Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 15
syngur hann með kór Lang-
holtskirkju. Tildrög þess, að
hann syngur hér með nem-
endum sínum segir hann
vera þau, að á árshátíðinni í
vetur hreifst hann mjög af
lagi Gunnsteins og sagði
honum, að hann skyldi hafa
sig í huga næst þegar hann
semdi. „Um páskana sá ég
svo frumdrög verksins. Þetta
er skemmtileg reynsla að æfa
upp verk með höfundi og
finna hvernig það verður til,“
segir kennarinn.
Næst var Þórunn Guð-
mundsdóttir tekin tali. Þór-
■ unn er félagi í kórnum og
hefur sungið með honum í
þrjú ár, jafnframt því hefur
hún lagt stund á hljóðfæra-
leik við Tónlistarskólann í
Kópavogi. Þórunn er að út-
skrifast sem stúdent nú í vor
og ætlar í söngnám næsta
vetur til viðbótar við hljóð-
færaleikinn. „Það er mjög
gaman að syngja þetta verk
og sérkennileg tilfinning því
samfara að höfundurinn er
skólabróðir manns."
Að lokum hittum við Sig-
urlaugu Eðvaldsdóttur, sem
er konsertmeistari að þessu
sinni. Strengjasveitin er átta
fiðlur, tvær lágfiðlur og þrjú
selló. Sigurlaug stundar nám
í fiðluleik við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík.
„Maður leggur sig óneitan-
lega meira fram vegna þess,
að um er að ræða verk eftir
skólafélaga og öllu skiptir að
gera þetta sem stórkostleg-
ast. Þetta er mjög merkur
viðburður í tónlistarlífinu."
100-karlinn
seldist á
494 þúsund
HANN hefur heldur betur
hækkað í verði 100 króna
seðillinn frá 1928, sem boðinn
var upp hjá Klausturhólum sl.
laugardag. Seðill þessi, sem
var fyrsta útgáfa Landsbank-
ans, var sleginn á 494 þúsund
krónur með söluskatti svo að
seðillinn hefur nær fimmþús-
und faldast í verði á þessum
rúmu 50 árum.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980
15
Grigorenko:
Sovétríkin gera innrás
í V -Evrópu innan árs
„SOVETRIKIN munu
ryðjast inn í Vestur-
Evrópu fyrir árið 1981,“
staðhæfir Pjotr Grigor-
enko, fyrrverandi hers-
höfðingi og stríðshetja í
Sovétríkjunum, sem nú er
búsettur í Bandaríkjunum
og hefur verið á ferðalagi
um Evrópulönd, eins og
frá hefur verið sagt.
Grigorenko byggir spádóm
sinn um sovézka árás á Evrópu
fyrir 1981 á þeim umfangsmiklu
hergagna- og mannflutningum,
sem hafi verið í Tékkóslóvakíu í
allt vor undir stjórn sovézka
hershöfðingjans Michailovitch
Mairov. Grigorenko telur að sov-
ézku herfylkin geti farið yfir
Vestur-Þýzkaland á þremur
klukkustundum og bar hann í
raun saman innrás Sovétmanna
í Afganistan við innrás Hitlers í
Tékkóslóvakíu 1938.
Hann segir að Rússar láti til
skarar skríða þar sem sé óeining
og þeir telji að veikar varnir séu
fyrir. Þeir fylgi mjög afgerandi
stefnu í hermálum og hafi þegar
tryggt sér það mikil ítök í
ýmsum Afríkulöndum að þeir
gætu náð á sitt vald öllum
sjóleiðum kringum álfuna.
Grigorenko
Fékk Svalbarðaselur hundaæði?
Ósló 23. maí Frá Jan Erik Laurie
NORSKA dýralæknisstoínunin
i Ósló hefur nú til rannsóknar
sel frá Svalbarða sem kann að
hafa smitast af hundaæði. Ef
selurinn reynist vera með sjúk-
dóminn er það í fyrsta skipti
sem selur hefur fengið hunda-
æði.
Á Svalbarða fengu menn
grunsemdir um hundaæði í seln-
um vegna sérkennilegrar hegð-
unar viðkomandi sels. Var hann
því sendur til áðurnefndrar
rannsóknar.
wm
!%'®SS!V
SEÐLABANKI
ISLANDS
TRYGGING
CS
N-UVj
Verðtrygging í framkvæmd
Grunnvísitala verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í
1. fl. 1980 er lánskjaravísitala maímánaðar,
,sem er 153 stig.
Ný lánskjaravísitala hefur nú verið reiknuð út fyrir
júnímánuð og er hún 160 stig, sem samsvarar
4,58% hækkun.
Spariskírteinin í 1. fl. 1980 verða þar af leiðandi
aðeins seld á nafnverði til n. k. mánaðamóta, en í
júnímánuði verða þau seld með ofangreindu álagi á
höfuðstól og áfallna vexti.