Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAI 1980
ÚRSLIT í íegurðarsamkeppni íslands 1980 fóru fram á Hótel Sögu í gærkvöldi. Úrslit voru ekki kunn er
Morgunblaðið fór í prentun, en meðfylgjandi mynd var tekin af stúlkunum 13 er þær komu fram í fyrsta
skipti í úrslitunum í gærkvöldi, en kynnar kvöldsins eru einnig á myndinni. (Ljósm. mw. Emiiia Bjorí Bjömsdóttir).
itarfsmaður Vélsmiðjunnar Héftins vinnur að viðgerðinni i gær.
(Ljósm. Mbl. Kristinn).
Bilun í prentvél
Morgunblaðsins
BILUN varð í prentvél Morgun-
blaðsins aðfaranótt föstudags. Af
þeim sökum tókst ekki að ljúka
prentun á öllu upplagi blaðsins á
venjulegum tima og prentun
biaðsins i dag seinkaði. Af sömu
orsökum kom Dagblaðið ekki út i
gær.
Strax og bilun varð í prent-
smiðjunni var hafist handa um
viðgerð. Starfsmenn Morgun-
blaðsins og Vélsmiðjunnar Héðins
unnu að viðgerðinni frá því í
fyrrinótt og þar til viðgerð lauk.
Einnig voru gerðar ráðstafanir til
að fá nauðsynlega varahluti er-
lendis frá.
Morgunblaðið biður lesendur
sína velvirðingar á þeim óþægind-
um sem þeir hafa orðið fyrir.
Lánskjaravísitalan:
Hækkar um 4,6%
milli mánuða
SEÐLABANKINN hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir júnímánuð og
reyndist hún vera 160 stig, en
mánuðinn áður var hún 153 stig.
Hækkun milli mánuða er því 4,6%,
en á 12 mánaða grundvelli er
hækkunin samkvæmt því 71,1%.
Myndsegul-
bandsmálið:
Rannsókn
fram hald-
ið í gær
RANNSÓKN var fram haldið
í gær á innanhússsjónvarps-
scndingum í fjölhýlishúsum,
að sögn Arnars Guðmundsson-
ar deildarstjóra hjá RLR. beg-
ar Arnar var að því spurður,
hvenær vænta mætti þess að
krafizt yrði úrskurðar um að
leggja hald á tæknihúnað í
fjölbýlishúsunum kvaðst hann
engum spurningum svara um
málið.
Morgunblaðið hafði í gær
samband við Bryngeir Guð-
mundsson útvarpsvirkja á
Borgarspítalanum. Hann stað-
festi að það hefði tíðkazt um
margra ára skeið að senda
útvarpsefni á sérstakri rás á
spítalanum. Væri aðallega út-
varpað tónlist af kassettum.
Innan spítalans eru ekki sér-
stakar sjónvarpssendingar en
þeim má koma í kring með
lítilli fyrirhöfn að sögn Bryn-
geirs.
Þá fékk Mbl. það staðfest í
gær að innanhússsjónvarp
væri fyrir hendi á nokkrum
vínveitingastöðum í borginni.
Þar munu aðallega vera sýndar
myndir með vinsælum hljóm-
sveitum og söngvurum. I aug-
lýsingum veitingahúsanna er
þess oft getið að myndsegul-
bandssýningar séu á boðstól-
um.
Rögnvaldur hættur
við forsetaframboð
SÍÐDEGIS í gær höfðu tveir
forsetaframbjóðendanna, Guð-
laugur Þorvaldsson og Pétur
Thorsteinsson, skilað undir-
skriftum tilskilins fjölda með-
mælenda til dómsmálaráðuneytis-
ins. Albert Guðmundsson og
Vigdis Finnbogadóttir höfðu hins
vegar ekki skilað inn meðmæl-
endalistum, en framboðsfrestur
rennur út á miðnætti. Rögnvald-
ur Pálsson tilkynnti i gær, að
hann hefði hætt við framboð sitt,
þar sem honum hefði ekki tekizt
að fá nægan fjölda meðmælenda.
Morgunblaðið ræddi við Rögn-
vald í gærkvöldi og sagði hann að
orsök þess, að hann hefði ekki náð
tilskildum fjölda meðmælenda
væri sú, að hann hefði ekki haft
nægan starfskraft sér til aðstoðar.
— Eg hef verið einn að berjast í
þessu að langmestu leyti og að því
er ég bezt veit er ég kominn með
meira en nógu marga meðmæl-
endur utan af landi, sagði Rögn-
valdur. — Hér í Reykjavík og
nágrennni vantar hins vegar
lítilræði upp á og ég hef komizt að
því að þetta verk er óvinnandi
fyrir einn mann.
— Sem sagt, ónógur vinnukraft-
ur og fjármálin réðu úrslitum að
ég komst ekki lengra að þessu
sinni. Ég vil þakka öllum stuðn-
ingsmönnum mínum og það má
gjarnan koma fram, að ég hef
fullan hug á að berjast fyrir
þingsæti við næstu Alþingiskosn-
ingar, sagði Rögnvaldur Pálsson
að lokum.
Fyrsti fundurinn um nýtt
fiskverð haldinn í gær
FYRSTI fundur um nýtt
fiskverð var haldinn í yfir-
nefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins í gær. Að sögn
Jóns Sigurðssonar, for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar
og oddamanns yfirnefnd-
ar, var á fundinum farið
yfir ýmis atriði, sem ætla
má að aðilar séu sammála
um, en einnig voru á fund-
inum lögð fram frekari
gögn um stöðu veiða og
vinnslu. Næsti fundur í
nefndinni verður væntan-
lega haldinn á þriðjudag.
Morgunblaðið spurði Jón Sig-
urðsson hvort hann reiknaði með
að fiskverðsákvörðun drægist eins
lengi og síðast, en þá var fiskverð
það, sem taka átti gildi 1. marz,
ekki ákveðið fyrr en kom fram í
apríl. Jón sagði að stefnt væri að
því að ákveða fiskverðið á tilsett-
um tíma, þ.e. fyrir mánaðamót. Sá
tími kynni þó að reynast of
knappur.
Þá var Jón spurður hvort fisk-
verð yrði ákveðið án þess að til
kæmu aðgerðir ríkisvaldsins.
Hann sagðist ekkert vilja segja
um það mál, en sagðist telja að við
upphaf starfs yfirnefndar að
þessu sinni, hallaðist ekki eins
mikið á milli greina eins og 1.
marz. Hins vegar væri nú staðið
frammi fyrir miklum launahækk-
unum landverkafólks og sjómenn
gerðu kröfu um sömu launahækk-
un. Að því leyti væri fiskverðs-
ákvörðun erfiðari nú en þá.
Islenzkir læknar ætla
að gera opnar hjartaað-
gerðir í Landspítalanum
SJÚKLINGAR, sem þurft hafa
að gangast undir svokallaðar
opnar hjartaaðgerðir, hafa und-
antekningarlaust þurft að leita
sér lækninga erlendis ti) þessa.
Nú er hins vegar breytingar að
vænta í þessum efnum og Grét-
ar Ólafsson, yfirlæknir á
brjóstholsaðgerðadeild Land-
spitalans, segir m.a. i viðtali
sem birtist I Morgunblaðinu í
dag að stefnt sé að þvi að hefja
þessar aðgerðir á Landspitalan-
um þegar á næsta ári.
Það, sem komið hefur í veg
fyrir að hægt væri að fram-
kvæma þessar aðgerðir hér á
landi, er að hér hefur ekki verið
til svokölluð lungna- og hjarta-
vél ásamt fylgihlutum.
Grétar segir m.a. í viðtalinu
að stofnkostnaður við að flytja
þessar aðgerðir hingað til lands,
það er kaup á lungna- og hjarta-
vél ásamt fylgihlutum og þjálfun
starfsfólksins sé innan við 300
milljónir en á síðasta ári þurfti
ríkið að greiða um 200 milljónir
króna vegna sjúklinga, sem
þurfti að senda utan í aðgerðir,
svo það ætti því að vera öllum
ljóst hversu mikið hagræði væri
að því að flytja aðgerðirnar
hingað heim.
Það mun vera samdóma álit
hjartasérfræðinga á öllum
spítulunum að rétt sé að færa
þessar aðgerðir hingað til lands
og að sögn Grétars munu læknar
á Borgarspítalanum og Landa-
koti aðstoða við þessar aðgerðir
eftir atvikum.
Sjá nánar: „Augljóst
hagræði" bls. 12.
Kartöflugrös
upp úr norð-
firzkum görðum
Neskaupstaó, 23. maí.
EINSTÖK veðurblíða hefur verið
hér að undanförnu og hitinn verið
17—18 stig dag hvern og koppa-
logn. Menn byrjuðu snemma að
setja niður kartöflur og nú má sjá
á þó nokkrum stöðum hvar kart-
öflugrasið er komið upp. Öll tré
eru nú allaufguð og blóm komin í
sinn fegursta skrúða, meira að
segja bóndarósir eru komnar með
stóra og myndarlega knúppa, sem
ekki er algeng sjón á þessum
árstíma. Núna klukkan 16.00, hinn
23. maí 1980, sýnir hitamælirinn á
veggnum 22 stig í forsælu.
— Ásgcir.