Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 Margur hefur haft orð á því við mig á þessum síðustu dögum að þeim þyki limrur og glerhús skemmtilegur vísnaleikur. Og víst er þar margt nýstár- legt og slegið á létta strengi. En gamla stakan stendur jafnan fyrir sínu. Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum er meðal okkar allra snjöllustu hagyrðinga, — eða eigum við að segja skálda vísunnar: Lengi hafið bátinn ber bili ekki neglan. Góðu dæmin gefur mér Goodtemplarareglan. Lýðurinn eltir lögin blind, leynir eðli sjúku. Frelsarinn var fyrirmynd, fór þó ekki í stúku. í síðasta Vísnaleik og þeim næst síðasta var lagður grunnur að hálfu glerhúsi Þorsteins Gylfasonar: Páll og Þóra Melsteð voru meira en vel séð. KK botnar: Alltént það vel að þeim varð ekki um sel. Guðbjörg Tómasdóttir botnar: Valinkunn þau vísu hjón og viröuleg í sjón. Og: Einn og sama áttu beö svo árum skipti var mér téö. Þorsteinn Jónsson: Vönduð bönd þau bundu bæöi aö hinztu stundu Hallur undan Fæti: Þegar á henni var sá gáll var Þóra séðari en Páll. Þorsteinn Gylfason hefur aftur á móti glerhúsið þannig: Páll og Þóra Melsteð voru meira en vel séð. í „Mannkynssögu" þegir Páll um hinn og þenna fólann og Þóra stofnaöi Kvennaskólann. Þorsteinn Gylfason hefur látið mikið 4. að sér kveða að undanförnu. Eitt síðasta framtak hans og gagnmerkt raunar er „Fjórtánlínungur eftir fjórtán skáld“, er birtist ’í Lesbókinni hinn 17. maí. Þor- steinn notar fornfrægt form, cento, þar sem því bragði er beitt að raða saman ljóðlínum kunnra skálda. Til þess að þakka honum lítillega þetta ágæta ljóð, sem endar svo: Sú heimsvon öll, sem barmur manns- ins ber, þaö boröar hana dalakindin svaung, tileinkar vísnaleikur honum þessa limru (eða gefur honum að kvæðislaunum): Okkar samfylgd meö sauðum er löng. Og síðar í menningarþröng ekki hungruð að kalla vora heimsvon alla sem hey borðar dalakind svaung. Eiríkur Eiríksson frá Dagverðargerði er einn af mörgum vinum vísnaleiksins. Af hans hendi hefur mér borizt í hendur „landshagskýrsla 1. ársfjórðungs 1980 gerð eftir bestu heimildum, sem völ er á, hverjar eru Þjóðviljinn og síðdegisblöð- in, einkum Helgarpósturinn, enn fremur Kastljós sjónvarpsins og Nýjasta tækni og vísindi": 1. Lækkar óöum landsins hagur lýönum þykir hart í ári yfir dynur aldaslagur allt er sjúkt af vinstra fári. Ólafslögin einskis virði ytra þyngist greiðslubyröi. 2. Kjörin rýrna, kostir haröir, krónan dýpra niöur sígur. Orkuþurrð um allar jaröir olían í veröi stígur. Kvikuhlaupin Kröflu spilla komin örg í dæmið villa. 3. Útvegsbænda aukast skuldir óöum gengið niöur hrynur. Hroðin mið og harmar þuldir. Hafrannsóknaflokkur stynur. Illar horfur eru mála yfirgefa þorskar ála. Bændur erja kaldan klaka kjötfjallanna undir fargi. Offramleiðsla. Alla þjaka úrræöi í málaþvargi. Feitmetinu flestir hafna fáir vilja spiki safna 5. löjuhöldar undir taka aldarsöng og berja lóminn. Brotnum vögnum beygðir aka brýna gogg og hækka róminn. Fyrirtækin fara úr skorðum falls er von af þeirra borðum. 6. Kúltúrliöið kvelur mæða kveinar sárt af neyðarkjörum. Löng er ferö til listahæða lífshlaup þrýtur í þeim förum. Möppudýrin mola tína mönnum tvenna heima sýna. 7. Tæknifróðir tölvur þreyta, tíma góöa sjá meö ráðum. Hagræða og hönnun breyta, hjálpræði mörg eygja bráöum. Tæta ull úr sjávarsandi segja þegar arðberandi. 8. Bjarmar fyrir betri dögum, brautir greiðar sjást í anda. Auögast þjóð og ypptir högum. Alkóhólið leysir vanda, vínsmá orka vanga knýja veröstuöla mun reisa nýja. Eiríkur Eiríksson. Eitt lítið orð var skakkt hjá mér í síðustu limru og er KK beðinn velvirðingar, — því að engu má skeika: „Ég legg,“ mælti Gróa á Leiti, „mitt lostfagra höfuð í bleyti. Þótt ég anni ekki kvööum frá útvarpi og blööum, þér ann ég með fyrirheiti." Og svo fer vel á því, að Ijúka þessum leik með tveim stökum eftir Eirík frá Dagverðargerði. Sú fyrri ber yfirskrift- ina. „Stjórnarsáttmáli 8. febrúar 1980. Loforð": ... vora heimsvon alla sem hey boröar dalakind svöng. Gildum skal hér sjóðum safna, sinna velferö allra þegna, kosti bæta, kjörin jafna, kæta þá, sem lítils megna. Ef marka má ummæli forsætisráð- herra í sjónvarpi fyrir skömmu varð lítillæti hans ekki skilið á annan veg en að þetta væri löngu komið í kring. En nú gef ég Eiríki aftur orðið: „Efndir, sbr. ræðu Vilmundar Gylfasonar á Alþingi 31. marz: Gengið lækkar, gliðna þekjur, glapstígur að völdum farinn. Skuldir hækka, skertar tekjur, skrumi og mælgi svikin varin. Ekki verður meira kveðið að sinni. Halldór Blöndal. Limran Af ástæöum ótilgreindum, ef til vill flóknum leyndum, hann gat ekki pissaö, þaö gjöröi oss svo hissa aö vér gátum ei heldur, sem reyndum. K.K. Hjördis borsteinsdóttir, forseti íris (t.v.) og Jean Hudson varaforseti Alþjóóasam bands málfreyja. Málfreyjudeildin íris meðlimur í Alþjóðasamtökum málfreyja STOFNSKRÁRFUNDUR Mál- freyjudéíldarinnar íris í Hafnar- firði var haldinn laugardaginn 12. apríl s.l. að Hótel Heklu og hófst kl. 20.00. Stef fundarins var: „Ræðan er silfur en þögnin er gull“. Heiðursgestir fundarins voru Jean Hudson varaforseti V.svæðis Alþjóðasamtaka Málfreyja, Stef- án Jónsson forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og frú og Erla Guðmundsdóttir, stofnandi Mál- freyjudeildarinnar Vörðunnar í Keflavík. Hjördís Þorsteinsdóttir forseti Málfreyj udeildarinnar íris setti fundinn og bauð gesti velkomna. Elísabet Maack Thorsteinsson kynnti gesti og félaga en Krist- jana Milla Thorsteinsson flutti hvatningu. Þá hófst borðhald, en dagskrá var í umsjá Margrétar Sigbjörnsdóttur og Sólveigar Ágústsdóttur. Ávörp voru flutt frá öðrum málfreyjudeildum og einn- ig flutti Jean Hudson ræðu. Stefán Jónsson, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar óskaði Málfreyju- deildinni íris heilla og færði deildinni blómakörfu frá bæjar- stjórn Hafnarfjarðar. Frú Jean Hudson afhenti síðan Hjördísi Þorsteinsdóttur stofn- skrána sem er vottur þess að deildin sé nú fullgildur aðili að Alþjóðasamtökum málfreyja (Int- ernational Toastmistress Clubs). Hjördís Þorsteinsdóttir flutti þakkarorð en lokaorð flutti Guð- laug Elísa Kristinsdóttir. (Fréttatilk. frá Upplýs- ingancfnd Fyrsta Ráðs Málfreyja)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.