Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 14

Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 skólaslit Mcnntaskólans í Kópavogi í gær en blaða- maður og ljósmyndari Mbl. litu inn á iokaæfingu i Kópavogskirkju í fyrra- kvöld. Þegar hlé varð á æfingunni gafst tóm til að ræða við tónskáldið unga. „Sex ára byrjaði ég að læra á blokk- flautu, en tók til við fiðluna ári síðar," segir Gunnsteinn. „Ætli ég hafi ekki verið um það bil tíu ára, þegar ég fór að semja fyrstu lögin. Ég gerði mér það til hægðar- auka við ljóðalærdóminn að semja lög og syngja ljóðin. Á táningaaldrinum spilaði ég á orgel með popphljómsveit og þar þurfti stundum að grípa í að semja. Haustið 1978 hóf ég síðan nám í tónsmíðum hjá Jóni Ásgeirssyni og það var eiginlega ekki fyrr en í vetur að ég byrjaði að semja af einhverri alvöru. strengjasveit, hefurður gert það áður eða lært til slíkra hluta? „Skólakórnum hef ég stjórnað seinni hluta vetrar- ins en aldrei lært kórstjórn. Hins vegar hefur Jón Ás- geirsson verið mér til halds og trausts við æfingarnar. Reynsla mín sem ritstjóri skólablaðs hefur komið sér vel því að á því lærir maður að sjálfsögðu að auðga tón- listarlífið. íslenzkukennarinn syngur einsöng Barytonsöngvarinn Steinþór Þráinsson syngur einsöng með kórnum. Hann kennir íslenzku við Mennta- skólann í Kópavogi og stund- ar jafnframt söngnám hjá Magnúsi Jónssyni, auk þess Sigurlaug Eðvaldsdóttir TONLISTARLIFIÐ Þórunn Guðmundsdóttir Rætt við 17 ára tónskáld og flytjendur tónverks eftir hann fyrir einsöngvara, kór og strengjasveit Frumflutningur tónverks eftir sautján ára mennta- skólanema heyrir til tíðinda. Gunnsteinn ólafs- son, nemandi við Menntask- ólann í Kópavogi hefur sam- ið tónverk við ljóð Steins Steinars, „Skóhljóð“, fyrir' einsöngvara, kór og strengjasveit. Frumflutn- ingur verksins fór fram við AÐ AUÐGA Gunnsteinn stjórnar kór og strengjasveit á lokaæfingu í Kópavogs- kirkju. verkstjórn. Að öðru leyti stjórna ég þessu samkvæmt eigin tilfinningum." Að ná hinum rétta tóni. Gunnsteinn ólafsson, tónskáld, ritstjóri og 17 ára nemandi i MK i hiutverki stjórnandans. —■ Hefur þetta verk verið lengi í smíðum? „Fyrir árshátíð skólans, sem haldin var í marz, samdi ég lag, sem kórinn flutti, og eftir það ákvað ég að semja annað verk og fékk leyfi skólameistara til að flytja það nú við skólaslitin. Æf- ingar hófust fyrir tíu dögum og hafa þær gengið ágætlega. Það er æðsti draumur hvers semjanda að heyra verkið sitt flutt og það er stórfeng- leg upplifun að heyra þetta flutt af góðum söngröddum með hljómsveit og öllu til- heyrandi. Framtíðardraumarnir — Steinþór Þráinsson Akureyri: Ný hljómsveit — Flugfrakt STOFNUÐ hefur verið ný hljóm- sveit á Akureyri, sem ber nafnið Flugfrakt. Hljómsveitina skipa 6 Akureyr- ingar: Sigfús E. Arnþórsson, sem spilar á hljómborð og syngur, Ingjaldur Arnþórsson, söngur og gítar, Hreinn Laufdal gítar, flauta og söngur, Jón Berg, trommur, Gunnar Sveinarsson, bassi og söngur, og Leó Torfason, gítar. Fjórir af meðlimum hljómsveit- arinnar hafa áður komið við sögu í ýmsum Akureyrarhljómsveitum. Hljómsveitin mun leika á almenn- um dansleikjum frá 1. júní. Finnsk doktorsritgerð: Gufuböð bráð- heilsusamleg Helsinki 23. maí Frá Harry Granberg, fréttaritara Mbl. ÞAÐ er heilsubót að því að stunda gufuböð og fólk sem hefur fengið hjartaáföll getur farið að hcfja gufubaðsiðkun á ný eftir tvo til fjóra mánuði án þess að nokkur umtalsverð hætta sé á ferðum. segir Olavi J. Laurila i Helsinki, en hann varði í gær doktorsritgerð um það að hvaða leyti gufuböð og likamleg áreynsla hefði áhrif á fólk sem er hjartaveilt. Hann komst að þcirri niðurstöðu að það væri tölfræðilega séð mun hættulegra að ýta bil, hlaupa hratt á eftir strætisvagni eða sippa. I allmörgum brezkum og ísraelsk- um rannsóknum hafa menn komizt að þeirri niðurstöðu að líkamleg áreynsla væri áhættuminni fyrir hjartasjúklinga en gufuböð, en finnskar rannsóknir sýna þveröfugt. Gufuböð geta í sumum tilvikum lækkað blóðþrýtsinginn en er þó ekki varanleg lækning. í gufuböðum eykst hjartsláttur, en þó er líkams- áreynslan ekki jafn mikil og við erfiðisvinnu. I doktorsritgerðinni var tekið skýrt fram að hins vegar væri stór varhugavert að neyta áfengra drykkja samhliða því að stunda gufuböð eða rétt eftir að komið er úr þeim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.