Morgunblaðið - 11.05.1980, Page 19

Morgunblaðið - 11.05.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAÍ1980 19 „ÖLL verkin sem ég sýni nú á Kjarvalsstöðum eru máluð síðustu fimm árin,“ sagði Pétur Friðrik listmálari í samtali við blaðamann Mbl. á Kjarvalsstöðum en Pétur Friðrik opnaði í gær sýningu á verkum sínum þar. Sýning Péturs Friðriks stendur til 20. þessa mánað- ar. Þetta er fyrsta sýning Péturs Friðriks í fimm ár — síðasta stóra sýning hans var einmitt á Kjarvals- stöðum. „Það eru einkum lands- lagsmyndir, sem ég sýni nú — skoða söfn eins og kostur er. Farið annað hvert ár til Bandaríkjanna og skoðað söfn þar. Það eru mörg góð söfn í Bandaríkjunum en jafnframt því að skoða söfn þar þá hef ég málað talsvert í Bandaríkjunum." Eitthvert sérstakt safn. sem heiur heillað þig öðrum fremur vestan- hafs? „Þau eru svo mörg góð. Þó verð ég að segja, að Barnes-foundation safn- ið í Fíladelfíu hafði mikil áhrif á mig. Eg skoðaði það fyrir nokkrum árum Þegar sem barn var hann ákveðinn í að verða listmálari — spjallað við Pétur Friðrik, sem í dag opn- ar málverkasýningu á Kjarvalsstöðum nokkur portrait og teikningar. Mynd- irnar eru einkum frá Vestfjörðum, Suðurlandi og Borgarfirði. Þá eru þrjár vatnslitamyndir frá Bandaríkj- unum og ein frá Luxembourg. Ilefurðu ferðast mikið frá þvi þú hélst sýningu siðast? „Ég hef reynt að fara utan til að með Valtý Péturssyni þegar ég hitti hann vestra. Þar eru mörg verk impressionistanna, Matisse og fleiri, — mörg verk eftir hvern. Það er eitthvert sérstæðasta safn, sem ég hef séð. Safnið er verk Barnes nokkurs, sem varð ríkur, að því er sagan segir, á því að selja nefdropa við kvefi." Er fiðringur i þér nú, þegar þú ert að opna sýningu eftir fimm ára hlé? „Þær eru nú orðnar svo margar sýningarnar að maður kippir sér ekki upp, en þó — jú, fiðringur gerir þó vart við sig. Eins og ég sagði, þá eru fimm ár síðan ég hélt sýningu, með þeirri undantekningu þó, að ég hélt litla sýningu á Selfossi. Fimm ár eru hæfilegur tími milli' sýninga." Hefur mikil breyting orðið á verkum þínum frá því fyrir fimm árum? „Það er alltaf einhver breyting. Hún kemur ósjálfrátt og með aldrin- um. Myndir mínar hafa breyst mikið frá því ég var 17 ára strákur. Sumum finnst jafnvel gömlu myndirnar mínar frá þeim tíma betri en þær, sem ég mála í dag.“ Eru þær það? „Ég veit það ekki. Það er meiri fjölbreytni í litum nú en þá. Mynd- irnar hafa orðið mildari. Myndirnar frá því í gamla daga voru harðari, — sterkari í byggingu og formi. Annars hef ég mjög gaman að sjá gamlar myndir mínar. Verð alltaf dálítið hissa, þegar ég sé þær.“ Pétur Friðrik við eitt verka sinna á Kjarvalsstöðum. Mynd Mbl. Kristján. Hvenær byrjaðirðu að mála? „Strax sem krakki teiknaði ég mikið og var raunar þegar í barna- skóla búinn að ákveða hvað ég ætlaði að verða — ég ætlaði að verða listmálari. Tólf ára gamall fékk ég fyrstu olíuliti mína. Fljótlega eftir barnaskóla fór ég í Handíða- og myndlistaskólann, sem þá var við Grundarstíginn. Þar voru margir ágætir málarar, Karl Kvaran, Einar Baldvinsson og Veturliði Gunnars- son, — allir eru þeir þekktir í dag. Þegar ég var 17 ára fór ég til Danmerkur og var 3 ár í akademí- unni í Kaupmannahöfn. Það var skömmu eftir stríðið, 46 og þá voru margir íslendingar í akademíunni, um 20 held ég megi segja. Ég kom síðan heim en hef reynt að ferðast þegar fjárhagurinn hefur leyft það — farið um og skoðað söfn.“ Hvað er framundan eftir sýning- una? „Ég veit það ekki — ætli ég hvíli mig ekki og fari út á Iand þegar hlýnar í veðri." Að lokum, Pétur Friðrik — kviðirðu krítikerunum? Ég tek ekki svo mikið mark á krítikerum og fer ekki að láta þá hafa áhrif á mig. Þeir skrifa yfirleitt lof um þá, sem ekki kunna að mála. , •• : unroitiu:: —|*ÍS !!!iíliiii:il!i Þú ert H ekki í vandræðum í WRANGLER VERZLANIR Karnabæ, Laugavegi 66, Austurstræti 22. Glæsibæ Bonaparte Laugavegi 20. Fataval Keflavík. Bakhúsinu Hafnarfiröi. Cesar Akureyri. Eplinu Akranesi og isafirði Eyjabæ Vestmannaeyjum. Lindinni Selfossi. Hornabæ Höfn-Hornafirði. Álfhóll Siglufiröi. Ram Húsavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.