Morgunblaðið - 11.05.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAI 1980
21
í fréttatilkynningu fjármála-
ráðuneytisins sem birtist í dag-
blöðunum hinn 6. þ.m., segir m.a.
að málverkasala sé undanþegin
söluskatti. Til þess að koma í veg
fyrir misskilning skal tekið fram
að hér er einungis átt við sölu
listamanna sjálfra á eigin verkum
en ekki um sölu annarra aðila á
verkum þeirra.
(Fréttatilkynning).
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810
/
/
Við erum
Bandídó verzlanir:
Karnabær, Laugavegi 66,
Austurstræti 22, Glæsibæ
Bonaparte, Laugavegi 20.
IV Fataval, Keflavík.
Lindin, Selfossi.
Hornabær, Höfn-Hornafiröi
Álfhóll, Siglufiröi.
Ram, Húsavík. jL
Bakhúsið, Hafnarfiröi.
Cesar, Akureyri.
Eplið, Akranesi og ísafirði.
Eyjabær, Vestmannaeyjum
Námskeið og störf í
Reykjavík í sumar
Ýmiss konar námskeið
og útistörf verða fyrir
börn og unglinga í sumar
á vegum Æskulýðsráðs
Reykjavíkur.
íþrótta- og leikjanámskeið verð-
ur haldið fyrir börn á aldrinum
6—12 ára á átta stöðum í borginni
dagana 2.—16. júní. Þátttökugjald
kr. 1000.
Sundnámskeið verða í flestöll-
Kaffiboð Félags
Snæfellinga
og Hnappdæla
Árið 1972 hóf Félag Snæfell-
inga og Hnappdæla í Reykjavík
þá starfsemi að bjóða til sameig-
inlegrar kaffidrykkju á vegum
félagsins öllum eldri Snæfelling-
um. Siðan hefur þessu verið
haldið áfram. Tilgangurinn með
þessu er fyrst og fremst að gefa
eldra fólkinu kost á að hittast.
Kaffiboðið verður nú haldið í
félagsheimili Bústaðakirkju í dag
kl. 15;00 að lokinni guðsþjónustu
séra Ólafs Skúlasonar, sem hefst
kl. 14.00. Þar mun kór Snæfell-
ingafélagsins láta til sín heyra, en
honum stjórnar Jón ísleifsson,
kennari.
Árétting
um sundlaugum Reykjavíkur fyrir
börn fædd 1973 og eldri. Hvert
námskeið er 18—20 kennslustund-
ir. Þátttökugjald 7000 krónur.
Vinnuskóli verður fyrir börn á
aldrinum 14—15 ára. Umsóknar-
eyðublöð fást hjá ráðningar-
skrifstofu Reykjavíkur.
Siglinganámskeið verður fyrir
börn á aldrinum 9—12 ára. Gjald
8000 krónur og lengd námskeiðs 2
vikur.
Kynnisferð í sveit. Aldur 10—12
ára. Fargjald um 5000 kr. Dval-
artími 3 dagar. Farið verður í júní
og hámarksfjöldi er 40 börn.
Barnaleikvellir. Aldur 2—6 ára.
35 gæzluvellir eru víðs vegar um
borgina. Starfsvellir verða fyrir
börn á aldrinum 6—12 ára á 10
stöðum í borginni.
Skólagarðar, aldur 9—12 ára.
Þátttökugjald 3000 krónur. Garð-
arnir verða á fjórum stöðum og
geta tekið við 1200 börnum.
Reiðskóli verður í Saltvík, aldur
8—14 ára. Þátttökugjald er 40.000.
Lengd námskeiðs 2 vikur. Há-
marksfjöldi á námskeiði 60 nem-
endur.
Einnig verður opið hús í Fella-
helli á kvöldin alla virka daga
nema föstudaga fyrir börn fædd
’67 og eldri.
En á föstudagskvöldum verður
diskótek fyrir börn fædd ’66 og
eldri. Gjald kr. 500.
Nánari upplýsingar fást hjá
Æskulýðsráði og viðkomandi
stofnunum Reykjavíkurborgar,
auk þess hefur bæklingi verið
dreift í skólana.
Foreldrar sem hug hafa á að
hagnýta sér framboð borgarinnar
fyrir börn sín eru hvött til þess að
draga ekki innritun þeirra.
Opnar sýningu í Eden
Sigrún Jónsdóttir opnar málverkasýningu í Eden í
Hveragerði næstkomandi mánudag. Sigrún sýnir 45
olíumálverk. Þetta er 3. einkasýning hennar. Sýningin
stendur yfir frá 12.—22. maí.
Fræðslufundur
um trjá-
og garðrækt
BANDALAG kvenna í Reykjavík
gengst fyrir fræðslufundi fyrir
áhugafólk um trjá- og garðrækt
mánudaginn 12. maí kl. 20 í
Glæsibæ (niðri).
Hákon Bjarnason, fyrrv. skóg-
ræktarstjóri, flytur erindi um
gróðureyðingu og græðslu lands,
Agústa Björnsdóttir talar um fjöl-
ærar jurtir og Axel Magnússon
garðyrkjuráðunautur fjallar um
ræktun matjurta.
Sí
lika
u