinnum,
án þess að náðst hafi um það samstaða.
í tilefni af alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga ræddi Mbl. við nokkra
hjúkrunarfræðinga í kennslu, starfi og námi um menntun
og starfssvið þeirra.
— nútíma heilbrigð-
isþjónusta og eðli
starfsins krefst þess
„A þeim tímum voru aðcins
tvcir starfshópar sem önnuðust
sjuklimrinn. — læknar og hjúkr-
unarfræðingar. Nú hafa bætzt við
fleiri starfshópar og til flestra
þcirra gerðar meiri menntunar-
kröfur en til hjúkrunarfræðinga,1*
sögðu þær Alda Halldórsdóttir og
Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir
hjúkrunarkennarar, er Mbl.
spurði þær um þá þróun, sem átt
hefði sér stað í menntun hjúkrun-
arstéttanna frá dögum Nightin-
gale.
„Vegna Florence Nightingale
hafði England nokkra forystu um
menntunarmál þessarar stéttar, en
á síðustu áratugum má segja að
sterkustu áhrifin komi frá Banda-
ríkjunum og Kanada. Þar hafa um
langan tíma verið möguleikar á
háskólanámi fyrir hjúkrunarfræð-
inga, og það leitt til þess að mikið
Alda Halldórsdóttir
hefur verið lagt af mörkum til
framþróunar hjúkrunar. Norrænir
hjúkrunarfræðingar hafa orðið
fyrir verulegum áhrifum frá þess-
um þjóðum og nýtt sér hugmyndir
þeirra og rannsóknir.
— En hver er aðalstarfsvett-
vangur hjúkrunarfræðinga?
„Störf hjúkrunarfræðinga, eins
og þau nú tíðkast má flokka á
eftirfarandi hátt:
— Heilsuvernd og hjúkrun utan
sjúkrastofnana, við heilsugæslu-
stöðvar og skólaeftirlit,
— hjúkrun á sjúkrastofnunum og
endurhæfingarstofnunum,
hjúkrunarheimilum og elli- og
dvalarheimilum,
— störf við aðrar stofnanir innan
heilbrigðisþjónustunnar,
— hjúkrunarkennsla á sjúkra-
stofnunum, hjúkrunarskólum
o.fl. sérskólum."
Efla ber
heilsuvernd
Þá sagði Alda að aukin þekking
og þjóðfélagslegar breytingar hefðu
haft áhrif á starfssvið hjúkrunar
sem orðið hefði víðtækara hvað
snertir heilsuvernd og hjúkrun.
„Allir viðurkenna nú gildi heilsu-
verndar og að þann þátt beri að
efla. Myndu aðgerðir í þá átt
fljótlega leiða til þess að heilbrigð-
isþjónustan nýttist betur.
Hjúkrunarfræðingur í heilsu-
vernd starfar ýmist sjálfstætt eða í
samvinnu við aðrar heilbrigðis-
stéttir. Meginþættir starfsins eru
fræðsla, ráðgjöf og eftirlit. Starf
hjúkrunarfræðingsins er fyrir-
byggjandi og miðar að því að efla
andlega, líkamlega og félagslega
velferð þegna þjóðfélagsins með því
að koma í veg fyrir sjúkdóma og
slys, og jafnframt stuðla að hollum
lifnaðarháttum þannig að hver og
einn nái og haldi þeirri beztu
heilsu, sem eiginleikar og umhverfi
leyfa."
— Nú eru störf hjúkrunarfræð-
inga á sjúkradeildum eflaust þau
störf sem almenningur hefur í
huga, þegar minnzt er á ykkar
starfsstétt?
„Já, sá þáttur er ekki sá minnsti.
Við umönnun hins sjúka er hjúkr-
unarfræðingurinn sá ábyrgi aðili,
sem allan sólarhringinn er til
staðar. Mikilvægur þáttur í starf-
inu er ákvarðanataka. Oft er þar
um að ræða skyndiákvarðanir þeg-
ar líðan sjúklings krefst þess.
Einnig skipuleggjum við hjúkrun-
arþjónustuna, framkvæmum fyrir-
mæli læknis og í samvinnu við hann
og aðrar heilbrigðisstéttir sam-
ræmum við og tengjum þau störf,
er varða meðferð sjúklingsins.
Báðum þessum þáttum, heilsu-
vernd og hjúkrun tengjast stjórn-
unarstörf, en þau og hvers kyns
skipulagning verða æ ríkari þáttur í
heilbrigðisþjónustunni. Auknar
kröfur eru gerðar um hagkvæmni í
nýtingu mannafla, fjármagns og
tækja."
Hjúkrunarferli
meðal nýjunga
Þá sögðu þær Alda og Guðrún að
vísindarannsóknir í hjúkrun hefðu
leitt til nýrra viðhorfa og starfs-
hátta. Meðal nýjunga mætti nefna
hjúkrunarferli, sem tekið hefði ver-
ið upp í Bandaríkjunum og á
Norðurlöndum frá árinu 1975.
— En hvað er hjúkrunarferli?
„Það er starfsháttur, sem felur í
sér skriflega upplýsingasöfnun,
hjúkrunargreiningu, markmiða-
setningu, hjúkrunarmeðferð og
mat. Áherzla er lögð á að vinna í
samvinnu við sjúkling, skjólstæð-
ing, þannig að hann verði virkur
þátttakandi í þeirri meðferð sem að
honum lýtur. Sameiginleg markmið
eru að hjálpa skjólstæðingi til bata,
að viðhalda heilsu eða lina þján-
ingar. I Bandaríkjunum hefur gefið
góða raun sú skipan mála, að einn
og sami hjúkrunarfræðingur sé
ábyrgur fyrir og skipuleggi hjúkrun
sjúklingsins frá komu og þar til
hann fer af sjúkrahúsi og sé þá
tengiliður áframhaldandi þjónustu,
ef þörf er á.“
— Hvert er algengasta skipulag
hjúkrunar á sjúkradeildum hér-
lendis?
„Hóphjúkrun, en forveri þess var
svokölluð „verkaskipting" sem lögð
hefur verið niður á flestum stöð-
um.“
Þá sögðu þær Alda og Guðrún, að
hjúkrunarrannsóknir og menntun
hjúkrunarfræðinga hefði verið mik-
ið til umfjöllunar víða innan hjúkr-
unarfélaga og m.a. á Norðurlönd-
um. „Mestar framfarir á sviði
hjúkrunar hafa orðið í þeim löndum
þar sem menntun hjúkrunarfræð-
inga er á háskólastigi. Stefna nú
fleiri og fleiri þjóðir að því marki
að hjúkrunarmenntunin færist á
háskólastig." Þá sagði Guðrún, að
aukinn skilningur væri nú á hinum
mannlega þætti hjúkrunarstarfsins
og þann þátt þyrfti að efla. „í allri
tæknivæðingunni má aldrei missa
sjónar á, að sjúklingurinn er mann-
eskja með tilfinningar og líðan.
Framþróunin má ekki verða til þess
að litið sé á hann sem tegund
sjúkdóms í stað manneskju."
Hjúkrunarnám
samræmt
— En hvert stefnum við hér á
íslandi í menntunarmálum hjúkr-
unarfræðinga?
„Á fulltrúafundi Hjúkrunarfé-
lags íslands, sem haldinn var 10. og
11. apríl sl. var samþykkt að skora á
háttv. Alþingi og menntamálaráðu-
neytið að hlutast til um að allt
grunnnám í hjúkrunarfræði verði
samræmt og komið í Háskóla ís-
lands í seinasta lagi árið 1985.
Þær sögðu íslenzka hjúkrunar-
fræðinga leggja svo mikla áherzlu á
þetta atriði vegna þeirrar kröfu,
María Heiðdal heilsuverndar-
hjúkrunarfræðingur starfar við
ungbarnaeftirlit á Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur. Við ræddum
við Maríu og fylgdum henni eftir í
heimsókn til tveggja mánaða dótt-
ur Þuriðar Magnúsdóttur að
Fálkagötu 21 í Reykjavík, en
María sér um eftirlit með nýfædd-
um börnum, búsettum í Vestur-
bænum.
Við spurðum Maríu fyrst hvert
væri markmið heilsuverndarhjúkr-
unar. „Við styðjum einstaklinginn
og fjölskylduna til að tileinka sér
holla og heilsusamlega lifnaðar-
hætti. Starfið felur í sér að upp-
götva í tíma og komast fyrir
líkamleg, andleg og félagsleg frá-
sem nútíma heilbrigðisþjónusta
gerði til starfsstéttarinnar. „Starf
hjúkrunarfræðingsins er tengt
ýmsum þáttum, sem ekki verða
aðskildir, eðli starfsins vegna. Allt
aðfararnám sem og menntun og
framhaldsmenntun hlýtur í sam-
ræmi við það að vera í órofa
tengslum og á hæsta menntunar-
stigi, þ.e.a.s. á háskólastigi," sögðu
þær í lokin.
vik, sem ógna heilbrigði og hagsæld
fjölskyldunnar. Við gegnum tengi-
liðahlutverki fjölskyldu og einstakl-
inga við aðrar heilbrigðis- og fé-
lagsstofnanir, sem leita þarf til
hverju sinni. Við vinnum að þessum
markmiðum okkar í samráði við
fólkið sjálft, aðrar heilbrigðisstétt-
ir og stofnanir, sem starfið krefst
samvinnu við.“
— Hvernig er staðið að ung-
barnaeftirliti hérlendis?
„Þjónustan sem veitt er við ung-
barnaeftirlit er öllum að kostnað-
arlausu. Við fáum tilkynningar um
öll börn sem fæðast og strax og
tilkynningin berst okkur hringjum
við heim til foreldra barnanna og
bjóðum þeim heimsókn til eftirlits.
Guðrún Margrét Þorsteinsdóttir 'J4*"-Mbl-RAX
María Heiðdal:
tekið á móti börnun-
um — en oft bregður út
af við 3—4 ára aldurinn