Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980
Töluverður straum-
ur fólks úr borginni
Engin skipuleg útihátið um helgina
„HJÁ OKKUR eru allar vélar í innanlandsfluginu frá Reykjavík
fullar fyrir helgina og á fimmtudag og föstudag hefur fólk verið á
biðlistum,“ sagði Sveinn Sæmundsson, blaðafuiltrúi Flugleiða, og
bætti við að fólk virtist ætla að dreifast um landið en nokkuð væri þó
um að fólk færi norður og austur til að njóta góða veðursins þar.
Engin skipuleg útihátíð verður um þessa hvitasunnuhelgi og á
Bifreiðastöð íslands fékk blaðið þær upplýsingar að töluvert væri um
að fólk færi með áætlunarbifreiðum út á land fyrir helgina. Væri útlit
fyrir að talsvert af fólki yrði í Þórsmörk um helgina.
Skólunum er nú að ljúka og að
sögn starfsmanns Bifreiðastöðvar
íslands verður nokkuð um skóla-
ferðalög um helgina og einnig eru
börn og unglingar um þessar
mundir að fara í sveitina.
Hjá Vegaeftirlitinu fékk blaðið
þær upplýsingar að allir fjallvegir
væru lokaðir fyrir umferð og nær
það bann til Sprengisands, Skaga-
fjarðarleiðar úr Vesturdal um
Laugafell, Kjalvegs, Kaldadals og
Uxahryggja. Ástæðan fyrir bann-
inu er aurbleyta og er ekki talið
þorandi að leyfa umferð á þessum
fjallvegum. Allar heiðar eru opnar
en Þorskafjarðarheiði, Vaðlaheiði
og Fljótsheiði eru þó aðeins færar
jeppum.
Víðast eru enn í gildi þungatak-
markanir á vegum og nefndi
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, í því sambandi að mikið
væri um vöruflutninga með flugi
um þessar mundir. Af þessum
sökum hefðu Flugleiðir tekið á
leigu DC-6 vél Iscargo og hefði
vélin flogið eina ferð með vörur til
Akureyrar fyrir helgina.
Veiðar útlendinga í landhelginni:
Norðmenn eru
langt komnir
með skammtinn
NOKKUR fjöldi færeyskra,
norskra og belgískra fiskiskipa
hefur undanfarið stundað veiðar
V erðbótavísitalan:
Hækkar laun
um 11,7%
KAUPLAGSNEFND hefur reikn-
að verðbótavísitölu fyrir 1. júni og
reyndist hún hækka um 11,70%,
var hinn 1. marz 144 stig, en
verður nú 160.85 stig. Hækka laun
þvi almennt um þessa prósentu-
tölu frá og með 1. júní, en
greiðslutímabilið er til 1. septem-
ber. Verðbótavísitalan miðast við
töluna 100 frá febrúarmánuði
1979.
Þá hefur Kauplagsnefnd einnig
reiknað framfærsluvísitöluna í
maíbyrjun 1980, en verðbótavísital-
an er fall af henni. F-vísitalan
reyndist vera 2.361 stig eða 276
stigum hærri en í •febrúarbyrjun.
Hlutfallshækkun framfærsluvísi-
tölunnar frá febrúar til maí er
13,23%. í fréttatilkynningu frá
Hagstofu Islands, sem Morgunblað-
inu barst í gær er sú skýringgefin á
þessari hækkun: „Var um að ræða
hækkun á fjölmörgum vöru- og
þjónustuliðum, innlendum og er-
lendum, m.a. í kjölfar 6,67% launa-
hækkunar 1. marz 1980.“
í íslenzkri landhclgi og aflað
ágætlega.
Færeyingar eru búnir að veiða
5448 tonn af 17 þúsund tonna
bolfiskkvóta, en þorskafli þeirra
er orðinn 1334 tonn, en Færey-
ingar mega veiða 5 þúsund tonn af
þorski.
Norðmenn eru langt komn-
ir með að veiða það magn sem
þeim er heimilt, eða 1761 tonn af 2
þúsund tonnum. Af þorski eru þeir
búnir að veiða um 265 tonn og eiga
aðeins tonn eftir, því hámarks-
þorskafli þeirra er 300 tonn. Belg-
ar eru búnir að veiða 2077 tonn við
ísland í ár, en mega veiða 5000.
Þorskur má vera 15% af heildar-
afla Belga, en er nú 17% af
aflanum, en Belgar eiga langt í
land með að ná leyfilegu hámarki.
Handavinnusýning
nemenda Kennara-
háskólans
HANDAVINNUSÝNING nem-
enda úr Kennaraháskóla íslands
verður í Kennaraháskólanum við
Laufásveg dagana 24. til 26. maí.
Sýningin verður á öllum þremur
hæðum hússins og verður hún
opin kl. 4 til 10 á laugardag, en 2
til 8 á sunnudag og mánudag.
Garðakirkja
Garðakirkja 100 ára
undir þak sumarið 1959. 1960 er
Garðahreppur gerður að sér-
stakri sókn og var kirkjan vígð
20. marz 1966.
Hátíðarhöldin á annan dag
hvítasunnu hefjast í Garða-
kirkjugarði kl. 13.15. Þar mun
Garðakórinn syngja og frú Úlf-
hildur Kristjánsdóttir leggja
blómsveig að leiði prófastshjón-
anna fyrir hönd safnaðarins. Að
því loknu, eða kl. 13.30 fer fram
hátíðarguðsþjónusta í Garða-
kirkju. Biskup íslands, dr. Sigur-
björn Einarsson prédikar og
Garðakórinn syngur undir stjórn
Þorvaldar Björnssonar organista.
Skátar standa heiðursvörð bæði í
kirkjugarðinum og í kirkjunni.
Hátíðardagskrá hefst síðan kl.
15.30 í hinu nýja safnaðarheimili
Garðasafnaðar á Hofstaðahæð.
Verður fyrsti hluti hússins tekinn
í notkun þennan sama dag. Dag-
skráin hefst með því að formaður
sóknarnefndar, Helgi K. Hjálms-
son flytur ávarp, Guðmundur
Benediktsson ráðuneytisstjóri
flytur minni séra Þórarins og
Garðakórinn ásamt hljóðfæra-
leikurum flytja hátíðartónlist.
Safnaðarheimilið er öllum opið
frá kl. 15—17 og er boðið þar upp
á veitingar.
I tilefni afmælisins verður
einnig gefinn út veggplatti með
mynd af Garðakirkju. Aðeins eru
framleiddir 200 tölusettir plattar.
Hátíðarhöld
í tilefni
þess annan
í hvítasunnu
Á ÞESSU vori eru hundrað ár
liðin síðan séra Þórarinn Böðv-
arsson prófastur byggði nýja
kirkju í Görðum á Álftanesi og
var hún reist á nýjum grunni,
því áður hafði kirkja staðið
nálægt miðjum kirkjugarðinum.
Garðar eru forn og frægur
staður og þar mun hafa verið
kirkja frá öndverðu. Efnt verður
til hátíðarhalda á annan dag
hvitasunnu í tilefni þessara
merku timamóta.
. Grjótið í veggi kirkjunnar var
tekið í holtinu fyrir ofan Garða-
stað og vandað var til nýju
kirkjubyggingarinnar. Þá fól séra
Þórarinn syni sínum, Jóni, síðar
fræðslumálastjóra, sem þá var
við nám í Kaupmannahöfn, að
velja kirkjunni búnað.
Garðakirkja var lögð niður, er
kirkja var byggð í Hafnarfirði
árið 1914, en var þó notuð við
útfararathafnir allt til ársins
1937. Haustið 1938 var kirkjan
rifin og stóð þá eftir tóftin ein
öllu rúin og illa útleikin.
Mörgum sveið ástand kirkjunn-
Legsteinn séra Þórarins Böðv-
arssonar í Garðakirkjugarði.
ar og við stofnun kvenfélags í
Garðahreppi vakti frú Úlfhildur
Kristjánsdóttir á Dysjum máls á
því að ömurleg væru örlög Garða-
kirkju og bar fram þá tillögu, að
konurnar beittu sér fyrir því að
bæta hér úr. Konurnar létu hend-
ur standa fram úr ermum við að
reisa kirkjuna og komu henni
Stefán Veturliðason og Guðmundur Hraunberg Egilsson í hlutverkum
sfnum.
Állt í flækju
á Bolungarvík
Bolungarvik. 23. mai.
Hlutavelta
KSS annan í
hvítasunnu
ANNAN dag hvítasunnu
gangast Kristileg skóla-
samtök fyrir hlutaveltu í
húsi KFUM og K við Lyng-
heiði í Kópavogi. Hefst hún1
kl. 13 og er miðaverði þann-
ig háttað að fyrsti miði
kostar kr. 500, annar kr.
400, þriðji og fjórði kr. 300
og allir miðar fram yfir það
kr. 250. Ágóði hlutaveltunn-
ar rennur til starfs KSS, en
félagið hefur nú starfað í 34
ár meðal unglinga 14—20
ára. I sumar eiga Kristileg
skólasamtök þátt í að halda
norrænt kristilegt skólamót
á Akranesi dagana 25.—31.
júlí.
LEIKFÉLAG Bolungarvíkur
frumsýnir gamanleikinn „Flæktur
í flækjuna", laugardaginn 23. maí,
klukkan 21 í Félagsheimili Bol-
ungarvíkur. Gamanleikur þessi er
eftir Jack Poppwell og leikstjóri er
Þröstur Guðbjartsson. Átta leik-
arar koma fram í leikritinu. Með
aðalhlutverk fara þau Stefán Vet-
urliðason og Þorbjörg Magnús-
dóttir.
Næstu sýningar á leikritinu
verða í Bolungarvík annan í
hvítasunnu klukkan 15 og 21.
Síðan er gert ráð fyrir að sýna
leikritið 29. maí á Flateyri, 6. júní
á Bíldudal, 7. júní á Þingeyri og 8.
júní á Suðureyri.
Gunnar.