Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980
HLAÐVARPINN
Umsjón/ÁRNI JOHNSEN
Matarlyst:
Fertugur maður hefur borð-
að umfang strætisvagns
LjÓHin. Mbl. Ó1 K M
Hópferðabiil með sama rúmmál og allur maturinn sem fertugur
maður hefur borðað. Það er mikill stærðarmunur á rútunni og
manninum og ótrúiegt að einn maður hafi borðað slikt hlass.
MATUR er mannsins megin
segir máltækið og það eru víst
orð að sönnu, því þegar að er
gáð þá er það ekkert smáræði
sem mannskepnan hesthúsar
af mat, það er þeir sem búa við
aðstæður velferðarþjóðfélags-
ins. Það má reikna með að
maður borði um eitt tonn eða
liðlega einn rúmmetra af fæðu
á ári og hjá fertugum manni
er því um að ræða 40—50
rúmmetra. Til þess að gera sér
grein fyrir því hvað mikið
þetta er er ágætt að taka einn
strætisvagn eins og sést á
myndinni. Strætisvagn frá
hólfi í gólf, út og suður er jafn
stór og það sem sá fertugi
hefur innbyrt af fæðu og það
er því líklega ekki svo vitlaust
máltækið sem segir: Allt er
fertugum fært.
íslenzki fáninn
Skal ónýttur með
því að brenna hann
Vel logaði í fánanum og viku varöskipsmenn ekki frá staönum fyrr en
ekkert var eftir nema svört askan, sem nnsta aöfall afmáir.
Ljósm. Mbl. Fríóa Proppé.
í leiöbeiningum um meö-
ferð íslenzka fánans segir:
„Óheimilt er að draga fána
á stöng, sem er upplitaður,
óhreinn, trosnaður eöa
skemmdur að öðru leyti, og
ber jafnan að lagfæra hann
strax, að öðrum kosti skal
hann ónýttur meö því að
brenna hann.“
Varöskipin okkar sigla
ætíð með þjóðfánann að
húni og er ofangreindum
Visur:
„Þú mátt
leita,
lagsi minn“
Vélaborg hf. í Reykjavík sem
m.a. selur URSUS-dráttarvélarn-
ar efndi fyrir skömmu til vísna-
samkeppni um URSUS-traktor-
ana (Ursus þýðir björn) og voru
jarðtætari, áburðardreifari og
ensk girðingartaeki í verðlaun, alls
upp á kr. 790 þús. Nær 500 vísur
bárust, flestar úr sveitum landsins
en einnig frá fjölmörgum úr
þéttbýli. Þeir Sigurður Jónsson
frá Haukagili, Magnús Guð-
brandsson og Baldur Þorsteinsson
voru skipaðir í dómnefnd og voru
eftirfarandi vísur valdar til þess
að að hljóta 1., 2. og 3. verðlaun.
Sú sem hlaut fyrstu verðlaun er
eftir Ólafíu Ólafsdóttur frá Víði-
völlum við Elliðavatn:
6. l>ú mátt lcita, laitsi minn.
í landsins vélasafni.
engan svíkur Úrsusinn
undir bjarnarnafni.
Önnur verðlaun hlaut vísa eftir
Áslaugu Jónsdóttur, Melaleiti í
Melasveit:
Markaósvaran misjöfn er
margt er reynt aö bjóða.
Tegund ein þó af þeim ber
Ursus-vélin góða.
Þriðju verðlaun hlaut vísa
Gunnars Oddssonar frá Flata-
tungu í Skagafirði:
Birti skjótt um bóndans rann
bjarcast gnótt af heyi
af elju ojí þrótti Ursus vann
eins á nótt sem dejti.
Og Oddur sendi einnig aðra
vísu:
Lipur eins oj; léttur klár
iaus við alla klæki.
Ursus-vélar á éjt þrjár
orujtk húmannstæki.
Garðar Pálmi
Dýrasta skák landsins
FJARVERA stjórnarliða úr
þingsölum aðfaranótt fimmtu-
dags varð til þess að tillaga
Jóhönnu Sigurðardóttur og Árna
Gunnarssonar um 225 milljóna
króna aukningu framkvæmda-
sjóðs fyrir þroskahefta var sam-
þykkt. Sagan segir, að á meðan
atkvæðagreiðslan fór fram hafi
þeir Pálmi Jónsson ráðherra og
Garðar Sigurðsson alþingis-
maður setið að tafli og segja
menn þetta dýrustu skák
Islandssögunnar, þar sem hún
hafi kostað 225 milljónir verð-
tryggðar.
íslenzkir vísindamenn í BBC
ÍSLENZKIR vísindamenn hafa
komið þó nokkuð við sögu tveggja
vísindaþátta Derek Blissard í BBC
World Service nýlega.
Fyrri þáttu.rinn fjallaði um
spurninguna hvort veðurfar færi
kólnandi í heiminum og í því
sambandi var haft viðtal við Þór
Jakobsson veðurfræðing um „litlu
ísöldina" svokölluðu fyrr á öldum
er íslendingar fengu að kenna á.
Vitnað var til afdrifa landnem-
anna á Grænlandi eins og jafnan
þegar fjallað er um þetta efni og
Þór las meðal annars upp úr
íslenzkum annál frá því rétt fyrir
1700.
Síðari þátturinn fjallaði um
jarðskorpuna og kallaðist „Journ-
ey to the Centre of the Earth"
eftir hinni frægu sögu Jules Verne
sem kom út á íslensku í þýðingu
Bjarna Guðmundssonar undir
heitinu „Leyndardómar Snæfells-
jökuls". Þar var meðal annars haft
viðtal við Stefán Árnason um
nýtingu jarðhita í Hveragerði og
dr. Jón Guðmundsson lýsti m.a.
möguleikum þróunarlanda í Af-
ríku og Mið-Ámeríku til að nýta
sér þessa tækni. Meðal annars var
sagt frá tilraunaborunum í
Northhampton á Englandi, vitnað
til tilraunaborana í Frakklandi og
Ungverjalandi á tíma aukinnar
prkukreppu og bent á forgöngu
íslendinga á þessu sviði.
Raunvextir aðeins yf ir áramót
ÞINGMENN Framsóknarflokks-
ins hafa af því þungar áhyggjur,
hversu núverandi ríkisstjórn sýnir
Ólafslögunum títtnefndu mikla
léttúð, einkum kaflanum um
vaxtamál.
Nú hefur ríkisstjórnin hins veg-
ar bruggað áætlun sem á að létta
áhyggjum framsóknarmanna.
Megintakmark vaxtakafla Ólafs-
laga er að raunvextir verði komnir
á og gildi um áramótin. Meiningin
er að 30. desember, þegar bankar
hafa lokað, verði vextir hækkaðir
upp í verðbólgustigið, en síðan
verði þeir snarlega lækkaðir aftur
áður en bankar opna á nýju ári.
Þetta tryggir það að Olafslög
verða í heiðri höfð með raunvöxt-
um um áramót.
Bjargfuglaegg:
Sjóða skal í 7
mín. og 13 sek.
Oft þarf að sæta lagi við að komast upp í bergið.
NÚ ER varptíminn á fullu í
björgum landsins og þeir sem
nytja landið á þann forna hátt að
fara í egg til fjalla eru nú í óða
önn að tína soðninguna. Víða á
landinu er farið í egg, kríuegg,
máfsegg, en þó fyrst og fremst í
svartfuglsegg og fýlsegg og þar
Þorkell í Sandprýði, Siggi Karls, Gaui á Látrum og Valur Andersen
gera klárt fyrir eggjaferð í Skerið.