Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 Bjartmar Kristjánsson: Handbókarmálið Nokkrar athugasemdir Vestmanna- eyingar „lána“ prestsembætti til Þorláks- hafnar Á aðalsafnaðarfundi Landa- kirkju i Vo.stmannaeyjum s.l. sunnudag var eftirfarandi sam- þykkt einróma: „Með hliðsjón af fenginni reynslu og umræðum í söfnuði Landakirkju á undanförnum ár- um mælir aðalsafnaðarfundur, haldinn í Landakirkju sunnudag- inn 18. maí 1980, að annað prestsembættið í Vestmannaeyj- um væri lánað til þjónustu í Þorlákshöfn, þar til öðru vísi verður ákveðið. Enda tryggt, að þá verði söfnuði Landakirkju þjónað í lögbundnum leyfum og hugsanlegum forföllum sókn- arprestsins. Lýsir aðalsafnaðar- fundur fyllsta stuðningi við er- indi biskups til safnaðarins í bréfi dagsettu 8. maí 1980.“ Jóhann Friðfinnsson formaðursóknarnefndarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að ekki hefði tekizt að fá prest í annað prestsemb- ættið í Eyjum sl. þrjú ár þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar. Hefði því orðið að ráði að lána embættið til Þorlákshafnar, sem væri ört vaxandi bæjarfélag og með nýja kirkju í byggingu. Daglegar ferðir væru milli Þor- lákshafnar og Vestmannaeyja og gæti presturinn í Þorlákshöfn því með góðu móti leyst af prest Vestmannaeyinga í lögboðnum fríum hans og forföllum. Væri á þann hátt tryggt að presturinn gæti tekið sín lögboðnu frí, sem hefði reynzt erfiðleikum bundið til þessa. Hvað Jóhann þetta góða skipan mála, þar til annað yrði ákveðið. Bjóst hann við því að prestsembættið í Þorlákshöfn yrði auglýst í sumar. Nýverið hefir handbókarnefnd sent frá sér greinargerð fyrir tillögum að nýrri helgisiðabók fyrir íslenzku kirkjuna, eftir dr. Einar Sigurbjörnsson, formann nefndarinnar. Greinargerðin er skrifuð af miklum lærdómi, en er varla að sama skapi skemmtilegt lestrar- efni. Þarf talsverðan viljastyrk til þess að pæla í gegnum lesninguna. Andi sautjándu aldar svífur þarna yfir vötnunum, svo sem vænta mátti. Á bls. 10 gefur að líta eftirfarandi: „Guð allsherjar, sem syndin er brot gegn, hlýtur að eiga fullan rétt á að refsa þeim mönnum, sem í breytni og hugsun rísa upp gegn honum ... Hinn ógnþrungni dauðdagi Guðs sonar- ins á krossinum sýnir, að Guð þyrmir lífi uppreisnarmannsins og lætur refsinguna bitna á hinum saklausa, á syninum." Dáfalleg hugmynd atarna, um réttvísi Guðs! Hverjum tilgangi svona spjall þjónar í sambandi við gerð nýrrar helgisiðabókar, skil ég ekki. Þykist þó sjá þarna viss teikn á lofti. En það vil ég segja, að vilji sú ágæta handbókarnefnd koma saman viðunanlegri helgisiðabók fyrir kirkjuna, verður hún að forðast eins og heitan eldinn að setja á hana mark sérstakrar guðfræði- stefnu. (Allar lbr. B.K.). Hnýtt í núgild- andi helgisiðabók Handbókinni frá 1934 er margt til foráttu fundið, meðal annars það, að hún sé ein elzta helgisiða- bók veraldar! Segir dr. Einar, að vinsældir hennar séu þó ekki í réttu hlutfalli við aldurinn. En svo kemur það upp úr dúrnum, þegar nefndin fór að kanna hugi presta til handbókar-draga biskups og til endurskoðunar helgisiða yfirleitt, að þá hafi „afrakstur könnunar- innar orðið fremur rýr“. Sagt er, að „nokkur vilj i“ sé þó innan stéttarinnar fyrir því að hreyfa handbókarmálinu. Ekki kemur þetta alls kostar heim og saman, nema prestar óttist það að sízt verði breytt um til batnaðar, eins og nú standa sakir. Skírnarformálinn Höfundi greinargerðar finnst það afskaplega slæmt í handbók 1934, að svo megi skilja, að „barnið sem borið er til skirnar, Bjartmar Kristjánsson nýtur þess fyrirfram að vera barn Guðs og hlýtur þar af leiðandi enga nýja stöðu við skirnina umfram þá, sem það hafði áður“. Þá segir hann, að barnið sé merkt krossinum (og „merkingin kynnt) á fremur ópersónulega embættisvísu (sem hugsanlega lýsir allóevangelískum embætt- isskilningi)". Hver skilur þetta? Orðin, sem hin undarlega lýsing á við eru þessi: Ég helga þig Kristi með tákni hins heilaga kross, bæði á enni og brjóst, til merkis um að hugur þinn og hjarta á að helgast fyrir trúna á hann. Fyrst er þess að geta, að biskup gerir litla breytingu á þessu orða: lagi í handbókar-tillögum sínum. í öðru lagi vil ég spyrja, hvort betur verði að orði komizt en það, að barnið sé helgað Kristi? Er það ekki einmitt höfuðatriði skírnar- innar? Að sjálfsögðu er barnið, þegar við fæðingu, eða öllu held- ur strax i móðurlifi, barn Guðs. En i skirninni er það helgað Kristi og tekið inn í söfnuð hans. En það telur dr. Einar „enga nýja stöðu við skirnina“. Þá rekur höfundur greinargerð- ar hornin í það, að í nefndri handbók sé litið á skírnina sem blessun. Ég man ekki betur en séra Friðrik Friðriksson teldi það eina mestu blessun í lífi sínu, að hann hlaut heilaga skírn strax nýfæddur. En ekki er allt búið enn. Dr. Einar vill ekki líta á Faðir vor sem fyrirbæn fyrir barninu vegna þess, að með það er farið í lok skírnarathafnar, heldur nefnir hann það: „Blessandi for- múlu“, og þykir sýnilega lítið til koma. Það er ekki einleikið, hvað þessum ágæta manni virðist vera lítið gefið um blessunina. „Undarleg beiðni“ Nefndarformaður talar um, að bænin fyrir barninu og uppalend- um þess endi á „afskaplega undar- legri beiðni um að Drottinn blessi kirkju sína, svo að frá henni stafi helgandi kraftur til ungra og gamalla". Það virðist einkum vera þetta með „hinn helgandi kraft" innan kirkjunnar, sem honum finnst „afskaplega undarlegt“ uppátæki að biðja Drottin um. Já, það eru nú meiri undarlegheitin, að beðið sé fyrir kirkjunni um leið og hún fagnar nýjum einstaklingi í sinn hóp! Trúarjátningin Nokkuð er farið að bera á því, að prestar fari með trúarjátninguna í venjulegri helgidagamessu. Mun það vera undanfari „þess, sem koma skal“. Er svo líka ráð fyrir gert hjá handbókarnefnd. Þetta tel ég sízt til fagnaðar, bæði vegna þess að engin ástæða er til að vera sífellt að þylja trúarjátninguna. Það verður leiði- gjarn lestur og er hæpin styrking trúarlífsins. Hin rétta trúarjátn- ing kristins manns á að koma fram í dagfari hans og breytni, ekki þulu, mæltri af munni fram. Og í annan stað er trúarjátningin ekki það listaverk, að henni sé haldandi á loft meir en nauðsyn krefur. Mér koma í hug orð dr. theol. Magnúsar Jónssonar, sem ég vil gera að mínum. Hann segir, að postullega trúarjátningin hafi staðizt bezt af hinum fornu játn- ingum kirkjunnar, af því að hún er stytzt og einföldust. „En hvernig er nú högum hennar komið? Sumt í henni er sígilt, og geta allir haft það yfir með sömu einlægni enn í dag og var fyrir mörgum öldum. Annað er þess eðlis, að menn sætta sig við orðalag þess með því að leggja inn í það aðra merkingu en upphaflega var í því. Enn Blæösp Það þóttu nokkur tíðindi árið 1910 þegar blæösp fannst í fyrsta sinn hér á landi utan í jökulöldum neðan við bæinn Garð í Fnjóska- dal. Þessi trjátegund hafði aldrei fundist áður hér á landi og menn væntu þess ekki að hún væri hér. Að vísu voru þetta ekki tré, aðeins niðurbitnir, skriðulir runnar utan í og á gömlum rofabörðum og skrælþurrum melhólum. Var ýms- um getum að því leitt, hvernig öspin hefði komist á þennan stað. Sett var upp girðing umhverfis fundarstaðinn og á næstu árum breiddist hún nokkuð út en óx ekki á hæðina sakir snjóþyngsla, að því er talið var, en grunur lék á að geitur, sem þá voru víða um þær mundir, hafi klippt ofan af þeim. Svo gleymdist þessi asparfund- ur að mestu um margra ára skeið, en nokkrir menn létu sækja þang- að rótarskot til að reyna öspina. En fyrir og eftir 1950 finna menn blæösp á smáblettum á fjórum stöðum á Austurlandi, við Gests- staði í Fáskrúðsfirði, Egilsstaði á Völlum, í Jórvík í Breiðdal og í Stöðvarfirði. Hvarvetna var hún lágvaxin, skriðul og bitin af sauðfé nema á Egilsstöðum. Þar var hún innan um þétt birkikjarr á tveim klapparásum, og einn asparstofn var kominn á fimmta metra á hæð, en nokkrir aðrir litlu lægri. Af mörgum ástæðum er það nær ómögulegt að öspin hafi vaxið hér á landi allt frá ísaldarlokum eins og t.d. birkið. Ef svo» hefði verið hlyti hún að vera miklu víðar ásamt því að fundarstaðir hennar hefðu verið margfalt víðlendari. Öspin hefur mjög víðskriðular rætur og upp af þeim vaxa ný tré, oft langa vegu frá móðurinni. Fræin eru örsmá og með svifhárum, líkust litlum dún- hnoðra, og þau geta borist óravegu með vindi og loftstraumum. Sakir rótarskota er nær óhugsandi að uppræta ösp með beit þegar hún hefur komið sér vel fyrir' á ein- hverjum stað eins og t.d. hefur átt sér stað við Garð í Fnjóskadal, þar sem bæði geitur og sauðfé hafa legið yfir henni og í henni um tugi ára áður en hún fannst. Með því að fundárstaðir asp- anna eru allir litlir ummáls er jafnvel hugsanlegt að aspirnar hafi vaxið út frá einni og sömu plöntunni á hverjum stað í upp- hafi. Svo virðist og við skoðun á öspinni á fundarstöðunum sem hún gæti verið nokkuð jafnaldra á þeim öllum, en þetta mætti at- huga nánar. Allar líkur virðast benda til þess, að blæöspin muni hafa borist hingað með háloftsstraumum frá Norðurlöndum einhverntíma á síðari öldum, ef til vill fyrir eða eftir aldamótin 1800. Blæöspin vex um alla norðan- verða Evrópu og langt austur um Sibiríu, víða við svipuð veðurskil- yrði og björkin okkar. Hún var meðal þeirra fyrstu trjátegunda, birkis, elris, og skógarfuru, sem breiddu feld sinn yfir löndin þegar jöklar ísaldarinnar hopuðu norður á bóginn. Ef hún hefði lifað ísaldirnar af hér á landi, væri hún vafalaust enn á jökulaurum landsins, alveg á sama hátt og hún fylgir ám og vatnsdrögum um norðurhluta Noregs. Slík lönd eru kjörlendi blæaspar ásamt raklendum hlíðum. En hún vex miklu víðar, jafnvel á þurrum holtum, en á þeim verður hún aldrei annað en runnur, svipað og við Garð í Fnjóskadal. Á það var minnst, að fáeinir menn hefðu tekið rætur af Garð- öspinni heim til sín nokkru eftir að hún fannst fyrst. Meðal annars var tveim rótarskotum plantað sunnan við bæinn á Hallbjarnar- stöðum í Reykjadal. Þau hafa vaxið upp fyrir gafl hússins og þekja alla suðurhlið þess. Að vísu eru trén nokkuð kræklótt en stofnarnir gildir vel. Þá var og flutt ösp frá Garði að Hofi í Vatnsdal. Hún átti erfitt upp- dráttar framan af því að heim- alingar héldu henni niðri. Samt breiddust ræturnar út og þegar landið fékk algeran frið uxu rót- arteinungar úr grasi svo að nú er þar mjög fallegur asparlundur um 4—6 metra á hæð. Ennfremur voru rótarangar fluttir að Múla- koti árið 1937 og settir þar upp í brekkur. Þeir voru lengi að búa um sig en teygðu sig til allra átta. Eftir svo sem 20 ára skriðtíma fór fjöldi stofna að vaxa upp á við svo að nú er þar komin 2—3 m há aspargræða á fáum árum. Fyrir nær 20 árum voru aspar- teinungar frá þrem stöðum, Garði, Egilsstöðum og Gestsstöðum, gróðursettir í þrjár rásir á Hall- ormsstað. Þeir voru nokkuð lengi að komast í vöxt, en nú eru þar nokkur tré frá hverjum stað Hákon Bjarnason Prýdum landió-plontum tijám' komin á legg og vaxa vel. Nokkur sjónarmunur er á laufgun og lauffalli þessara þriggja kvæma, og ennig er ofurlítill munur á blaðlögun þeirra. Þá skal þess og getið, að blæösp var flutt að Grund í Éyjafirði á fyrstu árum aldarinnar og var hún gróðursett efst í trjárækt- arstöðina, sem þeir Flensborg og Ryder komu á fót árið 1900. Þessi ösp kom frá Jótlandi. Um fjölda ára fór lítið fyrir henni en svo uxu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.