Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980 23 Rudolf Serkin á einleikstón- leikum í Þjóðleikhúsinu í dag PÍANÓSNILLINGURINN heims- frægi, Rudolf Serkin, kom hingað til lands i gærmorgun, en í dag leikur hann á einieikstónleikum i Þjóðleikhúsinu. Ágóði af einleiks- tónieikunum verður stofnfé í sjóði, sem Tónlistarfélagið er að stofna um þessar mundir, en hlutverk hans verður að styrkja ungt, efnilegt tóniistarfólk til framhaldsnáms erlendis. í stuttu viðtali við Morgunblaðið í gær sagði Rudolf Serkin m.a.:„Eg er mjög ánægður yfir því að vera kominn hingað enn einu sinni. Ég á hér svo marga vini, en að vísu eru sumir farnir, menn eins og Ásgrím- ur Jónsson, Kjarval og Páll ís- ólfsson, en ég hlakka alltaf jafn- mikið til að hitta Ragnar Jónsson, Halldór Laxness og Árna Krist- jánsson á ný.“ Serkin var spurður um hvað væri fram undan hjá honum og hvaða áhrif hann teldi að aldurinn hefði haft á list hans, en hann er nú 78 ára að aldri: „Ég er enn að læra, og stundum þegar ég lít um öxl og ber saman það sem ég geri nú og það sem ég gerði fyrir mörgum árum þá á ég bágt með að skilja hvernig ég hef nokkurn tíma farið svona heimsku- lega að. En þetta er eðlilegt, og ég er sáttur við það sem ég hef gert, af því að ég hef reynt að gera allt samkvæmt beztu vitund á hverjum tíma. Nú er ég að vinna að verkefni, sem mig hefur dreymt um að vinna í herrans mörg ár. Ég ætla að leika alla píanókonserta Mozarts inn á hljómplötur með London Symph- ony Orchestra, stj. Claudio Abaddo. Eftirlætistónskáld? Ég veit ekki — líklega það tónskáld sem ég er að leika eftir hverju sinni. Vinur minn einn, þýzkur rithöfundur, sem hef- ur miklar mætur á tónlist og skrifar um tónlist, hefur skrifað J Rudolf Serkin um Bach og Mozart, að fyrir honum sé Bach eins og himnaríki, en Mozart eins og paradís. Það er nokkuð til í þessu, býst ég við.“ í för með Serkin eru sjö banda- rískir tónlistarmenn, þar á meðal kona hans, Irene, og Judith, dóttir hans, sem var í Sinfóniuhljómsveit íslands einn vetur ekki alls fyrir löngu. Heimsóknin er í tilefni hálfrar aldar afmælis Tónlitarskól- ans en hópurinn heldur kammer- tónleika á vegum Tónlistarfélags- ins í Háskólabíói nk. þriðjudags- kvöld. Á verkefnaskrá þar verða kvartettar eftir Haydn og Mozart og píanókvintett í Es-dúr eftir_ Schumann, þar sem Rudolf Serkin leikur á píanóið. Á tónleikunum, sem hefjast kl. 15 í Þjóðleikhúsinu í dag leikur Serkin ítalska konsert- inn eftir Bach, Tilbrigði og fúgu Max Regers um stef eftir Bach og Waldstein-sónötuna eftir Beet- hoven. Þetta gerðist V erkfallsheim- ild gegn ÍSAL Stéttarfélögin krefjast 13% grunnkaupshækkunar 1977 — Nikolai Podgorny for- seta vikið úr sovézka stjórn- málaráðinu. 1976 — Concorde-flug hefst til Washington í tilraunaskyni. 1968 — Charles de Gaulle bjarg- ar stjórn sinni með umbótum. 1964 — 300 fórust í knatt- spyrnuóeirðum í Lima, Perú. 1%2 — Scott Carpenter fer þrjá hringi um jörðu og verður annar bandaríski geimfarinn. 1941 — Þýzka orrustuskipiö „Bismarck" sökkti brezka orr- ustubeitiskipinu „Hood“ á Norður-Atlantshafi nálægt íslandi og 1.300 fórust. 1910 — L. Starr Jameson stofn- ar Sambandsflokkinn í S-Afríku. 1900 — Bretar innlima Óraníu- fríríkið í Suður-Afríku. 1890 — ítalir gera yfirráða- svæöi sín við Rauðahaf að ný- lendunni Erítreu. 1844 — Samuel Morse sendir þráðlaus boð milli Washington og Baltimore. 1822 — Orrustan um Pinch- incha. 1639 — Biskupastríðin hefjast i Skotlandi með bardaganum við Turriff. 1612 — Danir taka Elfsborg og Gullberg af Svíum í Kalmar- ófriðnum. 1567 — Eiríkur Svíakonungur myrðir aðalsmenn sína. Afmæli — Jean-Paul Marat, franskur byltingarmaður (1743-1793) - Viktoría Breta- EGYPZKIR kjósendur sam- þykktu í þjóðaratkvæði með nær öllum greiddum atkvæð- um tillögur um breytingar á stjórnarskránni, meðal ann- ars á þá leið að Anwar Sadat verði forseti til lífstíðar. Samkvæmt opinberum töl- um voru breytingarnar sam- þykktar með 98,96% greiddra atkvæða eða 10.339.055 at- kvæðum, en 1,04% eða 108.657, greiddu atkvæði á móti. Kaíró-útvarpið segir að 10.467.442 af 12.038.462 kjós- enda hafi greitt atkvæði. Það sagði að 19.730 atkvæði hefðu verð ógild. Úrslitin eru talin trausts- yfirlýsing við Sadat á sama tíma og viðræðurnar við drottning (1819—1901) — Sir Arthur W. Pinero, brezkur leik- ritahöfundur (1855—1934) — Jan Christiaan Smuts, suður- afrískur stjórnmálaleiðtogi (1870-1950) - Bob Dylan, bandarískur söngvari (1941—) Andlát — 1543 Nikolaus Cop- ernicus, stjörnufræðingur — 1959 John Foster Dulles, stjórn- málaleiðtogi — 1974 Duke Ell- ington, tónlistarmaður — 1212 Dagmar Danadrottning. Innlent — 1901 Samningur Dana & Breta til 50 ára um landhelgina — 1309 d. Kolbeinn Auðkýlingur — 1798 d. Sigurður bp. Stefánsson — 1837 f. Sigfús Eymundsson — 1870 „Det is- landske handelssamlag" stofnað í Noregi — 1881 Benedikt Sveinsson hefur endurskoðunar- baráttuna (á kjörfundi á Foss- völlum) — 1932 Bolungarvíkur- deila — 1958 Útfærsla í 12 mílur samþykkt í ríkisstjórn — 1959 Þrír fórust með sjúkraflugvél á Snæfellsnesi — 1968 Sýningin „íslendingar & hafið" opnuð — 1973 Mótmælafundur gegn Bret- um. Orð dagsins — Ef mannkynið hefði óskað sér þess sem rétt er, kynni því að hafa hlotnazt það fyrir löngu — William Hazlitt, enskur rithöfundur (1778— 1830). ísraelsmenn um heimastjórn Palestínumanna eru komnar í sjálfheldu og almenn óánægja ríkir með 30% verðbólgu. Samkvæmt öðrum breyting- um á stjórnarskránni á löggjöf landsins aðallega að grund- vallast á islömskum lögum, margra flokka kerfið verður lögfest, leyft verður að koma á laggirnar ráðgjafanefnd for- seta og áhrif blaða verða aukin. UTANRÍKISRÁÐHERRA Nor- egs, Knut Frydenlund, og Ivan Kristoffersen, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuiieýtinu, fóru í STÉTTARFÉLÖGIN, sem aðild eiga að kjarasamningunum við íslenzka álfélagið hafa nú fengið heimild til þess að boða vinnu- stöðvun. en undanfarið hafa stað- ið yfir daglegir samningafundir, en ekki miðað í átt til samkomu- lags. Krafizt er 13% grunnkaups- hækkunar, auk annarra lagfær- inga á samningunum. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um verkfallsboðun. Þegar hafa verið haldnir fundir með öllum starfshópunum hjá ÍSAL og ennfremur hafa fundir verið haldnir í trúnaðarmanna- ráðum stéttarfélaganna, sem hlut — Mín persónulega skoðun er sú, sagði Markús Orn, að þarna séu á ferðinni tækninýjungar, sem leiða það enn betur í ljós hvað það er fáránlegt að ríg- halda í þennan einkaleyfisrekst- ur ríkisins á útvarpi og sjón- varpi. Það er miklu nær að aðlaga lögin um útvarps- og sjónvarpsrekstur að tækninni heldur en að aðlaga tæknina að lögunum, sem sett voru löngu dag til Kaupmannahafnar til að ræða um ákvörðun Dana varð- andi 200 milna útfærsluna við Grænland. Reglugerð Dana mun taka gildi þann 1. júní og það er sérstaklega eiga að samningunum, hafa fengið vinnustöðvunarheimild. Auk grunnkaupshækkunarinnar, sem áður er nefnd, er farið fram á flokkatilfærslur, en hingað til hefur öllum kröfum um launa- hækkanir verið neitað. Þá hefur í samningaviðræðunum einnig ver- ið fjallað um bónusmál, ef fram- leiðsla fyrirtækisins eykst. Koma þar ýmsir áhrifaþættir til greina, svo sem eins og rafmagnsnotkun, súrálsnotkun, raflausnarefnis- notkun og framleiðsla, sem allt gæti gefið bónus. Síðasti sáttafundurinn, sem haldinn hefur verið í þessari kjaradeilu var haldinn á föstudag. áður en þessar miklu tækni- framfarir urðu. — Ég sá það um daginn í fréttapistli frá Noregi að aðal- forstjóri Norska útvarpsins, Thofal Elster hefði verið að leggja fram skýrslu og m.a. komið inn á þennan punkt að einkaleyfi Norska ríkisútvarps- ins yrði örugglega ekki til staðar eftir 10—15 ár. Menn yrðu ein- faldlega að laga sig að breyttum aðstæðum. varðandi miðin úti af strönd Austur-Grænlands sem Norð- mönnum er hugleikið að fjalla um, en þar munu skerast norsk og grænlenzk lögsaga. Veður víða um heim Akureyri 17 skýjaö Amsterdam 16 heiðskírt Aþena 25 heiöskírt Barcelona 19 léttskýjaó Berlín 14 heióskírt BrUssel 17 heióskírt Chicago 30 skýjað Denpasar 30 skýjaö Dublin 13 skýjaó Feneyjar 14 aiskýjað Genf 17 heiöskírt Helsinki 27 rigning Hong Kong 30 heióskírt Jerúsalem 22 heióskírt Jóhannesarborg 19 heiðskfrt Las Palmas 22 léttskýjaó Lissabon 22 heióskírt London 15 skýjaó Los Angeles 18 skýjaó Madríd 21 heióskirt Malaga 21 mistur Mallorca 21 lóttskýjaó Miami 29 skýjaó Mexicoborg 25 heiðskírt Moskva 9 heiöskírt New York 29 heiöskirt Nýja Delhi 40 heióskirt Ósló 17 heióskirt París 20 heióskírt Reykjavík 12 iógþokub. Rio de Janeiro 34 skýjaó Róm 13 rigning San Francisco 14 heiðskírt Stokkhólmur 14 ekýjað Tel Aviv 23 heiöskírt Tókýó 26 heiðskírt Vancouver 14 skýjaó Vínarborg 14 skýjaó Tengdamóðir A. Sakharovs vestur um haf ^ Moskvu, 23. maí — AP. ÁTTRÆÐ tengdamóðir kjarnorkuvísindamannsins Andrei Sakharov, Ruth Bonner, fer til Parísar á morgun áleiðis til Banda- ríkjanna þar sem hún ætlar að heimsækja barnabörn sín að sögn fjölskyldunnar í dag. Frú Bonner fékk vegabréfs- áritun 7. janúar, tveimur vik- um eftir að Sakharov var sendur í útlegð til Gorky. Þetta verður fyrsta utanlands- ferð hennar og hún ætlar að fara aftur til Sovétríkjanna. Vextir lækka New York, 23. maí. AP. ANNAR stærsti viðskiptabanki Bandaríkjanna (Citybank) lækk- aði í dag lánavexti um 2% i 14,5% sem eru lægstu vextir á þessu ári. Á tímabili fóru vextirnir upp í um 20%. Fjórði stærsti bankinn (Hanover) lækkaði einnig vextina í 14,5% að dæmi hins bankans. Flug lamast í Noregi senn Frá fréttaritara Mbl. í Ósió í gær. ALLT áætlunarflug í Noregi og allt þyrluflug til og frá olíusvæð- unum í Norðursjó lamast frá og með morgni þriðjudags í næstu viku vegna verkfalls flugumferð- arstjóra. Norskt leiguflug mun fara um Gautaborg vegna verkfallsins. Gert er ráð fyrir því að verkfallið standi stutt og leysist fyrir föstu- dag í næstu viku. —Lauré. Tæp 99% studdu tillögur Sadats Kairó, 23. mai AP. Norðmenn í Grænlandsviðræður Ósló 23. mai. Frá Jan Erik Laurie, fréttaritara Mbl. „Nær að aðlaga lög- in að tækninni en tæknina að lögunum“ — segir Markús Örn Antonsson — ÉG VÆNTI þess að málið verði tekið íyrir í útvarpsráði strax og meiri upplýsingar liggja íyrir um rannsóknina sem nú stendur yfir, sagði Markús Örn Antonsson útvarpsráðsmaður í gær, þegar Mbl. spurðist fyrir um það hvort ráðið hefði fjailað um þá rannsókn, sem saksóknari heíur krafizt að framkvæmd yrði á innanhússsjónvarpi í fjölbýlishúsum, en sem kunnugt er var það útvarpsstjóri sem beindi þessu máli á sínum tíma til saksóknara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.