Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980 13
Birgir ísl. Gunnarsson:
Um störf
Alþingi er gömul og virðuleg stoínun og starfið þar
mótast að mörgu leyti af hefðum og venjum, sem myndast
hafa í marga áratugi. Fyrir þann, sem kemur nýr inn á
þing, tekur nokkurn tíma að átta sig á starfinu. Smám
saman skýrist þó myndin og nýir menn taka eðlilegan þátt
í störfum þingsins. Ekki svo að skilja að þeir hljóti að vera
sammála öllum vinnubrögðum, sem þarna tíðkast. Hér fara
á eftir hugleiðingar um nokkur atriði, sem erfitt er að
sætta sig við í störfum Alþingis.
Verkstjórnin
Af hálfu ríkisstjórnar er í
allt of ríkum mæli litið á
Alþingi sem færibandastofn-
un. E.t.v. er þetta veikleiki
allra ríkisstjórna, en mín
þingreynsla nær aðeins til
þeirrar, sem nú situr. Ríkis-
stjórnin og fylgismenn henn-
ar ráða mestu um það, hvaða
mál eru tekin á dagskrá
hverju sinni. Verkstjórnin
ræður miklu um það, hvernig
meðferð mála dreifist á þann
tíma, sem þing situr. Þegar
Alþingi situr verklítið vikum
saman, þá er það vegna
lélegrar verkstjórnar við-
komandi ríkisstjórnar.
Þannig hefur þinghaldið oft
verið í vetur. A hinn bóginn
getur hvorki ríkisstjórn né
stuðningsmenn hennar ætl-
ast til þess, að þegar hin
stærri mál loksins koma til
meðferðar, þá séu þau af-
greidd á svo stuttum tíma, að
útilokað sé að alþingismenn
geti kynnt sér þau eins vel og
ætlast verður til.
Húsnæðis-
málafrumvarpið
Þannig var það t.d. með
frumvarpið um Húsnæðis-
málastofnun ríkisins, sem
um hefur verið deilt að
undanförnu. Það frumvarp
var lagt fram i Efri deild
Alþingis snemma í vetur.
Félagsmálanefnd deildarinn-
ar vann lengi að frumvarp-
inu og þegar það kom til
umræðu og afgreiðslu voru
gerðar á því miklar breyt-
ingar.
Það var fyrst sl. laugardag
að Neðri deild fékk málið til
meðferðar. Félagsmálanefnd
þeirrar deildar lauk athugun
sinni á málinu sl. þriðjudag
og þingmenn fengu nefndar-
álit og breytingatillögur í
hendur rétt fyrir kvöldmat á
miðvikudag. Ríkisstjórnin og
ýmsir þingmenn, sem hana
styðja, ætlaðist raunveru-
lega til þess að málið yrði
síðan drifið í gegn án nokk-
urra verulegra umræðna.
Auðvitað sættu menn sig
ekki við það og því var þess
óskað, að þingið fengi eðli-
legan tíma til meðferðar
málsins og að þingið stæði
fram yfir hvítasunnu, ef
málið ætti að fá afgreiðslu
nú. Við sjálfstæðismenn höf-
um alltaf verið reiðubúnir að
ganga til afgreiðslu á málinu
Alþingis
„Störf og vinnubrögð á Alþingi þurfa að breytast all mikið, ef
virðing Alþingis, sem þingmenn gjarnan tala um, á að ná út fyrir
sali þingsins.“
með eðlilegum hraða og það
er alveg óháð því, að efnis-
ágreiningur er um viss at-
riði. Stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar virtust hins-
vegar alveg reiðubúnir til
þess að leggja sig undir vilja
hennar í þessu efni.
Þingmenn fái ekki
mál sin afgreidd
En það eru fleiri atriði,
sem erfitt er að sætta sig við
í störfum þingsins. Mjög er
erfitt fyrir almenna þing-
menn að fá mál sín tekin til
meðferðar af einhverri al-
vöru. Fyrirspurnir til ráð-
herra hafa legið vikum sam-
an án þess að þeim fáist
svarað. Það telst til stór-
hátíða, ef einstakir þing-
menn fá tillögur sínar eða
frumvörp afgreidd — ég tala
nú ekki um ef þingmenn eru
úr hópi stjórnarandstöðunn-
ar. Mikilvæg mál eins og t.d.
utanríkismál fást heldur
ekki rædd nema helzt utan
dagskrár, en umræðu um
skýrslu utanríkisráðherra
var frestað og fæst sennilega
ekki tekin aftur til umræðu.
Viðjar flokksbanda
Hópstarf þingmanna í
flokkum er nauðsynlegt og
eðlilegt. Þó koma þingmenn
allt of oft fram sem ein blokk
og þá ekki sízt þingmenn
stjórnarliðsins. „Ég er hund-
óánægður með þetta mál, en
ætli ég verði ekki samt að
samþykkja það.“ Setningar
eins og þessar heyrast allt of
oft frá einstökum þingmönn-
um stjórnarliðsins — og
jafnvel í hinum smæstu mál-
um virðast menn ekki fá að
láta samvizkuna ráða. Viðjar
flokksbandanna reyra menn
allt of oft í fjötra.
Hvað var samþykkt?
Stundum eru mál einnig
látin fara í gegn án þess að
menn geri sér fulla grein
fyrir afleiðingum þeirra.
Flest frumvörp eru samin af
embættismönnum eða nefnd-
um. Of rík tilhneiging er til
þess að búa ýmis góð mál i
svo viðamikinn og flókinn
búning, að í rauninni veit
enginn hvað snýr upp og
hvað niður. Dæmi um þetta
er frumvarpið um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á
vinnustöðum. Með því frum-
varpi var ákveðið að setja á
stofn nýja ríkisstofnun, helj-
armikið bákn. Þó vissi þingið
í raun ekki hvað það var að
samþykkja, sem bezt sést á
því að þingmenn allra flokka
urðu sammála um að láta í
sumar gera úttekt á ýmsum
óljósum atriðum frumvarps-
ins. Þau atriði voru m.a.
gildissvið og framkvæmd
laganna, reksturskostnaður
hinnar nýju stofnunar o.fl.
Auðvitað átti Alþingi að gera
kröfu til þess að slíkt lægi
fyrir áður en málið var
samþykkt, en ekki eftir á. í
þessu efni vandaði Alþingi
ekki nægilega vel vinnubrögð
sín, en lét undan þrýstingi
áhugamanna um málið.
Virðing Alþingis
I ræðum sínum er þing-
mönnum tamt að tala um
virðingu Alþingis. Því miður
virðast fáir um það ræða
nema þingmenn, enda virð-
ast þeir nokkuð þurfa að
taka sig á til að virðingin
komist út fyrir sali þingsins.