Morgunblaðið - 24.05.1980, Side 27

Morgunblaðið - 24.05.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980 27 75 ÁRA verður á hvítasunnudag, 25. maí, Böðvar Eyjólfsson bað- vörður í Kópavogsskóla, Hlíðar- vegi 7 í Kópavogi. Hann verður að heiman. Pétur á Akranesi og Grundartanga PÉTUR J. Thorsteinsson var á Akranesi á þriðjudag og miðviku- dag, og þar kom hann viða við. Hann heimsótti þar fjölmarga vinnustaði og sat fund Lionsklúbbs Akraness. Pétri var mjög vel tekið og alls staðar var mikill áhugi starfsfólks- ins fyrir heimsókninni, og vildu menn gjarnan hlýða á mál fram- bjóðandans. Pétur var einnig spurður marg- þættra spurninga um forsetaemb- ættið, og sjálfan sig og sinn feril o.fl. Hann rakti í stórum dráttum í ræðum sínum starfsvettvang og starfssvið forseta, og sagði frá sínum eigin starfsferli. Oft var spurt um valdsvið forseta og svaraði Pétur öllum slíkum spurningum um hæl. Spurt var um hlutverk forseta í sambandi við stjórnarmyndanir og ýmsar aðrar stjórnarathafnir, og gerði Pétur grein fyrir þeim þáttum starfsins, og jafnframt sínum eigin skoðunum í þessu sambandi. Á Grundartanga heimsótti Pétur J. Thorsteinsson starfsmenn Járn- blendifélagsins. Þar hélt hann tvívegis ræðu og skýrði sín sjónar- mið gagnvart embætti forseta Islands. Pétur mun á næstu dögum halda áfram að fara á vinnustaði víða um land, en hann hefur lagt á það megináherslu að kynna sig sem mest sjálfur, og ræða við kjósendur. Innan fárra daga tekur til starfa sérstök framkvæmdanefnd á Akra- nesi, og þar verður einnig opnuð skrifstofa stuðningsmanna Péturs J. Thorsteinssonar. KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR frá Öndverðarnesi í Grímsnesi, Hólsvegi 11, Rvík., verður níræð á morgun, 25. maí, hvítasunnudag. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í félagsheimili Fóstbræðra kl. 15—17 á afmælisdaginn. DAGBJÖRT SÆMUNDSD ÓTT- IR, Hrafnistuheimilinu í Hafnar- firði, verður áttræð á morgun, 25. maí. Afmælisbarnið verður þá statt á Sauðárkróki, á heimili sonarbarna sinna að Birkihlíð 37 þar í bæ. MARTIN C. FREDERIKSEN vél- stjóri, Hagamel 34 hér í bænum, verður sjötugur á morgun, hvíta- sunnudag, 25. maí. Hann var vélstjóri á Sambandsskipum í rúmlega 20 ár. Er nú kominn í land. Kona Martins er Guðrún West og eiga þau fimm börn. Skrifstof a Guðlaugs opnuð í Garðabæ STUÐNINGSMENN Guð- laugs Þorvaldssonar í Garðabæ og Bessastaða- hreppi hafa stofnað 30 manna trúnaðarmannaráð og verður skrifstofa opnuð Ferðamála- ráðstefna á Akureyri FERÐAMÁLARÁÐSTEFNAN 1980 var haldin á Akureyri dagana 16. og 17. mai s.l. Forseti bæjarstjórnar Freyr Ófeigsson ávarpaði ráðstefnuna og bauð gesti velkomna. Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri flutti kveðjur samgönguráðherra og síðan lagði formaður Ferðamálaráðs, Heimir Hannesson, fram ársskýrslu ráðsins fyrir árin 1978 og 1979. Snæbjörn Jónasson, vegamálastjóri flutti erindi um vegamál og Ludvig Hjálmtýsson, ferðamálastjóri flutti erindi um ferðamál og þróun þeirra. Síðari daginn störfuðu nefndir. Um 90 manns víðsvegar að af landinu, sóttu ráðstefnuna og var samþykkt- ur fjöldi ályktana um margvísleg mál er snerta ferðalög og umgengni um landið, tjald- og útivistarsvæði, veiðimál og fleira. (FréttatilkynninK Fcrðamálaráðs). Per H. Wallin leikur í Reykjavík 26. maí SÆNSKI píanóleikarinn Pcr Hen- rik Wallin heldur tónleika á Hótel Borg mánudaginn 26. maí ki. 15, i Djúpinu miðvikudaginn 28. maí kl. 21 og i Norræna húsinu laugardag- inn 31. maí kl. 16. á næstunni. Á meðal þeirra sem ráöið skipa eru eftirtaldir: Guðfinna Snæbjörns- dóttir félagsmálafulltrúi, Halldór Valdimarsson blaðafulltrúi, Gunnar Steingrímsson fulltrúi, Steingrímur Hermannsson ráðherra, Erlendur Sveinsson lögregluvarðstj., Hannes Pétursson skáld og Jóhannes R. Snorrason flugStjÓrí. (Fréttatilkynning) Pétur J. Thorsteinsson, forsetaframbjóðandi ræðir við kjósanda á förnum vegi á Akranesi. Þjóðin kýs“ komið út n ÚT ER komið fyrsta tölublað stuðningsmannablaðs Vigdísar Finnbogadóttur við forsetakjör. Blaðið sem nefnist þjóðin kýs. er gefið út í sjötiu og fimm þúsund eintökum og verður dreift um land allt. Á forsíðu er birt ávarp til landsmanna, undirritað af áttatíu og fimm körlum og konum víðs vegar um land. Þá er í blaðinu viðtal við Vigdísi, þar sem Hjörtur Pálsson ræðir við hana. Ennfrem- ur eru í blaðinu ýmsar frásagnir af kosningaundirbúningi, upplýs- ingar og ábendingar ti) kjósenda. Þá er þar greinin „Af hverju kjósum við Vigdísi Finnbogadótt- ur forseta íslands" eftir Guðrúnu L. Ásgeirsdóttur í Mælifelli. Úr fréttatUkynnlngu. Aðalfundur Málarafélags Reykjavíkur AÐALFUNDUR Málarafélags Reykjavíkur var haldinn laugar- daginn 26. apríl s.l. Formaður var kosinn Hjálmar Jónsson en aðrir í stjórn: Kristján Guðbjartsson, varaformaður, Guðmundur Stefánsson, ritari, Ragnar Eggertsson, ritari stjórn- ar og Leifur 0. Dawson, gjaldkeri. Varamenn voru kosnir þeir Jón Hrafn Jónsson og Kjartan Kjart- ansson. Úr stjórninni gengu þeir Sæ- mundur Bæringsson og Sigurður Pétursson og voru þeim þökkuð störf í þágu félagsins. (Fréttatilkynning) Per H. Wallin er fæddur árið 1946 og er um þessar mundir eitt stærsta nafnið í sænskum nútímadjassi. Wallin kemur hingað á vegum Gall- erí Suðurgata 7. Hvers vegna er bensínið svona dýrt? 430 kr. ilnnkaupsverö (sif);...139.02 kr. .Opinber gjöld:........247.42 kr. Álagning/dreifing:.....25.50 kr. Verðjöfnunargjald:......3.87 kr. Sölulaun:..............14.28 kr. Á öld sífelldra verðhækkana er nauðsynlegt að velja bíl sem sam- einar sparneytni og lítinn viðhalds- kostnað. Frammistaða Volvo í sparakstri hefur sitt að segja, en það er ekki síður nauðsynlegt að bílinn þinn geti sameinað sparneytni, gæði og öryggi. Þar hefur Volvo yfirburði, sem varla er hægt að líta framhjá! Líttu á bensínverðið - og talaðu svo við sölumennina í Volvosalnum. VOLVO Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200 ÁRfMAÐ HEILLA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.